Dagur - 12.02.1987, Side 3
12. febrúar 1987 - DAGUR - 3
Samvinnuferðir-Landsýn:
Geysileg aðsókn
í Hollandsferðimar
- „Aldrei orðið vitni að öðru eins“ segir Asdís Árnadóttir
„í þau 10 ár sem ég hef starfað
við þetta hef ég aldrei orðið
vitni að annarri eins ásókn í
utanlandsferðir, það hefur
bókstaflega verið svo mikill
straumur fólks hingað að það
hafa ekki allir komist inn á
stundum,“ sagði Asdís Árna-
dóttir hjá Samvinnuferðum-
Landsýn á Akureyri er við
spjölluðum við hana í gær.
Ásdís sagði að sumarhúsin í
Hollandi væru greinilega númer
hjá SL á Akureyri
eitt á vinsældalistanum. „Ferða-
bæklingurinn okkar kom út á
mánudaginn og strax á tveimur
dögum vorum við búin að bóka
hér á Akureyri talsvert á annað
hundrað manns til Kempervenn-
en í Hollandi. Þetta er greinilega
það vinsælasta í dag,“ sagði
Ásdís.
Kjartan L. Pálsson yfirfarar-
stjóri Samvinnuferða-Landsýnar
sagði að það væri ekki einungis til
Kempervennen sem straumurinn
virtist liggja, en þangað væri búið
að bóka yfir 600 farþega. Uppselt
er í SL-ferðir til Mallorca og
langir biðlistar í þær ferðir, þá
væri uppselt og biðlisti í Kanada-
ferð og áfram mætti telja.
„Ég tel að hluti af ástæðunni
fyrir þessari gífurlegu aðsókn
sem slær öll met sé sú að við
erum eina ferðaskrifstofan sem
hefur gefið út verð á ferðunum,
fyrir nú utan það að við erum að
selja mjög góða vöru á afar hag-
stæðuverði,“sagðiKjartan. gk-.
Skattleysisnörk við
33 þúsund krónur
Frumvarpið um staðgreiðslu-
kerfi skatta sem nú er til
umfjöllunar á Alþingi virðist
vera tiltölulega einfalt í
framkvæmd, þótt eflaust eigi
eftir að sníða af því ýmsa agn-
úa.
Helstu fylgismenn stað-
greiðslukerfis skatta benda á að
þegar skatturinn er innheimtur
jafnóðum viti launþegar
nákvæmlega hverjar hinar raun-
verulegu ráðstöfunartekjur eru
hverju sinni. Taka má þrjú mis-
munandi dæmi um hvernig stað-
greiðslukerfið kemur til með að
virka á tekjur manna. í dæmun-
um eru atriði eins og barnabætur,
húsnæðisafsláttur og sjómanna-
frádráttur ekki tekin með í reikn-
inginn, enda liggja þau ekki jafn-
ljóst fyrir.
Launþegi sem hefur 45 þúsund
krónur í mánaðarlaun greiðir
15.750 krónur í tekjuskatt og
Fyrir nokkru var haldinn aðal-
fundur Taflfélags Blönduóss
sem nú er orðið eitt af deildum
Ungmennasambandsins, og
virðist sem nokkuð aukinn
áhugi sé á skákinni.
Reglulegar æfingar eru hjá
skákmönnum á miðvikudags-
kvöldum á Hótel Blönduós og
hafa mætingar verið með ágæt-
um. í deildarkeppninni “85-“86
keppti sveit U.S.A.H. í a riðli
þriðju deildar og varð í öðru sæti
deildarinnar næstir á eftir b sveit
Hafnfirðinga. í keppninni “86-
“87 teflir sveitin í annarri deild
þar sem þeim var boðið að taka
þátt í henni vegna þess að Kefl-
víkingar tilkynntu ekki þáttöku
fyrir tilskilinn tíma. Sveit T.B.
hefur svo sannarlega sannað að
hún. á fullt erindi í aðra deildina
en þar er hún núna í öðru sæti
með 14 vinninga.
Á meistaramóti félagsins sem
fram fór fyrir skömmu var teflt í
tveim flokkum, og urðu helstu
úrslit sem hér segir: í flokki full-
orðinna sigraði Sigurður Daníels-
son með 6 v. annar varð Þorleifur
útsvar (35%) en á móti kemur
11.500 króna persónuafsláttur.
Innheimtur skattur er því 4250
krónur og útborguð mánaðarlaun
40.750 krónur, sem eru raun-
verulegar ráðstöfunartekjur.
Launþegi sem hefur 30 þúsund
krónur í mánaðarlaun á að greiða
10.500 krónur í skatt. Persónuaf-
slátturinn er 11.500 krónur og
geymdur afsláttur, sem jafnað
yrði á árið, nemur því 1000
krónum. Innheimtur skattur er
því 0 krónur og útborguð laun 30
þúsund krónur.
Launþegi sem hefur 100.000
krónur í mánaðarlaun greiðir
35.000 krónur í skatt. Persónu-
afsláttur er 11.500 krónur. Inn-
heimtur skattur er því 23.500
krónur og útborguð mánaðarlaun
því 76.500 krónur.
