Dagur


Dagur - 03.06.1987, Qupperneq 7

Dagur - 03.06.1987, Qupperneq 7
3. júní 1987 - DAGUR - 7 Sigrún Proppé listmeðferðarfræðingur: Það kostar hugrekki að spyma við fótum Frá námsstefnu um sorg og sorgar- viðbrögð í Glerárkirkju. Séra Sig- finnur Þorleifsson sjúkrahúsprestur er í ræðustól. Sigrún Proppé listmeðferðar- fræðingur talaði um þýðingu list- meðferðar fyrir dauðvona sjúkl- inga. Arttherapy sem kallað er list eða myndmeðferð á íslensku er sálhringaaðferð sem notuð er markvisst til finna skapandi þörf- um sjúklinga farveg. Sigrún sagði að mannleg sam- skipti í vestrænum þjóðfélögum byggðust upp á orðræðu. Sá sem ekki hefur orðið hefur litla mögu- leika á að komast áfram í lífinu. Ofuráhersla hefur verið lögð á vitræna hugsun, sagði Sigrún, en hins vegar upplifðum við heiminn með skynjun. f skóla er okkur kennt að aðskilja tilfinningar og vitsmuni og sá er það gerir ekki finnur fyrir vanmætti og efast um eigin getu. Hið talaða orð er eina líflína okkar við heiminn, sagði Sigrún. Hún sagði einnig að allir upplifðu einhvern tíma á ævinni að vera í andlegu ójafnvægi og þá fyndum við að vitræn rökhugsun dugir ekki. Orðin ná ekki yfir þá ólgu sem býr innra með okkur, þegar mönnum er kippt upp með rótum og þeir viti ekki hvernig ná eigi fótfestu aftur. Húri sagði að einstaklingar gætu losað um spennu og leyst sín persónulegu vandamál með hjálp ímyndunar- aflsins, með því að skapa eitt- hvað. Það kostaði hugrekki að spyrna við fótum og gera eitthvað sem aðrir hafa ekki vænst. Fólk þyrfti að gefa sjálfu sér aukið vaxtarrými og nota hæfileikann til að njóta lífsins. Sársauki stöðugt ný reynsla í myndmeðferð er eigandi mynd- ar örvaður til að tjá sig um mynd- ina sem hann hefur verið að gera. Hún sagði að áhugi og löngun til að skapa væri það eina sem kraf- ist væri, en ekki sérstakra hæfi- leika. Þetta væri góð aðferð til að nálgast einstaklinginn, því oft tæki langan tíma að nálgast ein- staklinga t.d. með óleyst sorgar- viðbrögð með orðum. í mynd- máli er hægt að tjá tilfinningar, hvatir og langanir. Með umræð- um um myndirnar eru brot og brotabrot tengd saman í eina heild og eftir einhvern tíma styrkist sjálfsímynd sjúklings. Sársauki er stöðugt ný reynsla fyrir einstaklinginn, en hvers- dagsleg fyrir umhverfið. Dauð- vona sjúklingar stendur vanmátt- ugur gegn þeim öflum sem honum eru ofviða. Örvæntingin og ang- istin er honum oft ofviða, menn fyllast söknuði yfir langþráðum óskum sem aldrei eiga eftir að rætast. Sigrún nefndi krabba- meinssjúklinga sem lifðu í stöð- ugri þjáningu og hversu gott það væri fyrir þá ef einhver skildi til- finningar þeirra. Menn vildu hins vegar oft loka augunum fyrir sársaukanum, það væri erfitt að setja sig inn í veruleika dauðvona sjúklings. Sigrún sagði myndmeðferð geta hjálpað dauðvona sjúkling- um að nýta þann tima sem eftir er sem best. Lykilorðið væri von, hversu stutt sem lífið ætti eftir að verða þyrfti fólk að byggja til- finningar sínar upp á nýtt. Fólk þyrfti að uppgötva sjálft sig og nýjar aðstæður til að geta barist við sjúkdóm sinn. Afstaða til eig- in lífs skiptir miklu máli og það að mæta lífskreppu sinni á skap- andi hátt gæti aðstoðað marga við að byggja sjálfa sig upp. Sjá næstu síðu. fleira. Margir eru hræddir við að vera einir, aðrir kæra sig ekki um að umgangast annað fólk. Marga dreyrnir hinn látna og sumir heimsækja staði eða geyma hluti sem honum tilheyrðu. Lífíð mótað af missi Páll nefndi að fólk upplifði sorg- ina á mismunandi hátt eftir því hvernig dauðann hafi borið að og eftir eðli og styrkleika tengsl- anna. Hann sagði að það væri oft óbærilegt fyrir þá sem horft hefðu á eftir nánum ástvinum falla fyrir eigin hendi. Fólk sæti uppi með tvíbentar tilfinningar og gerði því oft erfitt um vik að vinna sig út úr sorginni. Flestir sitja upp með mjög sterka sektar- kennd og eru sífellt að velta því fyrir sér hvort eitthvað hefði ver- ið hægt að gera. Sagði Páll að sú líking hefði verið sett fram að sá er sjálfsvíg fremdi skildi beina- grind sína eftir inni í skáp hjá hinum eftirlifandi. Reiði er mjög áberandi hjá aðstandendum þeirra sem fremja sjálfsvíg, reiði sem beinist gegn þeim sjálfum. Ótti um að þeir muni einnig gera slíkt hið sama kemur einnig fram hjá mörgum, sérstaklega sagði hann að slíkt kæmi fram hjá son- um feðra sem framið hefðu sjálfsvíg. Við fósturlát, fóstureyðingu og skilnað sagði Páll, að við svipuð sorgarviðbrögð væri að etja og við fráfall nákomins ættingja eða vinar. Hann sagði að skilnaður væri í mörgum tilfellum enn sárs- aukafyllri en dauði og margir festust í sorg sinni, gætu ekki unnið sig úr vandanum. í lok framsögu sinnar sagði Páll, að líf okkar allra væri mótað af missi, við þyrftum alltaf að missa eitthvað til að komast áfram. Hvernig okkur tekst að komast áfram í lífinu fer eftir því hvernig við höndlum þennan missi. „Aðeins fólk sem forðast ást getur forðast sorg,“ sagði Páll Eiríksson geðlæknir að lokum. Þrettánhundruð fjörutíu og einu sinni.„TXKK” Q S 5 Landsbankinn hefur ríka ástæðu til þess að þakka krökkum um allt land fyrir framúrskarandi áhuga og þátttöku í Landsbankahlaupinu 1987,16. maí síðast liðinn. Alls voru þátttakendur 1341, allir fæddir árin 1974 - 1977. Fjölmargir unnu til verðlauna, sumir settu persónuleg met, aðrir kepptu í hlaupi í fyrsta skipti á ævinni og þó nokkrir urðu Kjörbók með dálítilli innstæðu ríkari. En allir stóðu sig með mestu prýði. Við þökkum öllum þátttökuna og FRÍ fyrir samstarfið um framkvæmdina. Vonandi sjáumst viö _ l~nflqhanki sem flest að ári LdllUbUdimi í Landsbankahlaupi 1988. Islands M Æ Banki allra landsmanna

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.