Dagur - 21.10.1986, Blaðsíða 12
Akureyri, þriðjudagur 21. október 1986
Dýpkun hafnarinnar í Ólafsfirði:
Hákur mættur
á staðinn
Mikil verðlækkun á diskettum
Nýkomin hreinsieíni fyrír:
* 5T Tölvutæki sf.
★ Tölvur OCJ fleira Gránufélagsgötu 4, 2. hæð • Akureyri • Sími 96-26155
Samkvæmt mælingum sem
gerðar voru í sumar og haust í
höfninni í Ólafsfirði kom í Ijós
að Ólafsfjarðarhöfn hefur
grynnkað mikið. Niðurstaða
mælinganna kom Ólafsfirðing-
Dalvík:
Koli flutt-
urútí
gámum
Ákveðið hefur verið að hefja
útflutning á ísuðum kola frá
Dalvík. Kolinn verður fluttur
út í gámum og sér Eimskipafé-
lag Islands um flutninginn.
Sjómenn og útgerðarmenn eru
vongóðir um að þetta geti gef-
ið góðan arð I framtíðinni.
Togararnir á Dalvík veiða tals-
vert af kola um þessar mundir,
þannig að ekki ætti hráefnisskort-
ur að standa þessum útflutningi
fyrir þrifum. Kolinn er ísaður í
kassa eða ker og settur þannig í
gáma. Menn gera sér hugmynd
um að ef kolaaflinn verður svip-
aður og hann hefur verið megi
reikna með 40 til 50 tonnum af
kola sem yrðu flutt út í gámum
vikuiega.
Skip Eimskipafélagsins munu
taka kolann á Dalvík á sunnu-
dögum, sigla með hann til
Reykjavíkur og koma honum á
skip til Bretlands. Þannig verður
kolinn kominn á markað erlendis
viku eftir að hann fer frá Dalvík.
Reynslan af útflutningi á „gáma-
fiski“ hefur yfirleitt verið góð þar
sem þetta hefur verið reynt, en
hlutur fiskverkunarinnar er að
sjálfsögðu rýrari en sjómanna og
útgerðar þegar flutt er út með
þessum hætti. EHB
um ekki á óvart því langt er
síðan höfnin varð það grunn að
skip þurftu að sæta sjávarföll-
um til að komast inn á hana.
Merkúr, hinn nýi togari Ólafs-
firðinga, kemst sem kunnugt
er ekki inn á höfnina að svo
stöddu. Nú hefur fjárveiting
fengist til dýpkunar hafnarinn-
ar og er dýpkunarskipið Hákur
komið á staðinn.
Óskar Þór Sigurbjörnsson for-
maður hafnarnefndar Ólafsfjarð-
ar sagði að þó ástandið hefði ver-
ið orðið slæmt þá hefði það þó
ekki verið eins slæmt og oft áður.
Mikill sandur bærist inn í höfnina
árlega svo nauðsynlegt sé að
dýpka hana við og við. í upphafi
loðnuvertíðar hafi verið ljóst að
loðnuskip mýndu eiga erfitt með
að komast inn á höfnina. Hafnar-
nefnd falaðist þá eftir dýpkunar-
skipinu Háki en fékk þau svör
hjá Vita- og hafnarmálastofnun
að óvíst væri hvenær skipið yrði
laust, jafnvel ekki næsta sumar.
Endurteknar óskir um dýpkun
hafnarinnar höfðu þó þau áhrif
að loforð var gefið fyrir því að
Hákur myndi koma til Ólafs-
fjarðar nú í haust ef fjárveiting
fengist fyrir framkvæmdum.
Ekki er vafi á að tilkoma togar-
ans Merkúrs varð til að fljótar
var gengið í að dýpka höfnina en
ella hefði orðið. Öskar sagði að
mikill kostnaður við reglulega
dýpkun hafnarinnar gerði að
verkum að litlu sem engu væri
varið til nauðsynlegra endurbóta
á sjálfum hafnarmannvirkjunum.
Lengi hefði verið í undirbúningi
að hefja framkvæmdir við smá-
bátahöfn og endurbætur á öðrum
bryggjum. Frágangur innsigling-
ar í vesturhöfn var efstur á óska-
lista hafnarstjórnar, því næst við-
legukantur og bætt aðstaða til
löndunar úr togurunum. Reiknað
er með að Hákur grafi 18 þúsund
rúmmetra upp úr höfninni að
þessu sinni. EHB
i. __ • ..;•*
•'-**• L ~~ •%*
Það gengur ýmislegt á við Leiruvegsframkvæmdir. Skurðgrafan á myndinni festist og á flóðinu á sunnudag var hún
nær öll á kafi. Mynd: rpb
Leiruvegurinn:
Sandur fluttur til og
garöurinn rifinn
Framkvæmdir við Leiruveginn
nýja eru nú í fullum gangi enda
er ráðgert að opna veginn fyrir
umferð í desember. Fyrir
nokkru var lokið við að steypa
brúna og það sem þá er eftir,
er að tengja veginn við Drottn-
ingarbrautina.
