Dagur - 18.03.1987, Síða 2

Dagur - 18.03.1987, Síða 2
2 - DAGUR - 18. mars 1987 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 480 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 50 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÖRNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: BRAGI V. BERGMANN BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON, GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368), HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavfk vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauðárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729) AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Jeiðari___________________________________ Koma þarf staðreyndum til kjósenda Skoðanakannanir birtast nú sem á færibandi. Dag- ur birti í gær skoðanakönnun varðandi fylgi flokka í Norðurlandskjördæmi eystra og í dag er birt sam- svarandi könnun varðandi Norðurland vestra. Þá eru aðrir aðilar með skoðanakannanir, s.s. Helg- arpósturinn og Morgunblaðið, og DV birtir skoð- anakannanir af og til. Fróðlegt er að bera þessar kannanir saman, því niðurstöður eru talsvert mismunandi. Gæti það þá m.a. orðið til þess að fremur verður nú en áður litið á þær sem vísbendingar, en ekki sem heilagan sannleika. Töluverður munur er t.d. á niðurstöðum skoðanakönnunar Dags og Félagsvísindastofnun- ar Háskólans í Norðurlandi eystra og könnunar sem SKÁÍS gerði fyrir Helgarpóstinn í sama kjör- dæmi. Kann það að byggjast á því að nokkuð mis- munandi mun hafa verið spurt, auk þess sem mun fleiri svarendur eru í könnun Dags en Helgarpósts- ins. í könnun Dags.svara tæplega 300 hvern flokk þeir muni kjósa eða telji líklegast að þeir muni kjósa, en í könnun HP svara innan við 200 ákveðið hvaða flokk þeir hyggist kjósa. í könnun Dags koma stjórnarflokkarnir talsvert verr út en í könnun Helgarpóstsins, en þetta er öfugt hvað varðar t.d. Alþýðubandalagið. Mjög mjótt er á mununum að því er virðist og því ekki hægt að segja með neinni vissu hver útkoman verður þegar talið verður upp úr kjörkössunum. Þó er ljóst að Framsóknarflokkurinn er í lægð sem stendur og gangi þessar kannanir eftir mun hann tapa miklu fylgi. Rétt er þó að minna á það, að Framsóknarflokkurinn hefur alltaf fengið minna fylgi í skoðanakönnunum heldur en í raunveruleg- um kosningum. Skoðanakönnun Dags og Félagsvísindastofnun- ar í Norðurlandi vestra bendir til mikils fylgistaps stjórnarflokkanna, en þó virðast ekki ætla að verða breytingar á þingmannatölu flokkanna. Þar eins og svo víðast annars staðar virðist baráttan vera milli Sjálfstæðisflokks og krata, en í Norðurlandi vestra slást þessir flokkar um uppbótarþingsætið, sem ræðst af ýmsu öðru en kjörfylginu í kjördæminu sjálfu. Það er ljóst að Framsóknarmenn verða að taka á honum stóra sínum í kosningabaráttunni sem framundan er. Málefnastaða flokksins er mjög góð, en svo virðist sem kjósendur taki meira mið af lýð- skrumi frambjóðenda sem ekki hafa sannað getu sína á neinn hátt, heldur en góðum verkum sem framsóknarmenn hafa komið fram á kjörtímabilinu. Framsóknarflokkurinn þarf að koma þessum stað- reyndum til kjósenda, enn frekar en gert hefur verið. HS Gúmmívinnslan hf. Akureyri: Framleiðsla á gúmmíhellum hafin - í samvinnu við Efnaverksmiðjuna Sjöfn Gúnimívinnslan hf. á Akureyri hefur í samstarfi við Efnaverk- smiðjuna Sjöfn þróað vinnslu og framleiðslu á nýrri vöruteg- und, hellum úr gúmmíi. Þetta eru e.k. mottur sem eru mjög hentugar þar sem fólk þarf að standa við vinnu sína, við sundlaugar og heita potta eða við leiktæki á barnaleikvöllum og íþróttaiðkanir. Motturnar eða hellurnar eru mjúkar og stamar og eru af erlendum sérfræöingum taldar koma í veg fyrir slys og atvinnusjúk- dóma. Að sögn Kristins F. Sigurharð- arsonar, málningarefnafræðings hjá Sjöfn, hefur samstarf fyrir- tækjanna vegna þróunar og rann- sókna á þessu sviði staðið í rúmt ár. Hlutverk Sjafnar var að þróa sérstakt plastefnasamband úr mjúkum plastefnum sem notað er sem bindiefni við framleiðsl- una. Þá eru einnig notuð sérstök litarefni sem blandað er saman við bindiefnið en hellurnar eru framleiddar í tveimur litum, rúst- rauðu og gráu. Talsverðar rann- sóknir þurfti til að finna rétta efnasambandið sem væri nægi- lega ljósþolið og þyldi þá með- ferð sem hellurnar eru ætlaðar fyrir. Efnaverksmiðjan Sjöfn mun sjá um dreifingu á hellunum í