Dagur - 01.06.1987, Blaðsíða 12
12-DAGUR-1. júní 1987
r
Öllum þeim er minntust sextugsafmælis míns
þann 20. maí sl., með kveðjum, heillaóskum
og gjöfum, færi ég alúðarþakkir.
Heill og hamingja fylgi ykkur.
STEFÁN Á HLÖÐUM.
J
Menntaskólinn
á Egilsstöðum
Skólinn býður upp á nám
á eftirtöldum brautum:
Tveggja ára brautir:
Heilsugæslubraut.
Uppeldisbraut.
Viðskiptabraut.
Þjálfunarbraut.
Fjögurra ára brautir:
Eðlisfræðibraut.
Félagsfræðabraut.
Hagfræðabraut.
Náttúrufræðibraut.
Tæknibraut.
Fyrsta flokkst aðbúnaður á heimavist.
Mötuneyti fyrir alia sem þess óska.
Umsóknarfrestur er til 5. júní.
Skólameistari.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Lækjargata 3, e.h., Akureyri, þingl. eigandi
Ragnheiður Pálsdóttir, fer fram í dómsal embættisins Hafnar-
stræti 107, 3. hæð, Akureyri, föstudaginn 5. júní kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur eru: Róbert Árni Hreiðarsson hdl. og Veð-
deild Landsbanka Islands.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Seljahlíð 9a, Akureyri, þingl. eigandi Guðmund-
ur Stefánsson, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti
107, 3. hæð, Akureyri, föstudaginn 5. júní kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Ólafur Gústafsson hrl., Verslunar-
banki (slands og Veðdeild Landsbanka íslands.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Grundargerði 5a, Akureyri, þingl. eigandi Guðni
Jónsson, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3.
hæð, Akureyri, föstudaginn 5. júní kl. 14.45.
Uppboðsbeiðandi er innheimtumaður ríkissjóðs.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Brekkugötu 27, Akureyri, þingl. eigandi Björn
Arason, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3.
hæð, Akureyri, föstudaginn 5. júní kl 14.30.
Uppboðsbeiðandi er Ólafur Gústafsson hrl.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nýútskrifaðir búfræðingar fyrir framan dómkirkjuna á Hólum að loknum skólaslitum. Mynd: Haukur Hafstað
Góður námsárangur
við Hólaskóla
Bændaskólanum á Hólum var
slitið 14. maí við hátíðlega
athöfn í Hóladómkirkju. Séra
Sigurður Guðmundsson vígslu-
biskup flutti hugvekju og
blessunarorð, kirkjukór Hóla-
kirkju söng við undirleik
Rögnvaldar Valbergssonar og
landbúnaðarráðherra, Jón
Helgason, flutti ávarp og árn-
aði nýbúfræðingum heilla.
Fjölmenni var við athöfnina. í
vetur stunduðu 52 nemendur
nám við skólann og luku 25
brottfararprófi í vor, 14 piltar
og 11 stúlkur. 9 voru á fiskeld-
isbraut og 16 á almennri braut.
Námsárangur þeirra var mjög
góður og hlutu 17 fyrstu eink-
unn. Hæstu einkunn hlutu Sig-
ríður Bjarnadóttir frá Eyhild-
arholti og Þórarinn Leifsson
Keldudal, Skagafirði, ágætis-
einkunnina 9,3. Hlutu þau
sérstaka viðurkenningu fyrir
góðan námsárangur, bóka-
verðlaun frá Búnaðarfélagi
íslands.
Næst kom Efemenía F. Val-
geirsdóttir Daufá, Skag. 8,9, þá
Birna M. Sigurbjörnsdóttir Lang-
húsum Skag. 8,8, Eyrún Anna
Sigurðardóttir Flugumýri 8,8,
Brynjar Skúlason Lynghóli
Skriðdal 8,8, Gylfi Halldórsson
Stóru-Seylu Skag. 8,7 og Elín-
borg L. Ólafsdóttir Reykjavík
8,5. Stéttarsamband bænda veitti
viðurkenningu fyrir bestan
námsárangur í bústjórnargrein-
um og hlaut þau Eyrún Anna Sig-
urðardóttir. Einnig hlaut hún
viðurkenningu frá Hrossaræktun-
arsambandi Skagfirðinga fyrir
bestan árangur í hrossarækt.
Viðurkenningu frá Sambandi
íslenskra loðdýraræktenda fyrir
bestan árangur í loðdýrarækt
hlaut Brynjar Skúlason. Frá
Landssambandi veiðifélaga fyrir
bestan árangur í fiskræktargrein-
um og einnig frá Hólalaxi hf. fyr-
ir bestan árangur í fiskeldisgrein-
um, Elínborg M. Ólafsdóttir. Frá
Skógrækt ríkisins fyrir árangur í
skógrækt Friðborg M. Elísdóttir
Egilsstöðum. Iceland Review
veitti viðurkenningu fyrir bestan
árangur í ensku og hana hlaut Jó-
hann Hafsteinsson Akranesi.
