Dagur - 01.06.1987, Blaðsíða 15

Dagur - 01.06.1987, Blaðsíða 15
1. júní 1987-DAGUR - 15 Minning: Ragnheiður 0. Bjömsson Fædd 25. desember - Dáin 21. maí 1987 Aðfaranótt 21. maí lést hér í bæ frk. Ragnheiður O. Björnsson fyrrverandi kaupmaður. Hún var fædd á jóladag árið 1896 og var því nýlega orðin níræð. Ragn- heiður var dóttir hins mikla athafnamanns Odds Björnssonar prentsmiðjueiganda og konu hans Ingibjargar Benjamínsdótt- ur. Mig brestur kunnugleika til að rekja ævi og störf Ragnheiðar, sem sannarlega voru bæði mikil og margvísleg, en langar þó til að minnast hennar með nokkrum línum. Fyrstu minningar mínar um Ragnheiði eru frá löngu liðnum árum. Pegar ég var barn, kom ég oft á tíðum með móður minni í Hannyrðaverslun Ágústu Svendsen í Reykjavík, en versl- unina áttu þá dótturdætur Ágústu þær Sigríður og Arndís Björnsdætur. í versluninni vann þá Ragnheiður O. Björnsson. Sigríður og móðir mín voru mikl- ar vinkonur og þurftu margt og lengi að tala saman og sátu þá inni í bakherbergi búðarinnar. Leiddist mér þar inni og laumað- ist ég gjarnan fram í búð til Ragnheiðar, elti hana eins og skuggi og horfði með andakt á hana afgreiða hinar fjölbreytt- ustu hannyrðavörur og sérstak- lega þótti mér gaman, þegar hún dró út litlu skúffurnar með alla vega litu silkigarni og fann litinn, sem nákvæmlega átti við í hvert skipti, enda alltaf reiðubúin til að leiðbeina viðskiptavinunum og gefa þeim góð ráð. Aldrei blak- aði hún við mér, þó að sjálfsagt hafi ég stundum verið fyrir henni og alltaf spjallaði hún við mig á sinn glaðværa og hressilega hátt, þegar tími gafst til. Svo liðu mörg ár, Ragnheiður flutti hingað norður til Akureyrar og setti á stofn sína eigin hannyrðaverslun, sem hún rak í áratugi, en ég full- orðnaðist. í annað sinn bar fundum okkar Ragnheiðar saman. Ég var tíðum ásamt bónda mínum í Kristnesi á sumrum hjá tengdaforeldrum mínum. Pá áttu menn almennt ekki bíla, svo bæjarferðir voru farnar með Hælisbílnum, í bæinn um hádegi og heim kl. 5.30 síð- degis. Rakst ég þá á Verslun Ragnheiðar O. Björnsson og Ragnheiði sjálfa, sem tók mér eins og það hefði verið í gær, sem ég elti hana um búð Ágústu Svendsen. Þarf ekki að orðlengja það, að hjá Ragnheiði eignaðist ég athvarf í bæjarferðum, þar geymdi ég pakka og pinkla og sat á spjalli við Ragnheiði, þegar tími gafst til. Er mér sérstaklega minnisstætt frá þessum árum, hvað Ragnheiður bar mikla umhyggju fyrir bræðrum sínum og ekki síður bræðrabörnum og aldrei varð hún glaðari, en þegar hún gat gert eitthvað fyrir litla frændfólkið sitt eða þegar hún frétti að því vegnaði vel. Sömu- leiðis var mjög kært með Ragn- heiði og mágkonum hennar. Enn liðu mörg ár og í þriðja sinn tókust kynni með okkur Ragnheiði. Það var þegar ég gerðist félagi í Zontaklúbbi Akureyrar 1976. Ragnheiður O. Björnsson var Zontakona af lífi og sál, enda var það hún, sem átti heiðurinn af því að undirbúa og koma í framkvæmd stofnun Zontaklúbbs Akureyrar og varð fyrsti formaður hans. Vinkona hennar frá gömlum dögum, Arndís Björnsdóttir, leikkona, var „ljósa“ klúbbsins, en hann var formlega stofnaður þann 2. júlí 1949. Ragnheiður var sístarf- andi af áhuga og og eldmóði og sótti fundi Zontaklúbbsins svo lengi sem kraftar entust og var ævinlega hrókur alls fagnaðar. Hún átti stóran hlut í að koma Nonnasafni á laggirnar og bar velferð safnsins fyrir brjósti alla tíð. Er mér sérlega minnisstæð stund, sem við áttum einar saman í safninu, en við fórum