Dagur - 03.04.1987, Page 4
4- DAGUR - 3 apríi 1987
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58,
AKUREYRI, SlMI 24222
ÁSKRIFT KR. 530 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ 50 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGILL BRAGASON,
EGGERT TRYGGVASON, GESTUR KRISTINSSON
(Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
(Húsavík vs. 41585 hs. 41529),
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON
(Sauðárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASI'MI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
UeiðarL
Hættumerkin blasa við
Skoðanakannanir sem birtar
hafa verið síðustu dagana
benda til þess að Borgara-
flokkur Alberts Guðmunds-
sonar verði næststærsti
flokkur landsins og að þar
með verði íhaldsöflin leidd til
þvílíks öndvegis í íslenskum
stjórnmálum sem aldrei fyrr.
Þetta væri hörmuleg niður-
staða úr kosningum. Velferð-
arkerfið væri í stórhættu.
Óheft samkeppni og einka-
rekstur yrðu ofan á og þá
mættu íslendingar búast við
því að þurfa að sæta því að
jafnrétti til náms yrði afnum-
ið, þeir sem væru svo
óheppnir að verða veikir yrðu
að greiða stórfé fyrir bestu
læknisþjónustu, jafn réttur til
hvers kyns lífsgæða óháð
búsetu yrði að engu gerður
og svona mætti áfram telja.
Þó að ekki sé ástæða til að
taka allt of mikið mark á
skoðanakönnunum sem
gerðar voru meðan Albert
var að kljúfa sig frá Sjálf-
stæðisflokknum og fjölmiðlar
voru uppfullir af þessum við-
burðum, þá eru þær engu að
síður hættumerki. Stjórnmál-
in virðast vera í mikilli deiglu
um þessar mundir og má
vafalítið rekja það til fjöl-
miðlabyltingarinnar sem orð-
in er. Hvað úr þessari deiglu
kemur er hins vegar óljóst.
Hasarfréttamennska ein-
kennir umfjöllun um stjórn-
mál í fjölmiðlum þessa dag-
ana. Það hefur t.d. ekki kom-
ist til skila, hversu stórkost-
legum árangri ríkisstjórnin
hefur náð á ýmsum sviðum,
einkum þeim sem heyra und-
ir ráðherra Framsóknar-
flokksins. Steingrímur Her-
mannsson, forsætisráðherra,
er langvinsælasti stjórnmála-
maður landsins, en það er
eins og fæstir viti að Stein-
grímur er í Framsóknar-
flokknum, meira að segja for-
maður hans. Það eru undar-
legir hlutir að gerast í
íslenskum stjórnmálum um
þessar mundir og hættu-
merkin blasa hvarvetna við.
Jafnvægi í bv
Á undanförnum árum og ára-
tugum hefur Framsóknar-
flokkurinn beitt sér ötullega
fyrir jafnvægi í byggð
landsins. Flokkurinn hefur af
alefli stutt bætta menntun og
heilbrigðisþjónustu á lands-
byggðinni. Hann fékk sam-
þykkt sérstök lög um sjálf-
virkan síma á alla sveitabæi
og hafa þau verið fram-
kvæmd. Hann lagði fram
langtímaáætlun í vegamál-
um, sem eftir hefur verið
farið. Byggðasjóði hefur verið
breytt í sjálfstæða, öfluga
stofnun sem stuðli að jafn-
vægi í byggð landsins og efl-
ingu atvinnulífs.
Framsóknarflokkurinn
mun leggja áherslu á að
sporna gegn byggðaröskun,
m.a. með valddreifingu á
grundvelli nýs stjórnsýslu-
stigs, sem tryggi aukin áhrif
heimamanna á eigin mál og
flutning þjónustustarfa heim
í hérað. Ennfremur með upp-
byggingu stjórnsýslustöðva
á landsbyggðinni og auknu
jafnræði í verslun með betra
skipulagi og bættum sam-
göngum. Byggðastofnun
verði efld þannig, að hún geti
tekist á við hin fjölmörgu við-
fangsefni til jafnvægis í
byggð landsins. Framsókn-
arflokkurinn mun einnig
leggja áherslu á lækkun orku-
verðs á þeim stöðum þar
sem það er óbærilega hátt.
