Dagur - 01.06.1987, Page 2
2-DAGUR-1. júní 1987
DAGUE
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
S(MI: 24222
ÁSKRIFT KR. 520 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 50 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON,
GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
(Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON,
VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauðárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
leiðari.____________________________
Framtíðarspá
um landbúnað
Það hefur færst 1 vöxt hér á landi, að reynt sé
að skyggnast inn í framtíðina - gera sér grein
fyrir mannfjöldaþróun, atvinnulífsþróun, þró-
un í menningar- og menntamálum, væntan-
legum breytingum á neysluvenjum, svo
eitthvað sé nefnt. Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra, beitti sér fyrir stofnun
nefndar um framtíðarkönnun, sem þegar hef-
ur sent frá sér nokkrar skýrslur. Slíkar kann-
anir eru gerðar víða um lönd og hafa það meg-
in hlutverk að stýra þróuninni í takt við það
sem ætla má að komi þjóðfélögunum best.
Könnun á þróun atvinnulífs var nýlega birt
í Noregi og þar er að finna athyglisverðar
upplýsingar, sem íslendingar gætu haft gagn
af að kynna sér. Meðal annars var fjallað um
þróun landbúnaðar í Noregi, en spáð er mikl-
um breytingum á honum á næstu 20-30 árum
og er það í samræmi við það sem vænst er hér
á landi.
Samkvæmt spá Norðmannanna mun land-
búnaðarframleiðslan verða fjölbreyttari en nú
er, þannig að fleiri tegundir lífvera verða
hagnýttar og líftækni við framleiðsluna eykst.
Umhverfisvernd verður mun hærra skrifuð en
nú er og mun hafa áhrif á alla framleiðslu,
hverju nafni sem nefnist, og þó einkum þá
sem er í nánustum tengslum við náttúruna.
Þá gera Norðmenn ráð fyrir að alþjóðlegur
markaður búvara muni opnast meira en nú
er, aukin tækni muni leiða til þess að bændum
muni fækka og meira af framleiðsluferlinum
flytjist frá býlunum til úrvinnslunnar. Sérhæf-
ing mun aukast svo og kröfur um þekkingu
og dugnað bænda og gert er ráð fyrir að
bændum í hlutastarfi muni fjölga.
Vafalaust getur þessi norska spá um þróun
landbúnaðar átt við um ísland að verulegu
leyti. Hún er ekki að öllu leyti uppörvandi,
fremur en sú þróun sem þegar er hafin hér á
landi. Hins vegar geta spár sem þessar hjálp-
að til við að stýra þróuninni. Bændum mun
fækka og úrvinnsla aukast og þá er t.d. spurn-
ing hvar þessi úrvinnsla fer fram, hvort henni
verður dreift meira um landið en nú er til mót-
vægis við fækkun bændanna.
Til þessa og margra fleiri álitamála þarf að
taka afstöðu og nauðsynlegt er að líta til
framtíðarinnar með þessum hætti, þannig að
þróunin verði ekki handahófskennd, heldur
markviss. HS
-viðtal dagsins.
Á dögunum heimsótti miðillin
Moich Abrahams ísland, og
dvaldist meðal annars um tíma
á Akureyri. Svona nokkuð
vekur forvitni hjá allflestum,
einnig undirritaðri, svo leitast
var við að fá Moich í viðtal.
Hann varð fúslega við þessari
beiðni, og mætti á tilsettum
tíma, nývaknaður, þveginn og
strokinn, og alls ekki eins og
blaðamaður hélt að miðlar litu
út. Dökkt útlit hans, og nafnið
bendir ekki til að hann sé
Englendingur, svo umræðan
beindist fyrst að því. Hans
upprunalega nafn er Martin,
en hitt nafnið tók hann upp
sjálfur sem nokkurs konar
gælunafn, og segir það vera
gyðingaættað; eins og hann
sjálfur. En hann er fæddur og
uppalinn í Letchworth á Eng-
landi. Þar gekk hann í skóla,
er stærðfræðingur að mennt og
hefur einnig farið í listaskóla.
Hann er nokkuð kunnur fyrir
málverk sín og hefur haldið
sýningar á þeim.
Hann vildi rökkva herberg-
ið, bað um kaffi, og svo gaf
hann merki um að byrja.
Moich Abrahani
„Lærði líka að verða
galdralæknir"
- Moich Abraham, miðiil,
andaiæknir, o.fl. í viðtali dagsins
- Hvert er þitt aðalstarf nú?
„í>að er að vera sérkennari í
London, en ég er smátt og smátt
að færast yfir í miðilsstörfin ein-
göngu.“
- Stærðfræðingur, listmálari
og miðill! Hvað er sameiginlegt
með þessu? Tengir þú þessar
greinar?
„Já, sem miðill geri ég mikið af
því að meta lífið og rannsaka
raunveruleikann. Stærðfræðin
hjálpar mér við að mæla, og gera
módel af veraldlegum raunveru-
leika.“
- Hvenær varðst þú fyrst var
við að þú værir gæddur yfirnátt-
úrulegum hæfileikum?
