Dagur - 10.08.1987, Blaðsíða 1
Innflutningur notaðra bíla:
Hægt að græða hundmð
þúsunda á hverjum bíl
- ekki ryðvarðir samkvæmt íslenskum kröfum
Innflutningur notaðra bifreiða
til landsins virðist vera gífur-
legur um þessar mundir. Sam-
kvæmt þeim upplýsingum sem
Nýr slökkvi-
bíllá
Hofsós
- eykur öryggi okkar
verulega, segir
sveitarstjórinn
Hofsósbúar eru að fá nýjan
slökkvibíl sem keyptur var af
álverinu í Straumsvík. Bfllinn
er nú á Sauðárkróki þar sem
verið er að yfírfara hann.
Verið er að byggja aðstöðuhús
undir slökkvilið, sjúkrabíl og
björgunarsveit um 210 fermetra
að stærð. Um er að ræða við-
byggingu við hús sem brunavarn-
ir Skagfirðinga hafa haft undir
sína starfsemi.
Fyrir eru á Hofsósi tveir
slökkvibílar, dælubíll og tankbíll.
„Þegar nýi bílinn kemur eykur
það öryggi okkar verulega,“
sagði Ófeigur Gestsson sveitar-
stjóri, en hann sagði bílinn mjög
öflugan.
Brunavarnir Skagafjarðar ná
yfir allt héraðið og er aðalaðsetur
þeirra á Sauðárkróki. Útibú er á
Hofsósi og í Varmahlíð. mþþ
Dagur hefur aflað sér, eru það
nær eingöngu einstaklingar
sem stunda þennan innflutning
og þá í hjáverkum. Sumir
flytja inn í smáum stfl, og
græða e.t.v. ekki mikið, en til
eru menn sem hafa flutt inn
allt að 50 bifreiðir á þessu ári
og geta þeir, ef þeir eru séðir,
grætt frá 100-300 þúsund fyrir
hvern bfl.
Hjá skipadeild Sambandsins
og Eimskipafélagi íslands fengust
þær upplýsingar, að innflutningur
sem þessi hafi stóraukist frá því á
síðasta hausti. Það eru að sögn
nær eingöngu einstaklingar, flest-
ir frá Keflavík, sem stunda þetta
en Dagur hefur heimildir fyrir
því að „stórir" aðilar séu í þessum
viðskiptum á Akureyri. Einn
slíkur sem að vísu hefur stundað
þennan innflutning í fjölmörg ár,
hefur á þessu ári selt á bilinu 40-
50 bíla á Akureyri.
Heimildamenn Dags segja að
mikil alda innflutnings af þessu
tagi hafi riðið yfir á þessu ári.
Flestir eru smáir og flytja inn 1-5
bíla t.d. um leið og þeir koma úr
sumarfríum. Nefnd voru dæmi
um að einn aðili hafi selt þrjá
meðalstóra fólksbíla, og fengið
um 15-20 þúsund í gróða fyrir
hvern bíl. Þetta er ekki nema rétt
fyrir ferðakostnaði og tæplega
ómaksins vert.
Ef viðkomandi kaupir hins
vegar bifreið af dýrari gerð gæti
hann hugsanlega grætt einhver
Miklar hafnarfram-
kvæmdir á Siglufirði
- Fyllt upp í stórt svæði og byggður
flóðvarnagarður- Byrjað að dýpka í haust
Töluverðar framkvæmdir eru
nú í gangi við höfnina á Siglu-
firði. Verið er að fylla upp á
norðanverðri eyrinni og búa til
land fyrir olíufélögin sem
hyggjast setja þar upp olíu-
tanka. Þá munu dýpkunar-
framkvæmdir hefjast við höfn-
ina í september.
Að sögn Sveins Björnssonar,
formanns hafnarnefndar á Siglu-
firði, hófst uppfyllingin fyrir ein-
um mánuði og hefur gengið mjög
vel en meiningin er að fylla upp í
gríðarstórt svæði í framtíðinni og
er nú verið að vinna að fyrsta
áfanganum. Pá er einnig verið
setja upp flóðvarnagarð á eyrinni
til að hindra að brimið gangi inn
á hana, en þar eru iðnaðarfyrir-
tæki sem sjór hefur gengið yfir á
veturna. 8 milljónir fengust á
fjárlögum þessa árs til þessara
verkefna.
Sveinn sagði að nýstofnað
dýpkunarfélag nokkurra Siglfirð-
inga og Reykvíkinga væri um
þessar mundir að fá dýpkunar-
skip til landsins og það væri „eins
og að fá jólagjöf eða vinna í
happdrætti," eins og hann orðaði
það. Fyrsta verkefni þessa skips
verður á Raufarhöfn, þaðan fara
þeir til Pórshafnar og frá Þórs-
höfn fara þeir til Siglufjarðar og
byrja að dýpka þar seint í sept-
ember. Verða teknir 30 þúsund
rúmmetrar til að byrja með.
