Dagur - 30.03.1987, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 30. mars 1987
á Ijósvakanum.
Gamall góðkunningi sjónvarpsáhorfenda, ráðherrann Jim Hacker,
sem á sínum tíma kitlaði hláturtaugarnar óspart í þáttunum „Já,
ráðherra", er væntanlegur á skjáinn aftur næstkomandi mánudags-
kvöld.
Nú er Hacker orðinn forsætisráðherra og heita þættirnir í sam-
ræmi við það „Já, forsætisráðherra". Sem vænta má fylgir mikill
vandi aukinni vegsemd og ekki bætir úr skák að hinn lævísi Sir
Humphrey Appleby hefur þegar komið sér þægilega fyrir í embætti
ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu þegar nýi leiðtoginn mætir
til starfa.
I nýju starfi sýnir Jim Hacker óvænt tilþrif og ákveðni og nú þarf
Sir Humphrey að leggja sig enn betur fram en áður við að stýra orð-
um og gerðum ráðherrans. Árekstrum stjórnmálamannsins og
embættismannsins fækkar ekki nema síður sé þó báðir hafi hækk-
að í tign.
SJONVARPIÐ
MÁNUDAGUR
30. mars
18.00 Úr myndabókinni.
18.50 íþróttir.
Umsjón: Bjarni Felixson.
19.25 Fróttaágrip á tákn-
máli.
19.30 Steinaldarmennirnir.
26. þáttur.
20.00 Fróttir og vedur.
20.30 Auglýsingar og
dagskrá.
20.35 Hjónaband - Skilnað-
ur.
4. Jenný og Þórir gera
kaupmála.
Myndaflokkur sem Sjón-
varpið gerir í samvinnu við
Orator, félag laganema.
Jenný og Þórir hafa gift sig
og gert kaupmála um þær
eignir sem Jenný átti fyrir.
Nú ákveða þau að skilja og
reynir þá á kaupmálann.
Eftir leikþáttinn svara
Sigrún Benediktsdóttir,
lögfræðingur Húseigenda-
félagsins og Mæðrastyrks-
nefndar, og Ingibjörg
Bjarnardóttir laganemi
spurningum um ágrein-
ingsmálin og veita upplýs-
ingar um kaupmálagerð
milli hjóna og þýðingu
hans þegar til skilnaðar
kemur.
21.10 Já, forsætisráðherra.
(Yes, Prime Minister)
Nýr flokkur - Fyrsti þáttur.
Breskur gamanmynda-
flokkur í átta þáttum,
framhald fyrri þátta um
stjórnmálaferil Jim Hack-
ers sem kerfiskarlarnir
hafa tosað upp í forsætis-
ráðherrastólinn.
21.45 Höfuð ættarinnar.
(The Old Master)
Skosk sjónvarpsmynd með
Andrew Keir í aðalhlut-
verki.
Sir John Donald Mackay,
óðalseigandi í Hálönd-
unum, á tíræðisafmæli.
Fjölskyldan safnast saman
til að árna afmælisbarninu
heilla og nú finnst sir John
ekki seinna vænna að velja
arftaka sinn.
22.45 Fréttir í dagskrárlok.
0
RÁS 1
MÁNUDAGUR
30. mars
6.45 Veðurfregnir • Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin.
- Jón Baldvin Halldórsson
og Jón Guðni Kristjánsson.
Erlingur Sigurðarson talar
um daglegt mál kl. 7.20.
Flosi Ólafsson flytur
mánudagshugvekju kl.
8.30.
9.00 Fréttir • Tilkynningar.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Mamma í upp-
sveiflu" eftir Ármann Kr.
Einarsson
9.20 Morguntrimm.
Tónleikar.
9.45 Búnaðarþáttur.
Ólafur R. Dýrmundsson
ræðir við Inga Tryggvason
um búvörusamninga.
10.00 Fréttir • Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Úr söguskjóðunni -
Kveldúlfsmálið.
11.00 Fréttir • Tilkynningar.
11.05 Á frívaktinni.
Þóra Marteinsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
(Þátturinn verður endur-
tekinn á Rás 2 aðfaranótt
föstudags kl. 02.00).
12.00 Dagskrá • Tilkynn-
ingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir • Til-
kynningar • Tónleikar.
13.30 í dagsins önn - Þak
yfir höfuðið.
14.00 Miðdegissagan:
„Áfram veginn" sagan
um Stefán íslandi.