Þeir sem hafa átt leið um
Drottningarbraut nú undanfarið
hafa eflaust veitt athygli gríðar-
stórri bómu á Árnagarðinum.
Bóman er fest aftan í jarðýtu og
Togarar U.A.:
Minni afli en á sl. ári
„Ég held að menn séu ekki alls
kostar ánægðir með það aíla-
magn sem á land hefur borist,
því aflinn er nokkru minni en á
sama tíma í fyrra,“ sagði Einar
Óskarsson hjá Utgerðarfélagi
Akureyringa.
Einar sagði að það hafi verið á
mörkunum að næg vinna væri í
fiskvinnslunni hjá útgerðarfélag-
inu og eingöngu verið dagvinna
síðustu daga.
Um síðustu mánaðamót voru
komin á land 16.219 tonn. Á
sama tíma í fyrra voru komin á
land 14.800 tonn. „Það verður að
taka inn í að Hrímbakur var ekki
kominn í gagnið, en hann hefur
aflað 2.600 tonna á þessu ári, svo
þarna er ekki um aukningu að
ræða hjá hinum togurunum. Mið-
i -S -s
að við skipafjölda er veíðin á síð-
asta ári 13.600 tonn í fyrra á móti
14.800 tonnum núna,“ sagði Ein-
ar.
Síðan um mánaðamót hafa
borist á land um 500 tonn af fiski
til Ú.A. Kaldbakur landaði síð-
ast þann 6. október 160 tonnum
að aflaverðmæti 3,2 milljónir
króna. Harðbakur landaði 8. okt.
168 tonnum að verðmæti 3,5
milljónir króna. Sléttbakur land-
aði 13. okt. 102 tonnum að verð-
mæti 2,1 milljón króna. Hrím-
bakur landaði á miðvikudag um
90 tonnum. Síðast landaði hann
78 tonnum að verðmæti 1,2 millj-
ónir króna. Mikill hluti þessa afla
er grálúða sem fryst er í blokkir
og seld á Evrópumarkaði. gej-
er Norðurverk með hvort tveggja
á leigu hjá Jóhanni Gíslasyni. Á
bómu þessari er ýtutönn og með
henni er sandi ýtt upp norðan við
garðinn til að nota hann í upp-
byggingu sunnan hans. Að sögn
Franz Árnasonar er þetta gert
með þessum hætti þar sem sam-
kvæmt útboðsgögnum má ekki
taka sand í minna en 40 metra
fjarlægð frá miðlínu vegstæðis-
ins.
Franz sagði að þessi kafli sem
eftir væri yrði byggður upp bæði
úr austri og vestri og fljótlega
yrði að fara að ryðja frá brúnni.
„Það er ákveðinn staður þarna
rétt vestan við brúna þar sem áin
rennur nánast öll og við erum
eiginlega í vandræðum með þetta
þangað til við komum ánni undir
brúna. En það ætti að geta orðið
í vikunni þegar búið er að slá frá
brúnni,“ sagði Franz.
Franz sagði að nokkrir byrjun-
arörðugleikar hefðu verið við
þessa sandflutninga. Á sunnu-
daginn bilaði grafa þannig að
ekki tókst að forða henni í land
áður en flæddi og hún fór í kaf.
Einnig varð einhver bilun á þessu
nýja tæki.
Alls eru það milli 50 og 60 þús-
und rúmmetrar af sandi sem fara
í þennan vegarkafla sem er um
1100 metrar á lengd. í vegarkafl-
ann fara alls um 200 þúsund tonn
af sandi, stórgrýti og möl. Nýi
vegurinn mun tengjast Drottn-
ingarbrautinni rétt sunnan við
Árnagarð og verður efnið úr hon-
um notað ásamt öðru. ET
Steinull:
Viðræðumar
við Elkem
árangursríkar
Að sögn Þórðar Hibnarssonar
framkvæmdastjóra Steinullar-
verksmiðjunnar voru viðræður
við norska fyrirtækið Elkem
sem fram fóru í lok síðustu
viku árangursríkar. Um frekari
niðurstöður þeirra vildi hann
ekki tjá sig og kvað þær ekki
gerðar lýðum Ijósar fyrr en að
loknum fundi stjórnar verk-
smiðjunnar í vikunni.
Umræðurnar snérust um bætur
til handa verksmiðjunni vegna
galla í bræðsluofni hennar sem
norska fyrirtækið smíðaði. En
eins og fram hefur komið í frétt-
um eyðir ofninn 25% meiri
raforku en upphaflega var gert
ráð fyrir í samningum. Þórður
sagði hluthafa verksmiðjunnar
nú þessa dagana vera að velta
fyrir sér hvernig fyrirsjáanlegum
greiðsluvanda hennar á næstu
árum verði mætt og verði fregna
af gangi þeirra mála að vænta á
næstunni. -þá