Dagur - 03.04.1987, Side 11

Dagur - 03.04.1987, Side 11
3: apm'l Ii1>9a7a-ÐAQÐRQ-1 ti f Mývatn: Dorgveiði- keppni á morgun Dorgveiðikeppni verður hald- in á Mývatni á morgun, þátt- takendur þurfa að skrá sig á Hótel Reynihlíð fyrir kl. 11 um morguninn en keppnin stendur frá kl. 12 til 17. Sjö verðlaun verða veitt og bæði börn og fullorðnir geta tekið þátt í keppninni og unnið til verð- launa. Landskeppni í dorgi milli Norðmanna og íslendinga verður einnig haldin á morgun en 26 Norðmenn hafa stundað dorg- veiðar á Mývatni síðan á sunnu- daginn. Þeir sem unnið hafa við undirbúning dorgveiðikeppn- innar sögðust vona að sem flestir kæmu til að taka þátt í keppninni eða til að fylgjast með henni. Meðal keppenda verða þing- mennirnir Guðmundur Bjarna- son, Björn Dagbjartsson og Steingrímur Sigfússon. IM Sel 2: Lokaátak fjársöfnunar A morgun, laugardag, ganga félagar úr JC Akureyri og ýmsum kvenfélögum á Eyjafjarðarsvæð- inu í hús og safna fé til styrktar byggingu Sels 2, hjúkrunar- heimilis aldraðara. Þetta er loka- átakið í þessari fjársöfnun og stefnt er að því að safn nægu fé til þess að hægt verði að ljúka frá- gangi við bygginguna og kaupa þann búnað sem nauðsynlegur er. Markmiðið er síðan að taka Sel 2 í notkun þann 1. júní n.k. Söfnunarfólk gengur í hús miili klukkan 13 og 17 og væntanlega verður tekið vel á móti því. Söng- skemmtun í Hlíðarbæ Á morgun laugardaginn 4. apríl klukkan 14.00 heldur Söngsveit Hlíðarbæjar sína árlegu vortón- leika í Hlíðarbæ. Stjórnandi og undirleikari er Ragnar Jónsson, einsöngvari með kórnum er Þór Sigurðsson sem einnig syngur nokkur rússnesk þjóðlög. Á efnis- skránni eru íslensk og erlend lög þar á meðal lög og textar eftir þrjá kórfélaga, þá Davíð Guð- mundsson, Ingólf Jónsson og séra Pétur Þórarinsson. Þá mun Ragnar Jónsson leika á píanó Finale úr friðarkantötu sem hann samdi í tilefni af leiðtogafund- inum í Reykjavík í október síðast- liðnum. bestu lax- og siiungsveiðiám í heimi, myndu einnig renna út í vatnið. Þar af leiðandi kæmust laxarnir ekki aftur út í sjó. Síld sem rnikið vnr af í hinum fyrrverandi fjörðum ntun deyja út. Sömuleiðis verður enga nær- ingu þar að finna fyrir hnísur og seli. Þetta neyðarástand skaut amerískum náttúruverndar- mönnum skelk í bringu. Þeir gerðu stórar áætlanir unt að flytja dýrin burt. En þar sem áhættan fyrir menn og dýr var svo mikil við slíkar aðgerðir var ákveðið að eftiriáta móður nátt- úru vandamálið. Með öðrum orðum: „Þessir fyrrverandi sjávarbúar deyja smám santan úr hungri.“ Hætta á staðbundinni ísöld er hins vegar ekki mikil, þegar jöklar skríða þannig fram, vegna þess að jökullinn þynnist þó að hann nái yfir meira land- flæmi. (Stern 41/86 - Þýð. áí) af erlendum vettvangi. Hubbard- Fjörðurinn hefur breyst í stöðuvatn. Vegna aðstreymis frá fjalllendinu við ströndina hefur vatnsyfirborðið hækkað um 20 metra. Nokkrum dögum seinna hafði Hubbardjökullinn teygt úr sér um þó nokkra metra, ein- um mánuði seinna náði hann 300 metra út í sjó. Daglega hrundu mörg þúsund tonn af ís í sjóinn. I lok júlí var jökullinn búinn að loka fyrir afrennsli fjarðanna tveggja, Russels- fjarðar og Nunatakfjarðar, í sjóinn. Hann skreið nú fram með 15 m hraða á dag. íbúum þorpanna Yakutat og Situk fannst sér vera ógnað og heimtuðu að stjórnvöld lýstu yfir neyðarástandi. Vísinda- menn sem komnir voru til að rannsaka fyrirbærið gátu samt sannfært fólkið um að það væri ekki í neinni yfirvofandi hættu. Til lengri tíma litið er þó sá möguleiki fyrir hendi að fólkið þurfi að hrökklast heiman að, vegna þess að þessi breyting á Hubbardjökli hefur í för með sér, að því er bandarískir jarð- fræðingar telja, mestu breyting- ar vorra daga á náttúru Norður- Ameríku. Firðirnir tveir eru orðnir að stöðuvatni og í Fischerfirði hafa mikilvæg fiskimið eyðilagst. Úr strandfjöllunum flæðir svo mik- ið regnvatn og jökulbráð niður í stöðuvatnið að það verður smátt og smátt að ferskvatni. Yfirborð þess er nú 20 metrum hærra en fjarðarins sem það áður var tengt við. Með hverj- um degi hækkar það um 30 cm. Eftir leysingar á þessu ári er mögulegt að vatnið flæði yfir bakka sína og færi Yakutatlág- lendið í kaf. Afleiðingar þess yrðu að flugvöllur þessa litla þorps, sem er eini tengiliður þess við umheiminn, myndi hverfa undir vatn. Litlu árnar á þessum slóðum, sem eru með Sá sem varð fyrstur til að segja frá þessum náttúruviðburði var sjómaður. Það var í lok mars. íbúar á suðausturströnd Alaska urðu skelfingu lostnir. Úti við fjarðarmynnið um 15 km frá bát sjómannsins virtist mikið óveð- ur steypast yfir. Geysilegar þrumur drundu og það berg- málaði frá fjöllunum út á hafið. Þrátt fyrir það var himinninn yfir ströndinni heiður og sást ekki skýhnoðri. Gnýrinn kom frá Hubbard- jökli sem skríður niður úr St. Elias fjalllendinu 130 km vega- lengd út í Yakutatfjörð og Al- askaflóa. Úr ísröndinni, sem er 90 m há og 5 km breið, höfðu brotnað stykki á stærð við hús og hrunið niður. Ismassinn þrengdi sér hægt áfram. Þessi 130 km langi skriðjökull á suðurströnd Alaska skríður út í sjó með 15 m hraða á dag. DOMUR MINAR OG „VELKOMIN TIL AKUREYRAR " SJ LEIKHÚSPAKKAFERÐIR /f SÖNGLEIKURINN: KABARE PERLAN í PAKKAN FLUG - FIMM GISTISTAÐIR - FIMM VEITINGASTAÐIR ÞÚ VELUR SJÁLFUR í PAKKANN. Dæmi: Leikhúsmiöi + tvær nætur á hóteli meö baöi. Kr. 2690.- fyrir Leikhúsmiði + leikhúskvöldverður kr. 1600.-fyrir manninn. ^SPARNAÐARPAKKK miðvikudagur - fimmtudagur. MIÐASALA SlMI 96-24073 iskf©ag akurcyrar hf. Umboðsmenn.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.