Dagur - 12.02.1987, Side 6

Dagur - 12.02.1987, Side 6
6 - DAGUR - 12. febrúar 1987 Texti: Ingibjörg Elfa r~\ Stefánsdóttir. Á landinu eru starfandi samtök sem bera nafnið Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglar. Hér á Akureyri er hópur fólks í þessum samtökum þó lítið fari fyrir þeim, nema þá frekast á sumrin. Mér lék nokkur forvitni á að vita hvers konar samtök Sniglar væru ásamt því hvað er svona sérstakt við bifhjól. í hugum margra er ímynd hins svala gæja sú að sjá svartklæddan mótorhjólatöffara geysast um á stóru svörtu hjóli. Þessir menn eiga þá samfylgjandi ímynd að vera hrottar og jafnvel glæpamenn. Kvöldstund sú sem ég eyddi með Sniglunum sannfærði mig um að margir þyrftu að búa sér til nýja ímynd af hinum svala gæja því Sniglarnir eru (kannski eins og nafnið bendir til) mestu rólegheita skinn sem leggja sál sína í þetta áhugamál, sem reyndar er orðið stór þáttur í lífi margra Sniglanna. Sniglarnir halda fundi annað hvert fimmtudagskvöld í Dynheimum og verður næsti fundur fimmtudagskvöldið 19. febrúar klukkan 21.00. Sniglarnir hvetja eindregið alla sem hafa áhuga á bifhjólum að koma á fundi og kynnast málunum. BALDVIN B. RINGSTED HARALDUR SIGURÐARSON HEIÐAR Þ. JÓHANNSSON - Hvers vegna heita samtökin Sniglar? B: „Pegar samtökin voru stofnuð formlega eftir auglýsingu í DV þá komu nokkrir áhugamenn saman og lögðu hausana í bleyti til að spá í eitthvert nafn. Það voru komnar ýmsar hugmyndir fram eins og Svarta höndin, eitthvað óhugnan- legt og ruddalegt. Þá kom þetta nafn fram og það þótti svo gott að það var ákveðið." - Það er ekki verið að skírskota til hraðans sem þið akið á? HS: „Við sniglumst jú þegar við erum margir.“ B: „Það má segja það, í nafni félagsins þá sniglumst við. Þegar við tökum hópakstur og annað slíkt þá höldum við okkur innan leyfi- legra marka.“ - Hvert er takmark félagsins? B: „Einhver sagði að takmark félagsins væri að koma öllum íslendingum á hjól fyrir aldamót. En í lögum félagsins stendur að það sé til að byggja upp samstöðu með- al bifhjólamanna og vinna að hags- munum þeirra. Ná fólki saman og fara í ferðir út á land og út í heim. Það er ferðast milli Norðurlands og Suðurlands einnig mætist hópurinn einhvers staðar um verslunar- mannahelgar. Síðast vorum við í Vestmannaeyjum og þar áður í Atlavík. Það er líka búið að fara tvær utanlandsferðir á sýningar og það er verið að ræða um að fara í Evrópureisu eða á Ólafsvökuna í Færeyjum." - Hvað eru samtökin gömul? B: „Þau eru stofnuð í apríl 1984.“ - Hvernig skiptast samtökin milli landshluta? B: „Það er varla hægt að segja að þau skiptist. Við byrjuðum að halda fundi hér á síðasta hausti því það var orðinn svo fjölmennur hóp- ur hérna og erfitt að fara suður einu sinni í viku á fund. Það er stjórn í samtökunum en enginn sérstakur formaður. Snigill númer eitt er aldursforsetinn.“ - Hvernig er með húsnæði? B: „Það stendur til aó koma upp húsnæði en það yrði sennilega á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Ef við fengjum einhvern bragga hér vær- um við vís með að þiggja hann. Við Heiðar Þ. Jóhannsson. hjálm, hanska og stígvél. Og að keyra alltaf með Ijós og þ.h. Þú sérð nú yfirleitt ekkert alvarlegt að hjá manni á stóru hjóli, ekki eins og hjá þessum skellinöðrupúkunt þar sem 3 af hverjum 4 eru ljóslausir í umferðinni. Ábyrgðartilfinningin er meiri þegar menn eru komnir á stór hjól.“ - Hafið þið lítið álit á þessum skellinöðrupúkum? B: „Nei við erum allir búnir að ganga í gegnum þetta og vitum hvað þetta er en okkur blöskrar samt hvað þeir eru kærulausir. Þeir gera sér margir hverjir ekki grein fyrir hvað þetta er hættulegt í raun og veru.