Dagur - 30.03.1987, Síða 8
8 - DAGUR - 30. mars 1987
30. mars 1987 - DAGUR - 9
Ekkert hátalara-
kerfi í Höilinni
Eftir leik Pórs og ÍBV á föstudagskvöld voru
leikmönnum liðanna afhentir verðlaunapen-
ingar frá HSI, Þórsarar fengu silfurpeninga
fyrir 2. sætið í deildinni og Eyjamenn brons-
peninga fyrir 3. sætið. Það setti hins vegar
strik í reikninginn að fulltrúi HSÍ gat ekki gert
grein fyrir því hvað um væri að vera þar sem
ekkert hátalarakerfi er í Höllinni og hávað-
inn í áhorfendum það mikill eftir leikinn að
ekki heyrðist mannsins mál.
Vonandi taka þeir sem hafa ineð slík mál
að gera, við sér og koma upp almennilegu
hátalarakerfi í Höllinni svo hægt sé að gera
hluti sem þennan á sómasamlegan hátt í
framtíðinni.
Loks má geta þess að KA-menn færðu
Þórsurum heljarmikinn blómvönd eftir leik-
inn, um leið og þeir buðu þá velkomna í
hópinn.
Gunnar Gunnarsson fyrirliði Þórs með blóm-
vöndinn frá KA. Mynd: ri>b
Handbolti:
Dregið í
bikamum
Á laugardaginn var dregiö um það í beinni
útsendingu í sjónvarpinu hvaða lið leiki sam-
an í undanúrslitum í bikarkeppni HSÍ, karla
og kvenna. í bikarkeppni karla leika annars
vegar Víkingur og Stjarnan og hins vegar
Valur og Fram. Lcikirnir fara fram á mið-
vikudaginn kemur.
í bikarkeppni kvenna leika saman FH og
Valur og Fram og Ármann.
Valur og
UMFN leika
til úrslita
- í úrvalsdeildinni
í körfubolta
Það verða liö UIVIFN og Vals sem leika til
úrslita í úrvalsdeildinni í körfuknattleik að
þessu sinni. Valsmenn unnu Keflvíkinga á
laugardag í þriðju viðureigninni í undanúrslit-
um. Valsmenn unnu fyrsta leikinn en Kefl-
víkingar snéru dæminu við í öðrum leiknum.
Því þurfti þriðju viðureignina til að fá úr því
skorið hvort iiðið léki til úrslita og þá höfðu
Valsmenn betur sem fyrr sagöi.
Njarðvíkingar unnu KR-inga örugglega í
hinum undanúrslitaleikjunum fyrir skömmu
og unnu sér rétt til þátttöku í úrslitaleiknum.
Þessi lið leika einnig til úrslita í bikarkeppni
KKÍ.
Jþróttir-
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Handbolti 2. deild:
Svanur Valgeirsson lcikmaður KA hefur sloppið í gegnum vörn Hauka og skorar eitt marka sinna í leiknum.
Mynd: g
Handbolti 1. deild:
KA vann Hauka og
sendi liðið í 2. deild
„Ég er mjög svekktur. Við
börðumst af krafti í þessum
leik en það dugði ekki til. Við
höfum tapað mjög dýrmætum
stigum í vetur, eins og gegn
Víkingi, Val, Ármanni og
Fram og það kemur okkur í
koll núna. Hvað mig sjálfan
varðar að þá hef ég enga
ákvörðun tekið með framhald-
ið. Maður fer að syngja sitt síð-
asta í þessu. Við eigum góðan
efnivið og munum leika í 1.
deild á ný áður en langt um
líöur,“ sagði Gunnar Einars-
son markvörður Hauka í hand-
bolta eftir tapið gegn KA á
laugardaginn. Með þessu tapi
féllu Haukar endanlega í 2.
deild ásamt Ármanni.
Fyrri hálfleikur var nokkuð
sveiflukenndur og liðin skiptust á
um að hafa forystu. KA-menn
voru yfir í upphafi, síðan náðu
Haukar yfirhöndinni en KA-
menn komust aftur yfir fyrir hlé
og leiddu með einu marki í hálf-
leik 11:10. Jón Kristjánsson stór-
skytta KA meiddist illa snemma í
fyrri hálfleik og var úr leik það
sem eftir lifði leiksins. Sigurjón
Sigurðsson stórskytta þeirra
Haukamanna var aldeilis í essinu
sínu í fyrri hálfleik og skoraði 7
af 10 mörkum liðsins í hálfleikn-
um.
