Dagur - 12.02.1987, Síða 5
12. febrúar 1987 - DAGUR - 5
Joan Collins hefur greinilega komið
sér upp mjög skemmtilegri stellingu
við myndatökurnar.
Elízabet Taylor er greinilcga með
allt á hreinu, einbeitnin leynir sér
ekki, puttinn upp í loftið og stjarnan
hefur áreiðanlega smellt af á næstu
sekúndu.
Susan Howards myndir á sína
einkavél. Hún leikur Donnu
Krebbs í Dallas. Á ferð í Holl-
andi var hún eins og hver annar
ferðamaður með myndavélina
hangandi framan á sér. Sjálfur
Mick Jagger lætur sitt ekki eftir
liggja við ljósmyndatöku og
hann mun vera sérlega þolin-
móður við að bíða eftir rétta
andartakinu til að smella af.
Eins og af framansögðu sést
hafa blaðaljósmyndarar kannski
ástæðu til að óttast um hag sinn
og það fer að verða vafamál
hver tekur myndir af hverjum,
en við fylgjumst spennt með
framvindu mála.
Drottning Engilsaxa myndar
grimmt, mun hún þó hafa
mikla snillinga á þessu sviði
allt í kringum sig, en sú gamla
ekki á sig fá.
Tannlæknafélag Norðurlands:
Um tennur
Tannholdsbólga
og tannlos
Vissir þú að það er til tannsjúk-
dómur sem er a.m.k. jafn algeng-
ur og tannskemmdir?
Sjúkdómurinn lýsir sér sem
bólga í þeim vefjum sem halda
tönnunum föstum, þ.e. tann-
holdi, kjálkabeini og tannslíðri.
(Sjá mynd 1). Afleiðingar hans
eru tannlos. Einkenni siúk-
dómsins eru svo væg framan af að
hann uppgötvast oft ekki fyrr en
um seinan.
Þar sem margt fólk á það á
hættu að missa tennur um aldur
fram af þessum sökum mun þessi
þáttur einungis fjalla um tann-
holdsbólgu og tannlos, og hvað
hægt er að gera til hjálpar.
E
Stefán. Pétur. Auftur.
VIÐ HÖLDUM FUNDI
Laugardaginn 14. febrúar kl. 14.00
í samkomuhúsinu Grund, Svarfaðardal.
Kaffiveitingar
Sunnudaginn 15. febrúar kl. 21.00
í Barnaskóla Bárðdæla.
Kaffiveitingar
FJÖL.MENNUM
Sérframboð í Norðurlandskjördæmi eystra.
3. grein
Hvernig lítur heilbrigt
tannhold út?
Heilbrigt tannhold er ljósbleikt á
litinn. Pað er ofurlítið hrjúft við-
komu, og minnir áferðin nokkuð
á appelsínubörk. Tannholds-
röndin er þunn og fellur þétt að
tönnunum. Keilulaga tannholds-
separ teygja sig upp á milli tann-
anna og fylla bilin á milli þeirra.
Það blæðir ekki úr tannholdinu
við tannburstun sé það heilbrigt.
Hvernig lítur bólgið
tannhold út?
Fyrsta stigið.
Fyrstu merki um tannholds-
bólgu eru að tannholdið verð-
ur svolítið aumt viðkomu og
það blæðir við tannburstun.
Tannholdsseparnir á milli tann-
anna verða rauðleitir og þrútna
svolítið. (Sjá mynd 2).
Ástæða þess að tannholdið
bólgnar er sú að sýklar, sem við
höfum öll í munninum, mynda
skán á tönnunum. Á einum til
tveimur dögum nær þessi skán að
þekja tennurnar ef þær eru ekki
burstaðar. Sýklaskánin veldur
bólgu í tannholdinu sem síðan
leiðir af sér tannlos ef ekkert er
að gert.
Annað stigið.
