Dagur - 12.12.1986, Qupperneq 18
18 -- ÖÁQUR '- 1 Í2?ldeseniber T986
Mikið úrval af raftækjum
til heimilisnotkunar.
SIMI
(96)21400
ImgSi
kaffivélar
AATARI'
TH
Háþróaðar framtíðartölvur
með Motorola 68000
32 bita örtölvu.
Gerð: 520 st. 512 k minni sjón-
varpstengi 3V2 tommu diskadrif,
360 k, mús, ritvinnsla, basic,
Logo og teikniforrit.
Verð kr. 24.900.-.
Gerð: 1040 st. 1000 k minni,
720 k diskadrif, mús, rit-
vinnsla, basic, Logo
og teikniforrit.
Verð kr. 61.900.-.
Mikið úral forrita bæði fyrir
fyrirtæki og einstaklinga.
Óseyri 4.
Sími 26842 og 25842.
Borgarbíó
Föstudag kl. 9.00, laugardag
og sunnudag kl. 5.00.
Læknaskólinn
(Bad Medicine)
Föstudag kl. 11.00,
laugardag og sunnudag
kl. 9.00.
Hlébarðinn
Sunnudag kl. 3.00.
Geimkönnuðurinn
Miöaverð 100 kr.
Síðasta sýning.
Miðapantanir og upplýsingar i
símsvara 23500.
Utanbæjarfólk sími 22600.
f Tímanum 4. desember birtist
forystugrein þar sem harkalega
er ráðist á þau hundruð flokks-
bundinna framsóknarmanna í
Norðurlandi eystra sem undan-
farnar vikur hafa skorað á Stefán
Valgeirsson, alþingismann að
gefa kost á sér til framboðs þar.
Sá aumi málflutningur er þar
enn uppi að framboð þetta snúist
einungis um persónu Stefáns
Valgeirssonar. Að ekkert bendi
til þess að málefnalegar ástæður
séu fyrir hendi. Svo er ekki því
miður flokksins vegna. Hins veg-
ar getur Stefán við unað að for-
ysta flokksins skuli hafa svo mik-
ið álit á honum og áhrifum hans
að hún telji hann geta sagt svo
stórum hópi félagsmanna fyrir
verkum, svo ekki sé talað um þau
mörgu flokksfélög sem styðja
hann.
Margt fleira er athyglisvert í
þessari forystugrein blaðs okkar.
Þar er m.a. talað um að „svoköll-
uð prófkjör" séu látin ráða og
þau séu „innanflokksmál og það
sé réttur flokksbundinna manna“
að taka þátt í þeim. Undanfarna
daga og vikur höfunt við heyrt
álit ýmissa á prófkjörum, yfirleitt
neikvæð. Og talandi um rétt
flokksbundinna manna ættum við
framsóknarmenn að íhuga þær
yfirlýsingar úr okkar röðum, t.d.
í Reykjavík, um að stuðnings-
menn annarra flokka hafi ráðið
þar úrslitum.
Hér í Norðurlandi eystra kusu
flokksfélögin fulltrúa á kjör-
dæmisþing í samræmi við félaga-
tölu, en hins vegar er ekki því að
neita að sum þessara félaga jafn-
vel tvöfölduðu félagatölu sína
dagana fyrir kjördæmisþing, sem
vissulega ætti að vera gott, en
vekur samt efasemdir. Sú mikla
fjölgun hefði t.d. mátt sýna sig
fyrir sveitarstjórnarkosningar í
vor.
Tíminn telur í þessari forystu-
grein „ástæðulaust að tala um
klofning framsóknarflokksins í
kjördæminu af þessu tilefni enn
sem komið er“, og heldur svo
áfram. „Fari hins vegar svo að
stjórn kjördæmissambandsins
eða framkvæmdastjórn flokksins
láti undan ósk Stefáns Valgeirs-
sonar um að væntanlegur fram-
boðslisti vprði tengdur nafni
flokksins og listabókstaf, þá
gengur flokkurinn klofinn til
kosninga. Þá er klofningurinn
viðurkenndur og augljós. “
Og svo eru menn að gera gys
að strútgreyinu sem stingur höfð-
inu í sandinn og heldur að enginn
sjái sig af því að hann sér ekkert
sjálfur.
