Dagur - 10.08.1987, Side 3
Hækkun
kjarnfóðurverðs:
„Kemur illa
við alla fram-
leiðendur"
- segir Jónas
Halldórsson,
kjúklingabóndi í
Sveinbjarnargerði
Eift af þeim markmiðum sem
komu í framkvæmd samkvæmf
stjórnarsáttmála nýrrar ríkis-
stjórnar var að lagt verði sér-
stakt kjarnfóðurgjald á innflutt
kjarnfóður. Gjaldið er 4 kr. á
hvert kiló og samkvæmt áætl-
unum á það að skila ríkissjóði
80 milljónum króna á þessu ári
og 200 milljónum á því næsta.
..Þessi hækkun á fóðrinu veld-
ur því að við þyrftum að hækka
verðið á kjúklingakjötinu unr 9-
10%. Við settum hluta af þessari
hækkun út í verðlagið, þ.e 5%,
fyrir um viku og" ætlum ekki
að hækka meira í hili en samt
sem áður þurfum við að hækka
verðið seinna því að ekki greið-
um við þessa kjarnfóðurhækkun
úr eigin vasa," sagði Jónas
Halldórsson, kjúklingabóndi í
Sveinbjarnargerði á Svalbarðs-
strönd er hann var inntur eftir
áhrifum þessarar fóðurhækkunar.
Jónas sagði að sala á kjúklinga-
kjöti væri heldur rninni á þessu
ári en því síðasta. Hann sagði að
sennilega hefði salan náð
hámarki í fyrra þar sem að óeðli-
lega margar útsölur hefðu verið á
kjúklingavörum. Verð hefur
haldist í meðallagi síðan um ára-
mót og hefur það þýtt ögn minni
sölu. Einnig hafi salmonella-
umræðan valdið einhverri sölu-
tregðu.
„Við höfum enga samninga við
ríkisstjórn og því höfum við enga
tryggingu fyrir því að fá ekki
hækkun sem þessa á okkur. Þetta
kemur sér illa fyrir alla fram-
leiðendur þar sem verð er á
mörkunum að vera nógu hátt. Eg
átti alls ekki von á þessari
hækkun, sérstaklega vegna þess
að Sjálfstæðisflokkur og Alþýðu-
flokkur höfðu margoft lýst því
yfir að þeir vildu fella niður
kjarnfóðurgjald," sagði Jónas
Halldórsson. JÓH
Nýr starfs-
mannastjóri
hjáKEA
Fyrir skömmu var gengið frá
ráðningu nýs starfsmanna-
stjóra hjá Kaupfélagi Eyfirð-
inga. Guðbjörn Gíslason tók
við starfmu af Áskeli Þóris-
syni. Guðbjörn hefur starfað í
Tölvudeild KEA síðan 1979.
í orðsendingu frá kaupfélags-
stjóra segir að Guðbjörn muni í
starfi sínu annast ráðningu á
starfsfólki til hinna ýmsu starfs-
deilda félagsins í samráði við yfir-
menn deildanna og fjalla um
kaup og kjör starfsfólks. Launa-
deildin verður þannig innan
umsjónarsviðs hans en deildar-
stjóri Launadeildar er Brynja
Skarphéðinsdóttir. Þá mun Guð-
björn sjá um námskeiðahald og
fræðslumál starfsmanna og tengsl
félagsins við Starfsmannafélag
KEA.
10. ágúst 1987 - DAGUR - 3
Menn gera sér ýmislegt til dundurs þegar veðrið er gott. Þessi piltur hefur dregið fram veiðistöngina þrátt fyrir
að ekki sé talið gott að fiska í sólskini. Ekki fylgir sögunni hver aflinn varð. Mynd: gt
Kelduhverfi:
Um 500
manns gistu
Ásbyrgi
um verslunar-
mannahelgina
Mikill ferðamannastraumur
hefur verið um Ásbyrgi og í
Kelduhverfi í sumar. Um
verslunarmannahelgina gistu í
Ásbyrgi þegar flest var um 500
manns. Þetta var mestmegnis
fjölsky Idtifólk og erlendir
ferðamenn, og var þar allt með
kyrrum kjörum.
Veðrið í sveitinni hefur verið
hlýtt en skúrasamt og því ekki
sama blíðan og var þar í fyrra. í
Skúlagarði er rekið hótel á
sumrin.
í vor hóf fyrsti bóndinn í
Kelduhverfi hefðbundna ferða-
þjónustu. Hann býður til leigu
sex manna hús að Lyngási. Húsið
er búið öllum þægindum og er
stutt þaðan bæði í verslun og gott
berjaland. Á næsta bæ við, á Hóli
er rekin hestaleiga fyrir þá sem
áhuga hafa.
Enn mun ekki vera fullbókað á
Lyngási í ágúst, en einnig verður
hægt að fá húsið leigt yfir vetrar-
tímann t.d. yfir helgar.
