Dagur - 30.03.1987, Page 1
70. árgangur
Akureyri, mánudagur 30. mars 1987
61. tölublað
Filman þín
á skiliö þaö
besta!
FILMUHÚSIÐ
Hafnarstræti 106 Sími 22771 - Pósthólf 198
gæðaframköllun
W Hrað-
framköllun
Opið á
laugardögum
frá kl. 9-12.
Laugar í Reykjadal:
Nýr framhaldsskóli
næsta haust
Að öllum líkindum mun næsta
haust taka til starfa nýr fram-
haldsskóli á Laugum í Reykja-
dal. Þar mun fara fram tveggja
ára kennsla á bóknámsbraut,
matvælatæknabraut, íþrótta-
braut og viðskiptabraut.
Skólastjóri og skólanefnd
Héraösskólans á Laugum
lögðu nýlega fram tillögu um
rekstur framhaldsskóla á
Laugum. Grundvöllur þeirra
tillagna var sameining héraðs-
skólans og húsmæðraskólans í
einn framhaldsskóla.
Að sögn Steinþórs Þráinssonar
skólastjóra héraðsskólans stend-
ur lítill hópur kvenna, með fyrr-
um skólastýru í fararbroddi í vegi
fyrir sameiningu skólanna.
Á þessu strandaði málið, og
skömmu eftir að áðurnefndar til-
lögur voru sendar til ráðuneytis
var sett á fót nefnd, undir forsæti
Halldórs Blöndal, til þess að
fjalla um framtíð Húsmæðraskól-
ans.
í framhaldi af þessu var safnað
811 undirskriftum í héraði um
stuðning við tillögur um samein-
ingu skólans. Þessar undirskriftir
voru afhentar ráðherra, en til
þessa hafa starfsmenn ráðuneytis
haldið því fram að ekki væri vilji
fyrir sameiningunni hjá heima-
mönnum.
Fyrir helgina héldu svo skóla-
stjóri og skólanefndarformaður
héraðsskólans á fund Sverris
Hermannsonar. Að sögn Stein-
þórs er nú farið að vinna með til-
lögur þeirra hjá ráðuneytinu og
eiga niðurstöður að liggja fyrir í
apríl.
„Ráðherra sagði mér að miða
kennararáðningar og annan
undirbúning fyrir næsta vetur við
þessar tillögur okkar,“ sagði
Steinþór í samtali við Dag. ET
Borgaraflokkurinn:
Býður fram
um allt land
Nú er Ijóst orðið að í Norður-
landi eystra verða níu listar í
boði í komandi kosningum til
Alþingis og átta listar í
Norðurlandskjördæmi vestra .
Þetta varð Ijóst á föstudaginn
þegar hinn nýstofnaði Borgara-
flokkur undir forystu Alberts
Guðmundssonar tilkynnti
framboð í öllum átta kjördæm-
um landsins.
Bæjarstjóri á Húsavík:
5 umsóknir
Fimm umsóknir hafa borist um
stöðu bæjarstjóra á Húsavík.
Umsóknarfrestur um stöðuna
rann út á föstudag og höfðu þá
fimm umsóknir borist. Fleiri
umsóknir gætu þó hafa verið
póstlagðar áður en umsóknar-
frestur rann út. Bjarni Aðalgeirs-
son bæjarstjóri vildi ekki upplýsa
hverjir hefðu sótt um stöðuna,
þar sem ekki er búið að kynna
umsóknirnar fyrir bæjarráði. 1M
Mjög ólíklegt var talið að boð-
ið yrði fram á Norðurlandi eystra
en heyrst hafði að um einhvers
konar samstarf við framboð Stef-
áns Valgeirssonar yrði að ræða.
í þremur efstu sætum listans í
Norðurlandskjördæmi vestra eru
Andrés Magnússon yfirlæknir,
Siglufirði, Hrafnhildur Valgeirs-
dóttir hárgreiðslukona, Blöndu-
ósi og Runólfur Birgisson skrif-
stofumaður, Siglufirði.
I efstu sætum flokksins í
Norðurlandskjördæmi eystra
sitja Guðmundur Lárusson
deildarstjóri, Akureyri, Val-
gerður Sveinsdóttir verslunar-
maður, Akureyri og Héðinn
Sverrisson verktaki, Mývatns-
sveit. Kosningastjóri þar er Matt-
hías Gestsson kennari.
Nú er unnið að gerð endan-
legrar stefnuskrár flokksins og
sagðist Guðmundur Lárusson
ekkert vilja segja um helstu bar-
áttumál fyrr en hún væri
fulIgerð.„Þetta er hægrisinnaður
lýðræðisflokkur sem byggist upp
á fólki með frjálsar skoðanir,“
sagði Guðmundur. ET
Á föstudaginn gangsetti Gígja Birgisdóttir feguröardrottning fóðurverk-
smiðju Istess við hátíðlega athöfn. Á myndinni sést hvar Gígja þrýstir á ræsi-
hnappinn en Einar Sveinn Olafsson verksmiðjustjóri fylgist með. Mynd: EHB
Kennaradeilan:
Óljós
staða
Mikil fundahöld voru í kjara-
deilu rikisins viö kennara í
HIK um helgina. A laugardag-
inn lagöi samninganefnd ríkis-
ins frain nýtt tilboö í deilunni
og varð það til þess aö aukinn-
ar bjartsýni gætti um að samn-
; ingar tækjust um helgina. Svo
varð þó ekki.
