Dagur - 10.08.1987, Síða 12
BflfamE
Akureyri, mánudagur 10. ágúst 1987
^llllllllllllllllllh...................
Hvad ertu bráðlátur?
^Peóíomyndir’
Viltu fá myndirnar þínar
eftir 3, 2 eöa 1 klukkustund?
Til þjónustu reiðubúin.
Hafnarstræti 98 - Akureyri Sími 96-23520.
Akureyri:
Nýting á hótelum
í sumar mjög góð
- útlendingar yfirleitt í
meirihluta yfir háannatímann
Nýting á hótelum á Akureyri
hefur verið með mikium ágæt-
um í sumar. Svo virðist sem
spár um aukinn ferðamanna-
straum í sumar hafi ræst. Dag-
ur hafði samband við stærstu
hótelin á Akureyri og kannaði
málin nánar.
Dalvík:
Vegur milli
hafnargarða
malbikaður
Hafnamefnd Dalvíkur lagði til
á síðasta fundi sínum að mal-
bikun vegar milli hafnargarða,
sem fyrirhuguð var nú í haust,
vérði frestað til næsta vors
vegna þess hversu áliðið væri
sumars. Málinu var vísað til
bæjarstjórnar þar sem það var
tekið til umræðu á fundi þann
21. júli síðastliðinn.
Eftir umræður í bæjarstjórn
var ákveðið að leggja á það
áherslu að ljúka framkvæmdum
nú í haust og að sögn Kristjáns
Þórs Júlíussonar, bæjarstjóra
mun verktaki sem tók verkið að
sér skila veginum fullbúnum und-
ir malbik um miðjan þennan
mánuð. Ekki er fullljóst hvenær
af malbikun getur orðið en
Kristján taldi að það yrði gert
fyrir fyrstu veður í haust.
Vegur þessi tengir syðri og ytri
hafnargarð og er því mikið not-
aður þegar landað er úr togurum
við syðri garð. Mun þessi malbik-
un bæta löndunaraðstöðuna mikið
og af þeim ástæðum er lögð svo
mikil áhersla á að ljúka verkinu
sem fyrst. JÓH
„Ég hlýt að vera ánægður,"
sagði Stefán Sigurðsson hótel-
stjóri á Hótel Stefaníu. ..Sumarið
hefur verið mjög gott og betra en
í fyrra. Nýtingin í júní var 90%, í
júlí 95% og það sem af er ágúst
hefur hún verið 100%. Auk þessa
var maí helmingi betri en í
fyrra."
..Það er gott í okkur hijóöið.
og bjart framundan." sagði
Gunnar Karlsson hótelstjóri á
Hótel KEA. „Nýting á hótelinu
hefur verið mjög góð í sumar og
einnig var vorið gott. í júní var
nýtingin um 80%, í júlí 88% og
það sem af er ágústmánuði um
90% nýting. Alls er aukning í
fjölda útleigðra herbergja á
hótelinu frá áramótum 35% Ef
eingöngu eru teknir mánuðirnir
júní og júlí er þessi aukning
10%“
Yfir háannatímann hafa
útlendingar verið í meirihluta
gesta. Þetta eru ekki hinir hefð-
bundu hópar sem eru í skipu-
lögðum hópferðum, heldur fólk
sem gerir meiri kröfur.
Gunnar sagði einnig mikla
aukningu í veitingasölunni hjá
þeim, auk þess sem stöðug aukn-
ing væri í funda- og ráðstefnu-
haldi á hótelinu enda hefðu þeir
lagt sig sérstaklega eftir því.
Á Hótel Akureyri fengust þær
upplýsingar að ágæt nýting hefði
verið á hótelinu í sumar. Sérstak-
lega hafa júlí og það sem af er
ágúst verið góðir mánuðir og útlit
fyrir að áframhald verði á því.
Skipting milli útlendinga og
íslendinga hefur verið nokkuð
jöfn í sumar, þó voru áberandi
margir útlendingar þar í júli. Að
sögn hefur veitingasala þar einnig
gengið ágætlega, sérstaklega á
kvöldin.
Ekki náðist í Arnfinn Arn-
finnsson á Hótel Varðborg. VG
Náttfari hinn nýi björgunarbátur Björgunarsveitarinnar Garðars á Húsa-
vík. Ekki á að þurfa nema nokkrar mínútur til að komast af stað ef neyðar-
Norðurland:
Áhugi fyrir
að flýta
göngum
Áhugi virðist nú fyrir því að
göngum á komandi hausti
verði flýtt og slátrun hefjist því
fyrr nú en verið hefur. Þetta er
til athugunar hjá nokkrum
búnaðarsamböndum hér á
Norðurlandi en t.d. í Svarfað-
ardal hefur verið ákveðið að
flýta göngum um eina viku.
Hreiðar Karlsson, kaupfélags-
stjóri hjá Kaupfélagi Þingeyinga,
sagði í samtali við blaðið að ekki
hefði enn verið tekin ákvörðun
um hvort göngum verði flýtt en
stefnt væri að því að hefja slátrun
á Húsavík þann 9. september.
Hreiðar sagðist vona að göngum
yrði flýtt í samræmi við þetta en
þessi umræða væri til komin
vegna þeirrar skoðunar manna
að þetta væri rétt, bæði gagnvart
markaði og beitilandinu.
Hjá Búnaðarfélagi Skagfirð-
inga fengust þær upplýsingar að
ekki væri enn búið að taka
ákvörðun um þetta efni en áhugi
væri meðal bænda fyrir að göng-
um og slátrun verði flýtt. Mun
ákvörðun í málinu verða tekin
síðar í mánuðinum. JÓH
kall berst.