Haukamenn jöfnuðu í upphafi
síðari hálfleiks en þrjú mörk í
röð frá Friðjóni Jónssyni breyttu
stöðunni KA í vil á ný. Jafnræði
var með liðunum fram yfir miðj-
an hálfleikinn en þá komu þrjú
mörk frá Haukum í röð og staðan
orðin 18:17 fyrir KA. En KA-
menn voru mun sterkari á enda-
sprettinum og sigruðu örugglega
27:23. Þaö fór vel á því að einn
af framtíðarleikmönnum KA
Svanur Valgeirsson, skoraði þrjú
síðustu mörk liðsins.
Leikurinn var lítið fyrir augað
og greinileg taugaveiklun í leik-
mönnum beggja liða. Menn voru
að missa boltann úr höndum sér í
tíma og ótíma. Axel Björnsson
og Hafþór Heimisson voru skást-
ir KA-manna en í liði Hauka var
Sigurjón Sigurðsson langbestur.
Haukar þurfa nú að horfa á eftir
þeim snjalla leikmanni en hann
hafði gefið þá yfirlýsingu að ef
Haukar féllu, færi hann frá lið-
inu.
Mörk KA: Axel Björnsson 6,
Friðjón Jónsson 6, Svanur Valg-
eirsson 4, Hafþór Heimisson 3,
Eggert Tryggvason 3(1), Pétur
Bjarnason 3(2), Jón Kristjánsson
1 og Guðmundur Guðmundsson
1.
Mörk Hauka: Sigurjón Sig-
urðsson 12(4), Helgi Harðarson
3, Sindri Karlsson 2, Jón Örn
Stefánsson 2, Jón Þórðarson 2,
Pétur Guðnason 1 og Jón Hauks-
son 1.
Dómarar voru þeir Björn
Jóhannsson og Sigurður Baldurs-
son og dæmdu ágætlega en voru
helst til glaðir við að reka menn
útaf.
„Þórsarar léku vel
og skynsamlega '
- segir Eyjólfur Bragason þjálfari IBV
Handboltalið Þórs og Týs í
Eyjum voru sameinuð í eitt,
fyrir íslandsmótið og áttu
margir von á þeim sterkum til
leiks. Liðið náði sér þó ekki á
strik fyrr en langt var liðið á
mótið. Blaðamaður Dags hitti
Eyjólf Bragason þjálfara og
leikmann ÍBV að máli eftir
leikinn við Þór og spurði hann
fyrst um sjálfan leikinn.
„Ég vil byrja á því að óska
Þórsurum til hamingju með
þennan árangur. Þeir voru betri
en við að því leyti að þeir náðu
að klára sín færi en við ekki. Það
er mjög erfitt að spila hér á
Akureyri og það er greinilegt að
Þórsliðið á öflugan stuðnings-
mannahóp. Stærsta ástæðan fyrir
þessu tapi okkar er sú að þetta er
þriðji úrslitaleikurinn hjá okkur í
vikunni. HSÍ sýndi okkur mikil
óliðlegheit í því sambandi. Allir
þessir þrír leikir voru upp á allt
eða ekkert og álagið var einfald-
lega of mikið. Þórsliðið spilaði
mjög skynsamlega og vel í kvöld.
Árni Stefánsson styrkti liðið
mikið, þó strákurinn sem hafi
leikið á línunni í vetur sé einnig
góður.“
- Nú fór ÍBV-liðið ekki í gang
fyrr en seinni part móts. Hvað
var að?
„Við áttum við innanbúðar-
vandamál að stríða. Ég losaði
mig við 4 leikmenn sem ekki féllu
í hópinn og þá fór hlutirnir að
ganga upp á við. Samheldni og
góður andi skiptir miklu máli í
hópíþrótt og eftir að ég grisjaði
hópinn small þetta saman. Við
erum að skeyta saman tvö lið,
Týr og Þór og það tekur tíma. Úr
því sem komið er má segja þó
sárt sé, að það sé jafnvel hollt
fyrir ÍBV-liðið að vera eitt ár enn
í 2. deild," sagði Eyjólfur Braga-
son þjálfari ÍBV.
Þór endurheimti
sæti í 1. deild
- Liðið sigraði ÍBV á föstudagskvöld í síðasta leik mótsins 22:20
Þór frá Akureyri endurheimti
sæti sitt í 1. deildinni í hand-
bolta á föstudagskvöld, er liðið
sigraði ÍBV í síðasta leik lið-
anna í 2. deild íslandsmótsins.