Tannholdið roðnar og bólgnar
meira. Sýklaskánin hefur náð að
yaxa niður á ræturnar, og það er
farinn að myndast tannsteinn á
tönnunum, en tannsteinn er göm-
ul sýklaskán, sem náð hefur að
kalka. Tannsteinninn er svo aftur
gróðrarstía fyrir nýja sýklaskán.
Efsti hluti kjálkabeinsins hefur
látið undan fyrir áhrif bólgunnar
og er horfinn. (Sjá mynd 3).
Þrátt fyrir að sjúkdómurinn
hafi nú valdið töluverðu tjóni
þarf sjúklingurinn ekki að verða
var við los á tönnum. Þó iná
e.t.v. merkja að einhver tönn
virðist lengri en hún var áður
fyrr.
Priðja stigið.
Nú hefur sjúkdómurinn náð
því stigi að mestur hluti þess
beins sem umlykur tannræturnar
er uppleystur. (Sjá mynd 4). Það
er fyrst nú sem los kemur á tenn-
urnar og fólk verður alvarlega
vart við að eitthvað er að. Áður
en tennurnar byrja að losna hafa
oft myndast bil á milli þeirra.
Hefur þú eitthvert eftir-
talinna einkenna?
A. Blæðir úr tannholdinu við
tannburstun?
B. Hefur þú tannstein?
C. Hafa myndast bil á milli
tanna sem snertust áður?
D. Eru tennurnar iengri nú en
fyrir t.d. 5-10 árum?
E. Er nokkur tönn laus?
F. Er vont bragð í munninum á
morgnana eða ert þú andfúll?
Hafir þú eitthvert þessara ein-
kenna skalt þú biðja tannlækninn
þinn að líta á tannholdið við
tækifæri.
Er hægt að koma í veg
fyrir tannlos?
Fyrr á árum var það talinn eðli-
legur fylgifiskur Elli kerlingar að
tennurnar losnuðu á sama hátt og
hárin grána.
Nú vitum við hins vegar að
tannholdsbólga og tannlos á ræt-
ur að rekja tii sýklaskánar á
tönnunum. Þess vegna má koma
í veg fyrir bólguna með reglulegri
og góðri munnhirðu. Burstaðu
því tennurnar a.m.k. tvisvar á
dag. Notaðu mjúkan tannbursta.
Notaðu tannþráð eða þrístrenda
tannstöngla til þess að hreinsa á
milli tannanna. Mundu að þú ert
ekki bara að hreinsa matarleifar
af tönnunum heldur ert þú að
nudda sýklaskánina burt.
Tannlæknirinn þinn getur
hjálpað þér í þessu sambandi
með því að sjá til þess að allar
fyllingar séu vel pússaðar svo
auðvelt sé að hreinsa á milli tann-
anna.
Er hægt að lækna
tannholdsbólgu?
Yfirleitt er hægt að meðhöndla
tannholdsbólgu og stöðva fram-
gang sjúkdómsins þannig að
hann leiði ekki af sér tannlos.
Meðferðin krefst góðrar sam-
vinnu tannlæknis og sjúklings.
Þáttur tannlæknisins í meðferð-
inni felst i því að hreinsa burt allt
sem ertir tannholdið svo sem
sýklaskánir, tannstein o.þ.u.l.
Stundum þarf að grípa til skurð-
aðgerða til þess að komast fyrir
sýkinguna og gera umhverfi tann-
anna þannig úr garði að hægt sé
að halda þeim hreinum.
Þáttur sjúklingsins er í því
fólginn að sjá til þess að tann-
holdið sýkist ekki á ný. Það
krefst nákvæmrar munnhirðu
sem er þolinmæðisverk. Flestir
sjúklinganna þurfa á eftirliti
tannlæknis að halda tvisvar til
þrisvar á ári eftir að meðferðinni
lýkur.
Taktu eftir að lokum
Blæðing úr tannholdi sem ekki
hverfur á nokkrum dögum við
nákvæma tannhreinsun getur átt
rætur að rekja til annarra
ástæðna en framan getur, t.d.
sykursýki eða hormónatruflana.
Láttu tannlækninn þinn ganga úr
skugga um hvers kyns er.