Dagur - 30.03.1987, Síða 11
30. mars 1987 - DAGUR - 11
Kennaralaun nær
tvöfalt lægri en
sambærileg laun
á almennum
vinnumarkaði
- Algengur misskilningur að mánuði
lengra sumarfrí sé hlunnindi
sem nýta megi til tekna
Laun í ......................
þÚS jÐ&srvhmttiöttft lcem'íít.x’íí í HiK s HorSurUínHiÍ
króna í----------------S££lS‘ ! 1987
B l. I>r-cs>
1 S.
O. prep
|ÍA«í)«r lokkai' kfívnt-sr<> i HÍK Á HftX'&ttrl&ndJ
.eystya á avaí'S 1.98?
136 537
taött&í: iokitttt*
Pessar myndir sýna hvernig kennarar í HÍK á Norfturlandi eystra raftast á
launaflokka og hvaða laun eru greidd í hverjum flokki. í 136. launaflokki
eru t.d. grunnskólakennarar meft kcnnarapróf frá KHÍ. í 140. launaflokki
eru t.d. grunnskólakcnnarar með doktorspróf eða framhaldsskólakennarar
með MA-, MS- efta Cand. mag.-próf. 1. þrep eru byrjunarluun. 5. þrep eru
laun eftir 6 til 8 ára starf. 8. þrep eru hæstu laun í hverjum flokki. Því ná
kennarar eftir 15 ára starf.
verðum veik og getum ekki
stundað vinnu? Ekki greiðum við
afborganir með sjúkradagpening-
um. Margir foreldrar verða að
vinna alla þá kvöld-, nætur- og
helgidagavinnu, sem þeim endist
orka til, til þess að geta staðið
undir greiðslum af íbúðakaup-
um. Hver gætir barnanna? Hve-
nær á foreldrum að gefast tími til
að vera samvistum við börnin sín
í ró og næði? Er nokkur furða þó
að við blasi að þjóðinni fjölgi
ekki meir? Fólk hugsar sig um
áður en það ákveður að eignast
börn. Erum við samþykk þeirri
pólitísku stefnu sem dæmir ungt
fólk til þess að koma sér upp
húsnæði, með því álagi yfir sér,
sem ég hef lýst, á nákvæmlega
þeim sömu árum og það er að ala
önn fyrir ungum börnum? Og svo
eru talsmenn þessarar sömu
stefnu að tala um að hlúa að fjöl-
skyldunni! Hjá þeim eru það að-
eins marklaus orð - en þau fara
vel í munni og láta vel í eyrum
þeirra sem ekki þekkja vandann
af eigin raun.
Kvennalistinn hefur á stefnu-
skrá sinni: Að þarfir fjölskyld-
unnar verði hafðar að leiðarljósi
við stefnumótun í húsnæðismál-
um.
Að horfið verði frá þeirri
eignaíbúðastefnu sem ríkt hefur
og fólk hafi raunverulega vai um
hvort það kýs að búa í eigin hús-
næði eða leigja.
Að stórauka framboð á leigu-
húsnæði með því að leggja
áherslu á byggingu leiguíbúða,
bæði á vegum hins opinbera og
félagasamtaka. Margir staðir á
landsbyggðinni búa við slíkan
skort á leiguhúsnæði að það
stendur eðlilegu atvinnuástandi
og atvinnuþróun fyrir þrifum.
Aukið framboð leiguíbúða er lið-
ur í því að gera fólki kleift að
setjast að annars staðar en á
höfuðborgarsvæðinu.
Kvennalistakonur spyrja:
Erum við sáttar við samfélag sem
gerir ekki ráð fyrir börnum, tek-
ur ekki tillit til þarfa þeirra og
tímir varla að sjá af lágmarks-
framlögum til umönnunar þeirra,
uppeldis og menntunar - lág-
marksframlögum sem sífellt er
verið að skerða?
Umönnun barna er eitt mikil-
vægasta verkefni hverrar þjóðar.
Dagheimili eru nauðsynleg vegna
ört vaxandi vinnu foreldra utan
heimilis.
/ stefnuskrá Kvennalistans
segir: Ein meginástæða valda- og
áhrifaleysis kvenna í samfélaginu
er sú að uppeldi og umönnun
barna hvílir nær eingöngu á
konum, án þess að það sé metið
að verðleikum. Jöfn foreldra-
ábyrgð - aukin og bætt þátttaka
samfélagsins í uppeldi barna, eru
því viðgangsefni sem Kvennalist-
inn vill beita sér fyrir. Meirihluti
kvenna býr við margfalt álag
vegna vinnu, innan sem utan
heimilis. Mæður sem vinna utan
heimilis búa við stöðuga óvissu
barna sinna og standa ráðþrota
þegar börnin þurfa sérstaklega á
þeim að halda, svo sem við lang-
varandi veikindi eða aðlögun að
dagvistum og skóla.
Geysileg mótsögn er í viðhorf-
um til barneigna í þjóðfélaginu.
