Dagur - 10.08.1987, Side 6
6 - DAGUR - 10. ágúst 1987
jþróttic
Skíðamót Islands í Hlíðarfjalli:
Keppir Bojan Krizaj
sem gestur?
Fimmtugasta Skíðamót íslands
verður haldið í Hiíðarfjalli við
Akureyri á næsta ári. Vonir
standa til að núverandi hand-
hafí heimsbikarsins í svigi,
Júgóslavinn Bojan Krizaj keppi
á mótinu sem gestur.
Bojan var staddur hér norðan-
lands fyrir og um helgina en hann
dvaldist hér á landi í vikutíma við
myndatökur fyrir júgóslavneska
sjónvarpið. Forráðamenn Skíða-
ráðs Akureyrar höfðu spurnir að
veru meistarans, komu að máli
við hann og nefndu þessa hug-
mynd sina við hann. Að sögn
Þrastar Guðjónssonar formanns
SRA tók kappinn mjög vel í hug-
SL-mótið 1. deild:
Null og nix
í Hafnarfirði
- FH og KA gerðu markalaust jafntefli í gærkvöld
KA-mönnum tókst ekki að
hrísta af sér falldrauginn í leik
sínum við FH syðra í gær og
verður það að teljast hálfgerð-
ur klaufaskapur í Ijósi nokkurra
ágætra marktækifæra þeirra.
KA verður að teljast betri aðil-
inn í þessum frekar þófkennda
leik. Þeir voru grimmari á bolt-
ann og virtust hafa mun meiri
vilja til að knýja fram sigur en
Hafnfirðingar sem sýndust sáttir
við skiptan hlut.
Fyrri hálfleikur var tíðindalítill
framan af en á 13. mín. fékk KA
hornspyrnu og eftir hana renndi
Steingrímur knettinum út á víta-
teigshorn til Sigurðar Más sem
skaut góðu skoti á fjærhorn uppi
en markvörður FH, Jónas
Hjartarson, varði hreint meist-
aralega.
Á 30. mín. náði svo FH stór-
sókn sem endaði með skoti
framhjá af stuttu færi og þremur
mínútum síðar áttu KA-menn að
skora. Þeir léku í gegn, Sigurður
steig á boltann á markteig, Þor-
valdur kom aðvífandi og skaut í
slá og út til Tryggva sem skaut
yfir.
Svipað var uppi á teningnum á
fyrstu mínútum síðari hálfleiks.
Sigurður og Jón Sveinsson hik-
uðu báðir í dauðafærum og varn-
armenn FH komust á milli.
Örstuttu síðar var Tryggvi einn
gegn markverði í miðjum teig en
tilraun hans til að leika á hann
mistókst hrapalega og þar fór
afburðagott færi í vaskinn. Það er
ekki á hverjum degi sem marka-
kóngurinn Tryggvi vinnur svona
illa úr hráefninu.
Fátt var síðan um færi til loka
utan þess að Hörður Magnússon
FH-ingur skaut fram hjá KA-
markinu úr dauðafæri á 76. mín.
KA sótti og sótti í lokin en
ekkert varð úr.
Bestir KA-manna voru Stein-
grímur og Jón Sveinsson sem er
mjög vaxandi leikmaður. Þor-
valdur var og frískur en Erlingur
með slappasta móti. Hörður
Magnússon var einna sprækastur
FH-inga og gerði Erlingi oft lífið
leitt
Magnús Jónatansson dæmdi
leikinn og hefur oft gert betur.
GÞE
SL-mótið 1. deild:
Völsungar í alvarlegri
fallbaráttu
„Manni fínnst eins og það sé
búið að ákveða einhvers staðar
annars staðar en á vellinum
hvernig leikir eiga að fara, svo
furðulegir eru margir dómar
sem maður hefur séð hér í
undanförnum leikjum,“ sagði
vonsvikinn áhorfandi á Húsa-
vík á iaugardaginn eftir að KR
hafði unnið Völsung 1:3 þar
- eftir 1:3 tap fyrir KR
sem Völsungar léku einum
færri í tæpar 70 mínútur.
