Dagur - 30.03.1987, Page 3
30. mars 1987 - DAGUR - 3
„Já, en ekkert aftakaveður
samt. Já, þetta stóð glöggt. Ég
skaut línu út í togarann Júpiter
frá Reykjavík sem bjargaði okk-
ur og var svo heppinn að hitta í
fyrsta skoti. Petta mátti ekki tæp-
ara standa. Elliði sökk á sömu
mínútunni og síðustu skipverjun-
um var bjargað um borð í Júpi-
ter.“
- Hvarflaði ekki að þér að
hætta eftir þetta?
„Nei, ég skellti mér beint á
sjóinn aftur. Það var annað hvort
að halda áfram, eða hætta alveg.
Ég var síðan með togarann Haf-
liða sem gerður var út frá Siglu-
firði næstu árin til vorsins 1967,
en þá fór ég í land og tók það
rólega um sumarið. En ég fékk
ekkert að gera í landi sem mér
líkaði og fór því veturinn eftir á
trollbát frá Keflavík. Árið 1969
var togskipið Margrét leigt hing-
að og upp úr því gerðist ég hlut-
hafi í Togskipi hf., útgerðar-
fyrirtæki sem stofnað var hér og
keypti Dagnýju frá Þýskalandi.
Ég var skipstjóri á Dagnýju í 9
ár, en síðustu árin var ég með
Sigurey og síðast Hafþór sem var
leigður hingað. Síðla árs 1983 tók
ég svo pokann minn og fór í
land.“
Aðspurður sagði Kristján að
auðvitað væru sér minnisstæðir
þeir tímar af sjónum þegar vel
fiskaðist og ekki þurfti að hugsa
um neinar veiðitakmarkanir.
- Ertu ekki hrifinn af kvóta-
kerfinu?
„Það getur vel verið að það
þurfi að stjórna veiðunum, en ég
hefði nú ekki trúað því að
óreyndu að til þess þyrfti að
koma eftir að við losnuðum við
Breta og Þjóðverja af miðunum.
Bretarnir voru fyrir austan land, í
milli- og smáfiskinum, sumar eft-
ir sumar með um 100 skip.
Nei, ég sætti mig ekki við þetta
miðað við það sem á undan er
gengið. Þetta er kannski í lagi
fyrir þá sem þekkja ekkert annað
en aflatakmarkanir, en ég er
hræddur um að það þýddi ekki að
bjóða okkur þessum gömlu sem
þekkjum óheftar veiðar upp á
þetta. Auðvitað hafa veiðarnar
áhrif á fiskistofnana. En það er
náttúran sjálf sem hefur þó lang-
mest áhrif. Það má benda á, að á
undanförnum árum hefur alltaf
verið veitt meira en það sem
fiskifræðingar hafa gefið upp að
mætti veiða. Samkvæmt þeirra
kokkabókum ætti enginn fiskur
að vera í sjónum lengur, en samt
er hann alltaf að aukast," sagði
Kristján Rögnvaldsson að
lokum.
-þá
Rafmar hf.
-Nýtt fyrirtæki á Akureyri
Nýtt rafverktakafyrirtæki,
Rafmar hf., hefur nú hafið
starfsemi á Akureyri. Hluthaf-
ar í fyrirtækinu eru níu og hafa
átta þeirra áður starfað hjá
Slippstöðinni hf. á Akureryri,
en fyrir skömmu hættu þeir að
vinna þar vegna launadeilna.
Að sögn Jóns Kr. Vilhjálms-
sonar, hluthafa í Rafmar, mun
fyrirtækið sinna allri almennri og
sérhæfðri rafverktakaþjónustu og
viðgerðum. Fyrirtækið hefur
aðsetur að Óseyri 6, á sama stað
og Raftækni hf. var áður. Þegar
Jón var spurður að því hvernig
honum litist á framtíð fyrirtækis-
ins sagði hann: „Við erum bjart-
sýnir og höldum að það sé góður
grundvöllur fyrir þessu hjá
okkur. Starfandi rafverktakar
hafa haft nóg að gera hér í bæn-
um og nágrenninu og við erum
vanir allri rafmagnsvinnu, bæði í
skipum og húsum.“ EHB
Undirbúningur fermingar:
Eru 120 þúsund
eölilegur kostnaóur?
- 270 börn fermd á Akureyri
- Veislur allt að 120 manna
Nú fer í hönd sá tími sem teng-
ist fermingum og þeim undir-
búningi sem þeirri athöfn er
bundinn. Margir hafa sagt á
undanförnum árum að til-
standið og „vitleysan“ sem er
samfara þessum tímamótum í
lífi hverrar kristinnar persónu
sé orðið allt of mikið. Að ekki
sé talað um þær fermingargjaf-
ir sem nú virðast vera sjálf-
sagðar. Segja má að þeir sem
þurfa að sjá um fermingu
barns síns sleppi ekki með
minna en 80 til 100 þúsund
krónur. Þá er miðað við þær
upplýsingar sem blaðið hefur
aflað sér í sambandi við undir-
búning femingarinnar á heimil-
inu.
Þegar farið var að skoða þetta
mál kom í ljós að kröfur eru mis-
miklar. Þó virðist enginn ætla að
halda fermingarveislu þar sem
gestir eru færri en 25-30 talsins.
Tölur um stórar veislur eru allt
upp í 120 manns og er þá reiknað
með því að matur verði á boð-
stólum fyrir þann fjölda. Það fer í
vöxt að fermingarbörnin sjálf fái
að ráða veisluföngunum og velji
þá veislu með kökum og tilheyr-
andi. Þó virðist hið sígilda „kalda
borð“ vera efst á vinsældalista-
num yfir veislukostinn. En það er
best að líta á þá liði sem óhjá-
kvæmilega tengjast undirbúningi
fermingarinnar.