Mynd: IM
Björgunarsveitin Garðar á Húsavík:
Nýr björgunarbátur
tekinn í notkun
í gærkvöld tók Björgunarsveit-
in Garðar á Húsavík nýjan
björgunarbát formlega í
notkun. Var hann vígður í
Húsavíkurhöfn og honum gef-
ið nafnið Náttfari. Báturinn er
nýr 26 feta langur álbátur sem
Hríseyjarferjan:
Farþegaflutningar stóraukast
- 937 manns til eyjarinnar á einum degi
Hríseyjarferjan Sævar setti
met í farþegaflutningum á
sunnudaginn er hún flutti 937
manns til eyjarinnar. „Það
hefur gengið mjög vel hjá
okkur. Og flutningarnir vaxa
hröðum skrefum ár frá ári,“
sagði Smári Thorarensen skip-
stjóri á Sævari.
Fyrstu sjö mánuði ársins hefur
ferjan flutt 28.000 manns til Hrís-
eyjar. í júlí í ár hafa 8900 far-
þegar farið með ferjunni, árið
1986 voru þeir 7800 og árið 1985
voru þeir 5700. Á síðustu þremur
árum hefur orðið 40% aukning á
milli ára í júlímánuði en það er
mesti ferðamannamánuðurinn.
„Hrísey er að verða meirihátt-
ar ferðamannastaður,“ sagði
Smári. Gistinýting á Brekku hef-
ur aukist mikið frá fyrra ári, en
flestir sem til eyjarinnar koma
fara heim samdægurs. Menn
rölta um eyna, borða nautakjöt
og hafa það gott í fallegu
umhverfi. Atak hefur verið gert í
umhverfismálum og búið er að
gróðursetja fjöldann allan af
plöntum.
Smári sagði að ferðamanna-
straumurinn hefði farið seinna af
stað nú í ár, en í fyrra og sagði
hann að veðrið skipti miklu máli
hvað ferðamannastraum til eyjar-
innar varðaði. Ferjan fer 5-6
ferðir á dag frá Árskógssandi til
Hríseyjar, en einnig er ferð til
Dalvíkur einu sinni á dag. „Við
erum alltaf að auka þjónustuna,"
sagði Smári og bætti því við að
þörf væri orðin fyrir nýjan bát og
væru menn að velta þeim málum
fyrir sér. Auk síaukinna farþega-
flutninga eru vöruflutningar
einnig að aukast og sagði Smári
að á milli 3-500 tonn af vörum
væru flutt á mánuði til eyjarinn-
ar.
í sumar er unnið við hafnar-
framkvæmdir á Árskógssandi og
sagði Smári að aðstaða myndi öll
batna til muna er þeim lýkur.
„Við höfum alltaf verið á hrak-
hólum á Sandinum. Það er svo
lítið pláss að við komumst stund-
um ekki að fyrir heimabátunum.
Þetta bætir aðstöðuna stórkost-
lega,“ sagði Smári. mþþ
smíðaður var í Noregi og kost-
aði um 2 milljónir króna. Bát-
urinn er byggður frá grunni
sem björgunarbátur þannig að
í honum eru mörg flothólf sem
gera hann mjög öruggan og
færan í flestan sjó.
í bátnum eru tvær 100 hestafla
utanborðsvélar og getur gang-
hraði orðið allt að 40 sjómílur á
klukkustund. Hann er útbúinn
með fullkomnum siglingatækj-
um, lóran, radar og talstöð auk
þess sem til stendur að kaupa í
hann miðunartæki. Þá er í bátn-
um sjúkrakarfa og annar nauð-
synlegur björgunarbúnaður.
Verður hægt að flytja allt að 4-5
slasaða menn í einu.
Jón Kjartansson, formaður
Björgunarsveitarinnar Garðars,
sagði að bátur þessi breytti mjög
miklu fyrir björgunarsveitina sem
og þá sem þyrftu á aðstoð hennar
að halda. Smábáta- og sportbáta-
útgerð hefði farið mjög vaxandi
upp á síðkastið og menn hefðu
verið farnir að hafa áhyggjur af
því að hafa ekki slíkan bát til
reiðu, en hingað til hefur sveitin
þurft að treysta á litla gúmmí-
báta.
Jón sagði að þegar væri hafin
þjálfun á sérstökum áhöfnum á
bátinn. Verður lögð áhersla á að
þeir sem fari með bátinn kunni til
verka og hafi réttindi. Er gert ráð
fyrir að þjálfaðar verði fjórar
áhafnir þannig að alltaf verði lið
til taks ef til kemur. JHB
Siglufjörður:
Mikið
landað
Laust fyrir helgina landaði
Siglflrðingur 170 tonnum af
heilfrystum flökum á Siglu-
flrði. Var flökunum skipað
beint yfir í flutningaskipið
Hrísey.
Stapavíkin kom til Siglufjarðar
á fimmtudag með 60 tonn og þar
hafði aflinn einnig verið frystur
um borð.
Á föstudag voru rækjubátarnir
allir nýfarnir út eftir hlé það er
gert var á veiðunum og voru þeir
væntanlegir um eða eftir helgina.
Rækjuveiðarnar hafa gengið
mjög vel hjá Siglfirðingum það
sem af er sumri og eru nú búið að
landa vel yfir 2000 tonnum af
rækju. Mikil vinna er nú á Siglu-
firði, eða eins og einn við-
mælandi blaðsins orðaði það:
„Það er helst unnið hér alla daga
og væri hægt að vinna á nóttunni
líka ef það væri nóg fólk.“ JHB