Dagur - 30.03.1987, Side 15
30. mars 1987 - DAGUR - 15
Nýr forstööumaður
Náttúrugripasafnsins
Eins og getið var hér í blaðinu
hefur Helgi Hallgrímsson for-
stöðumaður Náttúrugripasafns-
ins, sagt starfi sínu lausu frá sl.
árarr.ótum, og var það auglýst til
umsóknar í des. sl. Tvær
umsóknir bárust og ákvað
umhverfismálanefnd bæjarins að
leggja til við bæjarstjórn, að
Hörðu.r Kristinsson grasa-
fræðingur yrði ráðinn til starfsins.
Var sú tillaga samþykkt í Bæjar-
stjórn Akureyrar þann 11.
febrúar sl., og mun Hörður taka
við starfinu 1. júlí næstkomandi.
Hörður er Eyfirðingur að ætt
og uppruna, fæddur á Akureyri
29. nóv. 1937, en fluttist 1940 að
Arnarhóli í Kaupangssveit, með
foreldrum sínu, Kristni Sig-
mundssyni og Ingveldi Hall-
mundsdóttur, og ólst þar upp.
Hann lauk stúdentsprófi frá MA
vorið 1958, stundaði háskólanám
í Freiburg og Göttingen í Þýska-
landi, með grasafræði sem aðal-
grein, og tók doktorspróf við
Göttingen háskóla 1966, með
plöntusjúkdóma að sérgrein.
Fjallaði ritgerð hans um nokkra
sníkjusveppi á smára og skyldum
jurtum.
Að prófi loknu hóf hann að
rannsaka fléttuflóru íslands og
ferðaðist í því skyni um allt
landið, sumrin 1967 og 1968, en
vann á vetrum við rannsókn
fléttusafnsins við Duke-háskóla í
Durham (Norður-Karólínu) í
Bandaríkjunum. Einnig tók hann
þátt í rannsóknum á landnámi
jurta í Surtsey, gróðurrannsókn-
um í Þjórsárverum o.fl.
Árið 1970 flutti Hörður til
Akureyrar og fékk hálft starf við
Náttúrugripasafnið og Lystigarð
Akureyrar, og aðstöðu til að
halda áfram flétturannsóknum
sínum, en stundaði jafnframt
kennslu við Menntaskólann á
Akureyri, næstu tvö árin. Hann
var síðan í fullu starfi við Náttúru-
gripasafnið og forstöðumaður
þess árin 1974-1977. Á þeim tíma
stundaði hann flóru- og gróður-
rannsóknir á Norðurlandi og
víðar, og fékkst einnig við rann-
sóknir á kalsveppum, mengun í
Akureyrarpolli, og flétturann-
sóknir. Einnig sá hann um nám-
skeið í sveppa- og fléttufræði við
hina nýstofnuðu náttúrufræði-
deild Háskóla íslands.
Árið 1977 var Hörður ráðinn
prófessor í grasafræði við
Háskólann, og fluttist þá til
Reykjavíkur, þar sem hann hefur
búið síðan. Hann hefur fengist
nokkuð við plöntuljósmyndun,
og nýlega sent frá sér „Plöntu-
handbókina“, með litmyndum af
flestum tegundum íslenskra há-
plantna. (Sjá ritdóm í Degi, 20.
nóv. sl.). Fyrirhugað er að sam-
eina Náttúrugripasafnið og Lysti-
garðinn í eina stofnun um næstu
áramót, og verður Hörður þá
yfirmaður hennar.
Þjóðarflokkurinn:
Ótímabært frumhlaup
Nýr stjórnmálaflokkur hefur litið
dagsins ljós, Þjóðarflokkurinn.
Tilurð hans hefur vakið undrun
mína og fjölda annarra, sem tekið
hafa þátt í starfi Samtaka um
jafnrétti milli landshluta. Sam-
tökin voru, sem kunnugt er,
stofnuð til þess að jafna aðstöðu
manna í þjóðfélaginu og draga úr
þeirri háskalegu miðstýringu,
sem nú viðgengst í krafti órétt-
látra laga og peningavalds. í
Samtökunum starfar breiðfylking
fólks með ýmsar stjórnmála-
skoðanir, og einmitt það er styrk-
ur þeirra. Á síðasta landsfundi
Samtakanna á Laugarvatni í júlí
’86, var ákveðið að halda barátt-
unni áfram á þann hátt, að kynna
málstað og skoðanir Samtakanna
og þrýsta á stjórnmálamenn og
flokka til þess að fá þá til að taka
upp baráttumál okkar. Ef seinna
kæmi í ljós, að þessi aðferð dygði
ekki, þá kæmu aðrar leiðir til
greina. í leiðara Útvarðar, blaðs
Samtakanna, sem Pétur Valdi-
marsson skrifaði í lok nóvember
’86 segir hann m.a. „Nú starfa
stjórndeildir Samtakanna í 5
fylkjum, eins og gert er ráð fyrir í
stjórnarskrárdrögum okkar.