VG
Ályktun dýralækna:
Settar verði upp
rannsóknarstofur
í sláturhúsum
Fyrir stuttu hélt Dýralæknafé-
lag íslands fund þar sem rætt
var um hvernig bæta megi
eftirlit með kjöti. Fjörutíu
dýralæknar mættu á fundinn og
voru fjölmargar ályktanir sam-
þykktar sem síðan verða send-
ar viðkomandi ráðuneytum til
umfjöllunar og ákvarðana-
töku.
„Við óskum eftir aukningu á
möguleikum til rannsókna á slát-
urgripum og í framhaldi af því
verði settar upp rannsóknarstof-
ur á sláturhúsunum eða. að
minnsta kosti að kjötvinnslur og
sláturhús séu í tengslum við rann-
sóknarstofur sem sjái um sýna-
töku og rannsóknir á kjöti. Þessu
hefur verið ábótavant hingað til
og kemur þá sérstaklega til að
erfitt hefur verið að fá fjármagni
veitt til þessara rannsókna. Þetta
miðar að því að eftirlit verði haft
með vörunni allt frá slátrun til
neytenda en vert er þó að taka
það fram að eftirlit með kjöti frá
sláturhúsum hér á svæðinu er
gott,“ sagði Valdimar Brynjólfs-
son, heilbrigðisfulltrúi Eyjafjarð-
arsýslu í samtali við Dag, en
hann sat þing Dýralæknafélags-
ins.
Valdimar sagði að þessar til-
lögur næðu einnig til kjúklinga-
búanna og að dýralæknar hefðu
áhuga á að fleiri prufur verði
teknar í búunum áður en að dýr-
in séu send í sláturhús. Einnig
mætti taka sýni úr saur sem gæfu
vissar vísbendingar um hvort um
sýkingu gæti verið að ræða.
Hann taldi að brýna mætti fyrir
fólki hvernig farið væri með kjöt
við matreiðslu þar sem að ef um
rétta og gætilega meðferð á kjöti
við matreiðslu væri að ræða ætti
ekki að vera hætta á sýkingu.
Sýking af salmonella á ekki að
vera fyrir hendi eftir suðu á kjöti
en fólk yrði að gæta að því að
soðið kjöt blandaðist ekki hráu
kjöti þar sem að með því gæti
nýsmit tekið sig upp. JÓH
Marska Skagaströnd:
Fyrsta stóra
sendingin
fer erlendis í
næsta mánuði
„Framleiöslan gengur vel og
þaö er bjart framundan,“ sagði
Heimir Fjeldsted hjá Marska á
Skagaströnd, en þeir munu í
lok næsta mánaðar senda
fyrstu stóru sendingu sína á
erlendan markað.
Áætlað er að flytja út um 100
tonn á ári aðallega af rækju- og
ýsurúllum, hliðstæðar þeim er
seldar eru hér á innanlandsmark-
aði. Rúllurnar fara aðallega til
Svíþjóðar og Finnlands, bæði á
almennan markað og til hótela og
stærri eldhúsa.
Heimir sagði ennfremur að
þeir væru um það bil að auka
vélakost sinn. Keypt hefur verið
vél erlendis frá, sem bakar u.þ.b.
50 pönnukökur á mínútu, og svo
er verið að smíða aðra sem mun
skammta fyllingunni í kökumar og
rúlla þeim upp. VG
Frystihólf!
Vegna breytinga er fyrirsjáanlegur skortur á frysti-
hólfum. Af þeim sökum eru þeir sem enn skulda af
hólfum sínum hvattir til að gera skil eigi síðar en 31.
ágúst 1987.
Eftir þann tíma verða hólfin leigð öðrum.
Frystihús KEA.
Tilboð - Niðurrif
Tilboð óskast í niðurrif Strandgötu 29
(Snorrahús) á Akureyri.
Verkinu skal lokið fyrir 29. ágúst 1987.
Tilboðum skal skilatil Teiknistofunnar FORM í síðasta
lagi 12. ágúst 1987.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá FORM og afgreiðslu
DAGS.
Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna ölium.
form
ÁRNI ÁRNASON húsgagna- og innanhússarkitekt FHÍ
BJARNI REYKJALÍN arkitekt og byggingatæknifr. FAÍ • FTÍ
ARKITEKTAR HONNUÐIR KAUPANGl v/MÝRARVEG • 600 AKUREYRI ■ S. 96-26099
Laugalandsmeyj ar
Vissuð þið að 3. október n.k. eru 50 ár liðin
frá vígslu gamla skólans okkar, og nú skal
þess minnst með nemendamóti?
Það krefst undirbúnings og fyrsti fundurinn
verður 13. ágúst kl. 20.30 í sal Vlf. Einingar,
Skipagötu 14 2. hæð. Þið sem búsettar eruð hér
á Akureyri eða í nágrenninu eruð beðnar um að
sjá til þess að ykkar árgangur sendi einn til tvo
fulltrúa.
Hjálpumst að við að gera gamlan draum að veg-
legum veruleika.
Sjáumst hressar.
Aslaug sími 24048, Alda sími 21236, Þóra sími
23005.