2. deild:
Víkingar að
hressast
Eftir langan ófarakafla í 2.
deild karla tókst Víkingum
lokst að vinna sigur á fímmtu-
dagskvöldið þegar þeir fengu
lið KS í heimsókn. Leiknum
lauk með 2:0 sigri Víkinga eftir
að staðan í leikhléi var 1:0.
Fyrra mark Víkinga gerði Atli
Einarsson skömmu fyrir lok fyrri
hálfleiks en það síðara gerði
Trausti Ómarsson úr vítaspyrnu í
síðari hálfleik.
Víkingar voru sterkari aðilinn
lengst af í leiknum og fengu fjöl-
mörg færi, sérstaklega í síðari
hálfleik. En fleiri urðu mörkin
ekki.
Leikurinn var jafn í byrjun og
virtist sem liðin væru að þreifa
fyrir sér.
Á 17. mín. voru KR-ingar í
sókn en Helgi Helgason náði
boltanum og sendi boltann til
markvarðar. Þorsteinn Guðjóns-
son KR-ingur renndi sér þá beint
í fætur Helga aftan frá og skellti
honum. Brot þetta var mjög gróft
en Þorsteinn slapp með gult
spjald.
Jafnræði var með liðunum þar
til á 23. mín. Eftir að hafa misst
boltann til andstæðings sfns tók
Snævar Hreinsson upp á því að
sparka hann niður. Nú kom
Eyjólfur Ólafsson dómari hlaup-
andi með rauða spjaldið á lofti.
Sennilega var dómurinn hárrétt-
ur en brot Snævars var þó mun
minna en Þorsteinn hafði gert sig
sekan um skömmu áður.
Eftir þetta náðu KR-ingar tök-
um á leiknum og fengu færi sem
ekki nýttust. ,
Enn eitt umdeilt atvik varð í
fyrri hálfleik. Jónas Hallgrímsson
var í þann veginn að sleppa fram
hjá tveimur KR-ingum þegar
Þorsteinn felldi hann á svipaðan
hátt og hann hafði fellt Helga
fyrr. Eyjólfur teygði sig eftir gula
spjaldinu en viti menn. Hann
hættir við að sýna spjaldið,
kannski vegna þess að Þorsteinn
hafði áður fengið gult spjald og
hefði þurft að sjá það rauða að
þessu sinni. Furðuleg ráðstöfun
og mönnum gramdist mjög.
Völsungar hófu síðari hálfleik-
inn af miklum krafti og eftir 13
mínútur hafði Hörður Benónýs-
son skorað. Aðalsteinn lék upp
hægri kant og sendi vel fyrir
markið þar sem Kristján stökk
upp og skallaði til Harðar sem
skoraði af öryggi 1:0.
En enginn má við margnum og
á 20. mín. síðari hálfleiks jafnaði
Pétur Pétursson fyrir KR eftir að
boltinn hrökk til hans úr þvögu.
Þremur mínútum síðar var Pétur
aftur á ferðinni og skoraði laglegt
mark með skalla eftir fyrirgjöf frá
Júlíusi.
KR-ingar sóttu nú mun meira
og þegar fimm mínútur voru eftir
skoraði Björn Rafnsson þriðja
markið.
Leikur þessi var í meðallagi
góður. Völsungar léku oft ágæt-
lega og börðust vel. Bestir voru
Eiríkur, Aðalsteinn og Jónas.
KR-ingar voru daufir í byrjun en
hresstust eftir mark Völsungs.
AG/ET
myndina en gat ekki gefið endan-
legt svar þar sem áætlun hans
sjálfs fyrir þennan tíma liggur
ekki fyrir ennþá.
Á síðasta ári var gerð tilraun til
að fá erlenda keppendur á
alþjóðlegt mót í Hlíðarfjalli.
5000 bréf voru send víðs vegar
um heiminn en engar þátttöku-
tilkynningar bárust. Hugmyndin
með því að fá Bojan á Skíðamót-
ið er að sögn Þrastar ekki síst sú
að þannig fái ísland og Akureyri
kynningu meðal erlendra
skíðamanna sem geri alþjóðlegt
mót veturinn 1988-1989 mögu-
legt.