Leikurinn sem fram fór á
Akureyri að viðstöddum um
eitt þúsund áhorfendum var
æsispennandi og það var ekki
fyrr en í lokin að Þórsarar
tryggðu sér sigur 22:20.
Það er ekki hægt að segja að
lánið hafi leikið við Eyjamenn í
þessum mikilvæga leik. Þeir náðu
forystunni í upphafi en höfðu
áður skotið í stöng úr víti. Þórs-
arar jöfnuðu 1:1 en þá skutu
Eyjamenn aftur í stöng úr víti.
Síðan náðu Þórsarar yfirhöndinni
og náðu fjögurra marka forystu,
8:4 en á þeim tíma varði Axel
Stefánsson víti frá Eyjamönnum.
Eyjamenn minnkuðu muninn í
eitt mark, 8:7 en Þórsarar skor-
uðu þrjú síðustu mörkin í hálf-
leiknum og höfðu fjögurra marka
forystu í leikhléi 11:7. Jóhann
Samúelsson skoraði 11. mark
Þórsara frá miðju vallarins í sama
mund og flautað var til leikhlés.
Hagur Þórsara vænkaðist
strax í upphafi síðari hálfleiks er
Sigurpáll skoraði 12. mark Þórs
úr víti. Eyjamenn voru ekki á því
að gefast upp og þeir náðu að
minnka muninn jafnt og þétt. Á
20. mín. höfðu Þórsarar þriggja
marka forystu 19:16 en Eyja-
menn skoruðu þá þrjú mörk í röð
og jöfnuðu 19:19. Á þessum tíma
var farið að fara um ýmsa af
stuðningsmönnum Þórs. Árni
Stefánsson skorar 20. markið fyr-
ir Þór og skömmu síðar varði
Hermann Karlsson víti frá
Eyjamönnum. Þeir náðu þó að
jafna 20:20 en Þórsarar voru
ákveðnir í því að sigra, skoruðu
tvö síðustu mörkin í leiknum og
unnu sanngjarnan sigur 22:20.
Þegar flautað var til leiksloka ætl-
aði allt vitlaust að verða í Höll-
inni og leikmenn voru hylltir
lengi og innilega. Eyjamenn voru
að vonum vonsviknir enda búnir
að spila þrjá úrslitaleiki á 5
dögum, gegn Gróttu á mánudag,
gegn Víkingi í bikarnum á mið-
vikudag og svo gegn Þór.
Þórsarar léku þennan leik
ágætlega og það var greinilegt að
tilkoma Árna Stefánssonar í
hópinn var til góðs. Sigurpáll
Aðalsteinsson fór á kostum í
þessum leik og skoraði 10 ntörk
og þar af 6 úr vítum. Hann skor-
aði úr öllum vítum liðsins og fisk-
aði sum þeirra sjálfur. Aðrir leik-
menn liðsins léku einnig vel og
eiga hrós skilið fyrir frábæran
árangur.
Leikmenn ÍBV eru líkamlega
sterkir og víst er að þeir verða til
alls vísir á næsta ári. Þeir fóru of
seint í gang í vetur og því fór sem
fór. Jóhann Pétursson var þeirra
besti maður að þessu sinni og
einnig var Sigbjörn Óskarsson
góður.
Mörk Þórs: Sigurpáll Aðal-
steinsson 10(6), Jóhann Samúels-
son 3, Sigurður Pálsson 3, Gunn-
ar Gunnarsson 2, Hörður Harð-
arson 1, Erlendur Hermannsson
1, Ólafur Hilmarsson 1 og Árni
Stefánsson 1.
Mörk ÍBV: Jóhann Pétursson
9(5), Sigbjörn Óskarsson 4, Páll
Scheving 4(1), Sigurður Friðriks-
son 2 og Eyjólfur Bragason 1.
Sigurður Baldursson og Björn
Jóhannsson dæmdu leikinn ágæt-
lega.
