Dagur - 10.04.1987, Blaðsíða 24
Gerið góða kvöldstund enn betri.
Leikhústilboð Smiðjunnar.
Rjómalöguð humar- og krabbasúpa bragðbætt með koníaki.
Glóðarsteiktar lambalundir bornar fram
með rjómasoðnum kartöflum.
Kaffi og konfekt.
Flytja fisk fra
Rifi til Hríseyjar
„Bátarnir fóru suður eftir helg-
ina því það var orðið svo lélegt
hérna, þeir fengu ekki nema
um hálft tonn hvor á laugar-
daginn,“ sagði Jóhann Sigur-
björnsson, framkvæmdastjóri
Rifs hf. í Hrísey. Hugmyndin
er að keyra hluta af aflanum
frá Rifi á Snæfellsnesi, þar sem
honum er landað, til Hríseyjar
þar sem hann verður verkaður.
Þegar Jóhann var spurður að
því hvort það borgaði sig að
flytja aflann svo langa leið með
bíl sagði hann: „Við værum ekki
að þessu ef við héldum að þetta
stæði ekki undir sér. Við erum
nteð fólk í vinnu sem við þurfum
að hafa verkefni fyrir. Óskar
Jónsson á Dalvík flytur aflann og
hann getur tekið um 17 tonn í
ferðinni því hann er með vagn
aftan í flutningabílnum. Þetta er
ekki æskilegasti kosturinn, það er
betra að fá fiskinn hérna framan-
við, en við ætlum að reyna
þetta.“
Að sögn Jóhanns er ágætis afli
á Breiðafjarðarmiðum, þar sem
bátarnir eru að veiðum. Á mið-
vikudaginn fékk annar báturinn
átján tonn en hinn tuttugu og
fimm tonn. EHB
Húsavík:
í gær sigldi Mánafoss, skip Eimskipafélags íslands, upp að bryggju hjá Slippstöðinni hf. á Akureyri til að hífa 30
tonna vél sem var sett niður í togarann Sléttbak. Krani Mánafoss lyftir 30 tonnum að hámarki og var því mikið álag
á vélar og menn. Stærð vélarinnar sést best á því að bera hana saman við mennina sem standa á Mánafossi.
Mynd: EHB
Fræðslustjóramálið:
Ráðherra óbundinn af
fræðsluráðs
Fyrir skömmu voru haldin
sjópróf á Húsavík vegna
danska ilutningaskipsins sem
slitnaði upp í óveðrinu og rak
inn í smábátahöfnina. Að sögn
Tónlistaskólinn:
Húsvörður
ráðinn
Halldór Jónsson, Birkilundi
11 Akureyri, hefur verið ráð-
inn húsvörður við Tónlistar-
skóla Akureyrar og mun
hann hefja störf fljótlega.
Fimm aðilar sóttu um starfið
og mælti stjórn Tónlistarskólans
með því við bæjarstjórn að
Halldór yrði ráðinn. Húsvarð-
árstaðan við Hafnarstræti 81a
og b er hálft starf. BB.
Halldórs Kristinssonar sýslu-
manns staðfestu sjóprófín að-
eins það sem áður var vitað að
skipið slitnaði upp vegna fár-
viðris og olli einhverjum
skemmdum á hafnarmann-
virkjum og einnig var talið að
það hafí laskað þrjá báta.
Flutningaskipið varð sjálft fyrir
nokkrum skemmdum, dældaðist
að framan, en þær skemmdir
komu ekki að sök því skipið
sigldi á miðvikudaginn. Áður var
jafnvel talið að skipið þyrfti í
slipp. Að vísu hafði stýrið bilað
en menn frá Slippstöðinni á
Akureyri fóru til Húsavíkur og
kipptu því í lag.
Skipið er nú á siglingu suður
fyrir land, losaði tunnur og salt
handa grásleppumönnum, m.a. á
Hólmavík og Patreksfirði, og
heldur síðan áfram suður á
bóginn. Danska flutningaskipið
mun vera á vegum Austfars hf. á
Seyðisfirði, en umboðsaðili á
Húsavík er Guðmundur Hall-
dórsson heildsali. SS
vilja
Menntamálaráðherra hefur
algerlega óbundnar hendur
þegar hann skipar nýjan
fræðslustjóra á Norðurlandi
eystra á næstunni. Svo sem
kunnugt er sóttu þrír aðilar um
stöðuna, þar á meðal Sturla
Kristjánsson, sem mennta-
málaráðherra vék úr þessu
starfí fyrir nokkru.
