Dagur - 10.08.1987, Side 2
2 - DAGUR - 10. ágúst 1987
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 520 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 50 KR.
RITSTJÓRAR:
ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.)
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERTTRYGGVASON, EGILL BRAGASON,
GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
(Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
RÚNAR PÓR BJÖRNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON,
VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÖRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
leiðart_______________________________
Blettur á bænum
Fyrir skömmu skrifuðu íbúar við nokkrar göt-
ur í miðbæ Akureyrar bréf til bæjaryfirvalda
þar sem þeir fóru fram á stóraukna löggæslu
í miðbænum á kvöldin og um helgar. Auk
þess kröfðust íbúarnir þess að hringurinn við
Ráðhústorg yrði lokaður á ákveðnum tímum
um helgar og komið yrði á einstefnuakstri í
Skipagötu á sömu tímum. Ástæðan er óskap-
legur hávaði á þeim tímum sem tilgreindir
eru í bréfi fólksins sem enn býr í miðbænum.
Það hvílir lítill menningarbragur yfir því
aksturslagi er tíðkast á Akureyri um helgar
og á kvöldin. Glæsikerrur fara hvern hringinn
á fætur öðrum umhverfis Ráðhústorg og öku-
menn þeyta flautur bíla sinna og spóla á mal-
bikinu. Til þess að lífga enn meir upp á
umhverfið eru hljómtæki þanin svo óskaplega
að engu lagi er líkt.
í stuttu viðtali sem Dagur átti við Ragn-
heiði Kristjánsdóttur, sem býr við Skipagötu,
kom fram að ónæði það sem íbúarnir verða
fyrir er með ólíkindum. Kvöld eftir kvöld getur
fólk ekki náð að festa svefn vegna hávaða frá
ökutækjum og hljómtækjum. Við Skipagötu er
gistiheimili og sagði Ragnheiður að það hefði
komið fyrir að gestir hefðu hreinlega neitað
að greiða reikninginn vegna hávaða nætur-
innar.
Ferðamannabærinn Akureyri fékk ekki já-
kvæða umfjöllun í síðasta tölublaði Time, en
þar fjallaði blaðamaður um þennan sérkenni-
lega anga umferðarmenningar á Akureyri.
Þar lýsir hann m.a. hvernig stuðari eltir stuð-
ara umhverfis Ráðhústorg og segir frá hávaða
sem standi til klukkan fjögur á morgnana — og
stundum lengur. Hægt er að koma í veg fyrir
frásagnir af þessu tagi — ef bæjaryfirvöld
leggja sitt af mörkum.
Miðbæjarskipulag Akureyrar gerir ráð fyrir
því að hætt verði að aka umhverfis Ráðhús-
torg og nú er að fara af stað samkeppni um
gerð og frágang Ráðhústorgsins. Ætlunin er
að samkeppnin fari fram í haust og að niður-
stöður eiga að liggja fyrir í vetur. Vonandi
munu bæjaryfirvöld sjá til þess að fram-
kvæmdir við torgið hefjist strax næsta vor
þannig að tónlistarglamur og dekkjaískur
hverfi úr Miðbænum. Hins vegar er fátt eins
auðvelt og að banna nú þegar umferð
umhverfis torgið og eftir Skipagötunni á þeim
tímnum sem íbúarnir fara fram á í bréfi sínu
til bæjaryfirvalda. Það telst til menningar-
auka að hafa fallegan miðbæ og vissulega má
segja að miðbær Akureyrar sé fallegur — og
hann á enn eftir að batna — en sú ómenning
sem þar hefur ríkt um nætur er okkur Akur-
eyringum síður en svo til álitsauka. ÁÞ.
Skátamót í Vaglaskógi
hefst á fimmtudaginn
- Tívolí og varðeldur á laugardagskvöld, allir velkomnir
Um næstu helgi verður haldið
heilmikið skátamót í Vagla-
skógi. Mótið hefst á fimmtu-
dagskvöldið þann 13. ágúst og
því lýkur á sunnudaginn 16.
ágúst. Það er skátafélagið
Klakkur á Akureyri sem stend-
ur fyrir mótinu og hefur undir-
búningur þess staðið í nokkra
mánuði. Mótið er m.a. haldið í
tilefni 70 ára skátastarfs á
Akureyri og 75 ára skátastarfs
á íslandi.
Á mótinu verða þátttakendur á
aldrinum 11-15 ára og koma þeir
víðs vegar að af landinu. Áuk
krakkanna verða vinnubúðir þar
sem verða skátar frá 16 ára aldri
og uppúr. Þá verða reistar fjöl-
skyldubúðir sem opnar verða öll-
um sem vilja, jafnt eldri skátum
sem og þeim sem ekki starfa inn-
an skátahreyfingarinnar.
