Dagur - 15.04.1987, Síða 10
10 - DAGUR - 15. apríl 1987
Gigt í
börnum
Ferðaskrifstofan Saga:
Fell hf.
með um-
boð á
Akureyri
„Aðaltrompið hjá okkur er
beint flug til Costa del Sol
þann 2. september. Það verður
farið héðan um 9.30, millilent
á Keflavík til að taka eldsneyti
og farþega og síðan flogið út.
Þetta er þriggja vikna ferð,
það verður komið heim 23.
sept. og þá verður flogið beint
til Akureyrar,“ sagði Gunnar
Jónsson hjá Felli, en Fell er
með umboð fyrir Ferðaskrif-
stofuna Sögu sem býður upp á
þetta beina flug til Spánar.
Saga er eina ferðaskrifstofan
sem verður með beint flug
héðan í sumar.
Ferðaskrifstofan Saga var
stofnuð í haust og það hefur eng-
inn verið með umboð fyrir hana á
Akureyri fyrr en nú, að Fell tek-
ur við umboðinu. Saga er stofnuð
af fólki sem starfaði áður fyrir
Útsýn og er Örn Steinsen þar
fremstur í flokki. Fólk getur
komið við á Felli ef það hefur
áhuga á þessu beina flugi til
Spánar eða einhverju öðru, því
Saga býður að sjálfsögðu upp á
ótal ferðir út um allan heim.
Sagði Gunnar að þeir væru með
bók sem sýndi öll hótel bæði utan
og innan, sem Saga hefur á sínum
snærum og væru það hótel í öll-
um verðflokkum. Það þarf því
enginn að kaupa köttinn í
sekknum. Gunnar var spurður
hvað þeir byðu helst upp á.
„Það má nefna tvær Kínaferð-
ir, önnur er þriggja vikna og
verður farið 22. júlí, en hin er 26
daga ferð og það verður farið 16.
október. Jú, jú, það er dýrt að
fara til Kína. Fyrri ferðin kostar
115.000 kr. á marsgenginu en hin
kostar 130.000 kr. En þetta eru
hvort tveggja mjög sérstakar
ferðir, sérstaklega þessi sem farin
verður í október. Við erum líka
með ferðir til Rússlands, Túnis
og Tyrklands sem aðrar ferða-
skrifstofur eru ekki með. Svo eru
þessar hefðbundnu ferðir, til sól-
arlanda, rútuferðir, flug og bíll
og þannig mætti lengi telja.“
27. apríl býður Saga upp á
fjögurra vikna ferð til Costa del
Sol. Ferð þessi var upphaflega
hugsuð fyrir aldraða en nú hefur
ferðaskrifstofan ákveðið að
bjóða þetta á almennum markaði
og er hægt að fá þessa ferð frá
26.900 kr. -HJS
Börn geta fengið bráðar liðbólg-
ur sem graftrarbakteríur valda.
Er þá yfirleitt aðeins einn liður
bólginn. Mikilvægt er að komast
sem fyrst að orsökinni og gefa
rétt lyf því annars geta beinin
grotnað niður.
Veirur geta einnig valdið lið-
bólgu hjá börnum en sú liðbólga
hefur engin alvarleg eftirköst.
Hún er oft fylgifiskur barna-
sjúkdóma eins og hettusóttar,
rauðra hunda og hlaupabólu.
Sjúkdómur sem einungis sést
hjá börnum og hefur verið nefnd-
ur beinmeyra hefur í för með sér
gigtverki. Sjúkdómurinn er eins
og nafnið bendir til í beini, oft
nálægt liðamótum. Beingerðin
truflast, beinið linast upp og
aflagast jafnvel. Ekki er vitað um
orsökina en helst talið að um
blóðrásartruflun sé að ræða.
Þegar sjúkdómurinn er í lær-
leggshöfðinu er hætta á að það
aflagist vegna þunga líkamans.
