Dagur - 01.06.1987, Blaðsíða 8

Dagur - 01.06.1987, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 1. júní 1987 íþróttic Hörður Benónýsson er hér í harðri baráttu við Árna Stefánsson í leik Þórs og Völsungs. Hörður skoraði sigurmark- ið fyrir VÖIsung. Mynd: RÞB SL-mótið 1. deild í knattspyrnu: Völsungar börðust til sigurs gegn Þór SL-mótið 1. deild í knattsp\ Góð barátta sigur KA á „Ég vissi að þetta yrði baráttu- leikur og er því mjög ánægður með þennan sigur. Það býr mikið í þessu liði og nú er bara að halda áfram og taka Skaga- menn næst,“ sagði Guðmund- ur Ólafsson kampakátur þjálf- ari Völsungs í knattspyrnu, eft- ir að lið hans hafði unnið verð- skuldaðan sigur á Þór á Akur- eyri síðastliðinn föstudag. Þar með náðu Völsungar í sín fyrstu stig í fyrstu deild SL- mótsins. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik, hann fór einkum fram á miðjunni og marktækifæri ekki mörg, Leikmenn beggja liða léku „fastan bolta" án óþarfa brota, en ekki var mikið um sam- leik. Völsungar fengu fyrsta mark- tækifærið snemma í leiknum þeg- ar Baldvin markvörður Þórs varði skot Harðar Benónýssonar í horn. Hlynur fékk síðan þrjú þokkaleg færi á að gera mark og einnig átti hann mjög gott skot utan úr teig en beint á Þorfinn í marki Völsungs. Þá átti Halldór gott skot sem „sleikti" stöngina við jörð. Það voru svo Völsungar sem fengu síðasta marktækifærið í fyrri hálfleik, þegar tíu sekúndur voru til hlés. Besti maður vallar- ins, Kristján Olgeirsson óð þá upp vinstri kantinn að endatnörk- um og sendi góðan bolta fyrir markið þar sem Hörður Benón- ýsson beið einn og óvaldaður við fjærstöng og skallaði af öryggi í markið, 0-1. Þetta mark kom á versta tíma fyrir Þórsara því úr þeim var allur vindur meðan Völsungar mættu tvíefldir leiks að nýju. Þeir áttu hreinlega seinni hálfleikinn ef frá eru taldar síðustu tíu mínútur leiksins þegar Þórsarar sóttu stíft án þess að þeim tækist að jafna. Halldór Áskelsson var þó tvívegis nærri því og einnig hefðu Kristján og Guðmundur Valur á sæmilegum degi nýtt þau færi sem þeir fengu. Völsungar fengu einnig sín færi og raunar virtist Kristján Olgeirsson geta stungið varnarmenn Þórs af þeg- ar honum sýndist. Þegar á leið færðist aukin harka í leikinn og leikmenn beggja liða sýndu af sér leiðinleg- an ruddaskap. Friðgeir Hall- grímsson hefði að ósekju mátt veita fleiri en tvö gul spjöld. „Þetta var baráttuleikur, nokkuð jafn og ég held að jafntefli hefðu verið sann- gjörnustu úrslitin. Um þetta víti vil ég sem minnst segja, ég var bara klaufi að skora ekki,“ sagði Hafsteinn Jakobsson leikmaður Leifturs, eftir að lið hans hafði tapað fyrir heima- mönnum 0:1 á Selfossi í gær í 2. deild Islandsmótsins í knatt- spyrnu. Hafsteinn misnotaði vítaspyrnu í seinni hálfleik, skaut í stöng. Leikurinn var nokkuð þóf- kenndur en nokkurt jafnræði var með liðunum. Jón Gunnar Bergs skoraði eina mark leiksins um miðjan fyrri hálfleik. Tekið var langt innkast og eftir að hafa haft betur í baráttu við Þorvald mark- Hafsteinn Jakobsson misnotaði vítaspyrnu á Selfossi. Völsungar börðust allir af krafti í þessum leik öfugt við Þórsara sem allir léku undir getu. „Þeir voru bara einfaldlega betri og léku þann fasta bolta sem við erum vanir," sagði Jóhannes Atlason þjálfari Þórs eftir leik- inn. ET vörð Leifturs, skallaði hann bolt- ann í markið. Hættulegasta færi norðanmanna í fyrri hálfleik, fékk Steinar Ingimundarson, hann komst í gegnum vörn Sel- fyssinga en skot hans fór í stöng- ina. Guðmundur Garðarsson varnarmaðurinn sterki í liði Leifturs þurfti að yfirgefa völlinn í fyrri hálfleik vegna meiðsla. í síðari hálfleik var sama jafn- ræðið með liðunum en lítið urn góð færi. Norðanmenn fengu Sigfried Held landsliösþjálfari íslands