Stjórndeildirnar eru að vinna
upplýsingar um tekjuöflun hvers
fylkis, þjónustu ríkisins i mennta-
málum, heilbrigðismálum, sam-
göngumálum, iðnaðar- og orku-
málum og margt fleira. Þegar
þessar athuganir liggja fyrir mun-
um við kynna landsmönnum
niðurstöður þeirra svo hægt sé að
lialda baráttunni áfram á þeim
grundvelli sem lagður hefur
verið.“ Ef við nú skoðum kosn-
ingastefnuskrár flokkanna eða
hlustum á málflutning frambjóð-
endanna, koma í ljós verulegar
breytingar í átt til hugmynda
Samtakanna um jafnrétti milli
landshluta. Það sýnir okkur best,
hverju breiðfylking fólks fær
áorkað. Með áframhaldandi
umræðu og aðhaldi að stjórnmála-
flokkunum er sjálfsagt að gefa
þeim tækifæri til að „sýna í verki
viljann góða“ næsta kjörtímabil.
Þetta var skoðun landsfundarins
’86 og skoðun formannsins í
nóvember, eins og kom fram í til-
vitnuninni hér að framan. Mér er
því óskiljanleg skyndileg stefnu-
breyting Péturs og nokkurra ann-
arra úr fremstu röðum Sam-
takanna, að hafa að engu eigin
yfirlýsingar, segja sig úr stjórn
Samtakanna og stofna nýjan
stjórnmálaflokk. í símtali sem ég
Alltaf
eitthvað nýtt
kjólar ★ blússur ★pils ★peysur.
Myndateppin vinsælu.
Ungbarnafatnaður.
Sundbolir, handklæði.
Rúmfatnaður í úrvali.
Gjörið svo vel
að líta inn.
Sigurbar GÆmndssonarhf.
HAFNARSTRÆTI 96 SÍMI 96*24423 AKUREYRI
TOM5TUNDA Alþýðuhúsinu
SKOLINN?
Ný námskeið
Ættfræði (helgarnámskeið) Þorsteinn Jónsson.
Silkimálun. Hrönn Vilhelmsdóttir.
Vorverk í görðum. Björgvin Steindórsson.
Innritun og allar nánari upplýsingar TOM5TUNDA
á skrifstofunni Alþýðuhúsinu 3ju hæð l^l^l
og í síma 27144 kl. 14-16 þessa viku. )|\wLlrtri
átti við Pétur, sem almennur
félagi í Samtökunum, þegar það
fór að kvisast að stjórnmála-
flokkur væri í fæðingu, þá þóttist
hann ekki koma þar nærri!
Þessi ákvörðun, ég vil kalla
hana ótímabært frumhlaup, er
þungt högg í bak Samtakanna og
gæti valdið því að fólk missti álit
á þeim, teldi að þarna væru ein-
ungis á ferðinni einhverjir, sem
vildu koma sjálfum sér á fram-
færi. Ég álít þó, að svo sé ekki,
sem betur fer, að minnsta kosti
ekki lengur, nú eftir stofnun
Þjóðarflokksins!
Halldór Guðlaugsson
Málmiðnaðarmenn
Rafvirkjar
Slippstöðin hf. óskar að ráða málmiðnaðarmenn og
rafvirkja til starfa.
Mikil vinna. - Mötuneyti á staðnum.
Upplýsingar gefur starfsmannastjóri í síma 96-
21300.
slippstödin,
//
,#íS£,v<
DÖMUR MÍNAR OG HERRAR
„VEU<OMIN TILAKUREYRAR
ÆÆ LEIKHÚSPAKKAFERÐIR Æf
SÖNGLEIKURINN: KABARETT
PERLAN í PAKKANUM
FLUG - FIMM GISTISTAÐIR - FIMM VEITINGASTAÐIR.
PÚ VELUR SJÁLFUR í PAKKANN.
Dæmi: Leikhúsmiði + tvær nætur á hóteli með baði. Kr. 2690,- fyrir manninn.
Leikhúsmiði + leikhúskvöldverður kr. 1600,-fyrir manninn.
^/SPARNAÐARPAKKIi miðvikudagur - fimmtudagur.
IA
MIÐASALA
96-24073 leiKFáAG akureyrar
fluqfélaq
noróurlands hf'. Umboðsmenn