„Fyrir sautján árum kynntist
ég stúlku sem var mikið fyrir að
sækja miðilsfundi. í Englandi eru
stór samtök miðla, og fundir sem
yfirleitt eru haldnir í kirkjum eru
vel sóttir. Ég fór að sækja fundi,
og var mér þá oft sagt að ég hefði
hæfileika. Fyrir tólf árum fór ég á
fund hjá Doris Stokes, sem er
nýlátin, og var heimsfrægur
miðill. Hún bauð mér að koma á
námskeið hjá sér, sem ég þáði.
Þá vissi ég ekki, að hægt væri að
fara á námskeið til þess að læra
að verða miðill. Það þarf ekki
endilega að hafa dulræna hæfi-
leika til þess að verða miðill. Ef
viljinn er fyrir hendi, er það allt
sem þarf. Ég hef t.d. verið með
námskeið hér á Akureyri meðan
ég hef dvalist hér. Það nægja 12
tímar til þess að kenna fólki að
verða miðlar. En áfram með
mína reynslu. Ég lærði hjá Doris
Stokes í eitt og hálft ár, og í
fyrsta tímanum, sá ég strax yfir-
náttúrulega hluti. Mér fannst ég
sjá reyk-S hanga yfir höfðinu á
henni, og reyndist faðir hennar
sem var látinn hafa heitið Sam,
og hjálpaði hann henni oft á sam-
komum. Þetta var mín fyrsta
reynsla."
Moich, hefur líka þann hæfi-
leika, að teikna ósjálfráðar teikn-
ingar sem hafa svo oftast tals-
verða merkingu fyrir þann sem
hann talar við. Hann sýndi blaða-
manni riss teikningu af konu sem
hann hafði teiknað á fundi í
Reykjavík. Viðkomandi hafði
þekkt konuna sem ömmu sína,
og gaf honum ljósmynd af henni
sem var óneitanlega sláandi lík
teikningunni. Hjá Doris lærði
hann líka andalækningar, sem
hafa komið ýmsum skjólstæðing-
um hans vel.
- Hvenær komst þú í fyrsta
sinn til íslands?
„Það var í fyrra. Þá kom ég
aðallega til þess að leiðbeina til-
vonandi miðlum. Nú hef ég dval-
ist hér í mánuð, og kennt um
helgar, en haldið miðilsfundi þess
lestra sém á ensku heita „Self
Esteem Enhancement." (Á
íslensku myndi það útleggjast
sem, Sjálfsvirðingarauki. innsk.
blm.)
# Að kunna
fótum sínum
forráð
Nú þegar tímar sumarleyfa
og ferðalaga fara í hönd er
betra fyrir ferðalanga að
kunna fótum sínum forráð og
það í þess orðs fyllstu merk-
ingu. Það er nefnilega ekki
alveg sama hvar stigið er nið-
ur fæti, og á sumum stöðum
gæti það m.a. varðað sektum.
Þarna er átt við þá staði sem
á vaxa friðaðar plöntur sbr.
eftirfarandi: Samkvæmt aug-
lýsingu nr. 184/1978 eru eftir-
farandi plöntutegundir frið-
lýstar þar sem þær vaxa
villtar. Lagt er bann við að
slíta af þeim sprota, blöð,
blóm eða rætur, traðka á
þeim, grafa þær upp eða
skerða á annan hátt.
• Óskir
sem rætast?
Síðan eru taldar upp einar 30
tegundir sem eru friðaðar s.s.
nokkrar burknategundir,
davíðslykill, línarfi o.fl. En
við eina tegundina námum
við staðar! Ferlaufasmári.
Hvað skyldu þeir vera margir
í gegnum tíðina sem hafa
leitað að ferlaufasmára í því
skyni að óska sér? Allir vita
jú að ef ferlaufasmári er slit-
inn upp, og á honum haldið
meðan maður óskar sér, þá
rætist óskin. Þeir sem hér eft-
ir verða svo lánsamir að finna
ferlaufasmára, ættu að byrja
á því að óska sér þess að ein-
hver annar verði látinn borga
sektina, ef upp kemst, áður
en farið verður að hyggja að
öðrum óskum.
# Halli og
hrúturinn
Halli Tryggva var, að eigin
sögn, mjög þrjóskur í æsku,
og vildi oft fá að gera það,
sem hann ekki mátti. Faðir
hans hafði hrút í skúr bak við
hús og vildi Halli endilega
láta hann út og sagði hvað
eftir annað: „Pabbi, má ég
láta út hrútinn!" Lengi var
hann að nauða um þetta þar
til faðir hans sagði argur:
„Jæja, láttu hann þá út.“ En
þá labbaði Halli burtu og
sagði: „Æ, ég nenni því
ekki.“ En sagan er til dæmis
um, að Halla þótti ekkert
gaman að vesenast í hlutum
sem hann mátti gera.