Að sjálfsögðu verður hefð-
bundin og fjölbreytt dagskrá í
gangi alla dagana að hætti sannra
skáta. Dagskráin er vel skipulögð
frá morgni til kvölds og verða að
jafnaði um 30 atriði í gangi á
hverjum degi.
Á laugardaginn eftir hádegi
verður heimsóknardagur og þá
eru allir velkomnir að koma í
heimsókn og líta á hvernig skáta-
lífið gerist best. Þann dag koma
einnig yngstu skátarnir, 7-10 ára í
heimsókn þannig að búast má við
miklu fjölmenni. Á laugardags-
kvöldið verður opnað tívolí á
svæðinu og klukkan 10.00 verður
kveiktur varðeldur og skátasöngv-
ar sungnir hástöfum fram eftir
kvöldi. Allir sem áhuga hafa eru
velkomnir í tívolíið og á varðeld-
inn.
Eins og nærri má geta er mikið
fyrirtæki að setja upp mót sem
þetta og t.d. verður heilu bíl-
hlassi af trönum ekið í Vaglaskóg
sem notaðar verða í turnbygging-
ar af ýmsu tagi. Þá verður gefið
út blað á mótinu og þegar hafa
tvö tölublöð litið dagsins ljós. Þátt-
takendum á mótinu er séð fyrir
mat, en þau sjá sjálf um að elda
hann. Þá má geta þess í lokin að
allir fara á fætur klukkan 8 á
morgnana og fara að sofa á
skikkanlegum tíma á kvöldin.
Mottó mótsins er Sporið, en
það má að sögn reynds skáta
útfæra og skilja á ýmsa vegu.
Aðaltjaldbúðirnar verða á Hró-
arstaðanesi, en dagskráin dreifist
um allan skóginn. mþþ
# Lúpínufræ
Þau ánægjulegu tíðindi bár-
ust frá Suðurlandi fyrír helgi
að nú væri farið að safna
saman lúpínufræi á fræ-
ökrum með stórvírkri vél.
Haft var eftir Andrési
Arnalds, beitarþolssér-
fræðingi, að þetta skapaði
tímamót hjá Landgræðsl-
unni. Þetta eru ánægjuleg tíð-
indi því í framtíðinni má gera
ráð fyrir að iúpínan verði not-
uð með góðum árangri á
örfoka landi. Starfsmenn
Landgræðslu ríkisins hafa
sýnt það og sannað að þeir
vinna vel og eru vakandi i
starfi. Það kom fram í viðtali
við einn þeirra að fjármagn
vanti í áframhaldandi aðgerð-
ir - verkið er nú komið af til-
raunastigi og hægt að hefj-
ast handa við ræktun lúín-
unnar og sáningu þar sem
það á við. Vonandi vakna
stjórnvöld og sjá tii þess að
Landgræðslan verði ekki öllu
lengur geymd útí horni eins
og óþekkur krakki.
# Þorlákur
spyr
Þorlákur heitir maður Helga-
son sem var i þriðja sæti á
framboðslista Alþýðuflokks-
ins á Suðurlandi í vor. Þorlák-
ur var áður í BJ. Hann ritaði á
dögunum grein sem birtist í
Dagskrá, en það er blað sem
kemur út á Selfossi. Þorlákur
er lítt hrifinn af stjórnarsam-
starfinu og þátttöku Alþýðu-
flokksins, en Þorlákur segir
m.a. „Jafnaðarmenn stökkva
í stjórn með landbúnaðar-
sérfræðingum til lands og
sjávar. Eðalkratinn boðar ein-
földun skattakerfis og verður
fjármálaráðherra með þeim
afleiðingum að kerfið verður
flóknara."
• Krydd-
leginn grillbiti
Og áfram heldur Þorlákur:
„Kryddlegni grillbitinn
sleppur, en hamborgarinn
sem lendir ofan á og undir
ostinum er skattlagður 10%
ofan á eldra útsöluverð.
Harðfiskurinn hans Bóasar
verður 10% dýrari en áður
vegna þess að hann er ekki
heill, flakaður, hakkaður,
bútaður, saltaður, siginn,
frosinn, reyktur, grafinn
kryddleginn eða kæstur.
Hvað þá að hann sé í brauð-
raspi?“
Bílastæðin við Kringluna
nýju í Reykjavík kosta álíka
og áætlaðar tekjur ríkisins af
matarskattinum, segir Þor-
lákur og segir nær að skatt-
leggja vitleysu en mat.