Dagur - 02.09.1987, Side 3
2. september 1987 - DÁGUR - 3
Verða færri símaskrár gefnar út á næsta ári?
Reglur hafa verið
hundsaðar
- Ef við missum augiýsendur úr skránni
verða símnotendur að borga með henni,
segir Ársæil Magnússon
umdæmisstjóri Pósts og síma á Akureyri
Margir Akureyringar eiga á
símaborði sínu þetta þrjár
til fjórar símaskrár. Mikil
gróska var í útgáfu þessara
skráa nú á vordögum. Póstur
og sími hefur einkaleyfi á
útgáfu símaskrár, en sam-
kvæmt reglugerð frá ráðuneyti
er þeim sem gefa út svæðis-
bundnar símaskrár gert að
Ijósrita síður upp úr henni og
birta óbreyttar. Þrjár síma-
skrár komu út á Akureyri auk
hefðbundinnar skrár Pósts og
síma, en skyldi verða einhver
breyting þar á?
Ársæll Magnússon umdæmis-
stjóri Pósts og síma á Akureyri
sagði að í a.m.k. tveimur tilfell-
um hefðu reglur varðandi útgáfu
símaskrár verið hundsaðar, þeg-
ar auglýsingar sem eru í skrá
Pósts og síma voru felldar út og
aðrar settar í staðinn.
Ársæll sagðist hafa tilkynnt um
þetta til ráðuneytis, en ekki hefur
verið rætt til hvaða aðgerða verð-
ur gripið. „Ég hef ekki trú á að
leyfi til útgáfu verði gefið áfram,
þó að um það verði sótt,“ sagði
Ársæll.
„Ástæðan fyrir því að þessar
reglur voru settar eru þær að
Póstur og sími vill halda auglýs-
ingum í símaskránni. Ef við miss-
um auglýsingar úr skránni þýðir
það að símnotendur verða að
borga með henni. Við erum fyrst
og fremst að gæta hagsmuna
símnotenda, en hingað til hefur
símaskráin nokkurn veginn stað-
ið undir sér,“ sagði Ársæll, en í
reglugerðinni er kveðið á um að
þeir auglýsendur sem auglýsa í
símaskránni skuli ekki bera
kostnað af auglýsingum sem birt-
ast í sérskrám.
Ái„æll sagði að mikil vinna
lægi að baki áður en símaskráin
væri gefin út og væri kappkostað
að hafa hana eins vandaða og.
rétta og kostur væri. Á fyrstu dög-
um sérútgáfunnar voru skrárnar
ekki ljósritaðar úr símaskrá held-
ur settar upp á nýtt. „Þetta hafði
í för með sér mikil óþægindi fyrir
marga símnotendur því það kom
fyrir að númer víxluðust,“ sagði
Ársæll. Fyrir nokkrum árum lá
við málaferlum vegna þessa, er
vaktavinnumaður nokkur fékk
inn á sig skólasíma og var iðulega
hringt til hans snemma á morgn-
ana til að tilynna veikindi barna.
mþþ
Hátíðarhöldin:
„Garðurínn
litur vel út“
- segir Árni Steinar Jóhannsson
„Jú, við sem höfðum veg og
vanda af þessu erum mjög
ánægðir með hvernig til tókst.
Við erum ákaflega þakklátir
öllum sem hafa lagt hönd á
plóginn. Dagskráin stóðst til-
tölulega vel, bæði hvað varðar
tíma og atriði,“ sagði Her-
mann Sigtryggsson um afmæl-
ishátíðina sl. laugardag.
Árni Steinar Jóhannsson tók
undir þessi orð og sagði að
umgengnin í Lystigarðinum hefði
verið mjög góð þrátt fyrir hinn
gríðarlega fólksfjölda, en giskað
er á að um 5000 manns hafi lagt
leið sína í garðinn þetta kvöld.
„Garðurinn lítur ágætlega út.
Þegar búið var að taka til kom í
ljós að engar teljandi skemmdir
höfðu orðið. Pað er helst grasið
og einstaka beð sem fékk að
kenna á mannfjöldanum en
blómin eru náttúrlega búin að
blómstra og farin að búa sig un'dir
veturinn þannig að þetta var á
mjög góðum tíma fyrir þau,“
sagði Arni Steinar.
„Að vísu má segja að þetta
hafi farið örlítið úr böndunum út
af mannfjöldanum, en kannski er
það gott líka. Við áttum alls ekki
von á svona mörgu fólki," sagði
Árni Steinar að lokum. SS
Samvinnuferðir/Landsýn:
Kvennaferðir í okt.
Samvinnuferöir/Landsýn skipu-
lagði „kvennaferð“ til Glas-
gow síðastliðinn vetur. Ferðin
tókst afburða vel og komust
færri með en vildu. Nú hefur
SL skipulagt „kvennaferð“ til
Amsterdam og verður þetta
ferðalag með svipuðu sniði og í
fyrra.
Ásdís Árnadóttir, deildarstjóri
SL á Akureyri, sagði í samtali við
Dag að þetta yrði sex daga ferð
og haldið af stað þann 5. októ-
ber. „Fargjaldið er einstaklega
hagstætt þegar við höfum í huga
hvað er innifalið. Hver og ein
þarf að greiða 22.700 krónur, en
innifalið er - auk flugfars Akur-
eyri Amsterdam - gisting á 4rá
stjörnu hóteli í hjarta borgarinn-
ar, öll gjöld svo sem flugvallar-
skattar, akstur til og frá flugvelli
og gisting og morgunverður á
Hótel Loftleiðum nóttina áður en
lagt er af stað. Konurnar verða
ekki skildar eftir bjargarlausar
því SL leggur að sjálfsögðu til
fararstjóra,“ sagði Ásdís. „En ef
konur jafnt sem karlar vilja fara
t.d. til Glasgow þá er rétt að það
komi fram að SL býður nú upp á
sérstaklega ódýrar ferðir til
Glasgow."
Hann Anton Finnsson hefur um árabil starfað hjá Slippstöðinni, en þar var
þessi mynd tekin. Mynd: tlv
Afmælishaldíð:
Bærinn
fékk góðar
gjafir
Akureyrarbæ bárust margar
góðar gjafir á 125 ára afmælinu
og verða þær til sýnis á Amts-
bókasafninu næstu daga. Auk
gjafa fékk bærinn heillaóska-
skeyti og blómakörfur víðs
vegar að.
Meðal gjafa má nefna að
Útvegsbankinn hf. gaf 100 þús-
und kr. til félagsstarfs aldraðra á
Akureyri, Starfsmannafélag
Akureyrarbæjar gaf blómakörfu
og gróðursetningu á 1.000 trjá-
plöntum í Nausta- og Hamra-
borgum og Dalvíkurbær gaf Sögu
Dalvíkur í fjórurn bindum.
Þá færði Ólafsfjarðarbær
Akureyringum myndverk í tré er
nefnist Afmælisbarn, hreppsfé-
Iögin við Eyjafjörð gáfu rósa-
kvartsstein úr Dyrfjöllum, bæjar-
stjórn Húsavíkur gaf málverk eft-
ir Sigurð Hallmarsson og borgar-
stjórn Reykjavíkur gaf bænum
málverk. SS
ÍQNSYNING1987
í 'mómmuimik akuwri
28. ÁGÚST - 6.SEPTEM8ER
MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER
18.00 HEIMSÓKN f SLIPPSTÖÐINA HF
20.00 STÓRSVEIT SÝNINGARINNAR LEIKUR FYRIR GESTI