versíanir og standa fyrir kynn- ingu á vörunni, t.d. verða arki- tektum, bæjarstjórnum og hönnuðum íþróttamannvirkja og skóla send sýnishorn. Þórarinn Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri Gúmmívinnslunn- ar hf., sagði að við framleiðslu á gúmmímottum og gangstéttar- hellum úr gúmmíi færi fram full- komin endurvinnsla á afgangs- gúmmíi en alls falla til um 200 tonn af gúmmíafgöngum á ári á íslandi. Þegar hjólbarðar eru unnir undir sólningu eru þeir raspaðir og það gúmmí sem þannig safnast saman er notað í mottur og hellur sem eru steyptar í sérstakri vél. „Við fáum afgangsgúmmí frá tveimur hjólbarðasólningafyrir- Þorarinn Kristjánsson t.v. og Kristinn F. Sigurharðarson við gúmmí- hellurnar. tækjum í Reykjavík auk þess efn- is sem við fáum við sólninguna hérna á staðnum. Við erum að endurvinna efni sem annars væri keyrt beint á öskuhaugana. Við þurfum enn sem komið er ekki að flytja neitt af þessu inn frá útlöndum. Það eru ekki nema fjögur eða fimm fyrirtæki í heim- inum sem framleiða mottur og hellur úr afgöngum eins og við gerum. Þetta er mikilvæg þróun í atvinnulegu og byggðaþróunar- legu sjónarmiði að við erum að þróa framleiðsluvörur okkar hér á landsbyggðinni," sagði Þórar- inn. Þegar Kristinn var spurður að því á hvaða stöðum væri helst hægt að nota hellurnar sagði hann: „Þetta er notað á vissa staði þar sem hætta er á að börn eða fólk detti eða þurfi að standa lengi. Motturnar eru líka mjög hljóðeinangrandi. Víða erlendis er algengt að nota þessar mottur á sólpöllum húsa eða svölum. Þá er ekki til hentugra yfirlag á gólf í íþróttamannvirkjum við vissar íþróttaiðkanir þar sem hætta er á að fólk falli af einhverjum orsök- Mynd: EHB um. Endingin á mottunum er líka ákaflega góð, það er öruggt að þær endast vel og vatn hefur t.d. engin áhrif á þær.“ Það kom fram hjá Kristni og Þórarni að víða erlendis, einkum í Evrópulöndunum, væri beinlín- is skylda að nota gúmmímottur eða gúmmíhellur á vinnustöðum þar sem miklar stöður starfsfólks orsökuðu oft bakverk og höfuð- verk. í skipum eru líka ótal notk- unarmöguleikar, t.d. í vélarúmi og þar sem menn þurfa að vinna við rafmagnstöflur eða Ijósavél- ar. Frystihúsin hafa keypt nokk- uð af mottum en að öðru leyti má segja að þessi vara sé á kynnv ingarstigi. Reiknað er með að framleiða hellurnar í tveimur þykktum. Aðra gerðina er hægt að leggja beint á þjappaðan sand en hin gerðin er notuð á fasta fleti eins og steinsteypt gólf eða malbik. Gúmmíhellurnar eru framleiddar í stærðinni 35x70cm en síðar verður mögulegt að framleiða aðrar stærðir ef þurfa þykir. EHB # Skoðana- kannanir Undanfarna daga hafa blöðin keppst við að birta skoðana- kannanir um fylgi stjórnmála- flokkanna, ýmist á landsvísu eða í einstaka kjördæmum. Skoðanakannanir þessar eru misjafnlega marktækar, eftir því hversu úrtakið er stórt, hver gerir könnunina o.s.frv. Marktækasta könnunin fram til þessa er eflaust sú skoð- anakönnun sem Félagsvís- indastofnun vann fyrir Dag og birtist í blaðinu í gær og svo i þessu hérna. Úrtakið er langstærst, svörunin best, auk þess sem eingöngu er athugað með fylgi flokkanna í tveimur kjördæmum en ekki alhæft um fylgið í einstaka kjördæmum út frá sáralitlu úrtaki á landsvísu. Það kemur svo væntanlega í Ijós í stærstu skoðana- könnuninni 25. apríl hvaða fjölmiðill hafi verið næst því að hafa rétt fyrir sér. 25. apríl verður úrtakið líka óhemju stórt... # Viðbragðs- flýtir En hún er hörð samkeppnin í fjölmiðlaheiminum. Það urðu margir hissa i fyrrakvöld þeg- ar Sjónvarpið flutti fréttir af skoðanakönnun þeirri sem SKÁÍS vann fyrir Helgarpóst- inn um fyigi stjórnmálaflokk- anna í Norðurlandskjördæmi eystra. Skoðanakönnunin hafði nefnilega aldrei birst í Helgarpóstinum en átti að birtast þar á fimmtudaginn í þessari viku. HP-menn fréttu hins vegar af því að Félags- vísindastofnun væri að vinna sams konar könnun fyrir Dag og sáu því sitt óvænna. Þar sem HP-könnunin byggði á minna úrtaki, félli hún alger- lega í skuggann og vekti enga athygli ef hún kæmi í kjölfar Dags-könnunarinnar. Þeir ákváðu þvi að „gefa“ Sjónvarpinu könnunina, þannig að HP fengi alla vega örlitla auglýsingu fyrir alla fyrirhöfnina og fjárútlátin - því svona könnun kostar vissulega sitt. Það verður síðan fróðlegt að fylgjast með því hvort könnunin birtist í HP í vik- unni eða ekki...

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.