„Hef fullan hua á að
þjálfa liðið áfram"
- segir Erlendur Hermannsson þjálfari Þórs
Árni Stefánsson lék mjög vel meö
Þór gegn ÍBV og sýndi hversu mikill
keppnismaður hann er. Mynd: rþb
Þórsarar hafa endurheimt sæti
sitt í 1. deiid í handbolta. Liðið
kom bakdyramegin í 2. deild í
fyrra, eftir að hafa fallið í 3.
deild árið 1985. Liðið fékk 2.
deildar sæti vegna þess að
fjölgað var úr 8 liðum í 10 í 1.
og 2. deild. Hvað um það
strákarnir stóðu sig mjög vel
og eru vel að þessum árangri
komnir. Erlendur Hermanns-
son á svolítið skemmtilega
sögu að baki í sambandi við
það að vinna sig á milli deilda.
Þetta mun vera í fjórða sinn
síðan hann fluttist norður að
hann leikur með liði hér sem
flyst úr 2. deild í þá 1. Keppnis-
tímabilin ’80-81, '82-83 og
'84-85 lék Erlendur með KA er
liðið vann sig í 1. deild og svo
nú í fjórða skiptið með Þór og
þá einnig sem þjálfari.
Blaðamaður Dags æddi að
sjálfsögðu inn í búningsklefa
Þórsara eftir leik og spjallaði við
nokkra er þar voru.
Frlendur Hermannsson þjálfari
og leikmaður Þórs:
„Þetta var rosalega erfiður
leikur. Strákarnir lögðu sig 100%
í leikinn og voru ákveðnir í því
að vinna. Arni Stefánsson kom
mjög vel út. Ég tók ákveðna
áhættu með því að láta hann spila
og það gekk upp.“
- Hverju þakkar þú þennan
góða árangur í vetur?
„Strákunum fyrst og fremst og
góðri stjórn deildarinnar. Leik-
mennirnir liafa sýnt ntikla elju í
allan vetur og þeir ætluðu sér
langt. Það hefur verið góður stíg-
andi í leik liðsins.“
- Hvað með framhaldið? Þjálf-
ar þú Þórsliðið næsta keppnistíma-
bil?
„Það eru viðræður í gangi unt
það mál. Ég hef fullan hug á því
að þjálfa liðið næsta kepnnistíma-
bil en það er 119% öruggt að ég
er hættur sem leikmaður," sagði
Erlendur Hermannsson og var að
vonum ánægður nteð lífið.
Árni Stefánsson:
„Þetta var æðislegt, erfitt en
virkilega gaman. Það var mikil
samstaða í hópnum og góður
andi. Menn ætluðu sér þetta og
því tókst það.“
- Nú komst þú í hópinn fyrir
þennan eina leik. Hvað með
næsta ár hjá þér?
„Ég stefni að því að leika með
liðinu næsta ár. Fyrst við. erum
komnir upp, er ekki hægt að snúa
við héðan af. Mig langar að
þakka áhorfendum fyrir frábæran
stuðning, þeirra hlutur var
ómetanlegur og án þeirra hefði
þetta aldrei tekist,“ sagði Árni
Stefánsson.
Axel Stefánsson:
„Þetta var mikill baráttuleikur
frá byrjun. Ég var ekkert tauga-
veiklaður í leiknum sjálfum en
töluvert fyrir leikinn. Það var
fyrst og fremst góð barátta sent
skóp þennan sigur. Það var mjög
gott að fá Árna í hópinn, bæði
upp á móralinn og hann hefur
einnig mikla leikreynslu eins og
sást best í lok leiksins."
- Hverju þakkar þú þennan
árangur?
„Góðum þjálfara, góðri stjórn
og því að allir sem hlut áttu að
máli lögðu sig alla fram. Áhorf-
endur hafa veitt okkur frábæran
stuðning í vetur og eiga þakkir
skildar fyrir,“ sagði Axel mark-
Hörður „hraðlest“ Harðarson skorar fyrir Þór úr hraðaupphlaupi í leiknum
á föstudagskvöld. Mynd: RI'B
Skíðaganga:
Bikarmót á
Siglufirði
- Haukur Eiríksson kominn heim
og keppti á mótinu
vörður en hann er yngsti
leikmaður liðsins.
Gunnar Gunnarsson fyrirliði:
„Þetta var stórkostlegt. Við
erum þrisvar að missa tökin á
leiknum og þá tóku áhorfendur
til sinna ráða og með þeirra frá-
bæra stuðningi náðum við alltaf
yfirhöndinni á ný. Það var mjög
góð barátta í liðinu og ég er
ánægður með hlut Árna Stefáns-
sonar.“
- Hverju þakkar þú árangur-
inn?
