Dagur - 21.10.1986, Page 11
21. október 1986 - DAGUR - 11
Hjónaminning
María Guörún Ámadóttir
og Stefan Jón Valdimarsson
„Sá ffyturgott hlass í garð
sem góða konu fær. “
Þetta máltæki kom mér í hug
{jegar ég frétti andlát Maríu
Árnadóttur frá Lambhaga í Hrís-
ey. Hún var mikil kostakona.
Allt hennar fas, öll hennar orð og
allar hennar gjörðir báru þess
glöggt vitni.
Hennar ástkæri eiginmaður og
lífsförunautur Stefán Jón Valdi-
marsson lést fyrr á þessu ári. Á
honum fannst mér sannast boð-
skapur máltækisins og líf hans allt
bera merki farsæls hjónabands og
þeirrar hamingju sem því er sam-
fara.
María fæddist 9/12 1896 á
Leifsstöðum í Svartárdal í Húna-
vatnssýslu og andaðist 8/10 1986
á Akureyri, en Jón fæddist 9/2
1898 á Litla-Árskógi í Eyjafirði
og dó 13/2 1986 á Akureyri.
Þau voru því bæði orðin öldruð
þegar kallið kom en vel ern þrátt
fyrir það. í*að er ekki ætlun mín í
þessari stuttu kveðju að rekja
æviferil þeirra hjóna enda er ég
aðeins kunnugur litlum hluta
hans. Þó veit ég að lengstan hluta
ævinnar bjuggu María og Jón í
Hrísey. Þau byggðu sér fallegt
heimili, Lambhaga, og ólu þar
upp sín börn. Þar hygg ég að hug-
urinn hafi lengstum verið, enda
báru þau hag eyjarinnar mjög
fyrir brjósti.
María og Jón eignuðust 5
börn, Guðlaugu Elsu, Valdísi
Guðbjörgu, Siguróla Björgvin,
Sigurstein Brynjar og Eyrúnu
Selmu. Fjögur barnanna eru á
lífi, en í desember 1979 andaðist
Siguróli Björgvin, Olli eins og
hann var jafnan kallaður. Það var
öllum sem til þekktu þung raun
og ekki síst öldruðum foreldrum
þó að ekki bæru þau sorg sína á
torg.
Fyrir 25 árum varð móðir mín
tengdadóttir þeirra hjóna, þegar
hún giftist Olla. í framhaldi af
því varð ég þeirrar ánægju
aðnjótandi að kynnast Maríu og
Jóni sem ömmu og afa og síðar
langömmu og langafa.
Fyrst í stað voru kynnin ekki
mikil en alltaf góð. Eftir að ég
eignaðist fjölskyldu og flutti til
Hríseyjar vorið 1976 komum við
hjónin oft á heimili Maríu og
Jóns við Gilsbakkaveg 11 á
Akureyri, en þangað fluttu þau
haustið 1972.
Þar var ætíð gott að koma.
Höfðingsskapur og gestrisni voru
einkennandi fyrir heimilishaldið
og það var í raun og veru mann-
bætandi að heimsækja þau hjónin
vegna þess hve jákvæðum augum
þau litu tilveruna og lögðu sig
fram við að láta öðrum líða vel.
Það var einnig eftirtektarvert
hvað þau fylgdust vel með tíðar-
andanum og voru laus við for-
dóma í garð unga fólksins. Fyrir
vikið voru þau meira en afi og
amma, langafi og langamma
afkomenda sinna. Þau voru
einnig góðir vinir þeirra.
Margt var rætt, bæði um löngu
liðna tíða, hið daglega amstur og
framtíðina. Þetta voru ljúfar
stundir. Jón sýndi manni gjarnan
þá handavinnu sem hann var að
fást við en hann var smiður góður
og seinustu árin kom handlagni
hans fram í vegg- og gólfteppum
sem hann vann með fjölbreyttu
móti.
Eins var Maríu farið. Þrátt fyr-
ir fjölda barna og barnabarna
gleymdust langömmubörnin ekki
og litlir fætur fengu leista eða
aðra vel þegna muni sem báru
þeim er gaf gott vitni. María var
ákaflega traustur vinur vina sinna
og bar duglega blak af þeim ef
henni fannst á þá hallað. Menn
stóðu heldur ekkert uppi í hár-
inu á henni og hún gat komið
sinni meiningu glöggt til skila án
nokkurs fyrirgangs eða hávaða.
