Dagur - 12.12.1986, Blaðsíða 19

Dagur - 12.12.1986, Blaðsíða 19
12. desember 1986 - DAQtJR - 19 Eggert Tryggvason lék vel fyrir KA í gær og skoraði 6 mörk. Hér verður eitt þeirra að veruleika. Mynd: rpb íþróttiL íslandsmótið í handknattleik 1. deild: Æsispennandi lokamínútur í leik KA og Víkings - Víkingur sigraði naumlega 24:23 í góðum leik „Við getum sjálfum okkur um kennt hvernig fór. Við náðum ekki jafngóðum varnarleik í síðari hálfleik og í þeim fyrri. Hornamenn þeirra sluppu allt of oft inn úr og gerðu mörk. Nú þá verð ég að taka á mig hluta að sökinni, þar sem ég hef verið veikur að undan- förnu og átti ekki góðan dag,“ sagði Brynjar Kvaran þjálfari og markvörður KA eftir naumt tap gegn Víkingi 23:24 í 1. deild Islandsmótsins í hand- knattleik. Leikurinn fór fram á Akureyri. KA-menn mættu ákveðnir til leiks, breyttu út af venju og tóku leikinn í sínar hendur í upphafi. Peir skoruðu fyrstu tvö mörkin og það var ekki fyrr en á 6. mín. að Víkingar komust á blað. KA Staðan 1. deild Úrslit leikja í gærkvöld og staðan í 1. deild íslandsmóts- ins í handknattleik er þessi: KA-Víkingur 23 :24 Armann i-UBK 17 :25 Fram-FH 25 :27 Víkingur 9 7 1 1 211:191 15 FH 9 6 I 2 228:196 13 UBK 8 6 1 1 179:168 13 Valur 9 5 1 3 229:199 11 KA 9 4 1 4 199:210 9 Fram 8 4 0 4 188:172 8 Stjarnan 7 3 1 3 176:176 7 KR 9 3 0 6 179:202 6 Haukar 9 2 0 7 188:222 4 Ármann 9 0 0 9 179:220 0 komst í 4:1 en Víkingar náðu að jafna 4:4 um miðjan hálfleikinn. KA-menn höfðu yfir þetta eitt til tvö mörk fram að hléi og leiddu 11:9 í hálfleik. Víkingar skoruðu þrjú fyrstu mörkin í síðari hálfleik og kom- ust yfir í fyrsta skipti í leiknum, 12:11. Á þeim tíma voru KA- menn einum fleiri en það virtist ekki nýtast þeim í leik að vera fleiri inni á vellinum. Jafnt var upp í 13:13 en þá kom slæmur kafli hjá KA og Víkingar, þá ein- um fleiri skoruðu næstu þrjú mörk og breyttu stöðunni í 16:13. Liðin skoruðu síðan á víxl fram á næst síðustu mínútu leiksins og þá var staðan 24:21 fyrir Víking. Jón Kristjánsson minnkaði mun- inn í tvö mörk og Guðmundur Guðmundsson skoraði 23. mark KA þegar um ein mín. var eftir af leiknum. Víkingar hófu sókn en misstu boltann þegar 33 sek. voru eftir. KA-menn brunuðu í sókn en Hafþór Heimisson sendi þá boltann beint í hendur Víkinga. Þeir snéru vörn í sókn en misstu boltann þegar um 4 sek. voru eft- ir en sá tími sem eftir var dugði KA-mönnum ekki til þess að jafna leikinn. Úrslitin 24:23 fyrir Víking. KA-menn léku sinn langbesta leik á heimavelli í vetur. Varnar- leikurinn var mjög góður og þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Mark- varslan var þó með minnsta móti. Bestir voru þeir Jón Kristjáns- son, Eggert Tryggvason sem ekki klikkaði á víti frekar en fyrri daginn, Guðmundur Guðmunds- son og Friðjón Jónsson. Víkingar sýndu það að þeir ætla ekki að gefa titilinn eftir án átaka. Þeir spiluðu oft ágætlega og léku vörnina vel en það var helst markavarslan sem brást að þessu sinni. KA-menn áttu í mesta basli með hina eldsnöggu hornamenn liðsins, þá Guðmund Guðmundsson og Bjarka Sig- urðsson sem voru bestu menn liðsins ásamt Siggeiri Magnús- syni. Mörk KA: Jón Kristjánsson 7, Eggert Tryggvason 6 (3), Friðjón Jónsson 5, Guðmundur Guð- mundsson 3, Pétur Bjarnason og Hafþór Heimisson 1 mark hvor. Mörk Víkings: Guðmundur Guðmundsson 6, Siggeir Magn- ússon 5, Karl Þráinsson 5 (2), Bjarki Sigurðsson 3, Árni Frið- leifsson 3, og þeir Einar Jóhann- esson og Hilmar Sigurgíslason 1 mark hvor. Leikinn dæmdu þeir Gunn- laugur Hjálmarsson og Rögn- valdur Erlingsson og gerðu það vel. Bikarkeppni KKÍ: Þór leikur gegn Tindastóli Dregið hefur verið í 1. umferð í bikarkeppni Körfuknattleiks- samband Islands. Fjórir leikir verða leiknir og síðan koma Úrvalsdeildarliðin inn í keppn- ina í 2. umferð. Þórsarar drógust á móti Tinda- stóli frá Sauðárkróki og fer leikurinn fram á Akureyri fljót- lega á næsta ári. Önnur lið sem drógust saman voru, ÍR og UBK, UMFG og KR b, og UMFN b og Árvakur. Kynnum Colombía kaffi 09 Lindu konfekt frá kl. 15.00. ★ Tilbodsverd á reyktu svínakjöti HAGKAUP Akureyri Vanur járna- maður óskast Einnig er óskaö eftir tveimur vönum trésmiöum, við Blönduvirkjun. Upplýsingar gefur Óli Óskarsson í síma 95-4054 eftir kl. 19.00. Óskum að ráða málm- iðnaðarmenn til starfa Vana smíöi úr ryðfríu stáli og blikki. Fjölbreytt vinna. Mötuneyti á staönum. % Vélsmiðjan Oddi hf. FRAMSÓKN ARMEN N AKUREYRl Bæjarmálafundur verður mánudaginn 15. desember kl. 20.30. í Eiðsvallagötu 6. 1. Dagskrá baejarstjórnarfundar. 2. Öldrunarmál. Félagar fjölmennið. Stjórnin. FRAMSÓKNARMENN Ifeil |)|| AKUREYRI |||| Opið hús að Eiðsvallagötu 6, laugardaginn 13. desember frá kl. 3-5 e.h. Dagskrá baejarstjórnarfundar liggur frammi. Heitt verður á könnunni.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.