Dagur - 20.02.1987, Page 2

Dagur - 20.02.1987, Page 2
2 - DAGUR - 20. febrúar 1987 Borgarbíó um helgina: Nýr glæsilegur salur í notkun Frá og með morgundeginum eiga Akureyringar einn allra glæsilegasta bíósal á landinu, en kl. 21 annað kvöld verður tekinn í notkun hjá Borgarbíói nýr salur sem tekur 132 manns í sæti. Langþráður draumur er í höfn, því það verður að segj- ast eins og er að gamli salurinn sem hýsir bíógesti í síðasta skipti í kvöld svarar ekki leng- ur þeim kröfum sem gerðar eru I dag. Það er óhætt að segja að ekk- ert hafi verið til sparað við gerð nýja salarins sem er í nýrri glæsi- legri byggingu. Gengið er inn að vestan í afar rúmgott og smekk- legt anddyri sem hýsir miðasölu, sælgætissölu og þjónar báðum sölunum. Gamli salurinn verður nefnilega „tekinn í gegn“ núna og færður í sama búning og nýi salurinn. Framkvæmdir við nýju bygginguna hófust í nóv. 1985. Birgir Ágústsson sem hannaði húsið og allar innrétt- ingar sagði í samtali við Dag að hann væri mjög ánægður með útkomuna, og vissulega sýnir hún að iðnaðarmenn á Akureyri eru í hæsta gæðaflokki. Salurinn er all- ur á pöllum, sætin afar þægileg og sérstaklega rúmgott á milli þeirra. Sýningartjaldið er 8,30x3,50 metrar, um helmingi stærra en tjaldið í gamla salnum og stærsta tjald í kvikmyndahúsi hérlendis miðað við salarstærð. Ný tækni riður sér til rúms í sýningarklefanum. Keyptir hafa verið svokallaðir plattar sem filman kemst öll á þannig að skiptingar á milli eru nú úr sög- unni í miðri mynd, og er þetta nýjung í kvikmyndahúsi utan Reykjavíkur. „Dolby stereó" kerfi er í salnum þannig að hljóð- ið ætti að komast tii skila í gegn- um JBC hátalarakerfið, en allur í anddyrinu voru sntiðir að vinnu við Iokafrágang. Mynd: rþb A laugardaginn 21. febr. opnum við nýtt bakarí í glœsilegu húsnœði að Ttyggvabraut 22 (milli Teppalands og Vörubœjar). Við opnum kl. 8.00 og bjóðum upp á rjúkandi brauð, gómsœtar tertur, konditorikökur og margt fleira. Stórkostleg nýjung! Bökunarofn í búðinni sér um að alltaf verði nýbökuð vínarbrauð, formkökur; tebollur o.fl. Vekjum sérstaka athygli á opnunartímanum Mánud.-föstud. frá 7.30-18.00 laugard. frá 8.00-16.00 sunnud. frá 9.00-16.00 Stórkostlegt nýtt brauðúrval og bjóðum við viðskiptavinum okkar að smakka á 3 tegundum! Mikið úrval af mjólk og mjólkurvörum, áleggi, kaffi. gosi o.fl. Bridds: Frímann og Pétur Akureyrarmeistarar Frímann Frímannsson og Pét- ur Guðjónsson báru sigur úr býtum í Akureyrarmóti Bridgefélags Akureyrar í tví- menningi sem lauk á þriðju- dagskvöldið. Keppnin var mjög jöfn og spennandi, sér- staklega í lokin, og til marks um það má nefna að þegar tveimur umferðum var ólokið munaði innan við 10 stigum á pörunum í 1. og 4. sæti. Lokastaða efstu para varð þessi: 1. Frímann Frímannsson - Pétur Guðjónsson 314 stig. 2. Grettir Frímannsson - Hörður Blöndal 303 stig. 3. Haraldur Sveinbjörnsson - Jónas Karlesson 298 stig. 4. Símon I. Gunnarsson - Jón Stefánsson 273 stig. 5. Páll H. Jónsson - Friðfinnur Gíslason 163 stig. 6. Árni Bjarnason - Kristinn Kristinsson 155 stig. 7. Sveinbjörn Jónsson - Ólafur Ágústsson 153 stig. 8. Þórarinn B. Jónsson - Jakob Kristinsson 151 stig. 9. Ragnar Steinbergsson - Jóhann Gauti 150 stig. Alls tóku 40 pör þátt í mótinu en keppnisstjóri var Albert Sig- urðsson. Næsta keppni félagsins er hin árlega Sjóvá-sveitahraðkeppni og mun hún taka þrjú til fjögur kvöld, eftir fjölda þátttakenda. Sjóváumboðið á Akureyri gefur öll verðlaun til keppninnar. Sveitahraðkeppnin verður með svokölluðu Board-O-Match fyrir- komulagi, semnotið hefur tals- verðra vinsælda. Skráning þátttakenda er þegar hafin hjá stjórnarmönnum Bridgefélags Akureyrar og er öllu spilafólki á Eyjafjarðar- svæðinu heimil þátttaka. Keppnin hefst næstkomandi þriðjudag klukkan 19.30 í Félags- borg. BB. Ólafsfjörður: Iðngarðar seldir Nú standa yfir viðræður um kaup einstaklinga á iðngörðun- um í Olafsfirði og er búist við niðurstöðum í þeim viðræðum á næstunni. Áður höfðu borist tilboð í iðn- garðana. Voru þau ýmist í allt húsið og þá á bilinu 7 til 7,6 millj- ónir króna, eða í tvær einingar af fjórum og þá var tilboðið tæplega 3,4 milljónir. Þessum tilboðum var öllum hafnað af stjórn Iðn- þróunarsjóðs Ólafsfjarðar. Á fundi stjórnarinnar 23. janúar var svo ákveðið að gera þeim aðilum sem sýnt höfðu kaupunum áhuga, gagntilboð. Samkvæmt því nemur heildarverð iðngarð- anna 8 milljónum króna, yfirtaka á áhvílandi lánum nemur 6 millj- ónum króna en eftirstöðvarnar 2 milljónir króna greiðast sam- kvæmt samkomulagi. Var með þessu ítrekað það sjónarmið sjóðsstjórnarinnar að verðið á hverri af fjórum einingum húss- ins skyldi vera 2 milljónir króna. Nú er járnsmíðaverkstæði í einni einingu hússins, verkstæði fyrir vinnuvélar er í einni, svepparækt í einni einingunni en ein einingin hefur staðið auð frá því húsið var byggt. gk-.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.