Slík var hennar reisn.
Að þeim Maríu og Jóni gengn-
um koma mér í hug erindi úr
kvæði góðskáldsins Jónasar Hall-
grímssonar.
Dýrðlegt er að sjá,
eftir dag liðinn,
haustsól brosandi
í hafið renna,
hnígur hún hóglega
og hauður kveður
friðarkossi,
og á fjöllum sest.
Svo er um ævi
öldungmanna
sem um sumar-
sól fram runna;
hníga þeir á haustkvöldi
hérvistardags
hóglega og blíðlega
fyrir hafsbrún dauða.
Vaka þá og skína
á vonarhimni
alskærar stjömur,
anda leiðtogar
traust og trú
og tryggrar speki
augað ólygna,
og andamir lifa!
Að leiðarlokum viljum við
hjónin og synirnir þakka innilega
fyrir indæla samfylgd og ánægju-
legar stundir.
Við vottum aðstandendum öll-
um okkar dýpstu samúð og biðj-
um guð að blessa minningu
þeirra heiðurshjóna.
Valtýr Sigurbjarnarson.N
VEGAGERÐIN
Útboð
Snjómokstur
Vegagerð ríkisins og Flugmálastjórn óska eftir til-
boðum í snjómokstur á vegum og flugvöllum í
Húnavatnssýslum og Skagafjarðarsýslu.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
Sauðárkróki, Blönduósi og Hammstanga frá og með
20. þ.m.
Skila skal tilboðum til Vegagerðar ríkisins á Sauðár-
króki fyrir kl. 14.00 þann 3. nóvember 1986.
Vegamálastjóri.
Flugmálastjóri.
ijg Auglýsing
frá landbúnaðarráðuneytinu um
innflutning jólatrjáa.
Ráðuneytið vekur athygli á því, að samkvæmt 42.
grein laga nr. 46/1985 er innflutningur jólatrjáa
óheimill, nema með leyfi landbúnaðarráðuneytisins.
Umsóknir, með upplýsingum um tegund, fjölda,
gæði, stærð og verð, sendist sem fyrst til landbúnað-
arráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík.
Landbúnaðarráðuneytið
16. október 1986.
Heilsugæslustöðin
á Grenivík.
Mænusóttarbólusetning
Almenningi á Grenivík, í Grýtubakkahreppi og
Hálshreppi er boðið upp á bólusetningu gegn
mænusótt (lömunarveiki) miðvikudaginn 22. október
nk. kl. 15.00-17.00 á Heilsugæslustöðinni.
Hafið meðferðis ónæmisskírteini.
Bólusetningin kostar 100.- kr.
Hjúkrunarfræðingur.
Gabriel demparar
í flestar tegundir bifreiða.
Kúplingsdiskar í Renault, Skoda, Fiat, Land-
Rover, Range-Rover, jeppa og fleira.
Kertaþræðir í settum í: Mazda, Volvo, Charade,
6 og 8 cyl. Ford og Chevrolet.
Platínur í: Mazda, Honda, Toyota, Daihatsu, Uno
og Lada.
Olíurofar í: Mazda, Isuzu, Toyota, Daihatsu.
í Lada: Spindilkúlur, stýrisendar, hjöruliðir, tíma-
keðjusleðar o.fl.
Allt hlutir frá Hábergi Reykjavík.
Bílarétting Skála, Akureyri.
Sími 22829.
AW
Óskum eftir
góðum starfsmanni
á lager og við útkeyrsiustörf.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknir er greini aldur og fyrri störf sendist á
afgreiðslu Dags merkt: „Lagerstarf“ fyrir 1.
nóvember.
Framkvæmdastjóri
Framkvæmdastjóra vantar strax við fiskvinnslu
og útgerð á Norðvesturlandi.
Upplýsingar í síma 95-6440 eða 95-6380. Helg-
arsími 95-6389.
^ Hjúkrunar-
fræðingar
Hjúkrunarforstjóra vantar að dvalar- og sjúkra-
deild Hornbrekku, Ólafsfirði frá 1. nóvember.
Umsóknarfrestur til 25. október.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 96-
62480.