Dagur - 10.08.1987, Blaðsíða 11
10. ágúst 1987 - DAGUR - 11
Hjónaminning
'tt' Hólmfríður Pálsdóttir
U F. 1. okt. 1900 - D. 20. maí 1987
Ketill S. Guðjónsson
F. 11 okt. 1900 - D. 20. júlí 1987
Þann 27. júlí s.l. fór fram jarðar-
för Ketils S. Guðjónssonar, fyrr-
um bónda á Finnastöðum í
Hrafnagilshreppi, frá Grundar-
kirkju í Eyjafirði. Hann lést þann
20. júlí í Fjórðungssjúkrahúsinu
á Akureyri, eftir stutta legu.
Ketill missti konu sínu Hólm-
fríði Pálsdóttur, réttum tveim
mánuðum fyrr, eða þann 20. maí
s.l. og var hún jarðsungin 27. maí
frá Grundarkirkju, svo ekki varð
langur aðskilnaður þeirra hjóna.
Með þessum ágætu hjónum
eru horfnir glæsilegir fulltrúar
bændastéttarinnar í Eyjafirði.
Pau voru bæði fædd í október
árið 1900, svo aldurinn var orð-
inn hár, en andlegum kröftum
sínum héldu þau til æfiloka.
Þau reistu bú á Finnastöðum í
Hrafnagilshreppi árið 1923. Þá
var sú jörð ekki í miklu áliti, en
ungu hjónin voru samhent og
tóku til við ræktun og aðrar
umbætur, svo ekki leið á löngu
þar til jörðin var komin í röð
stórbýla. Öll hús þurfti að byggja
upp á jörðinni og var það mikið
átak. Þau hjón stóðu föstum fót-
um í búmenningu fortíðarinnar,
en voru áhugasöm um allar
nýjungar sem komu til sögunnar í
þeim efnum og tóku í sína þjón-
ustu allar vélar og hjálpartæki við
búskapinn, eftir því sem slíkt
barst hingað til lands.
Þau voru bæði af góðu bænda-
fólki komin, trúðu á landið og
nýttu gæði hinnar eyfirsku mold-
ar út í ystu æsar.
Ketill hafði stundað nám við
bændaskólann á Hvanneyri. Var
hann prýðilegur námsmaður, vel
máli farinn og hafði mjög fagra
rithönd. Hann naut mikils trausts
Borgarbíó
Mánud. kl. 9.00 og 11.00
Leikið til sigurs
Mánud. kl. 9.10
Peggy Sue
Mánud. kl. 11.10
Með tvær í takinu
samferðamanna sinna, var kos-
inn í fjöldamörg störf fyrir sveit-
arfélagið, sem of langt yrði að
telja og einnig fyrir héraðið allt,
var t.d. búnaöarþingfulltrúi um
margra ára skeið.
Hólmfríður Pálsdóttir, kona
Ketils, fæddist á Grund í Eyja-
firði og ólst þar upp að miklu
leyti, var bróðurdóttir Magnúsar
Sigurðssonar stórbónda og kaup-
manns á Grund. Hún þótti
snemma hinn ágætasti kvenkost-
ur, fríð sýnum og hörkudugleg
við hvað sem var og var sérstak-
lega sýnt um allt sem við kom bú-
skap. Um tvítugt lærði hún karl-
mannafatasaum og átti það eftir
að koma henni að miklu gagni í
heimilishaldinu er út í lífsbarátt-
una kom. Hún ræktaði garðinn
sinn á Finnastöðum í fleira en í
einum skilningi. Heimilið var
henni hjartfólgið, hún var vak-
andi og sofandi á verði um ham-
ingju þess og barnanna, en þau
urðu sex.
Hreinn í Sunnuhlíð, útibús-
stjóri Samvinnubankans á Sval-
barðseyri, kvæntur Huldu Hall-
dórsdóttur og eiga þau þrjú börn.
Sigríður, búsett á Akureyri,
fyrrum húsfreyja í Torfum gift
Helga Sigurjónssyni og eiga þau
níu börn.
Óttar, starfsmaður við Krist-
nesspítala, kvæntan Sigrúnu
Halldórsdóttur, eig þau þrjú
börn. Einnig á Óttar þrjú börn
frá fyrra hjónabandi, með Elínu
Halldórsdóttur.
Margrét, búsett á Akureyri á
sjö börn. Var áður gift Frey
Gestssyni.