14.30 íslenskir einsöngvar-
ar og kórar.
15.00 Fréttir • Tilkynningar
• Tónleikar.
15.20 Landpósturinn.
Frá svæðisútvarpi Akur-
eyrar og nágrennis.
16.00 Fréttir • Tilkynningar.
16.05 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir • Tilkynnigar.
17.05 Síðdegistónleikar.
17.40 Torgið - Atvinnulíf í
nútíð og framtíð.
18.00 Fréttir • Tilkynningar.
18.05 Torgið, framhald.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir • Dag-
skrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
Daglegt mál.
Endurtekinn þáttur frá
morgni sem Erlingur Sig-
urðarson flytur.
19.40 Um daginn og veginn.
Sigurður Jónsson stýri-
maður talar.
20.00 íslenskir tónmennta-
þættir.
20.40 Framboðskynning
stjórnmálaflokkanna.
Fyrsti þáttur: Kvennalist-
inn kynnir stefnu sína.
21.30 Útvarpssagan:
„Truntusól" eftir Sigurð
Þór Guðjónsson.
22.00 Fréttir Dagskrá
morgundagsins.
22.15 Veðurfregnir.
Lestur Passíusálma (35).
22.30 í reynd - um málefni
fatlaðra.
23.10 Scbönbergkvöld í
Áskirkju 12. mars sl.
Fyrri hluti.
24.00 Fróttir • Dagskrárlok.
MANUDAGUR
30. mars
6.00 í bítið.
Rósa Guðný Þórsdóttir
léttir mönnum morgun-
verkin, segir m.a. frá veðri,
færð og samgöngum og
kynnir notalega tónlist í
morgunsárið.
9.05 Morgunþáttur
Meðal efnis: Valin breið-
skífa vikunnar, leikin óska-
lög yngstu hlustendanna
(kl. 10.15), pistill frá Jóni
Ólafssyni í Amsterdam (kl.
10.30), breiðskífulistar
kynntir, sakamálaþraut
(kl. 11.30).
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála.
Leifur Hauksson kynnir
létt lög við vinnuna og
spjallar við hlustendur.
Afmæliskveðjur, bréf frá
hlustendum o.fl. o.fl.
16.05 Hringiðan.
Umsjón: Broddi Brodda-
son og Margrét Blöndal.
Síðdegisútvarp rásar 2,
fréttatengt efni, og tónlist.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Ekkert mál.
Bryndís Jónsdóttir og
Sigurður Blöndal taka fyrir
málefni unglinga.
21.00 Poppdeildin.
- Snorri Már Skúlason.
22.05 Sveiflan.
Vernharður Linnet kynnir
djass og blús.
23.00 Við rúmstokkinn.
Guðrún Gunnarsdóttir býr
hlustendur undir svefninn.
00.10 Næturútvarp.
Fróttir eru sagðar kl. 7, 8, 9,
10,11,15,16,17, 18, 22 og
24.
RlKJSÚIVARPfÐ,
AAKUREYRÍ4
Svæðisútvarp fyrir Akureyri
og nágrenni.
MÁNUDAGUR
30. mars
18.03-19.00
Pálmi Matthíasson fjallar
um íþróttir og það sem er
efst á baugi á Akureyri og
í nærsveitum.
BYLGJAN\
MANUDAGUR
30. mars
07.00-09.00 Á fætur með
Sigurði G. Tómassyni.
09.00-12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum.
Tapað fundið afmælis-
kveðjur og matarupp-
skriftir.
Síminn hjá Palla er 611111.
12.00-12.10 Fréttir.
12.00-14.00 Á hádegismark-
aði með Jóhönnu Harðar-
dóttur.
Fréttapakkinn. Flóa-
markaðurinn er á dagskrá
eftir kl. 13.00.
14.00-17.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd.
17.00-19.00 Asta R. Jó-
hannesdóttir i Reykjavik
síðdegis.
19.00-21.00 Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson í kvöld*
21.00-23.00 Ásgeir Tómasson
á mánudagskvöldi.
23.00-24.00 Vökulok
í umsjá Árna Þórðar Jóns-
sonar fréttamanns.
24.00-07.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar.
hér og þac
/
„Eg er ástfmgin
og p átt bönt“
- segir Marianne fyrrum
eiginkona Bjöms Borg
Það er ekki svo lítið sem borist
hefur á prenti um líf tennisstjörn-
unnar Björns Borg eftir skilnað
hans og konu hans Marianne, og
um það hve hamingjusamur hann
er með Jannike og Robin litla.
