Dagur - 12.02.1987, Side 16

Dagur - 12.02.1987, Side 16
Akureyri, fimmtudagur 12. febrúar 1987 Bílarafmagn Rafvélaverkstæði okkar er opið alla virka daga frá kl. 7.30-17.15 Önnumst viðgerðir á störturum, dínamóum og öðrum rafmagnshlutum í bílum Sauðárkrókur: Samið um hærra fiskverð Bráðabirgðasamkomulag hef- ur tekist milli Útgerðarfélags Skaglirðinga og frystihúsanna við Skagafjörð um hækkun á fiskverði. Gildir það til 15. mars og verður þá endurskoð- að. Frystihúsin greiða 10% ofan á gildandi verð á þorski og ýsu og 5% á aðrar tegund- ur. Bjarki Tryggvason fram- kvæmdastjóri ÚS sagði að með þessari hækkun á fiskverði sem skiptist eins og aflaverðmætið milli útgerðar og áhafnar, væri Þórshöfn: Vandræði með vatnið Neysluvatn á Þórshöfn stenst ekki kröfur heilbrigðisyfir- valda og auk þess er það af skornum skammti. Því er fyrir- hugað að leggja tólf kílómetra langa vatnslögn frá Gunnólfs- víkurfjalli að miðlunartanki við Þórshöfn. fyrst og fremst verið að sporna við því að hráefni færi óunnið úr landi og um leið leiðrétta kjör sjómannanna. Bjarki kvað þetta fiskverð vera á svipuðum nótum og um hafi verið samið á Akureyri, útfærsl- an væri aðeins öðruvísi. Enda hafi verið ákveðið á fundi for- ráðamanna frystihúsa af öllu Norðurlandi á Akureyri í síðustu viku að reyna að samræma fisk- verð hér fyrir norðan. Fulltrúar áhafna togara Útgerðarfélags Skagfirðinga tóku þátt í viðræðunum, en þær höfðu farið þess á leit að fá leiðréttingu á sínum launum til samræmis við laun sjómanna á skipum sem sett hafa afla í gáma. Sættu þeir sig við þessa niðurstöðu enda vilyrði fyrir, að komi það í Ijós 15. mars að þeirra kjör séu lakari en ann- arra togarasjómanna á Norður- landi, verði þau leiðrétt. Drangey landaði á mánudag 115 tonnum og von er á Skafta til hafnar á fimmtudag. Hegranes er væntanlegt úr slipp á Akureyri um miðja viku. -þá Úr göngugötunni: Hér beinir ljósmyndarínn linsunni niður á fólkið og ekki er annað að sjá en að fjarlægðin geri mennina smáa. Mynd: rþb Daníel Árnason sveitastjóri sagðist vonast til að hægt yrði að fara í þessar framkvæmdir í sumar, það væri nánast ákveðið svo framarlega sem fjármagn fengist. Lögnin sjálf mun kosta tæpar ellefu milljónir króna en í lögum er ákvæði um að ríkið skuli greiða 50% af kostnaði sem styrk vegna slíkra framkvæmda. Samkvæmt reynslu annarra sveit- arfélaga sem staðið hafa fyrir framkvæmdum að þessu tagi hef- ur greiðslan frá ríkinu komið á nokkrum árum eftir að fram- kvæmdum er lokið. Nú er neysluvatn fyrir Þórs- höfn tekið á Brekknaheiði, það er yfirborðsvatn sem gruggast í leysingum og stenst ekki kröfur heilbrigðisyfirvalda þó vatnið sé nokkuð gott þegar tíð er góð. Einnig er vatnið af skornum skammti þannig að þegar slátrun stendur yfir í sláturhúsinu, auk fiskvinnslu horfir til vandræða með að hægt sé að útvega nægi- legt vatn. Nýja vatnslögnin mun því leysa tvo þætti málsins bæði mun fást hreint vatn og nógu mikið. IM Akureyrarhöfn: Aðeins 5,3 milljónir fást til framkvæmda „Það liggur beinast við að ætla að „atkvæðin“ sjái einna helst vegi landsins en ekki flug- velli og hafnir,“ sagði Guð- mundur Sigurbjörnsson hafn- arstjóri á Akureyri er við ræddum við hann um fjárveit- ingu til hafnarframkvæmda á árinu. Áætlað var að verja 32 milljón- um króna til hafnarframkvæmda á Akureyri á árinu, og ríkið á að greiða 75% af þeim kostnaði eða 24 milljónir. Því var farið fram á þá upphæð en niðurstaðan hefur orðið sú að samkvæmt fjárlögum fær Akureyrarhöfn 5,3 milljónir til framkvæmda. Eldri