í knattspyrnu, tilkynnti í gær landsliðshópinn sem mætir A- Þjóðverjum í Evrópukeppni landsliða á Laugardalsvelli á miðvikudag- inn. Tveir breytingar eru á lið- inu frá viðureigninni við Frakka um daginn. Pétur Arn- þórsson úr Fram og Lárus Guðmundsson hjá Bayer Uer- dingen koma í stað þeirra Pét- ur Ormslev og Sigurðar Grét- arssonar sem eru meiddir. Leikurinn á miðvikudaginn er fimmta viðeign íslenska liðsins í Evrópukeppninni. Áður hafði liðið gert jafntefli við Frakka og Sovétmenn hér heima en tapað fyrir Frökkum og A-Þjóðverjum Það er ekki oft sem lið úr 1. deildinni í knattspyrnu flá feit- an gölt úr viðureignum sínum við Víði, þegar leikið er á Garðsvelíi. Þetta gerðu þó nýliðarnir úr KA á föstudags- kvöldið, sigruðu heimamenn frekar óvænt með einu marki gegn engu. Alls ekki óverð- skuldað, þó svo Víðismenn hafi verið atgangsharðari fram- an af. Varla verður sagt að leikurinn hafl verið vel leikinn, hann einkenndist fremur af mikilli baráttu og leikið var fast en þó ekki gróft. Fyrri hálfleikinn voru Víðis- menn mun atkvæðameiri og áttu sín hættulegu færi. Á 24. mín. átti Guðjón Guðmundsson skot á markið frá vítateigslínu en Hauk- ur bjargaði vel í horn. Sex mín. síðar skall hurð mjög nærri hæl- um upp við mark KA. Eftir fyrir- gjöf kom þrumuskalli á markið en Haukur varði meistaralega. Boltinn hrökk út, þaðan skot á markið, KA bjargaði á línu og upp úr því skallað naumlega framhjá. Þegar mínúta lifði af hálfleiknum fengu norðanmenn sitt fyrsta færi í Ieiknum og það ekki af verri endanum. Tryggva tókst að smeygja sér í gegnum vörn Víðis, Gísli markvörður varði skot hans, Tryggvi fékk boltann aftur og skaut en nú í stöng og út. Þar kom Hinrik aðvífandi og spyrnti yfir opið gullið tækifæri til þess að jafna í hálfleiknum, er dæmd var víta- spyrna á einn varnarmanna Sel- fyssinga fyrir að handleika knött- inn á markteig. En skot Hafsteins fór í stöngina eins og áður er get- ið og úrslitin því 1:0 fyrir heima- menn. Ólafur Björnsson bakvörður Leifturs, fékk að líta rauða spjaldið eftir orðaskak við annan línuvörðinn. Ólafur var þá kom- inn af leikvelli og sat í vara- mannaskýlinu. á útivelli. íslenski hópurinn þannig út: Markverðir: Bjarni Sigurðsson Brann Friðrik Friðriksson Fram Aðrir leikmenn: Ágúst Már Jónsson KR Arnór Guðjohnsen Anderlecht Ásgeir Sigurvinsson Stuttgart Atli Eðvaldsson B.Uerdingen Guðni Bergsson Val Lárus Guðmundsson B.Uerdingen Gunnar Gíslason Moss Pétur Arnþórsson Frarn Pétur Pétursson KR Ragnar Margeirsson Waterschei Sigurður Jónsson Sheff.Wed. Sævar Jónsson Val Viðar Þorkelsson Fram markið af markteigshorni. Fyrri hálfleikur var því markalaus. Síðari hálfleikur var lengst af fremur tíðindalítill. Á 63. mín. voru Víðismenn þó nærri því að skora er Björgvin Björgvinsson skallaði hárfínt framhjá eftir fyrirgjöf frá hægri. Nú fór KA að láta meira að sér kveða og á 67. mín. var Þorvaldur Örlygsson nærri því að skora en hitti ekki boltann í ágætu færi við markið. Á 75. mín. kom síðan sigurmark- ið. Gauti Laxdal tók hornspyrnu, gaf vel fyrir og Tryggvi skallaði óvaldaður í net heimamanna við fádæma fögnuð samherja. Síð- asta korterið lögðust svo norðan- Akureyringar voru fremur atkvæðamiklir á Islandsmótinu í ólympískum lyftingum sem fram í Armannsheimilinu í gær. íslandsmeistaratitlarnir utðu fjórir en alls unnust 11 guk neningar. Veitt voru verð- laun fyrir hvora grein fyrir sig og auk þess í samanlögðu. í 52 kg flokki sigraði hinn kornungi Aðalsteinn Jóhannes- son úr ÍBA. Hann lyfti 25 kg í Lyftingastrákarnir úr ÍBA komu hein gullverðlaun úr íslandsmótinu. íslandsmótið í knattspyrnu 2. deild: Naumt tap Leifturs á Selfossi ísland - A.-Þýskaland: Hópurinn valinn

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.