Dagur - 12.12.1986, Qupperneq 5
12. desember 1986 - DAGUR - 5
„Jólakort eru send
í góðum tilgangi"
- Kortasafnarinn Aðalgeir Egilsson á Mánárbakka
Aðalgeir Egilssson bóndi,
veðurathugunarmaður og safn-
ari, Mánárbakka á Tjörnesi er
kominn á línuna.
- Þessa dagana eru flestir að
skrifa á þau jólakort sem þeir
ætla að senda fyrír jólin, en þú
ert einn af þeim mönnum sem
eru með jólakort í höndunum
allt árið. Hvað er langt síðan þú
fórst að safna kortum?
- Pað er ekkert mjög langt
síðan ég fór að safna þeim svona
af krafti, það var fyrir nokkrum
árum en það er miklu lengra síð-
an ég fór að halda kortum til
haga.
- Veistu tölu þeirra korta
sem þú átt?
- Nei, ég hef bara ekki reynt
að telja þau en þau eru í nokkuð
mörgum albúmum.
- Hvernig kortum safnar þú,
viltu frekar eiga íslensk kort?
- Ég hef í raun meiri áhuga á
þeim, finnst þau skemmtilegri,
þó maður taki við öllu. Ég hef
fengið kort víða að og jafnvel
frá fólki sem ég þekki ekki
nokkurn skapaðan hlut, enda
hef ég auglýst eftir kortum og
það ber góðan árangur.
- Er fólk ekkert fastheldið á
gömlu jólakortin sín?
- Það er dálítið misjafnt,
sumir vilja náttúrlega ekki láta
þau og það er ósköp eðlilegt, en
aðrir virðast vera fegnir að láta
þau til einhvers sem hefur gagn
af þeim og sem betur fer er tölu-
vert um það.
- Ég sá einu sinni hluta af
safninu þínu og íþví voru gömul
kort, falleg kort og óvenjuleg
kort en hver eru þín uppáhalds-
kort?
- Það er nú ekki svo gott að
telja þau upp í gegn um síma því
sjón er sögu ríkari, ég á nokkuð
mörg kort frá því skömmu eftir
aldamót en manni finnst alltaf
best að fá kort með myndum úr
Þingeyjarsýslu. Ég var að raða
þingeyskum kortum í möppu
núna nýlega og það er býsna
mikið sem gefið er út með
myndum héðan. Ég var mjög
ánægður með kort sem ég eign-
aðist um daginn, þrjú þeirra
voru gefinn út af Þórarni Stef-
ánssyni á Húsavík, þar af er eitt
sem gefið er út til minningar um
25 ára afmæli Kaupfélags Þing-
eyinga, eitt er með mynd af
Húsavík og það þriðja með
mynd af söludeild kaupfélags-
ins. Einnig fékk ég kort með
mynd úr Hallormsstaðaskógi og
aftan á það hafði Þorsteinn Erl-
ingsson skrifað ljóð, það gefur
kortinu vissulega mikið gildi.
- Hvað með þig sjálfan,
sendir þú mikið af jólakortum?
- Já, við sendum mikið, það
er nú varla hægt að segja frá
þessu en þau eru að minnsta
kosti 100 eða vel það. Ættingj-
ar, vinir og velunnarar eru
margir.
- Nú ert þú sérfræðingur í
jólakortum, hvernig kort velur
þú til að senda?
- Nei, nei, ég er ekki sér-
fræðingur en mér finnst mikið
skemmtilegra að senda falleg
kort. Annars kaupir maður oft
kort í pökkum og þar í eru kort
sem manni finnst ekkert varið í.
Ég safna líka fleiri gerðum af
kortum, nú eru að koma út ein-
ar fjórar gerðir af kortum með
myndum af Hólmfríði Karls-
dóttur og ég vona að þau fari að
bætast í safnið mitt. Svo er á
leiðinni til mín kort með mynd
þar sem Jón Páll er að augíýsa
Svala, það er að sjálfsögðu með
eiginhandaráritun.
- Eyðir þú miklum tíma í að
raða og dunda við kortin þín?
- Það fer dálítill tími í það,
enda þýðir ekkert annað en að
leggja alúð við þetta, fyrst mað-
ur er á annað borð að safna
þessu.
- Er þessi tómstundaiðja
skemmtileg og hvað gefur hún
þér?
- Þetta er mjög skemmtilegt
og gefur manni ekkert nema
gott eitt, jólakort eru send í
góðum tilgangi og það er ekkert
nema gott sem fylgir þeim.
- AIli, ég þakka þér fyrir
spjallið og óska ykkur gleðilegra
jóla.
- Sömuleiðis en mig langar til
að nota tækifærið og þakka öll-
um sem hafa sent mér kort og
vona jafnframt að þeir muni eft-
ir mér í framtíðinni. IM
Aðventustund
í Akureyrarkirkju kl. 20.30 sunnud. 14.
desember.
Barnakór Oddeyrarskóla syngur. Fiöluleikur, negra-
sálmar, Ijóðalestur og fleira.
MENOR - Menningarsamtök Norðlendinga.
Stjómendur fyrirtækja
og verslana ath!
Pví ekki að létta lund
starfsfólksins í jólaösinni
og bjóða því upp á snittur,
smurt brauð eða jafnvel
heitan mat frá Hótel KEA.
Allar nánari upplýsingar og pantanir
teknar hjá veitingastjora í síma: 22200.
★
Laugardagur 13. desember
Veitingasalir á ll.hæð lokaðir
vegna einkasamkvæmis.
HERRADEILD
Gránutélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599