Bojan sagði í samtali við Dag
fyrir helgina að honum litist vel á
hugmyndina, hann hefði aldrei
farið á skíði á íslandi en vildi
gjarnan prófa það. í blaðinu á
morgun birtist stutt viðtal við
Bojan Krizaj heimsbikarhafa í
svigi.
Úrslitakeppni
4. deildar:
HSÞ-c tapaði
Þrír leikir voru á laugardaginn
í úrslitakeppni 4. deildar í
knattspyrnu. Úrslit leikjanna
urðu þessi:
Árvakur-Bolungarvík 3:4
Grótta-Víkverji 0:1
HSÞc-Huginn 2:3
Næstu leikir í úrslitakeppninni
fara fram á miðvikudaginn en
keppninni lýkur með úrslitaleik
sunnudaginn 6. september.
3. deild B:
Magni
á toppinn
Þrír leikir voru í 10. umferð B-
riðils 3. deildar um helgina.
Sindri og Reynir Árskógs-
strönd gerðu jafntefli 1:1 á
Hornafirði, Þróttur N. og Austri
skildu jöfn 2:2 og Magni sigraði
HSÞ-b á Grenivík með þremur
mörkum gegn einu.
Ingvar Guðmundsson fellir Halldór Á
dæmdi víti.
1. deild
Góð hek
KA-stúIkurnar gerðu góða
ferð suður um heiðar um helg-
ina. Á föstudaginn lék liðið
gegn KR og lauk leiknum með
jafntefli 1:1 og í gær lögðu
stúlkurnar svo UBK að velli
með einu marki gegn engu.
Hjördís Úlfarsdóttir var heldur
betur á skotskónum um helg-
ina og gerði bæði mörk KA.
KA-liðið lék allt mjög vel gegn
KR. Hjördís Úlfarsdótir skoraði
af öryggi á 20. mín. eftir að hafa
fengið stungusendingu inn fyrir
vörn KR.
Skömmu fyrir lok fyrri hálf-
leiks skall á þriggja mínútna
„fellibylur“ við mark KA og þá
1. deild
Tvötöp
Fyrstudeildarliði kvenna hjá
Þór tókst ekki að ná stigi úr
tveimur leikjum sínum fyrir
sunnan um helgina. Á föstu-
dag töpuðu stúlkurnar fyrir í A
5:1 og í gær var það Stjarnan
sem sigraði Þór 3:1.
Skagastúlkurnar höfðu tals-
verða yfirburði í leiknum á föstu-
daginn og komust í 3:0 eftir að
staðan í leikhléi var 2:0.
Sigurlaug Jónsdóttir minnkaði
muninn fyrir Þór í síðari hálfleik,
skoraði örugglega eftir að hafa
fengið stungusendingu inn fyrir
vörn ÍA Eftir markið komust
Þórsstúlkurnar meira inn í leik-
inn en við 4. mark ÍA hrundi
Nissan-mótið í golfi:
Guðmundur vann 1
Um helgina fór fram á Jaðars-
velli við Akureyri Nissan-mót-
ið í golfí. Keppt var í opnum
flokki með og án forgjafar og
leiknar 36 holur. Guðmundur
Sigurjónsson gerði sér iítið fyr-
ir og sigraði nokkuð óvænt
bæði með og án forgjafar.
Guðmundur Iék mjög vel báða
dagana og á mótinu lækkaði
hann forgjöf sína úr 11,2 og
um að minnsta kosti 2,6 högg,
niður í 8,6!
Keppendur á mótinu voru 34
talsins. Auk verðlauna fyrir efstu
sæti voru veitt aukaverðlaun fyrir
upphafshögghögg næst holu á 4.,
14. og 18 holu. Öll verðlaun á
mótinu voru gefin af Nissan-
umboðinu á Akureyri, Bifreiða-
verkstæði Sigurðar Valdimars-
sonar og afhenti Sigurður þau í
mótslok.
Úrslit á mótinu urðu þessi:
Án forgjafar:
1. Guðmundur Sigurjónsson 150
2. Sverrir Þorvaldsson 152
3. Þórhallur Pálsson 157
Verðlaunahafar ásamt Sigurði Vnldim;