Aðrir skattar, svo sem fast-
eignaskattur o.fl. verða að öllum
líkindum innheimtir eftir á. BB.
Ingvarsson með 4 v. og þriðji Jón
Hannesson einnig með 4 vinn-
inga. í unglingaflokknum sigraði
Einar Kolbeinsson með 6'/i v.
annar var Ingvar Björnsson með
5 v. og þriðji Þórarinn Ólafsson
með 4 vinninga. G.Kr.
Ákveöiö er að Höfði hf. á
Húsavík byggi hús yfir starf-
semi sína, framkvæmdir munu
væntanlega hefjast um næstu
mánaðamót og hluti húnæðis-
ins verða tekinn í notkun
næsta vetur.
Höfði hefur fengið lóð á upp-
fyllingunni við höfnina og fyrir-
hugað er að byggja hús sem verð-
ur alls um 800 fm að stærð og að
Kammerhljómsveit
Akureyrar:
Einar
einleikari
Hinn þekkti klarinettuleikari
Einar Jóhannesson verður ein-
leikari á tónleikum Kammer-
sveitar Akureyrar sem fram
fara í Akureyrarkirkju nk.
sunnudag kl. 17.
Einar hefur hlotið margsháttar
viðurkenningar sem klarinettu-
leikari, má þar nefna að hann
sigraði í samkeppni sem Yehudi
Menuhin efndi til, einnig hlaut
hann Sonning-verðlaunin
dönsku. Einar hefur undanfarin
ár starfað í Sinfóníuhljómsveit
íslands og hefur oft komið fram
sem einleikari bæði heima og er-
lendis. Við segjum nánar frá
þessum tónleikum á morgun.
hluta til á tveim hæðum. Á efri
hæðinni verður skrifstofuhúsnæði
fyrirtækisins en netagerðin,
geymslur og lagerrými á neðri
hæðinni. Húsið er teiknað sem
einingahús og sagðist Kristján
Ásgeirsson framkvæmdastjóri
vonast til þess að framkvæmdir
við bygginguna gætu hafist um
mánaðamótin og að hægt yrði að
taka iðnaðarhúsnæðið í notkun
næsta vetur. IM
Taflfélag Blönduóss:
Góður árangurí
deildakeppnmni
Húsavík:
Höfði byggir
800 fm hús
N.L.F.-vörar
Blómafræflar
Gev-e-tabs með ginseng
Þaratöflur
Ölgerstöflur
Maxo-vit fjölvítamín
Pollitabs
Melbrosia fyrir konur og karla
Megrunartöflur
Gigtartöflur
Magnasinbelgir
Lexithinbelgir
Lýsistöflur
Fjallagrös
Hörfræ og margt fleira
fcNRARIK
RAFMAGNSVEITUR RlKISINS
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í
eftirfarandi:
RARIK-87003: 7/12 kV Aflstrengur.
Opnunardagur: Þriðjudaginn 3. mars 1987 kl. 14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyriropnun-
artíma og verða þau opnuð á sama stað að við-
stöddum þeim bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, frá og
með miðvikudegi 11. febrúar 1987 og kosta
kr. 200,- hvert eintak.
Reykjavík, 9. febrúar 1987.
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS.
NÁMSGAGNASTOFNUN
PÓSTHÓLF 5192 • 125 REVKJAVlK • SIMI 28088 ^
SAMKEPPNI UM RITUN BARNABÓKA
Námsgagnastofnun hefur ákveðið að hefja útgáfu nýrra
lesbóka handa 6-9 ára börnum ogefnir íþvískyni til sam-
keppni um gerð slíkra bóka.
Samkeppninni verður þannig hagað að hún mun standa
næstu tvö til þrjú ár með þeim hætti að skil handrita
verða þrisvar á ári, 1. maí, 1. september og 1. janúar. í
jyrstu verður lögð áhersla á bækur Imnda 6-7 ára
börnum. Allt aðþrenn verðlaun verða veitt hverju sinni,
fyrir texta og/eða myndefni, að upphæð kr. 30.000.00
hver. Auk þessa verða veittar sérstakar viðurkenningar
fyrir verk sem þykja álitleg. Ráðgert er að dómnefnd skili
áliti eigi síðar en mánuði eftir skiladag hverju sinni.
Handritum skal skila með tillögum að myndefni en einnig
kemur til greina að myndlistarmenn og höfundar texta
vinni saman að samningu.
Námsgagnastofnun áskilur sér rétt til aðgefa út þau verk
sem verðlaun og viðurkenningu hljóta og verðurþá gerð-
ur um það sérstakur samningur.
Ýtarlegar upplýsingar sem nauðsynlegar eru fyrir vænt-
anlegaþátttakendur, m.a. um lengd, þyngd, hlut mynd-
efnis og efnissvið, er að finna í fjölriti hjá Ingibjörgu
Ásgeirsdóttur, Námsgagnastofnun, Laugavegi 166
Reykjavík og Guðmundi B. Kristmundssyni, Æfinga-
og tilraunaskóla K.H.Í.
1. skiladagur er 1. maí 1987.