HS
Sundlaug Akureyrar:
„Nauðsynlegt að
bæta aðstöðu
fatlaðra
- stækka húsið og byggja barnasundlaug"
segir Haukur Berg sundlaugarstjóri
„Það hefur verið ákveðið að
fresta þessu um tíma því á döf-
inni er sýning á tækjum fyrir
fatlaða í Reykjavík. Núna er
verið að smíða handrið við úti-
tröppurnar að búningsklefum
hjá járnsmiðjunni Varma,“
sagði Haukur Berg, sundlaugar-
stjóri, þegar hann var spurður
að því hvað liði umbótum vegna
aðgangs fatlaðra að Sundlaug
Akureyrar.
Til að auðvelda fötluðum
aðgang að sundlauginni var
ákveðið að setja upp fyrrgreint
handrið og handföng til stuðnings
við' sturturnar. Þá hefur einnig
verið ákveðið að fá sérstaka stóla
fyrir fatlaða til að nota í böðun-
um. Ferlinefnd hefur undanfarið
kannað hvað sé helst til bóta
varðandi aðgang fatlaðra að laug-
inni og má segja að brýnt sé að
bæta aðstöðuna þar því húsið er
komið nokkuð til ára sinna og var
ekki hannað með aðgang fatlaðra
í huga.
Að sögn Hauks Berg er erfitt
að breyta aðstöðunni í sundlaug-
inni innanhús nema með mjög
kostnaðarsömum framkvæmd-
um. Margar hugmyndir hafa ver-
ið athugaðar, t.d. pallar á renni-
brautum sem gengju meðfram
tröppum innan- og utanhúss,
einnig svokallaðir beltastólar, en
í þeim geta fatlaðir farið upp og
niður tröppur.
„Það eru til áform um að
stækka sundlaugarhúsið um
helming og þá yrði inngangurinn
um suðvesturhorn nýbyggingar-
innar. Ég tel mikla þörf á að fara
út í framkvæmdir vegna þess að
eldra fólk treystir sé varla til að
fara í laugina oft á tíðum. Laugin
er undirlögð undir kennslu frá kl.
8.15 til kl. 17.00 og eftir þann
tíma fjölmenna börn og ungling-
ar í hana. Það er því mjög brýnt
að byggja barnalaug hérna sem
fyrst til að eldra fólk fái pláss til
að synda. Ég gerði könnun fyrir
nokkru á aðsókn að sundlaug-
inni og þá kom í ljós að 80%
laugargesta áttu heima sunnan
við Glerá. Á þessu sést best
hvaðan úr bænum fólk kemur
hingað aðallega," sagði Haukur
að lokum. EHB
Nýlega hélt Brunamálastofnun ríkisins reykköfunarnámskeið á Sauðárkróki fyrir slökkviliðsmenn í Brunavörnum
Skagafjarðar. Kennarar voru Guðmundur Bergsson frá Brunamálastofnun, Bergsveinn Alfonsson frá Slökkviliði
Reykjavíkur og Valur Ingólfsson frá Brunavörnum Skagafjarðar, sem kenndi hjálp í viðlögum. Myndin sýnir þátt-
takendur og leiðbeinendur að námskeiðinu loknu. Mynd: -þá
Sandgerðisbót:
Olíudæla fyrir trillusjómenn
„Það hefur ekki verið gert
endanlegt samkomulag um
málið. Hins vegar er þetta
samþykkt af hafnarstjórn og er
málið til hagsbóta fyrir alla
aðila,“ sagði Guðmundur Sig-
urbjörnsson hafnarstjóri um
olíudælu sem á að setja upp í
Sandgerðisbót.
Olís hefur lagt fram ósk um að
mega setja upp olíudælu í Sand-
gerðisbótinni. Var hafnarstjóra
falið að ákveða staðsetningu dæl-
unnar í samráði við forsvarsmenn
Olís og smábátaeigendur.
Samkvæmt framtíðarskipulagi
á ekki að byggja á næstunni það
svæði sem olíudælunni er ætlaður
staður. „Því má búast við að sett
verði upp bráðabirgðadæla, þar
til skipulagið kemst í
framkvæmd. Þessi dæla kemur til
með að létta verulega undir með
mönnum, sem hingað til hafa
þurft að bera alla olíu í brúsum
til báta sinna,“ sagði Guðmund-
ur. gej-