Sagði Sveinn að tilgangurinn með
þessum framkvæmdum væri að
búa til aðstöðu fyrir loðnuskip
meðan sjómennirnir væru í helg-
arfríum. Hingað til hefur þurft að
geyma þau á Akureyri við mis-
jafnar aðstæður. JHB
hundruð þúsunda, en á móti
kemur að erfit er að selja slíka
bíla. Innkaupsverð á þessum
bílum mun geta verið hlægilega
lágt, þ.e. ef menn eru í réttum
samböndum og kaupa í einhverju
magni. Pá eru tollar sem borga
þarf þegar til iandsins er komið
lágir. Svo viðskiptin borgi sig,
þarf viðkomandi greinilega að
vera vel inni í öllum hliðum
málsins.
Á Akureyri er á flestum bíla-
sölum þó nokkuð um notaða inn-
flutta bíla á söluskrá, og gengur
víst heldur betur að selja þá en
aðra. Ástæðan mun vera sú að
þeir líta betur út, t.d. er lakkið
betra því þeim hefur eingöngu
verið ekið á malbiki. Hins vegar
eru þessu bílar í flestum tilfellum
ekki ryðvarðir eins og allir bílar
sem fluttir eru nýjir til landsins,
en að sögn heimilda, „pælir“ fólk
ekkert í því. VG
Fjöldi seglbáta hefur heimsótt Akureyri í sumar, en hér sést
Seyðisfirði renna inn fyrir Oddeyrartanga í gær.
„Skúta“ frá
Mynd: RÞB
Landbúnaðarsýning BÚ ’87:
Tvö fyrírtæki frá Akureyrí
sýna framleiðslu sína
Landbúnaðarsýningin BÚ 87
hefst í nýju Reiðhöllinni í Víði-
dal næstkomandi föstudag.
Sýningin stendur yfír í 10 daga,
lýkur þann 23. ágúst. Fjölmörg
fyrirtæki munu kynna fram-
leiðslu sína á sýningunni, þar á
meðal tvö fyrirtæki á Akureyri
en það eru ístess og Kjötiðn-
aðarstöð KEA.
Guðmundur Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri ístess sagði að
fyrirtækið yrði með kynningu á
fóðurvörum sínum, bæði til loð-
dýraræktunar og fiskeldis. Einnig
verða sýnd tæki á sýningunni sem
ístess hefur umboð fyrir, en um
er að ræða ýmis tæki sem notuð
eru við fóðrun á þurrfóðri því
sem fstess framleiðir. Guðmund-
ur sagði að ekki væri endanlega
ljóst hver kostnaður vegna þessa
væri en sennilega væri hann
nálægt 200 þúsund krónum.
Kjötiðnaðarstöð KEA mun
sýna allar framleiðsluvörur sínar,
þar á meðal hangikjöt, 11 teg-
undir af niðursuðuvörum auk
fjölbreytts úrvals af áleggi. Helgi
Sigfússon, markaðsstjóri KEA
sagði að básinn kæmi til með að
heita Kaupfélag Eyfirðinga og
auk kjötiðanaðarstöðvarinnar
sýnir fyrirtæki Akva sf. vörur sín-
ar í honum. Básinn er hannaður
af útstillingadeild KEA og að
lokinni landbúnaðarsýningunni
verður hann tekinn niður og
fluttur til Akureyrar þar sem
hann verður settur upp á Iðnsýn-
ingunni sem haldin verður í lok
ágústmánaðar. Helgi sagði að 4-5
starfsmenn kæmu til með að sjá
um básinn sýningardagana en
kostnað við þessa þátttöku taldi
hann verða á bilinu 400-500
þúsund. JÓH
Forráðamenn Samvers hf. á Akureyri:
Hugleiða kaup á
sjónvarpsbíl
- Kaupverð sennilega á bilinu
20-30 milljónir króna
Forráðamenn Samvers hf. á
Akureyri hafa í hyggju að festa
kaup á sjónvarpsbfl af full-
komnustu gerð. Samkvæmt
heimildum blaðsins er hér um
að ræða bíl sem kostar á bilinu
20-30 milljónir króna. Einung-
is einn slíkur bfll er fyrir á
landinu og er hann í eigu
Ríkisútvarpsins. Forráðamenn
Samvers hf. hafa neitað að
staðfesta þetta en heimildir
Dags eru mjög áreiðanlegar.
Bíllinn mun vera þýskur og af
gerðinni Benz en mestallur bún-
aður í honum frá Sony. Segja
kunnugir að bíllinn sé bylting fyr-
ir alla dagskrárgerð, ekki síst á
landsbyggðinni en í honum á að
verða allur sá búnaður er þarf til
kvikmyndatöku og hljóðupp-
töku, eins konar stúdíó á hjólum.
Verður hægt að aka honum hvert
á land sem er og taka þar upp
efni eða senda beint með nánast
engum fyrirvara. Bíllinn er sagð-
ur væntanlegur til landsins á
næstunni. JHB