Samningafundur stóð til
klukkan 20.00 á föstudagskvöldið
og þá var haldinn fundur í full-
trúaráði HÍK sem stóð til mið-
nættis. Klukkan 13.00 á laugar-
dag hófust samningaviðræður að
nýju og stóðu mestallan daginn.
1 gær hófst samningafundur
klukkan 10.00 unt morguninn og
stóð hann enn þegar blaðjð fór í
prentun. Hlé var gert á fundinum
meðan kennarar héldu fjölmenna
baráttusamkomu í skemmti-
staðnum Brodway.
Báðir samningsaðilar höfðu í
gær ítrekað lýst yfir vilja sínum
til að binda enda á verkfallið sem
nú hefur staðið í tvær vikur.
Hvorugur vildi þó spá neinu
ákveðnu um það hvenær þetta
yrði og í gær virtist heldur hafa
dregið úr þeirri bjartsýni sem
ríkti á laugardag og segja má að
staðan hafi verið óljós. Þó virðist
inega ætla að samkomulag takist
á næstu tveimur til þremur
dögum. ET
Skíðaskip til Akureyrar:
Bæjarábyrgð samþykkt
- Ferðamannastraumurinn ti{ Norðurlands mun aukast verulega“
segir Örn Snorrason
„Þetta þýðir byltingu í ferða-
málum norðanlands.“ sagði
Orn Snorrason, en hann mun
nú í félagi við bróður sinn,
Hauk Snorrason, festa kaup á
skíðaskipi sem mun fara með
ferðamenn á ýmsa staði við
Eyjafjörð og víðar á Norður-
landi í sumar. Bæjarráð Akur-
eyrar hefur samþykkt að veita
einfalda ábyrgð bæjarsjóðs að
upphæð 6 milljónir króna
vegna kaupanna. Félag þeirra
bræðra heitir Norðurskip hf.
og verða bækistöðvar þess á
Akureyri.
Kostar rúmlega 100 þúsund
að ferma bam?
Tími ferminga fer í hönd og
þar af leiðandi mikiö að gera í
sambandi við undirbúning á
mörgum heimilum. Við
hringdum í nokkra aðila sem
veita þjónustu sem tengist
þessari athöfn og veislum á
einhvern hátt og fengum upp-
gefinn kostnað á ýmsum vör-
um og þjónustu.
Það kemur í I jós að veislur þar
scm gestir eru færri en þrjátíu
þekkjast varla. Eru þær allt upp í
120 manna.
1 lauslegum útreikningum
blaðsins kemur í Ijós að venjuleg
40 manna veisla og allur undir-
búningur kostar rúmlega 100 þús-
und krónur. Að þessu sinni verða
fermd um 270 börn á Akureyri og
verður þá heildarkostnaðurinn
rúmlega 32,4 milljónir króna.
Auðvitað ber að taka þessar
tölu rneð fyrirvara, en við fjöll-
um betur um þctta á bls. 5 í dag.
gej-
Þegar Örn var spurður nánar
út í málið sagði hann: „Skipið er
pólskt og það var smíðað árið
1977. Það er ellefu metra breitt
og þrjátíu og fimm metra langt
og þannig gert að það lyftir sér
upp á skíðum þegar það kemst á
skrið. Það gengur þrjátíu og sex
mílur á klukkustund og getur
flutt hundrað og tuttugu farþega
auk varnings. Við rnunurn sinna
farþega- og vöruflutningum til
Hríseyjar, Grímseyjar, Siglu-
fjarðar og Húsavíkur. Kaupverð
skipsins er tíu milljónir króna en
Hrísey og Grímsey ábyrgjast sína
milljónina hvor. Við bræðurnir
leggjum fram tvær milljónir og
samkvæmt beiðni Bæjarráðs
Akureyrar verður hlutafé aukið
um tvær milljónir króna."
„Ég væri ekkert að þessu ef ég
vissi ekki fyrir víst að skipiö hent-
ar vel þeim verkefnum sem
markaður er fyrir. Ég hef verið
bæði skipstjóri og stýrimaður á
svona skipum og ég veit hvað ég
er að tala um. Það er ekki hægt
að bera þetta saman við venju-
legar strandferðir því skipið er
svo gangmikið að við erum ekki
nema eina klst. og 40 mínútur að
sigla til Grímseyjar með viðkomu
í Hrísey. Við höfum fundið mikl-
ar og góðar undirtektir við þetta
mál hjá fólki og íerðaskrifstof-
urnar standa með okkur í þessu.
Ég spái því að þetta eigi eftir að
auka ferðamannastrauminn mik-
ið til þeirra staða sem við förum
til, það er öruggt mál,“ sagði Örn
að lokum. EHB
Lögreglan:
Mikið spurt
um færð
Tíu árekstrar voru um helgina
á Akureyri. Allir voru þeir
smávægilegir nema einn. Á
Sauðárkróki urðu tveir
árckstrar og á Húsavík varð
einn allharður árekstur.
í gærmorgun var nokkuð
hvasst víða á Norðurlandi og
meðal annars þurfti að fresta
skíöamóti sem vera átti á Siglu-
firði.
Matthías Einarsson lögreglu-
varðstjóri á Akureyri sagði í sam-
tali við Dag að mikill fjöldi fólks
hefði hringt í gærmorgun til að
spyrja um færð á Öxnadalsheiði.
Þar sem engar upplýsingar væri
að fá hjá Vegagerðinni um
helgar, ættu þeir því miður erfitt
með að svara slíkum fyrirspurn-
um. ET