Raddir hafa verið uppi um það
að menntamálaráðherra hafi ekki
vald til að hundsa vilja fræðslu-
ráðs umdæmisins ef það mælir
eindregið með einum umsækj-
anda. Ljóst er að alger einhugur
er í fræðsluráði um að ráða
Sturlu Kristjánsson sem fræðslu-
stjóra að nýju.
í grunnskólalögunum segir
eftirfarandi um skipan fræðslu-
stjóra: „Menntamálaráðherra
skipar fræðslustjóra að fengnum
tillögum hlutaðeigandi fræðslu-
ráðs. Menntamálaráðuneytið
auglýsir stöðu fræðslustjóra, set-
ur hann til eins árs og að þeim
tíma liðnum má skipa hann í
starfið. Við skipun í starf
fræðslustjóra er skylt að taka tillit
til kennslufræðilegrar menntunar
umsækjenda, stjórnunarreynslu
innan skólakerfisins og þekking-
ar þeirra á skólamálurri og skulu
þeir umsækjendur að öðru jöfnu
ganga fyrir sem hafa rétt til að
vera- skipaðir skólastjórar við
grunnskóla og hafa gegnt starfi
kennara eða skólastjóra í a.m.k.
þrjú ár.“ ,
Af þessu er ljóst að lagalega er
ekkert því til fyrirstöðu að
menntamálaráðherra gangi í ber-
högg við vilja frteðsluráðs. Eina
tilfellið, þar sem menntamálaráð-
herra hefur ekki frjálsar hendur
við skipan í stöðu innan grunn-
skólakerfisins, er þegar um yfir-
kennara er að ræða. Ef allir hlut-
aðeigandi aðilar eru sammála um
hvern skuli ráða sem yfirkennara
að tilteknum skóla, þ.e. kennara-
ráð og skólastjóri viðkomandi
skóla svo og skólanefnd staðar-
ins, þá er ráðherra skylt að veita
þeim umsækjanda stöðuna. Lík-
lega er það. þetta ákvæði sem
komið hefur þeirri sögu af stað
að menntamálaráðherra væri
skylt að hlíta eindregnum vilja
fræðsluráðs. BB.
Stakfellsmáliö:
Stjóm kaupfélagsins hafnaði
kauptilboði minnihlutans
- sem mun þá líklega selja eignarhlut sinn í skipinu
Stjórn Kaupfélags Langnes-
inga á Þórshöfn ákvað á fundi
sínum í fyrradag að hafna til-
boði Hraðfrystihússins, Þórs-
hafnarhrepps og Svalbarðs-
hrepps, sem saman eiga 48% í
Stakfellinu, um kaup á 40% til
viðbótar. Svarbréf hefur verið
sent fulltrúum þessara aðila.
, í bréfinu er , kauptilboðinu
algjörlega hafnað en engin við-
brögð eru við þeirri yfirlýsingu
minnihlutans að ef svona færi
myndu þeir óska eftir að selja
sinn hluta. Lýst er vilja stjórnar-
innar til að ná samkomulagi í
málinu án sölu.
Þórólfur Gíslason kaupfélags-
stjóri vildi ekkert um ákvörðun
stjórnarinnar segja en taldi líkur
á lausn, án sölu hlutafjár, hafa
aukist.
Daníel Árnason sveitarstjóri
Þórshafnarhrepps vildi ekkert
um það segja hvort haldið yrði
fast við þá ákvörðun að selja
48% hlutafjár í skipinu. Á fundi
hreppstjórnar eftir helgina verð-
ur tekin ákvörðun af hálfu
hreppsins.
Um , helgina verður haldinn
fundur í stjórn Hraðfrystihússins.
Jóhann A. Jónsson framkvæmda-
stjóri Hraðfrystihússins sagði í
samtali við Dag að hann ætti ekki
von á að menn féllu frá þeirri
ákvörðun um að selja eignarhlut
minnihlutans í Stakfellinu. ET
Danska flutninga-
skipið siglir á ný