Dagur - 10.04.1987, Page 5
Kjörbúð KEA
Sunnuhlíð
Kosningaútvarp
J-listans
Hvað erum við að hugsa og gera í
Samtökum um jafnrétti og félagshyggju?
Þú færð að heyra ýmislegt um það í
Kosningaútvarpinu á Rás 2 kl. 15.00 á
laugardag.
J-listinn.
VHíH\|iiq£ or - RUOAG —
10. apríl 1987 - DAGUR - 5
Ættum að geta
valið úr kennurum
Sturla Þórðarson er á línunni og
tilefnið er að nýlega fól hrepps-
nefnd Blönduóss skólanefndinni
á staðnum að athuga möguleika
á að hefja kennslu í 10. bekk við
grunnskólann, en Sturla er ein-
mitt formaður þessarar skóla-
nefndar.
- Mega Blöndósingar eiga
von á að krakkarnir geti farið að
vera árinu lengur í skóla hér
heima, svona fljótlega?
- Ég held að það sé ekki hægt
að fullyrða nokkurn skapaðan
hlut um það. Það má segja að
þetta sé búið að vera draumur í
mörg ár að minnsta kosti sumra,
að fá hérna framhaldsnám. Á
sínum tíma var skipuð nefnd til
þess að gera tillögur um fram-
haldsnám, hér í Norðurlandi
vestra. Hugmyndir þeirrar
nefndar voru Fjölbrautaskólinn
á Sauðárkróki og samvinna við
stærstu staðina. Þá var t.d. verið
að tala um framhaldsdeild hérna
sem yrði eitt eða jafnvel tvö ár.
Það byggðist að verulegu leyti á
því að fá níundu bekkina frá
Húnavöllum og Skagaströnd
hingað ti! þess hreinlega að
mynda nógu stóran kjarna svo
það væri hægt að ráða kennara
o.s.frv.
- í sambandi við þennan
tíunda bekk, hefur þá verið tal-
að um eitthvert val eða yrði að-
eins um að ræða eina bekkjar-
deild?
- í fyrsta bekk í framhalds-
skóla er um lítið val að ræða
yfirleitt, það eru svona viss
kjarnafög, tungumálin enska,
danska, þýska, íslenska og raun-
greinar. Þannig að fyrsti bekkur
í framhaldsskólunum virðist
vera ósköp áþekkur í öllum
skólum, þ.e. hvort sem um er að
ræða fjölbrautaskóla eða
menntaskóla. Valið byrjar ekki
að ráði fyrr en í efri bekkjum.
- Telurðu tíunda bekkinn
vera raunhæfan möguleika hér?
- Ég persónulega, tel það
ekki vera. Það vill nú svo til að
þó að ég sé formaður skóla-
nefndar þá eru margir sem eru
bjartsýnni um þessa hluti og
liafa meiri áhuga á þeim heldur
en ég. Ég nefnilega vil ekki fá
þessa framhaldsdeild fyrr en ég
sé, í fyrsta lagi, góðan mögu-
leika á því að hún geti verið, því
ntér finnst að við höfum bara
ekki leyfi til að fara að vera með
einhverja tilraunastarfsemi.
- Hvað er það sem brennur
mest á ykkur skólanefndar-
mönnum þessa dagana?
- Skólinn er náttúrlega aldrei
nógu vel búinn. Það er í fyrsta
lagi að húsnæðið er of lítið og
við erum að vona að við fáum,
svona í bili, inni í íþróttahúsinu
þegar það verður risið, en það
er samt ekki nema bráðabirgða-
lausn, þær þrjár stofur sem við
gerum okkur vonir um að fá
þar.
- Pannig að efst á baugi hjá
ykkur er þá aukið húsnæði?
- Já, og eilíf áframhaldandi
uppbygging með kennslutæki.
Svo náttúrlega vonar maður að
nýir samningar við kennara
verði til þess að við fáum
útlærða kennara. Manni er sagt
jú, að það sé það mikill fjöidi til
af kennurunt að við ættum í
rauninni að geta valið um.
- Heldur þú að það geti verið
að krakkar sem koma úrgrunn-
skólanum hér eða á öðrum stöð-
um þar sem ástand er svipað,
komi verr undirbúnir til
framhaldsnáms en t.d. krakkar
sem koma frá grunnskólum á
Reykjavíkursvæðinu ?
- Eftir þeirn upplýsingum
sem ég hef t.d. frá síðasta ári þá
veit ég ekki betur en að ein-
kunnir frá skólanum hérna hafi
verið yfir landsmeðaltali, í sam-
rærndu prófunum. Þannig að
ástandið er nú ekki þannig að
krakkar héðan komi verr undir-
búnir til framhaldsnáms, en þar
sent það er þannig er náttúrlega
fyrst og fremst horft á kennar-
ana. Þar sem hlutfallið af
menntuðum kennurum við skól-
ann fer kannski niður fyrir 50
prósent þá þyrfti engan að
undra þó árangurinn væri lakari.
G.Kr.
Laugardaginn 11. apríl
Dansleikur
Rokkbandið
leikur fyrir dansi
til kl. 03.00.
Verið velkomin.
HÓTEL
KEA ^ AKUREYRI
í dag föstudag
frá kl. 3-6 e.h.
ICynntir verða
Gskréttir
frá Fiskgæðuni
Kynningarverð
Það Kemst
til skila í Degi
Áskrift og auglýsingar S (96) 24222^^
Stofnfundur
að félagi kanínubænda við Eyjafjörð, verður
haldinn í Hlíðarbæ iaugardaginn 11. apríl kl.
2 e.h.
Mætum vel. Nefndin.
Opiðfrá k. 9-12 á laugardögum.