„Góðum þjálfara, góðum leik-
mönnum og frábærri stjórn. Þá
var samstaðan í hópnum ein-
stök.“
- Ert þú hættur með liðinu?
„Nei ekki aldeilis. Það er ekki
hægt að hætta héðan af og ég
mun mæta til leiks næsta haust,"
sagði Gunnar „gamli“ Gunnars-
son.
Smári Garðarsson formaður
handknattleiksdeildar Þórs:
„Ég er hrærður, ég þorði ekki
að horfa á þennan leik nema aö
iitlu leyti. Ég sá þó mann eins
Jóhann Samúelsson sem hefur
lítið beitt sér í vetur, sýna hvað
hann virkilega getur. Áhorfendur
voru frábærir og það var gantan
að sjá hér fullt af KA-mönnum
hvetja okkur til dáða.
Ég hafði strax mikla trú á
þessu liði. Þjálfarinn er frábær og
þá er hlutur stjórnarinnar einnig
mikill. Samvinna allra stjórnar-
, manna hefur verið góð og án
stjórnar er þetta ekki hægt.“
- Verður Erlendur endurráð-
inn þjálfari liðsins?
„Það er mikill vilji fyrir því að
hann verði áfram með liðið og
hef trú á því að svo verði,“ sagði
Smári Garðarsson.
Bikarmót SKI í skíðagöngu fór
fram á Siglufirði á laugardag-
inn. Keppt var í fjórum flokk-
um karla og tveimur flokkum
kvenna. Veður var mjög gott á
meðan keppnin fór frani og
skíðafærið ákjósanlegt. I gær
var síðan keppt í svokölluðu
útsláttarmóti, sem er nýtt fyrir-
komulag og þar voru karla-
flokkarnir tveir en einn
kvennaflokkur.
Fyrirkomulagið á útsláttarmót-
inu er þannig að fjórir keppa í
einu í hverjum flokki en. sá sem
er síðastur hverju sinni fellur úr
keppni en hinir halda áfram. I
bikarmótinu var gengið með
hefðbundinni aðferð en í út-
sláttarmótinu með frjálsri aðferð.
Úrslitin á mótunum urðu þessi:
Bikarmót SKÍ:
Karlar 20 ára og eldri, 15 km:
1. Þröstur Jóhannesson í 49.14
2. Haukur Eríksson A 50.40
3. Magnús Eiríksson S 51.25
Piltar 17-19 ára, 10 km:
1. Rögnvaldur Ingþórsson í 32.54
2. Baldur Hermannsson S 33.08
3. Ólafur Valsson S 33.40
Drengir 15-16 ára, 7.5 km:
1. Sölvi Sölvason S
2. Óskar Jakobsson í
Drengir 13-14 ára, 5 km:
1. Guðmundur Óskarsson Ó
2. Steingrímur Ö Gottliebsson S
3. Daníel Jakobsson í
Konur 16 ára og eldri, 5 km:
1. Ósk Ebenesardóttir í
2. Eyrún Ingólfsdóttir í
28.07
30.53
17.3!
17.31
17.46
21.11
23.23
Stúlkur 13-15 ára, 2.5 km:
1. Esther Ingólfsdóttir S 9.32
2. Lena Rós Matthíasdóttir Ó 10.42
3. Helga B.Kristjánsdóttir í 10.53
Útsláttarmótið:
Karlar 17 ára og eldri, 1.5 km:
1. Haukur Eiríksson A
2. Rögnvaldur Ingþórsson í
3. Baldur Hermannsson S
4. Magnús Eiríksson S
Drengir 13-16 ára, 1.0 km:
1. Sölvi Sölvason S
2. Daníel Jakobsson í
3. Gísli Valsson S
Konur 16 ára og eldri, 1.0 km:
1. Esther Ingólfsdóttir S
2. Ósk Ebenesardóttir 1
3. Lena Rós Matthíasdóttir Ó
4. Valborg Konráðsdóttir í
Verður fjölgað
í úrvalsdeiíd?
Mikið hefur verið rætt um það
í vetur hvort fjölgað verði í
úrvalsdeildinni í körfubolta
fyrir næsta keppnistímabil.
Flest allir sem til þekkja eru á
því að núverandi fyrirkomulag
keppninnar sé orðið úrelt og
að breytinga sé þörf.
