Dagur - 01.06.1987, Qupperneq 5
1. júní 1987-DAGUR-5
nú fullfrískur. Þetta hljómar
ótrúlega, en staðreyndin er sú að
barn hefur sömu mótefni og
móðirin fyrstu 9 mánuði ævinnar,
en myndar síðan eigin mótefni.
Börn eyðnisjúklinga geta því
annað hvort fengi eyðni eða orð-
ið frísk þegar þau mynda sjálf
mótefni. Þetta eru niðurstöður
nýjustu rannsókna.
Gerda og Erich höfðu reynt að
eignast barn í 12 ár. Gerda hafði
gengist undir þrjár aðgerðir til að
reyna að verða ófrísk en ekkert
gekk. Fyrir 4 árum sóttu þau um
barn á ættleiðingarskrifstofu. Það
var fyrir tilviljun að þau horfðu á
sjónvarpsþáttinn þar sem móðir
Rudis kom fram. Hún sagðist
eiga erfitt með að láta hann frá
sér en það væri eina von hans til
að lifa.
Það voru alls 33 hjón sem sóttu
um að fá Rudi, það voru því ekki
aðeins Gerda og Erich sem höfðu
fallið fyrir brosinu hans. Þann 1.
september fengu þau svo að vita
að þau fengju Rudi. Daginn eftir
fóru þau á barnadeildina í Linz
og fengu að halda á Rudi í fyrsta
sinn. Gerda fær tár í augun þegar
hún minnist þessa dags. Þann 6.
september fengu þau svo að fara
með Rudi heim og hamingjan var
fullkomin.
Nýtt Flugleiðaumbóð
Umboðsmaður okkar á Grenivík er Haukur
Ingólfsson, Túngötu 23, sími 33202.
FLUGLEIDIR
Gott fólkhjá traustu félagi
Þær Hjördís og Anna María, Lyngholti 18 og Eva Hrönn og Katrín, Litlu-
hlíð 6, héldu hlutaveltu um daginn og rann ágóðinn, 1000 kr., til styrktar
Barnadeildar F.S.A. Kærar þakkir.
Tómas Jónsson met-
sölubók komin út á ný
Bókaútgáfan Forlagið hefur sent
frá sér skáldsögu Guðbergs
Bergssonar, Tómas Jónsson
metsölubók. Þetta er endurútgáfa
sögunnar sem kom fyrst út haust-
ið 1966. Hún seldist þá upp á
örskömmum tíma og hefur síðan
verið ófáanleg.
Tómas Jónsson metsölubók
vakti bæði úlfúð og aðdáun þegar
hún kom fyrst út, segir í frétta-
tilkynningu frá Forlaginu. Menn
skiptust í flokka, með eða á móti
skáldverkinu, og margir sökuðu
höfundinn um niðurrifsstarfsemi.
Þar örlaði hvergi á „heilbrigðu
mótvægi við sorann“. En aðrir
tóku Tómasi Jónssyni afburða-
vel og spáðu nýjum tímum í
íslenskum bókmenntum.
Ólafur Jónsson, sem þá var
einn ágætasti gagnrýnandi hér á
landi, líkti sögunni m.a. við
kraumandi seiðketil, „þar sem
nýtt efni, nýr stíll kann að vera á
seyði. Fátt er líklegra en að sagan
verði þegar frá líður talin tíma-
skiptaverk f bókmenntaheim-
inum: Fyrsta virkilega nútíma-
sagan á íslensku." Skáldið og
gagnrýnandinn Sigfús Daðason
sagði: „Guðbergur Bergsson hef-
ur í ritum sínum brotið nýjum
veruleika braut inn í íslenskar
bókmenntir, auðgað þær af nýrri
tóntegund.“
Guðbergur Bergsson ritar for-
mála að endurútgáfu sögunnar
þar sem hann lýsir viðhorfum sín-
um til íslenskrar menningar og
íslenskra bókmennta á þeim tíma
sem hann samdi söguna og rekur
þar hvernig hugur hans stefndi að
því að „skapa táknmynd hinna
trénuðu afla í þjóðfélagsgarð-
inum, skapa mann af hinni títt
umræddu „aldamótakynslóð".
Hún hafði áður verið frjótt
hreyfiafl, einkum íslensks sjálf-
stæðis, en var nú orðin voðalegur
dragbítur á öllum framförum.
Kynslóðin var jafnvel orðin ógn
við sjálfstæðið sem hún barðist
fyrir,“ segir Guðbergur m.a. í
formála sínum.
Aðalfundur
Dagsprents M.
verður haldinn fimmtudaginn 18. júní kl. 16.00 að
Strandgötu 31.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Stjórnin.
Atvinna
Getum bætt við nokkrum
starfsmönnum
á kvöldvakt og næturvakt
í Skinnaiðnaði.
Sumarvinna kemur til greina.
Bónusvinna.
Upplýsingar hjá starfsmannastjórá.
IDNAÐARDEILD
S? SAMBANDSINS
GLERÁRGÖTU 28 AKUREYRI SÍMI (96)21900
Gámurinn góði sem fangarnir verða ekki geymdir í heldur hráefni til brauð-
gerðar á Siglufirði.
Óróaseggir „gámaðir"
á Siglufirði?
Því hefur verið haldið á lofti á
Siglufírði að undanförnu, að
það neyðarástand sem ríkt hef-
ur hjá lögreglunni á staönum
með fangageymslur hafi nú
verið leyst til bráðabirgða.
Það var fyrir nokkru þegar
gámi var komið fyrir norðan við
húsvegg lögreglustöðvarinnar,
sem þessi orðrómur fékk fljót-
lega vængi, og fannst mörgum
þetta bara þokkaleg lausn að
„gáma“ óróaseggina meðan
mesti móðurinn rynni af þeim. En
hið rétta er að enn situr við sama
með fangageymslumál á Siglu-
firði. Að sögn Ólafs Jóhannsson-
ar lögregluþjóns nú fvrir helgina,
voru dælurnar á fullu að dæla
vatni úr fangageymslunum, en
fangaklefarnir eru innsiglaðar, að
undanskildum einum sem notað-
ur er í neyðartilfellum. Til stend-
ur að í sumar verði hafist handa
við byggingu húss fyrir lögregl-
una og bæjarfógetaembættið á
Siglufirði og er það heitasta ósk
lögreglunnar að hægt verði að
taka nýja lögreglustöð ásamt
fangaklefum fljótlega í notkun.
Því eins og ástandið er nú geta
lögreglumenn þar þurft að sitja
næturlangt yfir mönnum við að
róa þá, verði menn á annaðborð
vitlausir.
Um gáminn er það að segja, að
hann er þarna tilkominn vegna
bakarísins sem er til húsa í
grennd við lögreglustöðina. í
honum voru flutt hráefni til
brauðgerðar. -þá
Kvikmyndaleikur
íbúar Húsavik, Mývatnssveit
ocj nágrenni
Okkur vantar fólk í hópatriði
í kvikmyndina
„I skugga hrafnsins“
Þeir sem hafa áhuga á að vera með og
sjá hvernig kvikmyndataka fer fram
eru vinsamlegast beðnir um að koma á
Hótel Reynihlíð, mánudaginn 1. júní kl. 18.00
eða á Hótel Húsavík kl. 21.00 sama dag.
Þá verður málið skýrt nánar.
Cinema Art Productions
F.I.L.M.