Dagur - 03.04.1987, Page 14

Dagur - 03.04.1987, Page 14
14:-t- ÐAQURít 3/apH11987 8 Lífeyrissjóður verksmiðja S.Í.S. Akureyri. Fundur verður með sjóðfélögum í Félagsborg sunnudag- inn 5. apríl næstkomandi kl. 13.30 e.h. Aðalmál fundarins verður. Tekin ákvörðun um sameiningu Lífeyrissjóðs verksmiðja S.Í.S. og samvinnulífeyrissjóðsins. Sjóðfélagar og þar með taldir lífeyrisþegar eru eindregið hvattir til að fjölmenna. Stjórnin. Vöðvagigt er meðal algengari gigtsjúkdóma Félagsstarf aldraðra Síðdegisskemmtun verður haldin í Sjallanum sunnudaginn 5. apríl kl. 15.00. Félagsmálastofn- un Akureyrar hefur haldið síðdegisskemmtanir í samvinnu við félög í bænum fyrir aldraða allt frá árinu 1974. Vegna breytinga á stjórnun öldrunarmála hjá Akureyrarbæ verður þetta væntanlega síðasta skemmtunin sem Félagsmálastofnun stendur að og því þætti okkur vænt um að sjá fjölmenni. Þeir sem óska eftir akstri hringi í síma 22770 kl. 13- 14. Aðgangseyrir kr. 100.- Félagsmálastofnun Akureyrar. Fyrir hverja er þetta gigtar- félag? Hvenær er maður nógu illa haldinn afgigt til að teljast hæfur í félagið? Er þetta ekki bara fyrir þá sem eru farlama af gigt? Þessar og aðrar álíka spurningar heyrast oft þegar málefni gigtar- félagsins ber á góma. Því er til að svara að gigtarfélagið er öllum opið sem hafa áhuga á að vinna að málefnum gigtsjúkra, hvort sem viðkomandi hafa gigt sjálfir eða ekki. Hætt er við að lítið yrði úr starfi gigtarfélaga ef engir væru í þeim nema þeir sem eru orðnir meira og minna fatlaðir af völdum sjúkdómsins. Með öðrum orðum, eina inntökuskilyrðið er áhugi á málefninu - og þá er bara að drífa sig á næsta fund, t.d. á Súlnabergi á fimmtudögum kl. 17 eða í gönguferð í Kjarnaskógi á sunnudagsmorgnum kl. 11. Vöðvagigt er meðal algengari gigtsjúkdóma. Erfitt er að segja til um eðli hennar því orsakirnar eru margbreytilegar. Algengt er að fólk kvarti um verki á ákveðn- um stöðum s.s. í hnakka, herðum, upphandleggjum, mjó- baki, í kringum liðamót og víðar. Sársaukinn eykst oft við hreyfingu eða álag. Þreyta og úthaldsleysi fylgja líka gjarnan. Svefnleysi vegna verkja og ótti Frá Kjörbúð KEA Byggðavegi 98 Verslið í fallegri búð Vönjkynnlngfi föstudaginn 3. aprfl l'rá kl. 3-6. Kjötiðnaðarstöð KEA kynnír Ný firamleidsla ★ ★ Góö þjónusta ★ Kjörbúð KEA Byggðavegi 98 um alvarlegan sjúkdóm geta svo valdið aukinni spennu sem aftur veldur auknu magnleysi - við- komandi er kominn í slæman vítahring. Nauðsynlegt er að ítar- leg skoðun fari fram og sjúkl-í ingurinn gefi lækni sínum góðar upplýsingar til að greining verði rétt því ýmsir aðrir sjúkdómar hafa einkenni sem líkjast vöðva- gigt- Algeng orsök vöðvagigtar er of mikið eða óheppilegt álag vegna rangra vinnustellinga og hreyf- inga. Borð, stólar og verkfæri geta verið illa hönnuð eða rangt staðsett og því verið skaðvaldar. Algengt er að fólk beiti meiri kröftum við vinnu en nauðsyn krefur, haldi t.d. krampakenndu taki um skriffæri og margan bak- verkinn væri hægt að forðast með réttum stellingum og þekkingu á því hvernig dreifa skal álagi á fætur í stað þess að ofreyna bakið. Meðferð vöðvagigtar verður ávallt einstaklingsbundin, en mikilvægast er að rjúfa vítahring verkja og spennu. Draga má úr verkjum í aumum vöðvapunkt- um með lyfjagjöf í sprautuformi og algengt er að gefin séu vöðva- slakandi lyf sem ætti þá fyrst og fremst að taka að kvöldi vegna slævandi áhrifa þeirra. Hitameð- ferð getur haft bæði kvalastill- andi og róandi áhrif og ísbakstrar geta dregið úr staðbundnum verk. Æfingar og það að læra réttar vinnustellingar skiptir máli í meðferð vöðvagigtar. Þreyta stafar ekki eingöngu af líkamlegri vinnu. Kyrrseta og langvarandi andleg einbéiting geta auðveldlegá valdið andlegri þreytu og stressi og virðist oft orsaka vöðvagigt. Vöðvagigt er þannig afleiðing ýmissa innri og ytri aðstæðna og orsakavaldarnir eru ekki allir þekktir enn. Þar, eins og á öðrum sviðum gigtlækninga er þörf á meiri rannsóknum til að auð- velda meðferð. Stofnun gigtar- félaga víða um lönd er einn liður í að auka þessar rannsóknir í þeirri von að sá dagur komi að hægt verði að lækna alla gigt. Knattspyrnu- dómaranámskeið verður haldið á vegum K.R.A. í apríl. Knattspyrnufélög eru minnt á þá skyldu sína að senda minnst 4 þátttakendur hvert. Þátttökutilkynningar sendist fyrir föstu- daginn 6. apríl til Páls Magnússonar, sími 22320, eða Sveins Björnssonar, sími 26888, sem munu veita nánari upplýsing- ar. Endanleg tímasetning verður auglýst síðar. K.R.A. Stofnfundur Útvegsbanka íslands hf. Stofnfundur Útvegsbanka íslands hf. verður haldinn þriðjudaginn 7. apríl 1987 að Hótel Sögu, Súlnasal, og hefst fundurinn kl. 15.00. Dagskrá 1. Setningarávarp: Matthías Bjarnason, viðskipta- ráðherra. Tillaga að samþykktum fyrir hlutafélagsbankann lögð fram til umræðu og afgreiðslu. Tillaga um stofnun hlutafélagsbankans lögð fram til umræðu og afgreiðslu. Kosning bankaráðs. Kosning skoðunarmanna. Önnur mál. Fundargögn verða afhent áskrifendum hlutafjár eða umboðsmönnum þeirra við innganginn. Viðskiptaráðuneytið, 2. apríl 1987. 2. 3. 4. 5. 6. Kosningaskrífstofa |||j B-listans, Dalrík Jómnubúð Opin alla virka daga kl. 20.30-22.30. Laugardag og sunnudag kl. 14-16. Við opnum sunnudaginn 5. apríl kl. 14.00 og bjóðum öllum að koma og fá sér kaffi og með því, og spjalla við frambjóðendur B-listans. Komið og takið þátt í spennandi kosningabaráttu. Framsóknarfélag Dalvíkur.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.