Sjálfsagt þykir að fólk eignist
börn, en þegar þau eru fædd má
segja að þjóðfélagið sé þeim
fjandsamlegt. Fæðingarorlof er
allt of stutt - barnabætur of lágar,
skóladagur sundurslitinn og úti á
landi þarf fjöldi barna að búa
fjarri foreldrum vegna skóla-
göngu. Þarfir barna hafa of oft
lotið í lægra haldi fyrir þörfum
vinnumarkaðarins. Stóraukinni
þátttöku kvenna í atvinnulífinu
hefur ekki verið mætt sem skyldi
með aukinni þjónustu.
Samfélaginu ber skylda til að
búa vel að öllum börnum. Þau
eru framtíð þjóðarinnar og því
getur reynst dýrkeypt að spara fé
til aðbúnaðar þeirra.
í nýlegri grein eftir Magnús
Kristinsson menntaskóla-
kennara fjallar hann um kjara-
mál kennara í HÍK í tilefni af
kjaradeilu sem þeir eiga nú í
við hið opinbera og staðið hef-
ur í rúmar tvær vikur. I grein-
inni kemur fram að samkvæmt
útreikningum Hagstofunnar
voru laun sambærilegra stétta
á almennum vinnumarkaði að
meðaltali 68,36% hærri en
laun kennara í maí 1984. í
september síðastliðnum var
munurinn orðinn 92,04% og
enn hefur hann aukist.
Vonir kennara um breytingar
til batnaðar hafa orðið að engu
og að þeirra dómi gætir mikils
misskilnings meðal almennings
um eðli starfsins og launakjör.
Samkvæmt samningum skal
vinnutími kennara í HÍK í skóla
með 9 mánaða starfstíma vera
sem hér segir:
a) Viðverutími, þ.e. kennsla og
önnur störf í skólanum(t.d. við-
talstímar og foreldrafundir) 28
klst. vikulega á starfstíma
skólans.
b) Undirbúningur undir
kennslu, 20 klst. og 26 mín.
c) Undirbúningur undir
kennslu utan árlegs starfstíma
skólans (þ. á m. sumarnám-
skeið), 153 klst eða einn mánuður.
Samkvæmt þessu er vikulegur
vinnutími kennara til jafnaðar 48
klst og 26 mín. í níu mánuði á
ári. A móti kemur einum mánuði
lengra sumarfrí en almennt
tíðkast. Þriðji sumarmánuðurinn
er ætlaður til undirbúnings. Að
sögn Magnúsar er það algengur
misskilningur að þessi mánuður
sem munar á fríi kennara og
flestra annara sé hlunnindi sem
nýta megi til tekna.
Ástæður fyrir yfirvinnu
kennara, sem margir sjá ofsjón-
um yfir, eru misjafnar. Sumir sjá
sig tilneydda vegna lágra launa,
en byrjunarlaun kennara með
háskólapróf og full réttindi eru
32.851 kr á mánuði. Algengara er
þó að kennarar neyðist til að taka
að sér mun meiri aukavinnu en
þeir kæra sig um. Samkvæmt lög-
um getur vinnuveitandi skyldað
kennara til að vinna allt að 33%
yfirvinnu í heilt ár í senn en það
jafngildir 64 klukkustunda vinnu-
viku.
Með hliðsjón af þessari kvöð
er kannski ekki undarlegt að
fjármálaráðuneytið sæki fast í
yfirstandandi kjaradeilu að lækka
yfirvinnuálag kennara úr 40% í
30% til að vega upp á móti lítils-
háttar hækkun á dagvinnulauna.
„Ef við teljum uppeldi og
almenna upplýsingu komandi
kynslóða einhvers virði, er sam-
komulag sem ekki felur í sér al-
gjört endurmat á uppeldis- og
kennslustörfum verra en ekkert,“
segir í lok greinar Magnúsar. ET
í síðustu viku voru opnaðir söfnunarbaukar vegna Krísuvíkursöfnunarinnar.
Krísuvíkursamtökin stóðu fyrir þessari söfnun á dögunuin og á Akureyri
söfnuðust 241.380 kr. Peningarnir verða notaðir til að koma á fót aðstöðu í
Krísuvík fyrir unglinga sem hafa flækst í net áfengis og eiturlyfja. Forráða-
menn söfnunarinnar þakka öllum velunnurum fyrir veitta aðstoð.
Mynd: Rl-B
H-90
Ungt fólk á Akureyri!
Opið hús.
Viltu taka þátt í pólitísku starfi og leggja þannig
þitt af mörkum við mótun betra þjóðfélags?
Komdu þá í Hafnarstræti 90annað kvöld kl. 20.30
og taktu þátt í starfinu.
Byggðu upp með okkur -
við byggjum upp með þér.
B-LISTINN.
Viðgerðamiaður
Okkur vantar vélvirkja eða mann með
hliðstæða menntun til starfa í
Viðgerðardeild skinnaiðnaðar.
Starfið er fólgið í alhliða viðgerðum og viðhaldi á
vélum og tækjum. Æskilegt er að viðkomandi geti
hafið störf fljótlega.
Umsóknir sendist starfsmannastjóra fyrir 3. apríl nk.
og gefur hann nánari upplýsingar.
IÐNAÐARDEILD
SAMBANDSINS
GLERÁRGÖTU 28 AKUREYRI SÍMI (96)21900