Dagur - 15.04.1987, Side 8

Dagur - 15.04.1987, Side 8
8 - DAGUR - 15. apríl 1987 .bridds. N-S voru fljótir upp í 6H og suð- ur var jafn snöggur að tapa þeim. Spilið var þannig: N. ♦ G5 V. ♦ 842 ♦ G54 V D963 . A A5 I ?r,nq, ♦ KD1073 ♦ AG1093 ^ 102 ♦ K82 4 764 + D876 S. 4 K42 ♦ A96 ▼ AK87 ♦ DG1093 ♦ 5 Minning: Þórir Valgeirsson t Vestur spilaði út spaða og sagnhafi sá að til að vinna spilið yrði tígul K að vera í vestur. Spaða og ef til vill tígul þyrfti að trompa í blindum og því rétt að gefa vörninni strax spaðaslag. Hann gaf því austri fyrsta slaginn á spaða K, drap spaða D í öðrum slagi og trompaði spaða og tapaði spilinu þar með. Þetta er hörkusamningur, leg- an hagstæð en sagnhafi verður að spila nákvæmt og nýta innkom- Umsjón: Hörður Blöndal urnar vel. Rétt spilamennska er: 1. slagur gefa spaða K 2. sl. drepa spaða D með As 3. sl. svína tígul D, vestur setur lítið 4. sl. trompa spaða 5. sl. tígul As 6. sl. hjarta á As 7. sl. trompa tígul 8. sl. tromp D 9. sl. lauf As 10. sl. trompa lauf 11. sl. tromp K 12. og 13. sl. tígul G og 10 Ekki ýkja erfitt, en nógu til að flaska á. Fæddur 2. júní 1922 - Dáinn 6. apríl 1987 Fagnið sumrí Kvenfélagið Hlíf hefur sína árlegu kaffisölu að Hótel KEA sumardaginn fyrsta kl. 15.00. Skemmtiatriði og happdrætti. Allur ágóði rennur til Barnadeildar F.S.A. 'UU FRAMStÓKNARFLOKKURINN B-LISTINN Skrífstofu Framsóknarflokksins verður lokað kl. 16.30 í dag vegna stór-árshátíðar. Framsóknarflokkurinn símar 21180 og 27406. í dag, 15. apríl 1987, fer fram að Möðruvöllum í Hörgárdal útför Eóris Valgeirssonar bónda í Auð- brekku, en hann varð bráð- kvaddur að heimili sínu aðfara- nótt hins 6. þessa mánaðar. Hann gekk heill til hvílu sinnar kvöldið áður en mun hafa látist í svefni seint um nóttina. Pannig er gott að kveðja. Þegar ríki vetrarins var á undanhaldi og bjartir dagar gáfu okkur til kynna að vorið væri á næstu grösum, vorið, þegar nátt- úran öll vitnar hvað ljósast um mátt lífs og moldar, hvarf þessi góði drengur frá okkur svo skjótt sem hendi væri veifað. Slíkir atburðir hafa víst gjarnan verið taldir ofar mannlegum skilningi og víst er áfallið mikið fyrir þá sem eftir standa og sjá með svo óvæntum hætti á eftir kærum vini á vit hins ókunna. Einar Þórir, eins og hann hét fullu nafni, fæddist 2. júní 1922 og var því aðeins á 65. aldursári er hann andaðist. Hann var sonur Valgeirs Árnasonar og Önnu Einarsdóttur er lengi bjuggu í Auðbrekku umsvifamiklu búi. Þau hjón voru kunn víða, Valgeir greindur maður, vinsæll og virtur bóndi, en Anna annáluð fyrir dugnað og rausn í hvívetna. Þórir var næstyngstur fjögurra sona þeirra. Þorsteinn, sem var ári eldri, og Guðmundur Árni, ári yngri, eru báðir látnir fyrir nokkrum árum, langt um akiur fram. Elstur sona Valgeirs og Önnu er Stefán, alþingismaður, er má nú þola þá raun að hafa misst yngri bræður sína alla. Hálfbróðir þeirra og nokkrum árum eldri er Hermann Valgeirs- son. Hann bjó áratugum saman hér í sveitinni, síðast í Lönguhlíð hil Ég kýs ungt fólk og trausta forustu C-i (||l Ég kýs Framsókn! iSLr ^ X-B Ragnheiður Baldursdóttir 4Jp' ■H'.qI Aðgöngu- miðar óskast sóttir fyrir kl. 12.00 ídag Almennur dans- leikur hefst kl. 23.30 Fjöl- mennið og takið meöyldair gesti Stórhátíð K.F.N.E. og Framsóknarfélags Akureyrar verður haldin að Hótel KEA miðvikudaginn 15. apríl. (Ath. daginn fyrir skirdag.) Hátíðin hefst með lystauka kl. 19.00. Borðhaldkl. 20.00. Stórhátíðarnefnd. Aðgöngu- miðar óskast sóttir fyrir kl. 12.00 ídag Almennur dans- leikur hefst kl. 23.30 Fjöl- mennið og takið með ykkur gesti og er jafnan við þann bæ kenndur. Hann dvelur nú á Akureyri, aldraður orðinn. Þórir var fremur lágur maður að vexti en þrekvaxinn og karl- menni að burðum meðan hann var yngri og þrótturinn óbilaður. Hann var fríður sýnum, svipur- inn hreinn og jafnan glaðlegur, enda hafði hann ætíð næmt auga fyrir hinu skoplega f tilverunni, leitaði hinna bjartari hliða henn- ar og æðraðist ekki þótt á móti blési. Hann unni landi sínu og þjóð, en þó sveitinni sinni mest þar sem ævistarf hans var allt unnið. í Auðbrekku átti