skuld ríkisins vegna hafnarfram- kvæmda á Akureyri nemur 11 milljónum og var reiknað með að sú upphæð fengist a.m.k. að sögn Guðmundar en niðurstaðan er sem sagt 5,3 milljónir króna. Guðmundur sagði að aðal- framkvæmdin á árinu tengdist væntanlegri fiskihöfn. Lengja á viðlegukant Slippstöðvarinnar og ganga endanlega frá því mann- virki og reisa á grjótgarð í norður út frá.togarabryggjunni. Þarna á að myndast fiskihöfn og verður ráðist í þetta verkefni á árinu þrátt fyrir lága fjárveitingu að sögn Guðmundar en ekki liggur enn fyrir hvernig þessar fram- Framsóknarflokkurinn: Framkvæmdastjom fundar á Akureyri Framkvæmdastjórn Fram- sóknarflokksins kemur saman til fundar á Hótel KEA í kvöld og á morgun. Einnig mun þingflokkur framsóknarmanna sitja fundinn, auk formanna kjördæmissambanda, fram- bjóðenda, formanna Iands- samtaka framsóknarmanna og kosningastjóra flokksins úr öll- um kjördæmum. Fundarmenn snæða kvöldverð a Hótel KEA en síðan verður hafist handa við lokafrágang stefnuskrár flokksins og er búist við að sú vinna standi fram eftir kvöldi. Á föstudagsmorguninn munu þingmenn og ráðherrar flokksins ásamt öðrum frambjóðendum heimsækja ýmis fyrirtæki á Akur- eyri og kynnast starfseminni .sem þar fer fram. Eftir hádegið hefst síðan ráðstefna með frambjóð- endum og kosningastjórum á Hótel KEA. Þar verður rætt um fyrirhugað- ar alþingiskosningar, ráðherrar ræða stöðuna í einstökum rnála- flokkum sem heyra undir þeirra ráðuneyti og formenn kjördæm- issambanda greina frá kosn- ingaundirbúningnum úti í kjör- dæmunum. Síðan verða almenn- ar umræður en stefnt er að því að ráðstefnunni ljúki um kvöld- matarleytið á föstudag. BB. kvæmdir verða fjármagnaðar. Af öðrum framkvæmdum má nefna malbikun og lýsingu við smábátahöfnina í Sandgerðisbót. Þá er nú unnið að teikningum á verbúðum þar, og sagðist Guð- mundur reikna með að þegar teiknivinnu lýkur verði mönnum gefinn kostur á að byggja þar samkvæmt teikningunum. gk-. Topp 5“ meðal loðdýrabænda 55 - nýjung hér á landi aðalfundi Félags loðdýra- fjölgað um 10 á síðasta ári. Loð- dýrabúum hefur fjölgað um helming síðan félagið var stofnað ’83 og eru þau milli 20 og 30 nú. Hann sagði félagið nokkuð öflugt og starfsemina virka. Aðspurður um skinnaverð sagði hann það frekar á uppleið. „í Finnlandi fékkst ágætt meðal- verð fyrir blárefinn, 2.306 kr. og í Danmörku minnir mig að meðal- verðið hafi verið 1.970 kr. Ástæðan fyrir þessum mismun er sú að Finnarnir eru með meira af skinnum í hærri gæðaflokkum og lyfta meðalverðinu þannig upp. Það er hins vegar meira um léleg skinn í Danmörku og því er með- alverðið lægra þó fengist hafi svipað verð fyrir svipuð skinn,“ sagði Arvid. Að lokum sagðist hann vera að fara til Danmerkur þar sem hann ætlaði að dvelja í nokkurn tíma og líta á skinnauppboðin. SS ræktenda í Eyjafirði voru gerð nýstárleg drög að reglugerð varðandi gæði skinna sem koma frá búunum. Arvid Kro formaður félagsins lýsti þessu þannig að þetta væri svipað og „Topp 10“ í tónlistarheimin- um. Birtur verður listi yfir 5 framleiðendur sem bestu skinnin koma með hverju sinni. Þetta mun vera nýjung hér á landi. Með þessu er verið að hvetja loðdýrabúin til að stuðla að auknum gæðum skinna sinna því án efa þykir mönnum mikilsvert að komast á þennan lista. I tengslum við aðalfundinn var haldin skinnasýning eins og greint hefur verið frá. Að sögn Arvids voru félagar orðnir 44 fyrir fundinn og 3 bætt- ust í hópinn þar. Þeim hefur

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.