Áður voru börn með þennan
kvilla látin ganga í spelkum í allt
að 3 ár en nú er farið að beita
skurðaðgerð og meðferðin tekur
2-3 mánuði.
Nokkuð algengar eru kvartanir
8-12 ára barna um eymsli og
bólgu rétt neðan við hné. Slíkt
stafar oft af beinmeyru, þá í hæl-
beini.
Loks getur beinmeyra verið
orsök þreytuverkja í baki, og því
ástæða til að vera á verði gagn-
vart slíkum kvörtunum unglinga
þó fjölmargar aðrar orsakir komi
þar til greina.
Beinmeyra jafnar sig á nokkr-
um árum þó ekkert sé að gert.
Beinið tekur í sig kalk og harðnar
aftur, en getur þá verið orðið
aflagað og það jafnvel valdið
gigtsækni á efri árum.
Vaxtarverkir er óljóst hugtak
og hefur orðið eins konar rusla-
kista kvartana og einkenna sem
erfitt er að skýra frá læknisfræði-
legu sjónarmiði.
Vaxtarverkir hafa verið skil-
greindir eitthvað á þessa leið:
Vöðvaverkir í kálfum og lærum,
allsárir, angra barnið öðru hverju
en hverfa alveg þess á milli. Eru
yfirleitt ekki tengdir liðamótum.
Þeirra verður sérstaklega vart
seinni hluta dags og á kvöldin og
geta jafnvel truflað svefn, en eru
horfnir að morgni. Þeir versna
við hlaup og aðra áreynslu. Helti
eða hindraðar hreyfingar fylgja
ekki vaxtarverkjum. Ekki verður
vart við eymsli, bólgu eða roða á
húð eða yfirleitt neitt annað
athugavert. Erlendis hefur komið
í ljós að 13-20% skólabarna
kvarta um vaxtarverki.
Orsakir hafa engar fundist
enn, en menn eru sammála um
að orðið vaxtarverkir sé rang-
nefni, þetta hafi ekkert með vöxt
að gera.
Að ofansögðu og fyrri grein
um gigt í börnum er ljóst að
ástæða er til að taka alvarlega
kvartanir barna og unglinga um
verki í vöðvum, beinum eða liða-
mótum því þó sjaldnast sé hætta
á ferðum er sá möguleiki fyrir
hendi. Verða því foreldrar og
aðrir forráðamenn barna seint
nóg hvattir til að leita ráða hjá
læknum ef minnsti grunur er um
gigt hjá barni.
Ragnar
Björnsson
leikur verk
eftir Fr. Liszt
í Akur-
eyrarkirkju
Föstudaginn langa kl. 17 heldur
Ragnar Björnsson orgeltónleika í
Akureyrarkirkju og leikur þar
eingöngu verk eftir Fr. Liszt.
Ragnar flutti þessa sömu efnis-
skrá á tónleikum í Kristskirkju í
Reykjavík á sl. ári, þá fyrir tón-
listarfélag kirkjunnar.
Ein ástæðan fyrir því að Ragn-
ar flytur þessa efnisskrá á Akur-
eyri er að orgelið í Akureyrar-
kirkju er eina hljóðfærið utan
Reykjavíkur sem skilar þessum
verkefnum svo og hljómburður
kirkjunnar. Ragnar segist hlakka
mjög til þess að flytja þessi verk
Liszts í kirkjunni, en þau eru
„Fantasia og fuga yfir Bach“ og
„Weinen, Klagen, Sorgen,
Zagen“. Þessi þrjú verk eru
stærstu orgeltónsmíðar Liszts, en
Liszt var mikill aðdáandi orgels-
ins.
Ragnar heldur einnig tónleika
í Húsavíkurkirkju á skírdag kl.
17. Þar mun hann eingöngu leika
verk eftir J.S. Bach.
Kápur-
\ý sending
Fallegar og ódýrar kápur frá Danish
Fashion og Jensen Coat.
Einnig galla- og khakybuxur í úrvali.
Fallegar jogging jakkapeysur.
SÍMI
(96)21400