Dagur - 03.04.1987, Síða 3
Boðið var upp á glæsilegar veitingar.
Fram kom, að framtíð fyrirtækis-
ins virðist björt, bæði vegna
þeirra traustu aðila sem að því
standa, og vegna þess markaðar
sem þegar er fyrir hendi fyrir
framleiðsluvöruna, fóður til
fiskeldis. Eignaraðilar ístess eru
T. Skretting í Noregi, Kaup-
félag Eyfirðinga og Síldarverk-
smiðjan í Krossanesi.
Boðið var upp á veglegar veit-
ingar í verksmiðjuhúsinu, m.a.
snittur með reyktum laxi frá Ós-
laxi á Ólafsfirði, en laxinn var
eingöngu alinn á fóðri frá
Skretting. Menn ræddu um hvílík
lyftistöng það væri fyrir bæjarfé-
lagið að fá þetta fyrirtæki hingað
því bæði skapar það atvinnu og
velta þess er mjög mikil. Gestir
skoðuðu húsakynnin og vélarnar
og er óhætt að segja að þarna er
öll aðstaða hin glæsilegasta,
nýtískulegar háþróaðar vélar
o.s.frv.
Hámark athafnarinnar var
þegar Gígja Birgisdóttir, feg'-
urðardrottning, ræsti vélasam-
stæðu verksmiðjunnar við lófatak
gestanna. Að því loknu var farið
á Hótel KEA þar sem ístess hf.
bauð til matarveislu. Þar færði
Torgeir Skretting, framkvæmda-
stjóri norska fyrirtækisins T.
Skretting, Finnboga Jónssyni,
fyrrverandi framkvæmdastjóra
Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar,
minjagrip að gjöf. Einnig færði
hann lstess hf. málverk að gjöf.
Valur Arnþórsson færði ístess hf.
einnig málverk að gjöf og árnaði
fyrirtækinu heilla.
Sundlaug Húsavíkur:
Kvöldtímar
yfir sumar-
mánuðina
Á fundi Bæjarstjórnar Húsa-
víkur í síðustu viku var sam-
þykkt að lengja venjulegan
opnunartíma Sundlaugar
Húsavíkur yfir sumarmánuð-
ina.
A tímabilinu frá miðjum júní
og fram eftir ágústmánuði verður
sundlaugin, auk venjulegs opn-
unartíma, höfð opin frá kl. 21.00
til 23.30 á kvöldin. Greiða þarf
tvöfalt venjulegt gjald fyrir
aðgang að lauginni á þessum
kvöldtímum.
Um landsmótshelgina verður
sundlaugin opin frá kl. 7 á
morgnana og allt til kl. 2 eftir
miðnætti. IM
Tillögur um
gæsluvöll og
leiguíbúðir
Tillögur um starfrækslu gæslu-
vallar og byggingu eða kaup á
leiguíbúðum voru lagðar fram
á fundi Bæjarstjórnar Húsa-
víkur í síðustu viku.
Valgerður Gunnarsdóttir og
Örn Jóhannsson lögðu fram til-
lögu um að gæsluvöllur yrði starf-
ræktur í bænum í þrjá mánuði í
sumar og að stefnt yrði að opnun
gæsluvallar allt árið á næsta ári.
Með tillögunni fylgdi áskorun frá
nokkrum foreldrum sem óskuðu
eftir að gæsluvöllur yrði opnaður
í bænum.
Örn Jóhannsson lagði fram til-
lögu þess efnis að undirbúnings-
vinna að byggingu eða kaupum á
leiguíbúðum yrði hafin. IM
Fjársöfnun vegna Sels 2:
Lokaátak á laugardag
Á laugardaginn fer fram alls-
herjar fjársöfnun til styrktar
Seli 2, hjúkrunardeild aldr-
aðra. Söfnunin fer fram á
Akureyri og í þeim sveitar-
félögum sem hjúkrunardeildin
Sel þjónar. Það eru félagar í
JC Akureyri sem skipuleggja
söfnunina og sjá um fram-
kvæmdina fyrir hönd svo kall-
aðrar „Áhugamannanefndar
um byggingu Sels 2“ en mörg
kvennasamtök og einstakling-
ar á söfnunarsvæðinu munu
leggja þessu átaki lið.
