Dagur - 30.03.1987, Qupperneq 16
Alhliða
rafverktakastarfsemi
og verslun
NORÐURUÚS ht
RAFVERKTAKAR
FURUVÖLLUM 13-600 AKUREYRI
SÍMAR (96)25400 & 25401
Þór í 1. deild í handbolta
Kampakátir Þórsarar eftir sigurinn á ÍBV í íþróttahöllinni á Akureyri á föstudagskvöld. Með þeim sigri tryggði liðið
sér sæti í 1. deild að ári. Árangur liðsins er stórgóður, en liðið kom upp úr 3. deild í fyrra. Næsta ár verða því tvö
1. deildar lið á Akureyri. Mynd: rþb
Fjárhagsvandi Leikfélags Akureyrar:
„Ekki endalaust hægt
að skera niður“
- segir Pétur Einarsson ieikhússtjóri
KSÞ Svalbarðseyri:
„Munur á
stjórn-
endum og
stjórnar-
mönnum“
„Meirihluti þeirra sem ekki fá
greiddar launakröfur sínar er
tengdur stjórnendum en ekki
stjórn KSÞ. Það má að vísu
segja að skeggið sé skylt hök-
unni en þarna er þó alveg skýr
munur á milli,“ sagði Tryggvi
Stefánsson á Hallgilsstöðum,
stjórnarformaður KSÞ á Sval-
barðseyri.
í frétt, sem birtist í Degi 24.
mars, er talað um að lagaákvæði
kveði á um að ríkissjóður ábyrg-
ist launakröfur starfsmanna
gjaldþrota fyrirtækja. Þó sé ekki
heimilt að greiða þeim starfs-
mönnum laun sem tengjast þeim
stjórnarmönnum eða stjórnend-
um fyrirtækis skyldleikaböndum,
sem ættu að vita vegna eðlis
starfsins að gjaldþrot væri fram-
undan.
Þegar Tryggvi var spurður að
því hvort stjórn KSÞ hefði ekki
unnið beint að fjármálum fyrir-
tækisins sagði hann: „Nei, nei.
Stjórnin sem slík vinnur að því
að leggja línurnar en ekki að dag-
legum störfum. Þegar rætt er um
stjórn í venjulegum skilningi þá
er átt við þessa fimm sem eru
kosnir, ekki framkvæmdastjóra
eða slíka beina stjórnendur. Þeg-
ar verið er að kjósa stjórn KSÞ
eða annarra kaupfélaga þá er
ekki verið að kjósa framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins. Það er fyrst
og fremst skyldleiki við stjórn-
endur fyrirtækisins sem um er að
ræða.“ EHB
Ef marka má viðtökur við aug-
lýsingu sem fyrirtækið Hljóð-
bylgjan hf. á Akureyri setti í
blöð um daginn, eru margir sem
hafa áhuga á því að vinna við
útvarp. Hljóðbylgjan hf. aug-
lýsti í Degi og einu síðdegisblað-
anna í Reykjavík. Umsóknar-
frestur rann út 25. mars og höfðu
þá borist rúmlega 40 umsóknir.
Auglýst var eftir útvarpsstjóra,
fréttamönnum, auglýsinga-
stjóra og dagskrárgerðar-
mönnum.
Steindór G. Steindórsson sem
á sæti í stjórn nýja útvarpsfélags-
ins sagöi að margar umsóknanna
væru mjög athyglisveröar, í þeim
væri aö finna fólk með reynslu í
útvarpsvinnu.
Ekki veröur ákveðiö með
ráðningar starfsmanna fyrr en
útvarpsstjóri verður ráðinn. Það
„Borgin styrkir Leikfélag
Reykjavíkur með því að borga
42 stöður og sá styrkur þróast í
kjölfar launabreytinga. Bær-
er á góðri leið hjá okkur og
standa yfir samningar við aðila
sent hugsanlega tekur að sér
starfiö," sagði Steindór.
Ekki er endanlega ákveðinn
útsendingartími stöðvarinnar, en
hann verður að öllum líkindum
frá kl. 6.30 til miðnættis. Einnig
eru hugmyndir um næturútvarp.
Fyrst um sinn nást útsendingar
Hljóðbylgjunnar hf. suður eftir
Eyjafirði. á Akureyri og norður
Eyjafjörð. Munu þá staðir eins
og Grenivík, Arskógssandur,
Dalvík, Hrísey og Ólafsfjörður
ná útsendingunum. í sumar á að
setja upp sendi í Grímsey og ger-
ir hann þaö að verkum að útsend-
ingar ættu að nást frá Sauðár-
króki austur að Langanesi.
Fyrirhugað er aö hefja útsend-
ingar síðari hluta aprílmánaðar.
gcj-
inn greiðir Leikfélagi Akureyr-
ar hins vegar upphæð sem
svaraði til 7,4 staða nú um ára-
mót. Við höfum enga trygg-
ingu gagnvart Iaunabreyting-
um eins og Leikfélag Reykja-
víkur hefur,“ sagði Pétur Ein-
arsson leikhússtjóri þegar
hann var spurður um fjárhags-
vanda L.A.
