Dagur - 01.06.1987, Blaðsíða 10

Dagur - 01.06.1987, Blaðsíða 10
10- DAGUR- 1. júní 1987 Sláttuvéla- þjónusta! Höfum tekið umboð fyrir: Flymo, Ginge, Jacobsen og Komatsu (orf). Vélar og varahlutir fyrirliggjandi í flestar gerðir véla. Sumartilboð í að yfirfara gömlu vélina. Ath. Gpið laugardaga 10-16. Sækjum og sendum. Vélaverkstæði Gunnars Frostagötu 6b ■ Sími 21263 (sama hús og Hellusteypan). _____________________________________íþróttiL_ íslandsmótiö í knattspyrnu 3. deild: Tindastóll sigraði í sex stiga leik Blús og sálarhressing í Alþýöuhúsinu Níu manna hljómsveit St. Louis Kings of Rhythm heldur tónleika í Alþýðuhúsinu í kvöld kl. 21.00. Missum ekki af þessu einstæða tækifæri. Jazzklúbbur Akureyrar. Bjöm Sigurðsson, Baldursbrekku 7. Símar 41534 & 41666. Sérleyfisferðir. Hópferðir. Sætaferðir. Vöruflutningar Húsavík - Akureyri - Húsavík Sumaráætlun hófst 31. maí Frá Húsavík: Mánud., miðvikud. og föstud. kl. 8.00. Frá Húsavík: Þriðjud. og fimmtud. kl. 13.30. Frá Húsavík: Sunnud. kl. 19.00. Frá Akureyri: Mánud., þriðjud., miðvikud. fimmtud. og föstud. kl. 16.00. Frá Akureyri: Sunnud. kl. 21.00. Sérleyfishafi. HEILSUGÆSLUSTÖÐIN Á AKUREYRI Staða Ijósmóður við Heilsugæslustöðina á Akureyri er iaus tii umsóknar. Starfshlutfall og vinnutími eftir samkomulagi. Nýtt og glæsilegt húsnæði fyrir mæðraeftirlit verður tekið í notkun með haustinu. Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri Heilsu- gæslustöðvarinnar á Akureyri, Konný Kristjánsdóttir, daglega milli kl. 11 og 12 í síma 96-22311 eða 96-24052. Námskeið SAMSKIPTATÆKNI Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal Innritun og nánari upplýsingar í síma Sálfræðistöðvarinnar: 623075 milli kl. 10 og 12. - Eyjólfur Sverrisson skoraði eina mark leiksins Eftir slakt gengi Tindastóls í æfingaleikjum í vor, hafa sjálf- sagt fæstir búist við að liðið flygi með 3 stig heim frá Norð- firði á laugardag. Þá fór fram fyrsta umferðin í b- riðli 3. deildar, að vísu var leik Austra og HSÞ-b frestað. Það verður að segjast eins og er, að norðanmenn voru algjör- lega yfirspilaðir í fyrri hálfleikn- um af frískum Þrótturum, sem voru óheppnir og klaufskir að vera ekki búnir að skora oftar en einu sinni fyrir leikhlé. Það var því þvert á gang leiksins að Tindastóll náði forystunni um miðjan hálfleikinn með marki Eyjólfs Sverrissonar, sem skall- aði boltann í markið af stuttu færi eftir aukaspyrnu. Jafnræði var með liðunum fyrri hluta seinni hálfleiks, en úthald Þróttara brást undir lokin og þá fengu norðanmenn nokkur mjög góð færi sem þeim tókst ekki að nýta. Gísli Sigurðsson markvörð- ur var langbesti maður Tindastóls í leiknum og má segja að hann hafi haldið liðinu á floti í fyrri hálfleiknum. Þá léku Eyjólfur Sverrisson og Rúnar Björnsson vel. Bestir Þróttara voru þeir Marteinn Guðgeirsson og Magn- ús Jónsson þjálfari. íslandsmótið í knattspyrnu 4. deiid: Hvöt vann Svarfdæli - á Blönduósi 2:0 á laugardag Hvöt og Svarfdælingar áttust við á Blönduósvelli á laugar- daginn og var nokkur spenna í loftinu fyrir