Ef t.d. 6-7 framsóknarfélög í
kjördæminu bjóða fram þennan
lista í sínu nafni ætla þá þessi
gáfnaljós að stinga hausnum í
sandinn og segja að hann sé ekk-
ert tengdur nafni flokksins? Það
sé bara hugarfóstur Stefáns Val-
geirssonar að svo sé? Kjósendur
þess lista séu ekki löglegir fram-
sóknarmenn, og þá ekki heldur
þeir sem þar bjóða sig fram.
Telja oddvitar Húsavíkurlistans
sig kannski þess umkomna að
vísa nær helmingi flokksbund-
inna manna í kjördæminu úr
flokknum?
Ég hef sagt það áður, og vil.
ítreka það hér: Það er klofningur í
flokknum og sá klofningur er
fyrst og fremst út af ágreiningi
um málefni. Um leið hlýtur að
verða ágreiningur um menn, sem
eru fulltrúar þeirra sjónarmiða
sem okkur greinir á um. Ef við
horfum fram á við þá er það
alveg ljóst að við þurfum nýja
forystu til að sameina okkur aftur
í þá heild sem við verðum að vera
ef við ætlum að vera forystuafl
þessa kjördæmis, sem og lands-
byggðarinnar.
Framsóknarflokkurinn var og
hefur verið í afgerandi forystu
fyrir landsbyggðina alla í áratugi.
Getum við sagt að hún sé afger-
andi í dag? Því miður ekki og það
sem ennþá verra er, er að í þeirri
leiftursókn sem nú skal háð til
þess að afla flokknum fylgis á
suðvesturhorninu er því hlut-
verki varpað fyrir borð.
Þessu hafa aðrir flokkar gert
sér grein fyrir og hljóta menn að
hafa tekið eftir því undanfarin
misseri að flokkar eins og Alþýðu-
flokkurinn, og þá ekki síður
Alþýðubandalagið, sem mestan
sinn styrk hafa sótt í þéttbýlið,
gerast nú í orði a.m.k. æ hlynnt-
ari byggðastefnu, alla vega þegar
þeir eru staddir úti á landi.
Stjórnendur flokksins hafa haft
horn í síðu Stefáns Vaigeirssonar
þar sem hann hefur ekki þótt
nógu leiðitamur við þessa stefnu.
Sömuleiðis hefi ég það fyrir satt
að fundið hafi verið að blaði okk-
ar Degi fyrir of mikla byggða-
þröngsýni. Og persónulega var
ég skammaður fyrir tveim árum á
fundi kjördæmisráðs fyrir að vera
að reyna að mynda gjá á milli
dreifbýlis og þéttbýlis þegar ég
benti á vaxandi misvægi milli
landsbyggðar og suðvesturhorns-
ins og nauðsyn aðgerða til breyt-
inga.
f>ó hefur kjördæmisþing okkar
samþykkt svipaðar kröfur undan-
farin ár, en þeim samþykktum
hefur ekki verið hampað fyrir
sunnan.
Svo undarlega vill til að á sömu
síðu Tímans og forystugreinin er
ræðir „Garri“ nokkur um próf-
kjör og Alþýðubandalagið. Þar
stendur m.a. um úrslitin hjá
þeim: „Þetta er aðeins nýjasta
dæmið um það að Alþýðubanda-
lagið er ekki lengur sá hreini
verkalýðs- og launþegaflokkur
sem einu sinni var.“ Okkur væri
e.t.v. rétt að líta svolítið nær.
Sýna okkar úrslit kannski að við
séum ekki sá byggðastefnuflokk-
ur sem einu sinni var.
Rétt er að undirstrika það enn
einu sinni að byggðastefnu er
ekki beint gegn Reykjavík. Hún
snýst um það m.a. að hvert
byggðarlag haldi sínu og njóti
afraksturs síns framlags til þjóð-
arbúsins. Slík stefna á mikinn
hljómgrunn um land allt og einn-
ig á höfuðborgarsvæðinu, þó
ýmsir vilji ekki trúa því og telji
nauðsyn á að afneita henni til að
ná þar árangri í kosningum.
