Dagur - 15.04.1987, Page 15
15. apríl 1987 - DAGUR - 15
Annar í páskum:
Kaffisamsæti fyrír
eldrí borgara
B-listinn í Norðurlandskjör-
dæmi eystra býður eldri borg-
urum til kaffisamsætis á Hótel
KEA á annan dag páska kl.
15.00.
Það verður létt yfir þessu sam-
sæti. Meðal atriða á fjölbreyttri
skemmtidagskrá má nefna að
Páll Jóhannesson stórsöngvari
flytur nokkur lög, Ingimar Eydal
fer fimum höndum um nótna-
Kabarett:
Sýningar
komnar á
borðið eins og honum einum er
lagið, Steinunn Sigurðardóttir
annast upplestur úr nokkrum
góðum verkum og loks verða
fluttar gamanvísur.
Efstu menn B-listans, þau
Guðmundur Bjarnason, Vaj.
gerður Sverrisdóttir og Jóhannes
Geir Sigurgeirsson flytja stutt
ávörp en veislustjóri verður Póra
Hjaltadóttir.
Þeir sem vilja geta haft sam-
band við skrifstofuna á Akureyri
og látið sækja sig, sér að kostnað-
arlausu. Bílasími annan dag
páska er 21180 og 27406.
F.v.: Gísli Eyland stöðvarstjóri, Sverrir Skarphéðinsson birgðastjóri Pósts og síma Reykjavík og Ársæll Magnússon
umdæmisstjóri.
Póstur og sími:
Ný söludeild a Akureyri
annantug
Við ætlum aðeins að minna á
það að sönglcikurinn Kabarett
verður sýndur hjá Leikfélagi
Akureyrar í kvöld, annað
kvöld og á annan í páskum.
Nánar tiltekið: Miðvikudags-
og fimmtudagskvöld, svo og
annan I páskum. Sýningar
hefjast kl. 20.30 öll kvöldin.
Þegar þetta er skrifað er búið
að sýna Kabarett 11 sinnum og
með tilliti til aðsóknar verður
söngleikurinn enn á fjölum LA
þegar tún taka að grænka.
A.m.k. er ljóst að þetta verk
mun slá öðrum við á þessu leikári
hvað aðsókn varðar. SS
Afgreiðsla Pósts og síma á ann-
arri hæð hússins að Hafnarstræti
102, Akureyri, hefur verið alger-
lega endurnýjuð. Nýjar innrétt-
ingar prýða afgreiðsluna sem hef-
ur tekið geysilegum stakkaskipt-
um, en þarna er alltaf mikil
umferð fólks sem kemur til að
greiða símreikninga, panta síma-
númer, kaupa símtæki eða not-
færa sér aðra þá þjónustu sem
stofnunin veitir. Boðað var til
blaðamannafundar í nýju
afgreiðslunni þar sem stöðvar-
stjóri og umdæmisstjóri veittu
nánari upplýsingar.
Þegar Gísli Eyland, stöðvar-
stjóri, var spurður að því hvað
þessar breytingar hefðu í för með
sér, sagði hann: „Það verður
miklu rýmra um okkur hérna og
við fengum söludeild hingað sem
ekki var hér áður. Hérna getur
fólk valið sér símtæki og annan
símabúnað því við höfum góða
aðstöðu til að sýna tækin. Það er
ekki hægt að segja að þessar
breytingar hafi verið lengi á döf-
inni, hugmyndin að þessu kom í
vetur. Eg vil koma á framfæri
þakklæti til allra iðnaðarmanna
og annarra sem hafa unnið að
þessum breytingum."
Ársæll Magnússon, umdæmis-
stjóri, sagði m.a. í ávarpi sem
hann flutti: „Af þessu tilefni, sem
segja má að marki viss tímamót
hjá okkur, kom markaðsnefnd
Pósts og síma hingað norður.
Markaðsnefndin var sett á lagg-
irnar snemma vetrar og þá var
ráðinn markaðsstjóri, Björn
Jónsson. í nefndinni eru einnig
Sverrir Skarphéðinsson, birgða-
stjóri, Birgir Már Jónsson og
Gylfi Gunnarsson. Hlutverk
markaðsnefndar er að móta
stefnuna í markaðs- og sölumál-
um Pósts og síma. Þetta er fyrsti
fundur nefndarinnar utan
Reykjavíkur en hann er haldinn
hérna í dag. Við viljum breyta
ímynd stofnunarinnar en löngum
hefur það álit ríkt að Póstur og
sími sé nokkuð íhaldssöm
stofnun. Þessu viljum við breyta,
við erum tilbúnir í slaginn og vilj-
um auka mjög alla þjónustu við
viðskiptavinina. Ég vil óska öll-
um til hamingju með þetta hús-
næði og óska eftir því að breyting-
arnar megi verða til að auðvelda
viðskiptavinum okkar til að not-
færa sér þjónustuna.“ EHB
Guðmundur
Valgerður
Jóhannes
Þora
Kaffisamsæti
B-listinn Norðurlandskjördæmi eystra
býður eldri borgurum til
kaffisamsætis á Hótel KEA
mánudaginn 20. apríl kl. 15.00.
Húsið opnað kl. 14.30.
Veislustjóri verður Þóra Hjaltadóttir.
Okkur væri sérstök ánægja að sjá þig
B-listinn í Norduriandskjordæmi eystra
Bílasími
21180
og
27406.
Ef þú
vilt láta
sækja þig.
Fjölbreytt
skemmti-
dagskrá,
söngur,
gamanvísur,
upplestur,
hljóðfæra-
leikur.
Guðmundur,
Valgerður
og Jóhannes
flytja stutt
ávörp.