þangað til að draga upp fána og kveikja á kertum á meðan aðrar Zontasyst- ur fóru á flugvöllinn að sækja þangað gesti frá Pýskalandi. Þá rakti Ragnheiður fyrir mér sögu (»safnsins og fræddi mig um svo margt, bæði um ævi séra Jóns Sveinssonar, Nonnasafn og Zontahreyfinguna. Ragnheiður var félagslynd kona og lagði fleiri félögum en Zontaklúbbnum lið og má nefna Náttúrulækningafélag íslands sem dæmi um það. Skopskyn hafði Ragnheiður með afbrigðum gott, sá spaugilegu hliðarnar á hlutunum, skopaðist óspart að sjálfri sér en aldrei að öðrum, svo ég hafi heyrt. Músikölsk var hún og lék á píanóið sitt daglega fram á seinustu ár. Langri og heillaríkri ævi er lokið. Zontaklúbbur Akureyrar kveður fyrsta formann sinn og heiðursfélaga, Ragnheiði O. Björnsson, með virðingu og þökk. Akureyri, 26. maí 1987. Bergljót Rafnar. Aðalfundur Leikfélags Akureyrar veröur haldinn í Borgarasal Samkomuhússins mánudaginn 1. júni kl. 20.30. Fundarefni: Lagabreytingar, önnur venjuleg aöalfundarstörf. Mætið vel og stundvíslega. Stjórnin. Jarðarför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu UNNAR TRYGGVADÓTTUR, Byggðavegi 101a fer fram þriðjudaginn 2. júní nk. Kveðjuathöfn verður i Akur- eyrarkirkju kl. 1 e.h. Jarðsett verður að Völlum í Svarfaðardal sama dag kl. 3.30 e.h. Fyrir hönd aðstandenda. Jakob Tryggvason. Sæunn Mjöll Stefánsdóttir, Katrín Jónína Gísladóttir og Hadda Hreiðars- dóttir, héldu tombólu til styrktar Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Þær söfnuðu kr. 1400. Auglýsing um aflatilflutning milli ára. Aö gefnu tilefni vekur sjávarútvegsráöuneytiö athygli á, aö núgildandi lög um stjórn fiskveiða gilda aöeins til næstu áramóta og óljóst er hvernig staðið veröur aö stjórn fiskveiða á næsta ári. Útgeröarmenn veröa því að ganga út frá því, aö hvorki sé mögulegt aö flytja hluta aflakvóta ársins 1987 til ársins 1988 né veiða á árinu 1987 hluta aflakvóta ársins 1988. Sjávarútvegsráðuneytið, 26. maí 1987. M IÐNTÆKNISTOFNUN Námskeið á Akureyri í markaðssetningu fyrirlestur um „Just-in-time“ Rekstrartæknideild ITI gengst fyrir námskeiöi í markaðssetningu og stjórnun markaðssetning- ar, vöruþróun og leit nýrra markaða. Einnig verður fluttur fyrirlestur um japönsk viðhorf í framleiðslu. Fyrir hverja: Framkvæmdastjóra, markaðs- stjóra, framleiðslustjóra, sölumenn og áhuga- fólk um rekstur. Hvar/hvenær: Hótel KEA 10. og 11. júní nk. Skráning: í síma 91-687000. Leiðbeinandi: Christian Dam. Fyrirlestur: Jens P. Kristinsson. Rekstrartæknideild. Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginkonu minnar, móður og tengdamóður, INGILEIFAR STEFANÍU JÓNSDÓTTUR, Furulundi 8, Akureyri. Vigfús Vigfússon, Gísla Sigrún Vigfúsdóttir, Helgi Valdemarsson, Jón Stefánsson, Hildur Jónsdóttir. Alúðarþakkir fyrir vinsemd og samúð við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu, FREYGERÐAR ÞORSTEINSDÓTTUR, Strandgötu 9, Ólafsfirði. Andrés Sigurðsson, Jensína Þórarinsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Baldur Snorrason, Sigríður Sigurðardóttir, Halldór Jónsson, jón Sigurðsson, Matthildur Antonsdóttir, Margrét Sigurðardóttir, Ólafur Þór Jónsson, Valgerður Sigurðardóttir, Sigursveinn Þorsteinsson og barnabörn. Sími 96-31129. Dalvík, nærsveitir Verðum með plöntusölu við útibú KEA Dalvík, mánudaginn 1. júní kl. 19.30. Crenivík Verðum með plöntusölu við úti- bú KEA Grenivík, þriðjudaginn 2. júní kl. 19.30.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.