Hvað hann langar að setjast aftur
að í Svíþjóð og hvernig hann
ferðast um heiminn. En hvernig
Fræðslunámskeið
- fyrir kjörna sveitarstjórnarmenn
Samband ísl. sveitarfélaga í sam-
vinnu við Fjórðungssamband
Norðlendinga stóð fyrir tveim
námskeiðum, fyrir kjörna sveit-
arstjórnarmenn, á Akureyri og
Blönduósi.
Fyrra námskeiðið var haldið í
Dynheimum á Akureyri 2.-3.
mars sl., fyrir sveitarstjórnar-
menn í Norðurlandsumdæmi
eystra. Þátttakendur voru 33,
sem verður að teljast mjög góð
aðsókn.
Síðara námskeiðið var haldið á
Hótel Blönduósi, Blönduósi, 5,-
6. mars sl., fyrir sveitarstjórnar-
menn úr Norðurlandsumdæmi
vestra, þátttaka þar var einnig
mjög góð eða 26 þátttakendur.
Leiðbeinendur frá Sambandi
ísl. sveitarfélaga voru þeir Magn-
ús E. Guðjónsson, framkvæmda-
stjóri og Björn Friðfinnsson, for-
maður þess. Einnig var leitað til
heimamanna um leiðsögn í viss-
um málaflokkum.
Á Akureyri fjallaði Björn
Friðfinnsson um eftirtalda mála-
flokka: Sveitarstjórnarskipan,
sveitarstjórnarmenn, nefndir
sveitarfélaga og starfsmenn sveit-
arfélaga.
Sigfús Jónsson, bæjarstjóri á
Akureyri fjallaði um framtíð
byggðarinnar ásamt Birni Frið-
finnssyni. Magnús E. Guðjóns-
son fjallaði um meðferð mála í
sveitarstjórnum, verkefni sveitar-
félaga, samskipti ríkis og sveitar-
félaga, tekjur sveitarfélaga og
stöðu sveitarfélagsins. Úlfar
Hauksson, hagsýslustjóri Akur-
eyrarbæjar fjallaði um fjármál
sveitarfélaga. Gunnar Jóhannes-
son, deildarverkfræðingur Akur-
eyrarbæjar fjallaði um undirbún-
ing verklegra framkvæmda. Finn-
ur Birgisson, skipulagsstjóri
Akureyrarbæjar fjallaði um
skipulags- og byggingamál og
umhverfismál. Að lokum fjallaði
Áskell Einarsson, framkvæmda-
stjóri Fjórðungssambands Norð-
lendinga um samstarf og samtök
sveitarfélaga.
Á Blönduósi fjallaði Magnús
E. Guðjónsson um sveitarstjórn-
arskipan, sveitarstjórnarmenn,
meðferð mála í sveitarstjórnum,
nefndir sveitarfélaga, samstarf
sveitarfélaga, tekjur sveitarfélaga
og verkefni sveitarfélaga. Björn
Friðfinnsson fjallaði um fjármál
sveitarfélaga, stöðu sveitarfélaga
og skipulags- og byggingamál og
umhverfismál. Guðbjartur Ólafs-
son, tæknifræðingur Blönduós-
hrepps fjallaði um undirbúning
verklegra framkvæmda, ásamt
Birni Friðfinnssyni. Áskell Ein-
arsson, framkvæmdastjóri Fjórð-
ungssambands Norðlendinga
fjallaði um samstarf og samtök
sveitarfélaga. Að lokum fjallaði
Guðmundur Sigvaldason, sveit-
arstjóri á Skagaströnd um fram-
tíð byggðarinnar, ásamt Birni
Friðfinnssyni.
Námskeiðið á Akureyri var
tekið upp á myndband og er það
fyrsta tilraun, sem Samband ísl.
sveitarfélaga gerir á því sviði.
Hugmyndin er að gefa sveitar-
stjórnarmönnum kost á þessu
efni, ef vel tekst til.
Þá kom upp sú hugmynd að
hafa námskeið sem þetta, opið
fyrir alla er áhuga hafa á sveitar-
stjórnarmálum, en ekki að ein-
skorða það við kjörna fulltrúa.
Samband ísl. sveitarfélaga tók
vel í þessa málaleitan.