Dagur - 10.08.1987, Qupperneq 8
8 - DAGUR - 10. ágúst 1987
Nvtt sóttkvíarbú á Möðruvöllum:
Tilraunastöðin á Möðruvöllum
í Hörgárdal er í vexti um þess-
ar mundir. Þar er tilraunafjós,
þar sem gerðar eru fóður-
tilraunir. Einnig er þar aðstaða
til rannsókna á kali í túnum.
Nýverið var ákveðið að reisa
sóttkvíarbú fyrir minka á
Möðruvöllum og um þarsíð-
ustu helgi var verið að flytja
dýrin í búið sem verið er að
leggja síðustu hönd á. Heil-
brigðisnefnd Akureyrarbæjar
hefur fyrir sitt leyti veitt
Jóhannesi Sigvaldasyni, fyrir
hönd Ræktunarfélags Norður-
lands, starfsleyfi fyrir sótt-
kvíarbúið.
„Þetta bar nú dálítið brátt að,“
sagði Jóhannes Sigvaldason um
nýbygginguna. „Yfirdýralæknir
gaf ekki leyfi fyrr en allt í einu í
vor, en annars var búið að skipu-
leggja þetta bú í vetur. Þegar
leyfið kom svo snögglega var
gripið til þess ráðs að skella dýr-
unum þarna í hlöðuna,“ sagði
Jóhannes og benti á gamla hlöðu
þar skammt frá, „og þá var
ákveðið að byggja hér í hvelli.
Við höfum drifið þetta upp á ein-
um og hálfum mánuði og eru
framkvæmdir nú á síðasta snún-
ingi.“
Sóttkvíarbúið er um 650 fer-
metrar að flatarmáli en einnig
verður reist aðstöðubygging, fyr-
ir rannsóknir o.fl., sunnan við
búið. Sveinn Jónsson í Kálfskinni
sá um að reisa húsið, hreiður-
kassar eru smíðaðir m.a. hjá
Ham s.f. á Akureyri og búrin eru
sett saman af starfsfólki á
staðnum.
Aukin gæði - hærra verð
- Hvað eruð þið með mörg dýr
þarna niður frá Jóhannes?
„Þetta voru 200 læður sem við
fengum í vor frá Danmörku, en
ætli við séum ekki með í kringum
900 dýr núna. Þetta eru kynbóta-.
dýr sem á síðan að dreifa til
bænda þegar sóttkvínni lýkur
næsta sumar. Ætlunin er að
fjölga þeim enn frekar í vetur.
Allar frambærilegar læður verða
settar á þannig að þær eignist
hvolpa fyrir næsta sumar sem síð-
an verða seldir til minkabænda.“
- Er það þá um ár sem mink-
arnir þurfa að vera í sóttkví?
„Ég held að markið sé 14-16
mánuðir núna. Ég vonast til að
við fáum að fara með þá út í lok
júní á næsta ári en þeir komu í
apríl og þá verða liðnir 14-15
mánuðir.“
- Stendur Ræktunarfélag
Norðurlands að baki þessu sótt-
kvíarbúi?
„Meðal annars. Aðilar að
þessu eru raunar Samband
íslenskra loðdýraræktenda, Bún-
aðarfélag íslands og landbún-
aðarráðuneytið. Það varð sam-
komulag um það að Ræktunar-
félagið eigi þessa byggingu en
Tilraunastöðin á Möðruvöllum
reki búið. Samband loðdýra-
bænda á raunar mestra hagsmuna
að gæta, að það komi betri stofn
til landsins.“
- Hefur ekki lítið verið um
kynblöndun á minkum miðað við
refina?
- segir Jóhannes Sigvaldason
Sóttkvíarbúið á MöðruvöUum hefur sprottið upp á tveimur mánuðum.
„Öll árin hefur verið reynt að
velja úr hér innanlands, það hef-
ur verið metið á haustin og reynt
að velja bestu dýrin úr. En við
höfum samt litið svo á að bót væri
í því að fá stofn erlendis frá sem
væri virkilega góður.“
- Og þetta er að sjálfsögðu
gert til þess að auka gæði skinn-
anna?
„Já, skinnin verða betri með
bættum stofni og dýrin jafnvel
frjósamari líka.“
Minkurinn kemur betur út
Jóhannes sagði að minkarnir
hefðu vakið mikla athygli þegar
þeir komu til landsins í vor.
Útvarpið og Sjónvarpið hefðu
mætt á flugvöllinn með öll sín tól
og tæki undir eftirliti dýralækna.
Það eru því fleiri sem telja að hér
sé áhugavert starf á ferðinni en
ég spurði Jóhannes næst um
stöðu þessarar búgreinar í dag:
Myndir & texti: SS
Starfsmaöur kemur búrunum fyrir, Jóhannes Sigvaldason fylgist með.
„Litlir og ljótir,“ sagði greinarhöfundur í fyrstu en skipti síðan um skoðun.
Búrin sem minkarnir voru fluttir í á milli húsa. Þessir eru númer 174-180 en fengu að flytja fyrstir.
„Minkaræktin gengur ágætlega
í dag en hins vegar eru nokkrir
erfiðleikar með refinn. Verðið á
refaskinnum var Iágt í fyrra mið-
að við tilkostnað."
- Já, er ekki mun ódýrara að
reka minkabú?
„Jú, og verðið á minkaskinn-
um var hlutfallslega miklu hærra
í fyrra. Nágrannaþjóðir okkar
voru himinsælar, sérstaklega
Danir, en þeir hafa haft mjög
gott upp úr minknum undanfar-
ið. Minkurinn hefur bara ekki
verið svo áberandi hér að undan-
förnu, það fóru flestir í refinn.
Það er fyrst nú á síðustu árum
sem menn eru að skipta yfir í
minkinn, til dæmis hafa margir
farið út í minkarækt í sumar enda
gengur hún betur en refaræktin."
- En er markaðurinn ekki
dálítið sveiflukenndur?
„Hann er það nú ögn. Verðið
hefur verið þokkalegt nú í nokk-
urn tíma en í fyrra var það mjög
gott.“