Dagur - 12.12.1986, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 12. desember 1986
77/ jólagiafá!
Barna-
jogginggailar,
3 gerðir. Verð frá kr. 580.-
Barna-
joggingpeysur,
3, gerðir. Verð frá kr. 520.-
Barnapeysur,
3 gerðir. Verð frá kr. 516.-
Af þessu verði er
10% afsláttur.
matarkrókuL
Barnanáttföt,
Verð kr. 475.-
Ungbarnanáttföt
Verð kr. 370,-
Flóka-inniskór,
Stærðir 36-46.
Verð frá kr. 280.-
Opið laugardag 13. des. kl. 10-18.
ISJ
Eyfjörð
Hjalteyracgötu 4
simi 22275
Jólasælgæti
— Karamellur og konfekt
Björn Sigurösson • Baldursbrekku 7 • Símar41534 ■ Sérleyfisferöir •
Hópferðir • Sætaferöir • Vöruflutningar
Húsavík - Akureyri - Húsavík
Daglegar ferðir
til jóla
Nánari upplýsingar
í símum 24442, 41140 og 41534.
Sérleyfishafi.
Þegar hátíðarnar nálgast
fara margir að huga að
jólabakstrinum. Þegar
kemur fram í desember er
einnig tími til að huga að
sœlgœtisgerð - því heima-
tilbúið sœlgœti getur verið
mjög gott, fyrir utan það
að öll fjölskyldan getur
tekið þátt í gerð þess. Tals-
verður sparnaður fœst
einnig með því að gera
sælgætið heima.
Nokkra varúð þarfað við-
hafa við karamellugerð,
því massinn sem unnið er
með verður mjög heitur -
120 gráður á C. Fáeinir
dropar geta valdið slœm-
um brunasárum og því er
ekki heppilegt að börnfáist
við slíkar uppskriftir nema
fullorðnir séu til staðar. Ef
maður brennir sig á mass-
anum er best að láta kalt
vatn renna á sárið í um 20
mínútur. Munið bara að
sýna fulla varúð.
Karimanna
fatnaður
í giæsilegu
úrvaii.
Frakkar ★ Stakkar ★ Peysur
Skyrtur ★ Hálsbindi ★ Hanskar
★ Treflar ★ Seðlaveski
og margt fleira.
Klæðskeraþjónusta.
Hafnarstræti 92 (Bautahús suðurendi), sími 26708.
Vandaðarvörur
- Valið erþttt.
Kaupmannafélag
Akureyrar
Rjómakaramellur
(Um 50 stykki)
2 dl sykur
2 dl rjómi
2 dl síróp
1-2 matsk. smjör eða smjörlíki.
Blandið sykrinum, sírópinu og
rjómanum saman í þykkbotnuð-
um potti. Sjóðið massann í 45
mínútur og hrærið við og við en
ekki of oft. Hægt er að sjá hvort
massinn sé fullsoðinn með því að
láta nokkra dropa í kalt vatn og
reyna að móta kúlu úr honum. Ef
það er hægt þá þarf ekki að sjóða
lengur.
Hellið nú massanum í álform af
stærðinni 20 x 30 cm. Munið að
smyrja mótið vel áður með
smjörlíki eða jurtaolíu. Látið
massann stífna í forminu, þó ekki
meira en svo að þið getið skorið
karamellurnar sundur. Munið að
nota hníf sem hefur verið dýft í
jurtaolíu.
Súkkulaðikaramellur
Sama uppskrift og fyrir rjóma-
karamellur nema að 3-5 matsk. af
kakódufti eru settar saman við
hin efnin. Einnig er hægt að nota
púðursykur í stað hvíts sykurs.
Marsipankonfekt
Venjulegt, ekta marsipan, er búið
til úr möndlum og flórsykri ásamt
dálítilli eggjahvítu. Þá er best að
nota tragantduft í marsípanið, en
þetta duft er hœgt að kaupa í
lyfjaverslunum. Tragantduftið
gerir marsípanið seigara þannig
að léttara er að móta það.
Möndlurnar eru afhýddar með
því að láta þær í sjóðandi vatn í
3-5 mínútur. Þá verður létt að
taka hýðið af. Síðan er best að
þurrka möndlurnar í einn eða tvo
tíma. Þá verður að hakka möndl-
urnar eins vel og hægt er í kvörn,
minnst tvisvar.
Setjið einn hnífsodd af tragant
út í. Þegar massinn er orðinn vel
seigur þá er hann tilbúinn. Það er
auðvitað hægt að kaupa marsíp-
an í búðum en það er miklu
skemmtilegra að búa það til
sjálfur.
Ekta marsípan
4 dl (200 g) möndlur
4 dl (200 g) flórsykur
hálf til ein eggjahvíta
tragant.
Afhýðið möndlurnar og myljið
tvisvar í kvörn, blandið flórsykr-
inum saman við þær þegar þið
malið í seinna skiptið.
Setjið næst eggjahvítuna sam-
an við í litlum skömmtum í einu.
Hnoðið massann kröftuglega,
gjarnan á bökunarfjöl. Setjið
tragant saman við.
Hvernig marsipan er notað:
Hægt er að borða marsipanið
eins og það kemur fyrir eða lita
það með viðurkenndum litarefn-
um sem fást í lyfjaverslunum. Þá
er hægt að móta marsipanið og
búa til alls konar fígúrur. Einnig
er gott að nota það til að skreyta
kökur eða búa til konfekt. í stað-
inn fyrir möndlur er hægt að nota
heslihnetukjarna eða valhnetu-
kjarna. Annars er uppskriftin sú
sama.
Piparmyntukonfekt
Auðvelt er að búa til fínasta kon-
fekt úr súkkulaði með pipar-
myntubragði. Best er að nota
dökkt suðusúkkulaði eða álíka.
250 gr flórsykur
tragant
2-3 dropar af piparmyntuolíu
(fœst í lyfjaverslunum)
dökkt súkkulaði eða mokkabaun-
ir
Sigtið flórsykurinn og bætið trag-
antduftinu út í. Blandið síðan
saman við eggjahvítuna og pipar-
myntuolíuna. Deigið er flatt út
og búnir til teningar eða kúlur
sem síðan eru aðeins flattar út.
Þessu er síðan dýft í bráðið
súkkulaði. Það er líka hægt að
búa til kúlur og láta súkkulaði í
miðjuna. Hér getum við notað
hugmyndaflugið. Góða skemmt-
un! EHB
BORNIN VEUA
pkujmobll
Leikfaiiganmkidurinn
HAFNARSTRÆTI96
SÍMI 96*24423 AKUREYRI