Dagur - 12.12.1986, Blaðsíða 3

Dagur - 12.12.1986, Blaðsíða 3
12. desember 1986 - DAGUR - 3 mm. fÖKflFORLBGSBŒWJHÍ'. nrjijr.li—sffT.ru* jyir.. ■ Æk THOHOKH&Qu' V wsAm \SViHIYvN& SSnSK&NR. 'SSSSSH SWUV*’N SNW'VW Sauðárkrókur: Stereo sjónvarpstæki Með nýja Black Trinitron myndlampanum 22” skermur kr. 70.100.00 27” skermur kr. 97.200.00 Gjörið svo vel, komið, sjáið og... íshBUÐIN bunfmuhlIð ■" ‘ ar 96-22111 innréttingar í allar stærðir baðherbergja. Pú raðar henni saman eftir eigin hugmyndum. Einnig stakir veggskápar. tMí DRAUPNISGÖTU 2 SÍMI (96)22360 Verslið við HREINLÆTISTÆKI fagmann. STURTUKLEFAR 0G HURÐIR BLÖNDUNARTÆKI AKUREYRI ALLT EFNI TIL PÍPULAGNA JAFNAN FYRIRLIGGJANDI „Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi,'* er hægt að segja um meinleysislega tillögu sem fram kom á fundi bæjarstjórn- ar Sauðárkróks á þriðjudag. Þar lagði Björn Sigurbjörns- son (A) formaður kjaranefndar til að bæjarstjórn hefði for- göngu um að boða til fundar með samningsaðilum vegna nýrra kjarasamninga. Leitað var afbrigða til að taka þetta mál fyrir á fundinum, en fund- ur kjaranefndar var fyrr um daginn. Hörður Ingimarsson fulltrúi óháðra, K-listans í bæjarstjórn lét í Ijós álit sitt þess efnis, að af framkominni þessari tillögu væri Ijóst að um sambandsleysi væri að ræða í bæjarstjórn. Hörður var nýlega kjörinn í launanefnd sveitarfélaga og sat fund þeirrar nefndar syðra fyrir skömmu. Greindi hann frá ákvörðun nefndarinnar á þeim fundi að gera nú lokatilraun með sameiginlega samninga sveitar- félaganna í landinu við starfs- mannnafélögin. Sagðist Hörður hafa tekið þátt í þessari af- greiðslu fundarins og afhent Ólafsfjörður: Slæmt ástand í höfninni Bryggja skemmdist í brimi Enn eru dýpkunarmál í Ólafs- fjarðarhöfn ekki komin á hreint. Dýpkunarskipið Hákur mætti á staðinn í október og beðið var eftir fjárveitingu. Hákur hefur ekkert aðhafst og dýpkun hafnarinnar hefur ver- ið boðin út. Lausleg tilboð hafa numið um helmingi af kostnaðaráætlun hafnamála- stjórnar sem hljóðar upp á 8 Verkamannabústaðir Akureyri: Lokið við 15 stórar íbúðir í mars - Gert er ráð fyrir öðru eins á sama svæðinu Nú er verið að Ijúka við bygg- ingu 15 íbúða fyrir stjórn verkamannabústaða á Akur- eyri. Ibúðirnar eru við Fögru- síðu og er áætlað að fram- kvæmdum Ijúki endanlega í mars á næsta ári. Þegar hefur verið flutt inn í nokkrar þess- ara íbúða. Pað er Fjölnir sf. sem sér um þetta verkefni en um er að ræða fjögur raðhús á tveimur hæðum. Næstsíðasta húsið á að vera til- búið um áramót. Þessi raðhús eru hin fyrstu sem byggð eru á svæði sem stjórn verkamannabústaða fékk úthlut- að. Stjórnin Iét hanna íbúðir og skipuleggja svæðið í heild. Þar er gert ráð fyrir 30-35 íbúðum. Búið er að skipta um jarðveg á öllu svæðinu og sagðist Hákon vona að markaðurinn byði upp á bygg- ingu fleiri húsa af þessari stærð. „Við teljum að þetta hafi lukk- ast mjög vel. Þessar íbúðir eru mjög skemmtilegar og við höfum reynt að haga okkar verkefnaröð þannig að þegar flutt er inn í íbúðirnar þá eru þær fullfrá- gengnar að utan og innan,“ sagði Hákon Hákonarson formaður stjórnar verkamannabústaða í samtali við blaðið. ET milljónir, en að sögn Óskars Þórs Sigurbjörnssonar for- manns hafnarnefndar hefur ekki borist formlegt tilboð sem hægt er að meta, en Ijóst er að þessi mál þarf að