Upplýsingar sem prestarnir á
Akureyri gáfu okkur upp voru
þær að 154 börn verða fermd í
Akureyrarprestakalli, en 110-115
í Glerárprestakalli. Þetta eru því
tæplega 270 börn. Undirbúningur
fermingarinnar hjá prestunum
kostar samkvæmt verðskrá, -
sem er vísitölubundin, krónur
2640. En þá er það veraldlegi
undirbúningurinn.
Fyrst er að nefna fatnað, sem
er ómissandi fyrir fermingarbarn-
ið. Allt er keypt nýtt, yst sem
innst. Jakkaföt virðast vera vin-
sæl hjá fermingarbörnunum og
kosta þau frá 5780 og upp í 10
þúsund krónur. Þá er eftir skyrta
og bindi sem meta má á 2500 kr.
Skór kosta frá 2300 upp í rúm-
lega 3000 kr. Vinsælast í þeim
eru mokkasíur á stúlkur en reim-
aðir skór á stráka, sem kosta um
3000 kr.
í sumum tilfellum er keypt
yfirhöfn. Þó er það heldur fyrir
strákana og verður leðurjakki oft
fyrir valinu. Samkvæmt upplýs-
ingum úr verslunum kostar
„góður“ leðurjakki um 14 þús-
und krónur og þykir „ódýr“.
Þá er það sálmabók og tilheyr-
andi vasaklútur á 450 krónur.
Hárgreiðsla og skreyting í hár
(fyrir stúlkur) krónur 750.
Hanskar og slæða þykir ómiss-
andi hjá mörgum stúlkum og
kostar það um 600 krónur.
Kyrtlagjald í kirkjunni er krónur
350.
Þá er að skoða það sem lýtur
að heimilinu og gestunum sem
boðnir eru. Samkvæmt upplýs-
ingum sem við öfluðum okkur
verður engin veisla með færri
gestum en 30. Vitað er um 120
manna veislur. Að sjálfsögðu fer
þetta eftir stærð fjölskyldu og
vinahóps.
Kerti, servíettur og blóma-
skreytingar gætu kostað um 2500
krónur. Gosdrykkir og annað
krónur 5 þúsund.
Þá er það maturinn. Frá veit-
ingahúsum kostar hið vinsæla
kalda borð um 860 krónur á
mann. Einnig er boðið upp á
svokallað fermingarborð og kost-
ar það 690 krónur á mann. Sögðu
veitingamenn að hið hefðbundna
borð væri vinsælla, enda mun
meira af réttum á því borði.
Þá er komið að ljósmyndun-
inni sem er ómissandi þáttur
fermingarinnar. Ljósmyndun
kostar frá 4500 til tæplega 5000
króna. Fer það eftir því á hvaða
tíma myndatakan fer fram. Þó er
það misjafnt eftir ljósmyndastof-
um. Eins eru ekki sömu stærðir á
prufumyndum frá stofunum, en
12 myndir eru innifaldar í verð-
inu frá báðum stofunum á Akur-
eyri. Ef fólk vill láta stækka
myndir eftir þessum prufum kost-
ar það að sjálfsögðu aukalega.
Þá er það stærsti hluturinn í
tengslum við ferminguna sjálfa.
Það er fermingargjöfin. Hljóm-
flutningstæki, tölvur, utanlands-
ferðir, húsgögn og margt fleira er
á óskalista fermingarbarnanna.
Þetta eru hlutir sem kosta frá 25
þúsundum og allt upp í 100 þús-
und krónur. Ekki skal lagt mat á
það hvað af þessu er vinsælast, en
áætla má að fermingargjöf handa
mörgu barninu sé 30-40 þúsund
króna virði.
Eflaust hefur eitthvað gleymst,
- eða jafnvel einhverju verið
ofaukið í þessari upptalningu. Þó
er ekki því að leyna að ferming-
arveislur af þeirri tegundinni sem
talað er um hér, eru ekki óal-
gengar hjá fólki í dag.
Sé reiknað með fermingar-
veislu fyrir um 40 manns, verður
kosnaðurinn samkvæmt upptaln-
ingunni um 120 þúsund krónur.
Þá er gaman að margfalda það
með fjölda fermingarbarnanna,
sem er 270 börn. Þá er útkoman
um 32 milljónir og 4 hundruð
þúsund krónur. Það má enginn
taka þessa upptalningu svo að
hún sé endanleg og örugg, því
hjá mörgum er þetta ekki svona
íburðarmikið og hjá öðrum má
áætla að þetta verði enn íburð-
armeira. gej-
PASSAMYNDIR
TILBUNAR
STRAX
ÍIIzKDí
IJDSMVNDISTOFXI
PAl-^
& 23464
Fundur • ■ .
með forsætisráðherra, Steingrími Hermannssyni, að Hótel KEA, fimmtudaginn 2. apríl kl. 20.30.
NORÐLENDINGAR • Hér er boðað til fundar með forsætisráðherra sem náð hefur einstæðum
tökum á stjóm efnahagsmála. • Forsætisráðherra sem mjög hefur aukið hróður íslendinga á alþjóða- vettvangi. • Forsætisráðherra sem nýtur vinsælda og álits umfram alla aðra íslenska stjómmálamenn, skv. niðurstöðum skoðanakannana.
ALLIR VELKOMNIR
Efstu menn B-listans í Norðurlandskjördæmi eystra koma einnig á fundinn.