Dagur - 01.06.1987, Blaðsíða 7

Dagur - 01.06.1987, Blaðsíða 7
1. júní 1987 - DAGUR - 7 Bylgjan: 11 milljónir í hagnað Þriðji aðalfundur ísienska útvarpsfélagsins hf., var hald- inn í síðustu viku, sá fyrsti frá því að rekstur Bylgjunnar hófst. A fundinum kom fram að hagnaður af rekstri félags- ins fyrsta starfsárið var rúm- lega 11 milljónir króna. í hlutafjárútboði árið 1985 var reiknað með því að arðsemi hlutafjár yrði rúmlega 22% en á aðalfundinum kom fram að raun- ávöxtun eða arðsemi var 31%. Á aðalfundinum var samþykkt að greiða 10% arð fyrir síðasta ár. íslenska útvarpsfélagið undir- býr nú rekstur nýrrar útvarps- rásar og útsendingarsvæði Bylgjunnar verður stækkað von bráðar. í nýrri stjórn íslenska útvarps- félagsins hf., eiga sæti: Davíð Scheving Thorsteinsson, Hjörtur Örn Hjartarson, Jón Ólafsson, Sigurður Gísli Pálmason og Sveinn Grétar Jónsson. í varastjórn eiga sæti: Óskar Axel Óskarsson, Magnús Axels- son, Árni Möller og Kristján G. Kjartansson. Námskeið í slátmn Nokkur . undanfarin ár hafa verið haldin námskeið á vegum Búvörudeildar SÍS í slátrun, og er einu slíku námskeiði nú nýlega lokið. Leiðbeinendur á þessum námskeiðum hafa ver- ið erlendir slátrarar, sem hafa haft með höndum kennslu í iðngrein sinni erlendis. A námskeiðinu, sem nú var að ljúka, var kennd slátrun svína og stórgripa. Sá hluti námskeiðsins, sem fjallar um svínaslátrun, fór fram í sláturhúsi Kristins Sveins- sonar í Reykjavík, en nautgripa- slátrunin fór fram í stórgripaslát- urhúsi Kaupfélags Borgfirðinga, Borgarnesi. Þáttakendur voru 17 starfsmenn kaupfélaga víðs vegar að af landinu auk starfsmanna í sláturhúsi Kristins Sveinssonar. Námskeiðið stóð í fjóra daga, og var kennsla bæði verkleg og bókleg. Leiðbeinendur voru Peer Jansen (dani) og Sigurður Örn Hansson, dýralæknir og for- stöðumaður Rannsóknarstofu Búvörudeildar SÍS. Lufthansa: Beint flug í sumar til V.-Þýskalands Vestur-þýska llugfélagið Luft- hansa verður með beint flug frá Keflavík til Múnchen og Dusseldorf frá síðustu mán- aðamótum. Þar með er brotið blað í flugsamgöngum til íslands, því Lufthansa er fyrsta erlenda flugfélagið, sem stund- ar reglulegt flug til og frá land- inu. Lufthansa verður með reglu- legar ferðir einu sinni í viku. Brottför frá Flugstöð Leifs Ei- ríkssonar verður kl. 11.45 á sunnudögum beint til V.-Pýska- lands, og verður flogið á þessari leið til 6. sept. Lufthansa verður með þotu af gerðinni Boeing 737- 300 í þessum ferðum, og geta ferðamenn komist til margra mis- ntunandi áfangastaða í Mið-Evr- ópu sama daginn og flogið er frá íslandi. Að sögn forráðamanna Luft- hansa er ekki ástæða fyrir Flug- leioir að óttast samkeppnina, því með auknum samgöngum stækk- ar markaðurinn. EHB Tónleikar Passiukorsins i Vortónleikar Passíukórsins á Akureyri verða haldnir í Akur- eyrarkirkju, mánudaginn 1. júní kl. 20.30. Á efnisskrá eru þrjú verk sem flutt eru með kór, ein- söngvurum og hljóðfæraleikur- um. Þau eru Messa í A-dúr eftir César Franck, Kantata eftir G.P. Telemann og „Oh sing unto the Lord“, eftir G.F. Hándel. Verkin eru öll fyrir þríraddað- an kór; sópran, alt og bariton. Hljóðfæraleikarar koma bæði af Norðurlandi og úr Reykjavík. Meðal þeirra eru Oliver Kentish á celló, Úlrik Ólason á orgel og Monika Abendroth á hörpu, en hörpuleikur heyrist ekki oft hér á Akureyri. Einsöngvarar á tónleikunum verða þau Margrét Bóasdóttir, sópran, Þuríður Baldursdóttir, mezzosópran, Michael J. Clarke, tenór og Halldór Vilhelmsson, bassi. Þau hafa öll sungið með Passíukórnum áður. Passíukórinn er nú á sínu fimmtánda starfsári. Hann hefur frá upphafi einbeitt sér að flutn- ingi stærri kórverka og hefur yfir- leitt haldið tvenna tónleika á ári hverju. Roar Kvam hefur stjórn- að Passíukórnum frá stofnun hans. Akureyringar og nærsveita- menn eru hvattir til að láta ekki þessa tónleika fram hjá sér fara. Drepir þú tímann í bílnum meðþviaðlóta hugann reika... ...aukastlíkurnaró að þú diepir eitthvað annað! VAKNADU MADUR! Sofandaháttur við stýrið, almennt gáleysi og kæruleysi öku- manna eru langalgengustu orsakir umferðarslysa. Flest slysin, verstu óhöppin, mestu meiðslin og flest dauðsföllin verða þegar skilyrði til aksturs eru best, bjart, þurrt, auðir vegir o.s.frv. Þá slaka ökumenn á - og stefna sjálfum sér og öðrum vegfarend- um í stórkostlega hættu. Breytum þessu strax! (Niöurslaöa ur konnun Samvinnutrygginga á orsökum og afleiöingum umferöarslysa). SAMVINNU TRYGGINGAR -gegngáleysi

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.