Dagur - 21.10.1986, Qupperneq 9
21. október 1986 - DAGUR - 9
uþróttir.:
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Knattspyrna:
Verður hálfatvinnu-
mennska tekin
upp á Akureyri?
- „Það verður gert innan fárra ára,“ segir Stefán Gunnlaugsson
formaður Knattspyrnudeiidar KA
Stefán Gunnlaugsson formað-
ur knattspyrnudeildar KA hef-
ur látið hafa það eftir sér, að
innan fárra ára verði komin
hálfatvinnumennska í íslenska
knattspyrnu. Ekki er víst að
Stefán Gunnlaugsson.
allir séu sammála Stefáni
en til þess að fá nánari skýr-
ingu á hvað Stefán er að tala
um, hafði Dagur samband við
hann og spurði nánar út í þetta
atriði.
„Ég er á því að innan fárra ára
verði komin á hálfatvinnu-
mennska á Akureyri. Pá t.d.
vinna menn hjá sínum fyrirtækj-
um fram að hádegi og mæta svo á
æfingu eftir hádegi. í dag eru
leikmenn að mæta dauðþreyttir á
æfingu, eftir 10 tíma vinnu. Við
það að koma á hálfatvinnu-
mennsku verður knattspyrnan
mun betri og með betri knatt-
spyrnu koma fleiri áhorfendur á
völlinn. Ef við fáum 1000 áhorf-
endur á völlinn í dag er ég viss að
við fáum helmingi fleiri við að
koma á hálfatvinnumennsku.
Ég er ekki að tala um að taka
þessa peninga beint af neinum
öðrum. Þetta verður rekið fyrst
og fremst með auknum fjölda
Landsmót UMFÍ:
Guðni ráðinn
framkvæmdastjóri
HSÞ hefur ráðið Guðna Hall-
dórsson sem framkvæmda-
stjóra Landsmóts UMFÍ sem
haldið verður á Húsavík 10.-
12. júlí 1987.
Guðni hefur undanfarin ár ver-
ið framkvæmdastjóri og formað-
ur Frjálsíþróttasambands fslands
og öðlast mikla reynslu við undir-
búning stórra móta s.s. Evrópu-
mótsins í Reykjavík og Reykja-
víkurmótsins. Hann var einn af
bestu frjálsíþróttamönnum Þing-
eyinga fyrir nokkrum árum.
Guðni mun hefja störf sem
framkvæmdastjóri landsmótsins
um áramót. „Þetta er sá maður
sem við helst óskuðum okkur að
fá í upphafi, en þá voru aðstæður
hans þannig að ekki var reiknað
með að það væri hægt. Nú er
ráðningin orðin að veruleika og
við erum mjög ánægð með að fá
Guðna til starfa. Hans bíða mikil
verkefni við að tryggja fjárhag
mótsins og ómæld vinna við all-
an undirbúning þann tíma sem
hann starfar hjá okkur,“ sagði
Kristján Yngvason formaður
HSÞ. IM
áhorfenda og auglýsingatekjum.
Til að byrja með yrði þetta 4-5
mánaða tímabil á ári eða rétt yfir
keppnistímabilið sjálft,“ sagði
Stefán.
- En hvað með þau lög, um að
atvinnumennska sé bönnuð á ís-
landi?
„Þetta er nú margbrotið alls-
staðar í kringum okkur. Það er
hægt að fóðra þetta á margan
hátt, t.d. með því að skrá leik-
menn sem þjálfara. Gott dæmi
um slíkt er þegar KR-ingar voru
að fá Argentínumennina í fyrra-
vetur. Þeir voru munstraðir sem
þjálfarar en voru fyrst og fremst
að koma hingað sem leikmenn.
Það er mín skoðun, að ef við
hér fyrir norðan ætlum ekki að
verða á eftir, þá þurfum við að
verða með þetta á undan sunnan-
liðunum. Það er miklu auðveldara
að reka gott lið heldur en lélegt,
þó kostnaðurinn við það sé meiri.“
- En ef við snúum okkur þá að
öðru. Hvernig hefur verið að fá
fólk til að starfa fyrir KA?
„Það hefur ekki gengið nógu
vel en mér sýnist það vera að
glæðast. Það sem helst vantar
núna er að fá fólk til að styðja við
bakið á yngri flokkunum og þá
sérstaklega í handboltanum. Ég
vil bara skora á fólk sem vill
leggja því máli lið að láta sjá sig í
KA-húsinu og þá sérstaklega for-
eldra þeirra barna sem stunda
íþróttir í félaginu. Þetta hefur
gengið betur í fótboltanum og nú
erum við að undirbúa heilmikið
mót í knattspyrnu fyrir 5. flokk
sem haldið verður hér á Akureyri
í júní á næsta ári. Þar verða sam-
an komnir fleiri hundruð ungir
knattspyrnumenn úr liðum víðs
vegar af landinu.