“ - En að taka þá inn í samtökin? B: „Þeir verða að hafa sín sam- tök sjálfir. Það hefur verið rætt um að bjóða þeim jafnvel á kynningar- fund og gefa þeim góð ráð. Þeir HS: „Og hávaðinn sem er kvart- að undan er í rauninni öryggisatriði því þegar bílstjórar sjá okkur ekki í baksýnisspegli er hávaðinn í hjól- unum það sem segir þeim að við séum þarna.“ - Eru þetta ekki keppnissamtök á neinn hátt? B: „Nei, þau eru fyrst og fremst til að ná saman mönnum sem hafa verið dreifðir hver í sínu horni. Ef einhver sem á gamalt hjól sem er í sæmilegu ásigkomulagi, og hann vill losna við það þá er um að gera að tala við okkur og ganga í sam- tökin.“ - Bjóðið þið ekki upp á við- gerðanámskeið fyrir yngra fólkið sem er að stíga sín fyrstu skref á þessari braut? B: „Nei það hefur ekki verið gert. Um leið og þú færð þér hjól og ef eitthvað bilar þá bara spyrðu næsta mann. Ef hann getur engar ráðleggingar veitt þér þá finnst örugglega einhver. Samtökin eru eins og að eignast 300 systkini og allir vilja hjálpa öllum.“ - Hvernig gengur samstarfið við lögreglu? B: „Það hefur yfirleitt verið mjög gott. Fyrir sunnan bauð yfirlög- regluþjónninn strákunum f kaffi þar sem rædd voru ýmis mál.“ HJ: „Það er mikið svínað á okk- ur í umferðinni og 30% slysa sem verða á bifhjólum verða þegar svín- að er á okkur.“ B: „Við erum að reyna að koma af stað vakningu þar sem við viljum að allir keyri í fullkomnum hlífðar- galla. Alveg í leðri með góðan arm samtakanna og þá teljum við Akureyri, Dalvík, Svalbarðsströnd og Þingeyjarsýslu. Við erum 35-40 manns og þar af 5-6 stelpur. Heild- arfjöldinn yfir landið er að nálgast 300.“ - Er hægt að vera félagi hvar sem er á landinu? B: „Já það er gefið út fréttabréf. í því eru nýjustu slúðursögurnar, Haraldur Sigurðsson auglýsingar frá umboðunum og jafnvel tæknimál." - Hvar er hægt að fá þetta blað? HS: „Hafa samband við Snigil og fá að lesa þetta hjá honum.“ - Er nauðsynlegt að hafa svona félag? HS: „Já.“ B: „Já, þetta eflir svo samkennd- ina. Það er gaman að skemmta sér með fólki sem hefur sömu áhuga- mál. Að hittast hvaðanæva af land- inu á einum stað, það er svo tignar- legt að sjá 30 hjól saman að þú trúir því ekki fyrr en þú sérð það.“ - Hræðist fólk ykkur ekki ef þið komið kannski 20-30 saman með ógnar hávaða? B: „Það eru áhrif frá amerískum bíómyndum. Fólk setur oft sama- semmerki milli mótorhjóla og glæpamanna. Leðrið hefiy líka þessi áhrif.“ Baldvin B. Ringsted. kunnum vel við okkur undir beru lofti enda eru samtökin virkust á sumrin þá er helst legið í tjöldum.“ - Hver eru skilyrði til að komast í samtökin? B: „Upphaflegu og núverandi skilyrðin eru þau að vera orðinn 17 ára. En það stendur til að gera ein- hverja smá trekt, það þarf ekki nema eina skemmda legu í góða vél til að allt sé ónýtt. Það hafa heyrst sögur um að þetta séu glæpamenn eða þaðan af verra.“ - En verður maður að eiga mótorhjól til að ganga í samtökin? B: „Nei alls ekki. Það er talið æskilegt að þú hafir áhuga á mótor- hjólum. Það er nóg að vita að þetta er farartæki á tveim hjólum sem kemst hratt og það er gaman að ferðast á þessu. Það þarf ekki að vita nein tækniatriði eða neitt svo- leiðis.“ - Hvað með stelpur? B: „Stelpur eru velkomnar.“ - Eru einhverjar starfandi núna? B: „Já ætli þær séu ekki svona 10%.“ HS: „Allt of fáar.“ - En hér fyrir norðan? B: „Við köllum okkur Nyrðri

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.