leikinn þar sem búist hafði verið við miklum baráttuleik. Hvöt vann hins vegar öruggan sigur sem hefði vel getað orðið stærri. f upphafi var leikurinn mjög ómarkviss af beggja hálfu, mikið um há spörk og kýlingar út í loftið en þegar frá leið lagaðist þetta nokkuð enda þótt slíkt skyti alltof oft upp kollinum í leiknum. Það var svo á áttundu mínútu fyrri hálfleiks sem Örn Gunnarson átti góða sendingu inn í teiginn þar sem Páll Leó Jónsson var og skallaði boltann í mark Svarf- dælinga, 1-0 fyrir Hvöt og þannig var staðan í leikhléi. Snemma í síðari hálfleik kom svo annað mark Hvatar sem Ásgeir Val- garðsson skoraði og fleiri urðu mörkin ekki. Það var greinilegt að Hvöt var allan tímann sterkari aðilinn í þessari viðureign og með örlítilli heppni hefðu mörkin hæglega getað orðið fleiri. T.d. munað ekki miklu að Hermanni Arasyni tækist að skora með gull- fallegri hjólhestaspyrnu en mark- maður Svarfdælinga fékk boltann beint í fangið og fleiri tækifæri mætti telja. Páll Leó hefur nú gert fjögur mörk fyrir Hvöt í tveim fyrstu leikjum liðsins í riðl- inum. i Lið Svarfdælinga var alls ekki nógu sannfærandi og miðað við þann árangur sem Garðar Jóns- son náði með lið Hvatar á síðustu tveim árum verður maður að búast við að hann eigi eftir að bætan leik þeirra töluvert þegar líður á sumarið. G.Kr. SL-mótið 1. deild: Mest um útisigra - í fyrstu umferðunum Það vekur nokkra athygtl þe*;- ar úrslitin í tveimur fyrstu umferðunum á SL mótinu 1. deild í knattspyrnu eru skoðuð að aðeins einu liði hefur tekist að vinna sigur á heimavelli. Þess ber þó að geta, að þegar þetta er skrifað er leik Vals og IBK á Hlíðarenda ólokið. Liðið sem unnið hefur sigur á heimavelli, er KR en liðið sigraði FH á föstudagskvöld með þrem- ur mörkum gegn engu og er með fullt hús eftir tvær umferðir. Völsungur tapaði heima fyrir ÍBK í 1. umferð en vann Þór á útivelli á föstudagskvöld. KA tapaði heima fyrir KR í 1. umferð en sigraði Víði í Garðin- um á föstudagskvöld. Þór sigraði Fram á Laugardalsvelli í 1. umferð en tapaði fyrir Völsungi heima um helgina. Fram tapaði fyrir Þór í Reykja- vík en vann ÍÁ á Skaganum á laugardaginn. ÍA vann FH í Hafnarfirði en tapaði heima fyrir Fram. ÍBK vann Völsung á Húsavík en á eftir Ieik við Val á Hlíðarenda. Valur gerði jafntefli í Garðinum en átti leik gegn ÍBK á Hlíðarenda í gærkvöld. Víðir gerði jafntefli við Val í 1. umferð en tapaði heima fyrir KA um helgina. FH er eina liðið sem enn hefur ekki fengið stig. Liðið tap- aði heima fyrir íA í 1. umferð og fyrir KR á KR-velli um helgina. Þegar leikirnir í 2. deild eru skoðaðir má sjá að heimavöllur liðanna reynist þeim mun happa- drýgri en liðanna í 1. deild til þessa. Um helgina unnust allir leikirnir fjórir sem leiknir voru á heimavelli í 2. deild. Sigurður G. Ringsted sigraði í fyrsta alvöru golfmótinu að Jaðri um helgina. Sigurður vann Björn Axelsson í bráðabana í keppninni án forgjafar á Lac- ostc-mótinu. Nánar verður sagt frá mótinu á morgun. Mynd: kk.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.