hann heima alla tíð og dvaldi aldrei langdvölum annars staðar. Var þó ungur tvo vetur við nám í Héraðsskólanum að Laugarvatni og lauk þaðan prófi, en síðar skamman tíma við störf í Reykja- vík. Sent barn og ungur maður vann hann auðvitað að búi for- eldra sinna, en síðar, er hann kvæntist, hóf hann sjálfur búskap, fyrst í félagi við Stefán bróður sinn en nú síðustu árin með syni sínum Árna. Eftirlifandi eiginkona Þóris er Halla Halldórsdóttir frá Skútum í Glerárhverfi, góð kona, dugleg og vinsæl. Þau eignuðust tíu myndarleg og mannvænleg börn, átta syni og tvær dætur. Einn drenginn misstu þau af slysför- um, barn að aldri, en hin sjá nú á bak föður sínum. Öll eru systkin- in uppkomin og hafa flest þegar haslað sér völl víðs vegar í atvinnulífinu, sum þau yngri þó enn við nám. Ég veit vel að sár harmur er kveðinn að Höllu og börnunum þegar kær eiginmaður og faðir er svo óvænt og snögglega frá þeim tekinn. Sú er þó bót í máli að Ijúfar minningar frá liðinni tíð munu milda sorgina. Ég veit líka að ti’ þeirra streyma nú hvaðan- æva að hlýjar hugsanir fjöl- margra vina þeirra sem biðja þess að hann, sem yfir okkur er og öllu ræður, blessi þau og gefi þeim styrk. Þórir Valgeirsson var óvenju vinsæll maður og vinmargur. Þess er áður getið hve glaðsinna hann jafnan var. Það, ásamt góðri greind og jákvæðu lífsviðhorfi, gerði það að verkum að fólk lað- aðist að honum og þótti gott að vera þar sem hann var. Hann tók alla tíð mikinn þátt í félagsmál- um, bæði hér innan sveitar og á öðrum vettvangi. Er mér sérstak- lega minnisstætt hve einlægur samvinnumaður hann var og gerði sér flestum betur grein fyrir þörf og þýðingu samvinnu og samhjálpar og gildi þeirra hluta, bæði fyrir einstaklinginn og þjóð- félagið í heild. Þórir var hvorki sporgöngu- maður annarra né bókstafstrúar- maður í neinum skilningi. Eðlis- læg greind hans og sjálfstæði í hugsun gerðu hann hæfýin til að kryfja mál til mergjar og mynda sér eigin skoðanir út frá því. Skoðanir sínar lét hann líka hiklaust í ljós, ef honum sýndist svo, og hélt þeim fram. Vel man ég það, að ef okkur greindi á um einhvern hlut þótti mér hann stundum óþarflega fastur fyrir. Aldrei var hann þó einstrengings- legur, heldur jafnan samvinnu- þýður og sáttfús. Þóris verður ekki minnst nema þess sé getið að hann var svo prýðilega vel hagmæltur að fágætt er. Gilti þá einu hvort um var að ræða stakar vísur eða heil kvæði. Hvort tveggja lá hor. \m jafn létt á tungu. Mikið af því sem hann orti voru græskulausar gamanvísur um menn eða málefni, gjarna gerðar ef hann var beðinn að skemmta á sam- komum, sem margoft var, bæði innan sveitar og utan. Var þá fyrirvarinn oft æði stuttur en þrátt fyrir það vissi ég honum aldrei mistakast. En Þóri var vissulega fleira tiltækt í þessu efni en gamanmálin ein. Gullfallegar kveðjur, í bundnu máli, sendi hann til dæmis oft vinum sínum í tilefni af merkum tímamótum í ævi þeirra. Enga rækt lagði hann við skáldskapargáfu sína og gerði jafnan lítið úr ef um var talað. Þó átti hann held ég allt sem þurfti til að geta sest á bekk með góð- skáldum. Hugkvæmni nóga og brageyra sem aldrei brást. Hér hefur verið stiklað á stóru. Það var heldur ekki ætlun mín að hafa hér um mörg orð, hvað þá að segja ævisögu Þóris Valgeirs- sonar. Slíkt verður ekki gert í stuttri blaðagrein. Til þess eru minningarnar, sem nú hrannast upp í huga mínum, of margar, allt frá bernskudögum okkar til síðustu dægra lífs hans hér á jörð. Og nú þegar leiðir skiljast um sinn þá bið ég af heilum hug algóðan Guð að blessa hann og halda sinni verndarhendi yfir honum um alla eilífð. Farðu svo heill og vel, vinur, og hafðu þökk fyrir samfylgdina í sextíu ár. Arnsteinn Stefánsson. Hlutafjámtboð Undirbúningsstjórn um stofnun fiskmarkaðar á Norðurlandi auglýsir eftir hlutafjárloforðum í fyrirhuguðu fyrirtæki. Hlutir sem boðnir eru, eru að verðgildi kr. 25.000 og kr. 100.000. Skrifleg hlutafjárloforð berist starfsmanni undirbún- ingsstjórnar Þorleifi Þór Jónssyni, Glerárgötu 30, 600 Akureyri fyrir 30. apríl.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.