Dagur - 30.03.1987, Síða 7
Sæluvika Skagfirðinga:
Góðir gestir á
kirkjukvöld
Góðra gesta er von á kirkju-
kvöld sem haldin verða í Sauð-
árkrókskirkju í kvöld og annað
kvöld. I kvöld mun Omar
Ragnarsson flytja ræðu
kvöldsins og annað kvöld verð-
ur sr. Birgir Snæbjörnsson
ræðumaður, og Geysiskvart-
ettinnn frá Akureyri mun einn-
ig syngja nokkur lög.
Fyrra kvöldið mun Tim Beilby
leika á fiðlu og Rögnvaldur Val-
bergsson og Sveinn Sigurbjörns-
son leika saman á orgel og
trompet. Bæði kvöldin mun
Kirkjukór Sauðárkróks syngja
undir stjórn Rögnvaldar Val-
bergssonar við undirleik Tim
Beilby. Einn af kórfélögunum
Ragnhildur Óskarsdóttir mun
syngja einsöng.
Kirkjukvöld í Sauðárkróks-
kirkju eru orðin fastur liður í
dagskrá Sæluviku, sem nú stend-
ur yfir á Króknum. Hófst hún
með forsæludansleik á föstudags-
kvöld og á dagskrá laugardagsins
voru dansleikir fyrir börn og
unglinga, skemmtun hjá
nemendum efra stigs grunnskól-
ans og kvikmyndasýning. Barna-
messa og almenn messa voru á
dagskrá sunnudagsins, og í vik-
unni mun fólki gefast kostur á að
horfa á tvö leikrit, margar kvik-
myndasýningar verða haldnar og
um næstu helgi tveir dansleikir.
Með seinni dansleiknum mun
hinni eiginlegu sæluviku ljúka
aðfaranótt sunnudags. Pá verður
lokadansleikurinn í Bifröst og
Græni salurinn opinn fyrir þá
sem áhuga hafa á söng.
-þá
Samvinnuferðir -
Landsýn:
30 þúsund
farþegar 1986
Hinn 18. mars sl. var haldinn
aðalfundur Samvinnuferða -
Landsýnar hf. Fundurinn var
fjölsóttur og má segja að nær
allir hluthafar í fyrirtækinu eða
fulltrúar þeirra hafi setið
fundinn.
A aðalfundinum var lagður
fram ársreikningur fyrirtækisins
fyrir árið 1986. Kemur þar m.a.
fram að velta Samvinnuferða -
Landsýnar hf. á síðastliðnu ári
nam um 592 milljónum króna.
Hagnaður ársins var um 9.542
þúsund krónur, eftir að tekið
hafði verið tillit til opinberra
gjalda að fjárhæð 9.809 milljónir.
Fjöldi slarfsmanna á launaskrá
var 234.
í yfirliti Helga Jóhannssonar,
framkvæmdastjóra, kom fram að
rekstur skrifstofunnar hafði á síð-
asta ári gengið mun betur en
bjartsýnustu menn þorðu að
vona og varð veruleg aukning á
fjölda farþega, hvert sem farið
var. Farþegar í skipulögðum
hópferðum voru 11.833, en far-
þegar í áætlunarflugi 11.450.
Innanlandsdeild fyrirtækisins tók
á móti um 7.000 erlendum ferða-
mönnum, og samtals nam því
farþegafjöldi ferðaskrifstofunnar
30.283.
Fundurinn samþykkti að gefa
út jöfnunarhlutabréf að fjárhæð
um 12,6 milljónir króna. Heild-
arhlutafé félagsins eftir útgáfu
jöfnunarhlutabréfa nemur því
um 21,8 milljónum.
Sannarlega tími til kominn.
Fæstir hafa efni á að sjóða fisk-
inn sinn daglega í hvítvíni. Allir hafa efni
áMYSU - þið notið hana í staðinn. Mysan
hefur mjög svipuð áhrif á bragðgæðin,
auk þess sem súrinn hefur þau áhrif að
eggjahvítuefni físksins hleypur fyrr og
lokar sárinu, en það tryggir varðveislu
næringarefnanna.
Hvemig væri að prófa eina uppskrift?
SOÐIN LÚÐA OG LÚÐUSÚPA:
V2 l mysa, Vi l vatn, 2 tsk. salt, 4 lárviðar-
lauf 800 g stórlúða, 10-12 sveskjur, 1-2
msk. rúsínur, Vi dl vatn, 1 msk. hveiti, 2
msk. sykur, 2 eggjarauður, 1 dl kaffirjómi
(má sleppa).
Blandið saman mysu, vatni og
salti og látið suðuna koma upp. Setjið
lúðuna í sjóðandi soðið og látið hana bull-
sjóða í 1-2 mín. Takið pottinn af hellunni
og látið fiskinn bíða í soðinu um stund.
Færið hann síðan upp á fat og byrgið, til
þess að halda honum heitum.
Skolið sveskjur og rúsínur og
sjóðið í soðinu í 5-10 mín. ásamt lárviðar-
laufi. Búið til hveitijafning og jafnið súp-
una. Látið sjóða í 5 mín. Þeytið eggja-
rauður og sykur í skál. Jafnið nú súpunni
út í eggjarauðurnar og hellið henni síðan
út í pottinn og hitið að suðu. (Má ekki
sjóða). Bragðbætið að síðustu með rjóm-
anum.
Berið fram soðnar kartöflur,
smjör, gúrku og tómata með lúðunni og
borðið súpuna með.
Nú œtti nýji MYSUBÆKLINGURINN að vera kominn í flestar matvöruverslanir,
fullur afgóðum og auðveldum uppskriftum. Njóttu góðs af - nœldu þér í ókeypis eintak.
Mjólktundagsnefnd
Það hemst
til shila í Degi
Áskrift og auglýsingar S (96) 24222^"^