Auður, búsett í Lambanesi í
Fljótum gift Hermanni Jónssyni
og eiga þau einn son.
Gylfi, forstjóri „Draga“ á
Akureyri á fimm börn.
Glæsilegur afkomendahópur
Hólmfríðar og Ketils er orðinn
fjölmennur og flestallir búsettir
hér á þeirra heimaslóðum. Síð-
ustu ár þeirra áttu þau heimili sitt
á Akureyri, þegar starfsgetan var
þrotin og afkomandi þeirra tek-
inn við jörð og búi.
Þó mun hugur þeirra löngum
hafa dvalið á Finnastöðum, við
heimili þeirra þar sem þau hófu
lífstarf sitt, full bjartsýni og þar
sem þau áttu símar bestu ævist-
undir.
Elli kerlingu fær enginn yfir-
bugað. Líkamlegt atgerfi þrýtur
að lokum, öll hverfum við úr
heimi hér. Það er hinn óumbreyt-
anlegi straumur lífsins og dauð-
ans. Þessi elskulegu hjón eru nú
bæði horfin sjónum okkar, en
þakkir okkar sem enn þraukum
fylgja þeim að síðustu, fyrir alla
vinsemd, hjálp og samstarf.
Blessun guðs hvíli yfir þeim.
Sigríður Guðmundsdóttir
Schiöth.
Fiskeldi
Bændaskólinn á Hólum óskar eftir
sérfræðing í fiskeldi.
Verkefni: Kennsla - rannsóknir - leiöbeiningar.
Umsóknir sendist til landbúnaöarráöuneytisins fyrir
1. september n.k.
Landbúnaðarráðuneytið, 5. ágúst 1987.
n
Öll börn
eiga rétt á að
sitja í bílbelti!
UMFERÐAR
RÁÐ
FRAMSÓKNARMENN
AKUREYRI
Bæjarmálafundur
verður mánudaginn 10. ágúst
ki. 20.30 að Hafnarstræti 90.
Fundarefni: Dagskrá bæjarstjórnar
nk. þriðjudag. Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
Hrossarækt + Tamningar + Reiðkennsla
Kennari óskast
að Bændaskólanum á Hólum.
Aðalkennslugreinar: Hrossarækt, tamningar og reið-
mennska, ásamt umsjá með hrossarækt kynbóta-
búsins á Hólum.
Umsóknir sendist til landbúnaöarráöuneytisins fyrir
1. september n.k.
Landbúnaðarráðuneytið, 5. ágúst 1987.
Tilboð óskast
í að rífa og fjarlægja vörugeymslu á lóð
Skipagötu 9.
Geymsluna þarf aö fjarlægja sem fyrst.
Tilboö óskast sent til aðalfulltrúa KEA fyrir 18. ágúst
n.k. og gefur hann allar frekari upplýsingar.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Stýrimann vantar
á MB Áskel ÞH48 til þorsknetaveiða frá
Grenivík.
Upplýsingar í síma 96-23167.
HF. Gjögur.
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
Á NORÐURLANDI EYSTRA
Vistheimilið Sólborg
Óskum eftir starfsfóiki í eftirtaldar stöður á íbúð-
ardeildum:
Heilar stööur:
Ein staöa nú þegar, aörar frá 1. september, 15. sept-
ember og 1. október.
Hlutastööur:
50%-80% frá 1. september.
Jafnframt vantar í afleysingar:
50% staöa meö lyfjaábyrgð (lyfjatæknir, hjúkrunar-
fræöingur, þroskaþjálfi) frá 17. ágúst til 11. sept-
ember. Hægt er aö semja um vinnutíma.
Allar nánari upplýsingar í síma 21755.
Forstöðumaður.
Starfsfólk óskast
strax og 1. september.
Upplýsingar á staönum.
Leikfatiga-
marímurim
HAFNARSTRÆTI 96 SÍMI96-24423 AKUREYRI
AKUREYRARBÆR
LEIKSVIÐ VIÐ
GÖNGUGÖTU
( ágústmánuði geta félagasamtök, fyrirtæki,
hljómlistarhópar eða aðrir áhugahópar feng-
ið afnot af leiksviði (senu) við göngugötuna á
Akureyri.
Nánari upplýsingar og pantanir á aðstöðu í
síma 21000.
Afmælisnefnd Akureyrar.