Umgengnisverðlaun hlaut Ingi-
björg Reynisdóttir Hríshóli A,-
Barð. Að lokinni skólaslita-
athöfninni í kirkjunni þáðu gestir
veitingar í boði skólans.
Að sögn Jóns Bjarnasonar
skólastjóra var tekið inn í skól-
ann í tvennu lagi á fyrra námsári.
Nemar á fiskeldisbraut komu í
skólann í september og fóru í
verknám í fiskeldisstöðvar í
janúar. Nemendur á almennri
búfræðibraut komu í janúar og
fóru í verknám í apríllok. Á fyrra
námsári eru nú 15 á fiskeldis-
braut og 11 á almennri braut.
Kennsla og skólastarfið gekk vel
og með hefðbundnum hætti.
Fræðsla í fiskeldi og fiskrækt hef-
ur nú tekið svip markviss starfs-
náms og er verulega sjálfstætt
nám innan skólans. Gott sam-
starf er við fiskeldisstöðvarnar
um verkþjálfun og nemendur
virtir starfskraftar að námi loknu.
í marsmánuði voru fluttar út vör-
ur fyrir 4.666 millj. kr. en inn fyr-
ir 4.369 millj. kr. fob. Vöru-
skiptajöfnuðurinn í mars var því
hagstæður um 297 millj. kr. en í
mars í fyrra var vöruskiptajöfn-
uðurinn óhagstæður um 44 millj.
kr. á sama gengi.
Fyrstu þrjá mánuði þessa árs
voru fluttar út vörur fyrir 9.750
millj. kr. en inn fyrir 11.003 millj.
kr. fob. Vöruskiptajöfnuðurinn
var á þessum tíma óhagstæður
um 1.253 millj. kr. en á sama
tíma í fyrra var hann hagstæður
um 441 millj. kr. á sama gengi.
Fyrstu þrjá mánuði þessa árs
var verðmæti vöruútflutningsins
7% meira á föstu gengi en á sama
tíma í fyrra*). Sjávarafurðir voru
um 75% alls útflutningsins og
voru 9% meiri að verðmæti en á
sama tíma í fyrra. Útflutningur á
áli var 30% meiri, en útflutningur
kísiljárns var 20% minni en á
Á almennri búfræðibraut hefur
valgreinin hrossarækt verið
stækkuð til muna og er nú veitt
ítarleg bókleg kennsla og verkleg
í tamningum, hrossadómum,
járningum og hirðingu hrossa. f
loðdýraræktinni eru nemendum,
auk bóklegu kennslunnar,
kenndir allir helstu verkþættir í
hirðingu loðdýra ásamt skinna-
verkun. Kennslan í nautgripa-
rækt og sauðfjárrækt er með
hefðbundnum hætti. Þá var
kennd valgrein f skógrækt og til
nýbreytni var boðið upp á áfanga
í ensku, landbúnaðar- og fiskeld-
isensku. Talsvert var um nám-
skeiðahald í vetur á vegum
skólans, einkum í loðdýrarækt og
varðandi hross og hestamennsku.
Gert hefur verið átak í að sníða
kennsluna sem best að þörfum
atvinnuveganna og síbreytilegum
kröfum. -þá
sama tíma í fyrra. Útflutnings-
verðmæti annarrar vöru var 11%
minna fyrstu þrjá mánuði þessa
árs en á sama tíma í fyrra reiknað
á föstu gengi.
Verðmæti vöruinnflutningsins
fyrstu þrjá mánuði ársins var
27% meira en á sama tíma í
fyrra. Innflutningur til álverk-
smiðjunnar var miklum mun
rneiri en í fyrra, en hins vegar var
olíuinnflutningur sem kemur á
skýrslur fyrstu þrjá mánuði ársins
mun minni en í fyrra. Innflutn-
ingur til stjóriðju og olíuinnflutn-
ingur ásamt innflutningi skipa og
flugvéla er jafnan breytilegur frá
einu tímabili til annars. Séu þess-
ir liðir frátaldir reynist annar inn-
flutningur (85% af heildinni)
hafa orðið um 40% meiri en í
fyrra, reiknað á föstu gengi*).
*) Miðaö er við meðalgengi á viðskiptavog; á
þann mælikvarða er verð erlends gjaldeyris talið
vera 5,3% hærra í janúar-mars 1987 en á sama
tíma árið áður.
Vöruskiptajöfnuður við útlönd:
Óhagstæður um 1.253
milljónir króna
- fyrstu þrjá mánuði ársins