Rúmlega 1100 manns hafa nú
skorað skriflega á Stefán Val-
geirsson að vera f forystu fyrir
sérframboð í Norðurlandi eystra,
og á fjölmennum fundi sem
stuðningsmenn þess framboðs
boðuðu Stefán á að Hrafnagili í
Eyjafirði varð Stefán við þeirri
áskorun. Við teljum þessa
aðgerð nauðsynlegt upphaf á
þeirri endurhæfingu sem flokkur-
inn þarfnast að mati ýmissa
mætra manna.
Við horfum í dag fram á alvar-
legt ástand í málum landsbyggð-
arinnar. Skipulagða landeyðingu
hafa ýmsir viljað kalla það. Ef
þau öfl ná völdum sem boða hina
nýju þjóðfélagsskipan, frjáls-
hyggjuna, þá verða, svo ég noti
aftur þau fleygu orð, Horn-
strandir íslands, orðnar margar
áður en mörg ár líða. Þeir sem
sitja hjá aðgerðarlausir þegar slík
verk eru unnin bera ekki síður
ábyrgð.
Gunnar Hilmarsson.
Lionsfélagar safna fyrir
sundlaug við Sólborg
Lionsklúbbur Akureyrar hefur
um langt skeið haft á verkefna-
skrá sinni að styðja uppbygg-
ingu og starfsemi Vistheimilis-
ins Sólborgar.
Fyrir nokkrum árum var hafin
bygging sundlaugar við heimilið
að frumkvæði Styrktarfélags van-
gefinna, sem jafnframt naut til
þeirrar framkvæmdar fulltingis
ýmissa annarra félaga og sam-
taka.
Þrátt fyrir að leitað hafi verið
eftir opinberum framlögum til
byggingar laugarinnar hafa þau
ekki fengist. Vegna fjárskorts
hafa framkvæmdir því legið niðri
í hartnær tvö ár.
Lionsklúbbur Akureyrar hefur
ákveðið að efna til söfnunarátaks
nú í desember til styrktar sund-
laugarbyggingunni. Söfnunin
felst í því að seld verða útiljós
sem framleidd eru í Iðjulundi á
Akureyri, en það er verndaður
vinnustaður fyrir þroskahefta.
Útiljósin, einnig nefnd leiðaljós,
hafa verið framleidd í nokkur ár
ljósin á öllum þéttbýlisstöðum
við Eyjafjörð og jafnvel í dreif-
býlinu einnig.
Klúbburinn hefur leitað til
annarra Lionsklúbba við Eyja-
fjörð með þá ósk að þeir taki þátt
í söfnuninni með því að selja úti-
ljós hver á sínu svæði.
Á Akureyri hefst salan nk.
laugardag 13. des. og verður síð-
an haldið áfram laugardaginn 20.
des. og á Þorláksmessu. Ljósin
verða seld í tengslum við úti-
markað Iðjulundar í göngugöt-
unni þessa daga, í Kjörbúð
KEA við Hrísalund og í Versl-
unarmiðstöðinni við Sunnuhlíð.
Söluverð ljósanna er 160,00 kr.
og ganga 100,00 af því verði til
söfnunarinnar en 60,00 kr til
Iðjulundar, sem framleiðir ljósin.
Markmið klúbbanna er að
safna 800 þús. til einni milljón kr.
Framsóknarfélögin
Akureyri
Jólabingó á
Hótel KEA
sunnud. 14. desember kl. 15.00.
Glæsilegir vinningar:
M.a. Mokkakápa, örbylgjuofn, flugferðir, matarkörfur,
kvöldverðir fyrir 2 á Hótel KEA, Sjallanum og Fiðlaranum,
sængurfatnaður, svefnpokar.
Auk þess mikiU fjöldi góðra aukavinninga.
Stjórnandi: Sveinn Kristjánsson.
AHir velkomnir meðan
húsrúm leyfír!
Húsið opnað kl. 14.30.