Þó eru nokkuð skiptar skoðan-
ir um það hvaða fyrirkomulag sé
best. Það sem er mest rætt um í
dag, samkvæmt heimildum Dags,
er að fara í 12 liða forkeppni í
haust með liðunum úr úrvalsdeild
og 1. deild. Leikin yrði einföld
umferð og þau átta lið sem stæðu
best að vígi að henni lokinni
lékju í úrvalsdeild. Síðan yrði
leikin tvöföld umferð í úrvals-
deild en stigin úr innbyrðis viður-
eign liðanna í forkeppninni giltu
áfrani.
2. deild yrði 1. deild sem leikin
yrði eins og 2. deildin í vetur,
þ.e. í tveimur riðlum og þau fjög-
ur lið sent ekki kæmust í úrvals-
deildina úr forkeppninni, féllu í
2. deild, tvö í hvom riðil.
Rétt er að ítreka að þessi mál
öll eru aðeins á umræðustigi og
skýrast ekki fyrr en á ársþingi
KKÍ í vor eða sumar.
Knatt-
spyrnu
úrslit
Staöan í 1. og 2. deild ensku
knattspyrnunnar er þessi:
1. deild:
Liverpool
Everton
Luton
Arsenal
Tottenham
Nottm.Forest
Norwieh
Wimbledon
Coventry
Watford
Chelsea
Man.United
Q.P.R.
Sheff.Wed.
West Ham
Oxford
Southampt.
Leicester
Charlton
Newcastle
Man.City
Aston Villa
2. deild:
Portsmouth
Derby
Oldhant
Ipswich
Plvmouth
C.Palace
Leeds
Stoke
Sheff.Utd.
Rcading
Millwall
Grimsby
Birmingham
Blackburn
W.B.A.
Sunderland
Shrewsbury
Barnsley
Huddersf.
Hull
Bradford
Brighton
35 20- 7-
33 19- 7-
34 16- 9-
33 15-10-
31 16- 6-
34 15- 9-
33 13-15-
32 15- 5-
33 14- 7-
32 13- 8-
33 12- 9-
33 11-11-
34 12- 9-
33 10-11-
33 11- 8-
34 9-11
33 11- 4
34 10- 6
33 7- 9
32 7- 9-
33 6-12
33 7- 9
8 61:34 67
7 60:26 64
9 39:35 57
8 42:21 55
9 52:33 54
10 55:41 54
5 44:39 54
12 44:39 50
12 38:36 49
11 51:39 47
12 42:50 45
11 42:33 44
13 38:43 44
12 44:48 41
14 44:53 41
14 34:55 38
•18 53:58 37
18 47:64 36
•17 30:45 30
■16 34:53 30
■15 27:46 30
•17 37:67 30
32 20- 7-
32 19- 7-
3118- 7-
34 15-10-
33 14- 9-
34 16- 3-
32 13- 9-
33 13- 8-
34 11-11-
31 12- 7-
33 12- 7-
34 10-12-
33 9-14
33 11- 8-
33 10- 9-
31 10- 9
34 11- 6
33 9-11
32
32
33
33
9-10-
9- 9-
8- 9.
7- 9-
5 43:18 67
6 51:30 64
6 48:27 61
9 50:33 55
10 52:44 51
15 47:46 51
10 40:35 48
12 49:39 47
12 41:45 44
12 44:44 43
14 33:33 43
12 35:45 42
10 41:48 41
14 32:40 41
■14 40:38 39
•12 36:41 39
•17 29:42 39
■13 34:40 38
•13 41:51 36
■14 28:39 36
■16 45:53 33
■17 29:44 30
Úrslit lcikja í 1. og 2. deild
ensku knattspyrnunnar um
helgina uröu þessi:
Staðan
1. deild
Arsenal-Everton 0:1 2
Aston Villa-Coventry 1:0 1
Charlton-Chclsea fr. x
Leicester-Man.City 4:0 1
Liverpool-Wimbledon 1:2
Luton-Tottenhani 3:1 1
Man.Utd-Nott.Forest 2:0 1
Neweastle-Southampton 2:0 1
Oxford-Sheff.Wed. 2:1 1
Q.P.R.-Norwich 1:1 x
West Ham-Watford 1:0 1
Staðan
2. deild
Barnsley-Birminghain 2:2
Grimsby-Shrewsbury 0:1
Ipswich-Hull 0:0
Leeds-Plymouth 4:0
Millwall-C.Palace 0:1
Oldham-W.B.A. 2:1 1
Portsmouth-Sunderland 3:1 1
Sheff.Utd.-Bradford 2:2
Stoke-Brighton 1:1