Þessi samanburður Péturs á
styrkveitingum er skiljanlegur.
Leikfélag Akureyrar setur upp 5
sýningar á leikári. Það gerir Leik-
félag Reykjavíkur einnig. Leik-
félag Reykjavíkur hefur hins veg-
ar margfalt meiri möguleika á
tekjum af aðgöngumiðasölu, en
samt sem áður er afkoma þess
tryggð með veglegri styrkveit-
ingu.
Ekki sakar að benda á þá
staðreynd að margir aðilar njóta
góðs af tilvist leikfélagsins.
Flugfélög, veitingastaðir,
skemmtistaðir og jafnvel hótel fá
stærri skerf af útgjöldum leikhús-
gesta en leikfélagið sjálft. Pakka-
ferðir eru mjög vinsælar og þar er
leikhúsferð aðeins einn liður af
mörgum. Þeirri hugmynd hefur
verið varpað fram að réttast væri
að þessir aðilar styrktu Leikfélag
Akureyrar.
„Það er klárt mál að þetta hús
nýtur engan veginn réttlætis.
Hingað til hefur alltaf verið
brugðist við og skorið niður
seinni part ársins. Þegar ljóst er
hver styrkurinn verður þá er allt-
af gripið til þess að skera niður.
Enga leikmynd þarna, fámenn
stykki o.s.frv. en þetta kemur
niður á standardinum. Það er
ekki endalaust hægt að skera
niður,“ sagði Pétur Einarsson. SS
í frétt í ríkisútvarpinu síðast-
liðinn fimmtudag var haft eftir
Gunnari Arasyni formanni
undirbúningsnefndar að fjar-
skiptamarkaði á Norðurlandi
að samkvæmt nýsamþykktum
lögum um uppboðsmarkaði fái
aðeins einn aðili leyfi til að
starfrækja fiskmarkaö á
Norðurlandi og að Fiskmiölun
Norðurlands félli undir þessi
lög.
„Þetta er í annað sinn sem
þessi nefnd vitnar á rangan hátt í
þessi lög. Þessi starfsemi scm ég
er að koma á fót heyrir á engan
hátt undir þessi lög og því vil ég
lciðrétta þennan misskilning að
valið standi á milli þessara
tveggja fyrirtækja,“ sagði Hilmar
Daníelsson framkvæmdastjóri og
Breytingum á Björgúlfi
að Ijúka:
Til veiða
í apríl-
mánuði
- Heildarkostnaður
rúmlega 70 milljónir
í dag mun Valdimar Bragason
framkvæmdastjóri Útgerðar-
félags Dalvíkinga fara utan til
Hollands þar sem unnið hefur
verið að endurbótum á einum
togara fyrirtækisins, Björgúlfi,
síðan í byrjun febrúar. Með
honum í för verður hluti af
áhöfn skipsins og á hann að
sigla skipinu heim.
Sett var ný skrúfa á skipið og
nýr gír á milli skrúfu og aðalvél-
ar. Þetta kemur til með að auka
togkraft skipsins til muna auk
þess sem eldsneytiseyðsla ntinnk-
ar til ntuna. Auk þessa var aðal-
vélin tekin upp, „autotrolli“ og
grandaravindum komið fyrir og
trolldekk endurbætt. Rúmlega
viku seinkun varð á verkinu þar
sem tækin bárust ekki öll til
stöðvarinnar á réttum tíma.
Heildarkostnaður við verkið
verður rúmlega 70 milljónir.
Að sögn Valdimars fer prufu-
keyrsla fram nú á fimmtudaginn
og ef allt gengur að óskum verður
þá siglt af stað heim. Siglingin
tekur um vikutíma og verður
komið við í Hull þar sent
fiskikassar hafa verið í geymslu
síðan landað var á leiðinni til
Hollands. Björgúlfur verður því
að öllum líkindum kominn til
veiða fyrri hluta næsta mánaðar.
ET
stofnandi Fiskntiðlunar Norður-
lands í samtali við Dag.
Hilmar sagði að sér virtist til-
gangurinn nteð þessum ummæl-
um vera að vekja tortryggni
kaupenda og seljenda í sinn garð
því ólíklegt væri að þeir þekktu
lögin ekki betur.
Á föstudaginn staðfesti fulltrúi
sjávarútvegsráðuneytisins þá
túlkun Hilmars um að fiskmiðl-
anir féllu ekki undir áðurnefnd
lög.
„Ég hef ekkert á móti sam-
keppni um að selja fiskinn. Hins
vegar cr það ástæðulaust að telja
fólki trú um að einhver laga-
ákvæði gefi þessari nefnd sjálf-
dæmi í þessu máli,“ sagöi Hilmar
að lokum. ET
Hljóöbylgjan hf.:
Útsendingar
hefjast í apríl
- rúml. 40 umsóknir um störf hjá stöðinni
Fisksölumál á Norðurlandi:
„Tilgangurinn er að
vekja torbyggni“
- segir Hilmar Daníelsson um túlkun
Gunnars Arasonar á lögum
um uppboðsmarkaði fyrir fisk