Dagur - 15.04.1987, Síða 11
15^ apríJ 1987 -r DAGUR —11
Landssamband hjálparsveita skáta hvetur alla ferðalanga til að hafa lág-
marksbúnað með sér. Hlý klæði, skjólfatnað, áttavita, landakort, flautu,
álpoka og sólgleraugu til varnar snjóbirtu.
Farsæl ferðalok:
Fyrirhyggja er besta
ferðatryggingin
- Nokkur atriðí til athugunar
áður en þú leggur í ’ann
frá Landssambandi hjálparsveitar skáta
Besta tryggingin sem ferðalangar
geta gefið sér fyrir farsælum
ferðalokum er fyrirhyggja. Þeir
sem ætla í ferð - hvort heldur
hún er stutt eða löng ættu að
hyggja að nokkrum atriðum til að
vera viðbúnir óvæntum skakka-
föllum. Auk hlýrra klæða og lit-
ríks skjólfatnaðar ættu allir
ferðamenn að hafa í farteskinu
landabréf, áttavita, flautu og/eða
pennaneyðarbyssu, álteppi og
orkuríkt neyðarsnarl, s.s. súkku-
laði, hnetur og rúsínur. Sólgler-
augu eru einnig nauðsynleg til að
verjast snjóblindu.
Góð sala
Hegraness í
Þýsklandi
Hegranes togari Útgerðar-
félags Skagtirðinga gerði mjög
góða sölu í Bremerhafen í
Þýskalandi á laugardag. Skipið
seldi 176 tonn fyrir 11 milljónir
og var meðalverðið 62,41
krónur.
Verðið á mörkuðunum í
Þýskalandi í síðustu viku var það
besta á þessu ári, en besta salan
mun yfirleitt vera þar í vikunni
fyrir dymbilviku. Afli Hegraness
var að mestu leyti karfi, 22 tonn
af ufsa og lítilsháttar þorskur og
ýsa. -þá
Hestamannafélagið
Léttir:
Páskamót ÍDL
haldið í
tíunda sinn
Nú á laugardaginn verður
haldið páskamot og deildar-
mót Iþróttadeildar Léttis.
Þetta er í tíunda skiptið sem
IDL stendur fyrir páskamóti.
Mótið hefst klukkan 9 á Breið-
holtsvelli. Þar verður keppt í öll-
um helstu greinum hestaíþrótta
en þær eru fjórgangur, fimm-
gangur, tölt, gæðingaskeið,
hlýðnikeppni, hindrunarstökk og
víðavangshlaup.
Veitt verða vegleg verðlaun á
mótinu gefin af Heildverslun
Valdemars Baldvinssonar og
DNG.
Eins og sjá má er þetta hvorki
þungt né fyrirferðarmikið, en get-
ur skipt sköpum. Venjum okkur
á góða siði á ferðalögum hvort
heldur í lengri eða styttri ferðum.
Áður en lagt er af stað ætti
skilyrðislaust að setja ferðaáætl-
un niður á blað og skilja eftir hjá
einhverjum ábyrgum. Hvert á að
fara og hvenær er ætlunin að
koma aftur? Slíkar lágmarksupp-
lýsingar gera allar aðgerðir mark-
vissari ef til leitar kemur. Enginn
ætti að telja sig of góðan og/eða
yfir það hafinn að segja hvert
hann ætlar, jafnvel reyndir fjalla-
menn geta farið villu vegar og
tafist á leið sinni.
Mjólkursamlag
Skagfirðinga:
5,5 milljóna
hagnaður á
síðasta ári
Á aðalfundi Mjólkursamlags
Skaglirðinga sem haldinn var á
dögunum kom fram að rekstur
samlagsins gekk vel á síðasta
ári og varð 5,5 milljóna tekju-
afgangur í stað 70 þúsund
króna árið á undan. Megnið af
hagnaðinum rennur í viðhalds-
og framkvæmdasjóð 4,8 millj.
og 725 þús. eru færð á reikning
kaupfélagsins. Innvegin mjólk
frá innleggjendunum sem voru
155 að tölu var 8,6 millj. lítra
og er það tæplega 580 þúsund
lítra minnkun frá árinu áður.
I máli Snorra Evertssonar sam-
lagsstjóra á fundinum kom fram
að flokkun og nýting mjólkur
hafi verið mjög góð á síðasta ári
og taldi hann að tekist hefði að
halda vinnslukostnaðinum í lág-
marki. í því sambandi benti liann
á könnun sem gerð var nýlega á
pökkun mjólkur og vinnslu osta í
mjólkursamlögum norðanlands
og Mjólkursamlag Skagfirðinga
kom vel út úr. Smjörbirgðir voru
í árslok tæp 84 tonn eða um 8
tonnum meiri en ársframleiðslan,
en 2 mánuðum síðar hafði tekist
að minnka þær niður í 65 tonn.
Ostabirgðir um áramót námu 150
tonnum eða 21,7% af ársfram-
leiðslunni og höfðu minnkað um
26 tonn. Svolítill samdráttur varð
í skyrsölu á árinu, en talið er að
pökkun í plastdósir, sem hafin
var á árinu hafi komið í veg fyrir
enn frekari samdrátt í sölu. -þá
Sólin sest aldrei
í Sólstofu Dúfu
Vatnsgufubað fylgir hverjum
tíma.
Opiö frá morgni til kvölds.
Fermingarbörn athugið
20% afsláttur til 1. maí.
Vinsælir paratímar.
SóLSTOFA DúFU KOTÁRGERÐI
2 ® 23717
LÍFIÐ ER KABARETT
HELGARREISUR FLUGLEIÐA UM LAND ALLT
REYRI
Sjáðu söngleikinn Kabarett á
sýningu hjá Leikfélagi Akur-
eyrar, renndu þér á skíðum í
Hlíðarfjalli og gleymdu
ekki Sjallanum um kvöldið.
YKJAVÍK
Aldrei fjölbreyttari matstaðir né meiri gróska í
listalífinu. Ótal leiksýningar, málverkasýningar
og tónleikar að ógleymdri sjálfri óperunni. „Allt
vitlaust“ á Broadway, Þórskabarett í Þórscafé.
HÚSAVÍK
Bær við ysta haf. Af Húsavíkurfjalli sést
norður í Grímsey og suður á Vatnajökul.
Frábært gistihús og góð aðstaða til
heilsuræktar.
HORNAFJÖRÐUR
Hér rennur stærsti jökull Evrópu saman
við himinhvolfin í ólýsanlegri tign,
og endurvarpar sjólarljósinu.
EGILSSTAÐIR
Annars vegar gróðursælt Héraðið með hæstu
tré landsins í Hallormsstaðaskógi, hins
vegar sæbrött fjöllin niðri á Fjörðum.
Hér er líka frábært
skíðaland og hrikaleg
náttúrufegurð. Áður
fyrr svo afskekkt, að
menn héldu að Vestfirðingar væru göldróttir.
VESTMANNAEYJAR
Með sérstæðustu ferðamannastöðum í allri
Evrópu. Nýrunnið hraun og bátsferðir í hella
sem að fegurð gefa ekki eftir þeim á Caprí.
FLUGLEIÐIR
UPPLÝSINGAR í SÖLUSKRIFSTOFU FLUGLEIÐA, HJÁ UMBOÐSMÖNNUM OG FERÐASKRIFSTOFUM