skoða vand- lega. Óskar sagði það alls ekki úr myndinni að Hákur tæki verkið að sér. „Fyrst þarf að athuga hvort aðrir aðilar geti á sömu forsendum boðið hagstæðara. En það þarf að koma efninu talsvert langt upp á land því við ætlum að nota efnið í bænum, t.d. í hús- grunna. Það verður að reikna út hvað kostar að flytja efnið á þann stað sem Hákur getur dælt því til þess að það sé eitthvað að gera með önnur tilboð. Við þurf- um að leita af okkur allan grun um það hvort það sé hagstæðara í raun,“ sagði Óskar. Togarinn Merkúr er væntan- legur til Ólafsfjarðar í mars og ef ekki verður búið að dýpka höfn- ina fyrir þann tíma mun skipið vart geta lagst að bryggju þar. Hafnamálastofnun hyggst fara af stað með verkið í mars/apríl ef úr verður að láta henni dýpkunar- framkvæmdir eftir. Þeir treysta sér skiljanlega ekki til að vera að við þessar vetraraðstæður með löng rör í foráttubrimi. Óskar sagði að fyrst hefði átt að vinna útboðið í Ólafsfirði en úr varð að vinna það í samvinnu við Hafna- málastofnun, en þeir eru ekki andvígir þessari hugmynd. Það eru ekki einungis dýpkun- armál sem eru í ólestri heldur bryggjurnar líka. Að sögn Ósk- ars gerði slíkt brim í nóvember að menn muna ekki eftir öðru eins í meira en 20 ár. Það mældist 20 metra ölduhæð út með firðin- um og eins og menn höfðu óttast lengi, með tilliti til ástands mann- virkja, þá gerði brimið verulegan skurk. „Mikilvæg bryggja hér innan hafnar nánast liðaðist í sundur en hún var einmitt í við- gerð eftir að skip Eimskipafélags- ins sigldi á hana. Við erum með algjöra neyðaráætlun í gangi um að styrkja hana og bjarga henni en viðgerðin hefði þurft að -vera miklu öflugri en ráðgert hafði verið,“ sagði Óskar að lokum. BOKDFORLflGSBOK/ Verð kr. 750,00 BEGGJA SKAUTA BYR eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur Hinar hugljúfu ástarsögur Ingibjargar Sigurðardóttur eru í algjörum sérflokki og njóta mikilla vinsælda almennings. bæjarstjóra gögn frá fundinum fyrir nokkru. Átaldi Hörður þessi vinnubrögð, því með framkom- inni tillögu væri sýnt að bæjarráði væri ætlað að fara með samninga- málin. Snorri Björn bæjarstjóri tók til máls og sagðist ekki sjá neitt í tillögunni sem ákvarðaði hvaða aðili færi með samninga- málin. Einnig efaðist hann um gagnsemi launanefndar og óttað- ist og fleiri sveitarfélög mundu hverfa frá þátttöku eins og Reykjavíkurborg gerði við síð- ustu kjarasamninga. Magnús Sig- urjónsson (F) og fyrrverandi full- trúi í launanefnd gagnrýndi störf nefndarinnar og vinnubrögð nefndarmanna sem hann sagðist þekkja frá gerð síðustu samninga og taldi hann samningamálin bet- ur komin í höndum heimaaðila. Þorbjörn Árnason (S) forseti bæjarstjórnar tók í sama streng og kvað greinilegt að fulltrúinn í launanefnd hefði verið að sam- þykkja eitthvað á fundi syðra sem ekki væri vilji bæjarstjórn- armanna. Hörður tók aftur til máls og sagði þessa umræðu sem þarna hafði farið fram vera mjög meiðandi fyrir sig. Fram kom í máli hans að hann hefði talið sig vera í fullu umboði bæjarstjórn- ar, en í umræðum á fundinum hefði annað komið í ljós. Ef slíkt umboðsleysi væri reyndin væri nauðsynlegt að endurskoða meirihlutasamstarfið með Sjálf- stæðisflokki og Alþýðuflokki. -þá m Þarf að endurskoða meirihlutasamstarfið?

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.