Að sögn Möggu Öldu Magnús-
dóttur formanns Byggðarlags-
nefndar JC Akureyrar er þetta
lokaátakið í söfnun þeirri sem
staðið hefur yfir um nokkurt
skeið.
„Við setjum ekki ákveðna
krónutölu sem markmið, heldur
stefnum að því að safna sem
mestu svo hægt verði að ljúka
byggingarframkvæmdum, kaupa
þann búnað sem nauðsynlegur er
og taka hjúkrunardeildina í notk-
un þann 1. júní n.k. Ef allir leggj-
ast á eitt mun það takast," sagði
Magga Alda.
Hverfastöðvar verða settar
upp í skólunum á Akureyri
söfnunardaginn en alls munu um
90 manns sinna söfnunarstörfun-
um á Akureyri. Gengið verður í
hús frá klukkan 13-17 og vonandi
tekur fólk vel á móti söfnunar-
fólki og leggur þessu góða
málefni lið. Hér gildir hið forn-
kveðna að margar hendur vinna
létt verk og margt smátt gerir eitt
stórt. BB.
Tónlistarviðburóur
Páll Jóhannesson tenórsöngvari heldur tón-
leika.
Undirleik annast Dorota Manczyk.
Á Akureyri í Samkomuhúsinu laugardaginn 4.
apríl kl. 16.00.
Á Húsavík í Húsavíkurkirkju sunnud. 5. apríl
kl. 14.00.
Forsala aðgöngumiða í bókabúðinni Huld og á
Húsavík í bókabúð Þórarins Stefánssonar og
við innganginn.
Missið ekki af þessu einstæða tækifæri.
3. apríl 1987- DAGUR -3
Dalvík
Höfum opnað glæsilegan
veitinga- og veislusal
í Sæluhúsinu
Opið laugardags- og sunnudagskvöld 4. og 5. apríl.
Kabarettborð. Verð kr. 960,- Opnað kl. 19.00.
Salurinn verður leigður fyrir samkvæmi,
árshátíðir, veislur og fundi.
Sjáum um flutning á fólki ef óskað er.
Upplýsingar og bókanir í síma 61405 og 61488.
Verið velkomin.
Sæluhúsið
Hafnarbraut 14, Dalvík, sími 61488.
Tamningastöðin
Garðhúsum
Eigir þú topp hesta þá bjóðum við þértopp þjálfun og
úrvals iumhirðu á tamningastöðinni Garðhúsum,
Skagafirði.
Tökum í tamningu og þjálfun hvers kyns hross, ung og
ótamin, gæðinga, keppnishross og kynbótahross.
Hrossaeigendum á Norðurlandi er sérstaklega bent á
að við tökum að okkur hross fyrir Fjórðungsmót í
sumar.
Leggjum mikla áherslu á skipulag og þjálfun,
best fáanlega fóður og úrvals aðstöðu.
Aðalsteinn Aðalsteinsson, sími 95-6138.
TÓNLEIKAR
fyrir alla fjölskylduna
í Akureyrarkirkju kl. 17 sunnud. 5. apríl.
Kammerhljómsveit Akureyrar flytur fiölukonsert
eftir Mozart, Valse triste eftir Sibelius og Pétur og
úlfinn eftir Profofieff.
Einleikari á fiölu er Guöný Guðmundsdóttir
og stjórnandi Roar Kvam.
Aðgöngumiðasaia viö innganginn.
Missið ekki af góðri
tónlistarskemmtun.
með sítengdu aldrifi
til afgreiðslu strax
Hagsætt verð
Komið og skoðið og ræðið við sölumann
okkar
Bifreiðaverkstæðið
Þórshamar hf.
v/Tryggvabraut,
Akureyri, sími 22700.