Dagur - 15.04.1987, Síða 13

Dagur - 15.04.1987, Síða 13
15. apríl 1987 - DAGUR - 13 - >. 'v. <y-v.<> "c'tv'.v á henni að undirbúa þessa árshá- tíð.“ - Ert þú ánægður með hana? „Já, miðað við hvernig gekk að undirbúa hana þá er ég ánægður með framkvæmdina. Þetta er búið að vera gaman í kvöld.“ - Hvernig hefur þér annars liðið í vetur? „Þetta er búið að vera ágætt en það verður að segjast eins og er að í kringum verkfallið þá datt allt félagslíf niður. Þetta hefur verið alger ládeyða og ég er bara feginn að við rétt náðum að merja þessa árshátíð í gegn. En þetta hafðist allt með samvinnu og félagsanda. Mér hefur fundist frá því að ég byrjaði hérna haust- ið ’83 að félagslífið í F. á S. hafi verið í miklum blóma miðað við nemendafjölda. Það hefur að vísu stundum þurft að sparka í rassgatið á nemendum til að fá þá til að taka þátt, en þegar það hef- ur verið gert þá hefur þetta líka komið vel út. Nú, nú, við Björn kvöddumst með virktum eftir að hafa rætt saman um landsbyggðarmál, fjöl- miðlun, byggðastefnu unga fólks- ins og sitthvað fleira smálegt og héldum hvor í sína áttina. Segir ekki af ferðum mínum fyrr en ég rekst á stúlkukind eina, alveg eldhressa. Tókum við óðar tal saman og fer það hér á eftir. 'óru að heyrast raddir um að það yrði « þessi samskipti aftur." - Að endingu, hvernig hefur þér líkað í F. á S.? „Mér hefur fundist þetta alveg stórfínt. Þetta er lftill skóli og þess vegna kynnist maður bæði nemendum og kennurum vel. Samskiptin veröa persónulegri. Mér hefur liðið afskaplega vel þcssi fjögur ár sem ég hef veriö hérna.“ Hætti í verkfallinu - Komdu sæl og blessuð, þú heit- ir? „Hjördís Sævarsdóttir." - Hvaðan ert þú? „Eg kem frá Hvammstanga." - Stundar þú nám hérna í skólanum? „Nei, ég hætti eftir áramót.“ - Hvað varst þú að læra? „Ég var á fyrsta ári á uppeld- isbraut.“ - Af hverju hættir þú? „Út af verkfallinu, ég var dott- in það mikið út úr náminu að ég efast um að ég hefði náð prófun- um.“ - Ertu þá byrjuð að vinna? „Já, ég vinn í leikskólanum og á sjúkrahúsinu á Hvammstanga.“ - Komstu hingað alla leið frá Hvammstanga bara til að vera hérna í kvöld? „Já, já, ég gerði það.“ - Veistu um fleiri sent hafa farið svo margar þingmannaleiðir til að komast á þessa árshátíð? „Jú, ég veit um stelpu sem kom alla leið frá Grundarfirði, gagn- gert til að vera hér viðstödd. Hún stundar hér nám utanskóla.“ - Hvernig líkaði þér annars þessi skóli? „Mjög vel. Hér eru mjög góðir kennarar og alveg frábærir krakkar." - Svo að þú mætir kannski hér einhvern tíma aftur? „Næsta haust, alveg hiklaust." Myndir og texti: Árni Gunnarsson Gleðilega páska OpnuMrtítni m páskana Sldrdagur 11.00-23.30 Föstud. langi 11.00-22.30 Laugard. 11.00-22.30 Páskad. 11.00-22.30 Annar í páskum 11.00-22.30 Opið alla páskana Látíö okkur sjá Hamborgararnir okkar hafa slegið í gegn enda einstak- lega ljúffengir og aðeins unnir úr úrvals norðlensku nautakjöti. um matreiðsluna Fjölskyldupakkar 3 manna = 750 kr. 4 manna = 1.000 kr. 5 manna = 1.250 kr. Pítur. Fiskur og franskar, sósa og salat. Um páskana fá börnin Innihald: Kjúklingar, franskar, sósa og salat. ókeypis páskaegg

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.