Við KA-menn höfum hug á að
leggja enn meiri áherslu á upp-
byggingarstarf yngri flokkanna í
félaginu í nánustu framtíð,"
sagði Stefán Gunnlaugsson að
lokum.
t \ WÚið
■' vf' ‘'yUL t P-';' ;• jÍKiP;
Kraftlyftingamenn kampakátir eftir sigurinn í bekkpressukeppninni. F.v. Kári, Haraldur, Flosi,
ingur.
Aðalsteinn og Vík-
Mynd: RPB
Pétur Pétursson verður í leikbanni gegn A.-Þjóðverjum.
Knattspyrnulandsliðið tilkynnt:
- Pétur Pétursson í ieikbanni
Sigi Held landsliðsþjálfarí
íslands í knattspyrnu hefur
valið liðið sem leikur gegn
Austur-Þjóðverjum þann 29.
október næstkomandi. Leikur-
inn er þriðji leikur íslands í
Evrópukeppninni og fer hann
fram ytra. Islenska liðið gerði
jafntefli í fyrstu tveim leikjun-
um, fyrst 0:0 við Frakka og síð-
an 1:1 jafntefli við Sovétmenn
sem frægt er orðið.
Hópurinn er nánast sá sami og
lék gegn Sovétmönnum um
daginn. Pétur Pétursson ÍA getur
ekki leikið vegna leikbanns og
Viðar Þorkelsson var ekki valinn.
Þeir sem koma nýir í hópinn eru
þeir Guðmundur Torfason og
Pétur Ormslev úr Fram. Liðið
sem heldur til A.-Þýskalands er
skipað eftirtöldum leikmönnum:
Markverðir:
Bjarni Sigurðsson Brann
Friðrik Friðriksson Fram
Aðrir leikmenn:
Ágúst Már Jónsson KR
Amór Guðjohnsen Anderlecht
Ásgeir Sigurvinsson Stuttgart
Atli Eðvaldsson Uerdingen
Guðmundur Torfason Fram
Guðmundur Þorbjörnsson Baden
Guðni Bergsson Val
Gunnar Gíslason KR
Ólafur Þórðarson í A
Ómar Torfason Luzern
Pétur Ormslev Fram
Ragnar Margeirsson Waterchei
Sigurður Jónsson Sheff.Wed.
Sævar Jónsson Brann
Guðmundur og
Pétur í hópinn
Kraftlyftinga-
menn unnu
Leiðtogabikarinn
Bekkpressukeppni í lyftingum
á milli kraftlyftingamanna og
vaxtarræktarmanna á Akur-
eyri fór fram í Jötunheimum,
sal LRA í Höllinni á föstudag-
inn var. I hvorri sveit voru 5
keppendur og var keppt um
hinn glæsilega Leiðtogabikar
sem Gunnar Eiríksson hjá
íslenskum æfingatækjum gaf
til keppninnar.
anna varð þessi, fyrst kemur lík-
amsþyngd keppenda, þá hvað
þeir lyftu mörgum kg og loks
stigafjöldi.
Lyftingamenn:
Kári 71,8-165-113,553
Víkingur 131,8-207,5-106,406
Flosi 93,7-150-85,800
Haraldur 79,3-110-70,070
Aðalsteinn 61.4-70-55,580
Samtals 431,409 stig
Þetta var í þriðja sinn sem
þessar sveitir leiða saman hesta
og lið kraftiyftingamanna hélt
uppteknum hætti og sigraði
nokkuð örugglega. Sveitin hefur
sigrað í öll þrjú skiptin og vann
því Leiðtogabikarinn til eignar.
Lið kraftlyftingamanna var skip-
að þeim Kára Elísyni, Víkingi
Traustasyni, Flosa Jónssyni, Har-
aldi Ólafssyni og Aðalsteini
Kjartanssyni. í liði vaxtarrækt-
armanna voru Sigurður Gests-
son, Sverrir Gestsson, Björn
Broddason, Pétur Broddason og
Jón Knútsson. Árangur sveit-
V axtarræktarmenn:
Sigurður 86,9-155-92,721
Pétur 88,3-130-76,986
Jón 92,9-130-74,711
Björn 84,2-110-67,177
Sverrir 63,6-85-65,203
Samtals 376,798 stig
Eins og sést á þessari töflu náð-
ist nokkuð góður árangur og
greinilegt að menn eru að komast
í form. Framundan er Grétars-
mótið í kraftlyftingum en það fer
fram 8. nóvember og þá hefur
Kári Elíson sett stefnuna á
heimsmeistaramótið í kraftlyft-
ingum sem fram fer í Hollandi
um miðjan næsta mánuð.