Dagur - 02.09.1987, Page 11
2. september 1987 - DAGUR - 11
„Næg verkefni
framundan
- segir formaður fjórðungssambandsins
Valtýr Sigurbjarnarson
Eftir að Yaltýr Sigurbjarnar-
son, formaður Fjórðungs-
sambands Norðlendinga hafði
slitið þinginu á fimmtudaginn
náðum við tali af honum.
Nokkuð mörg mál komu upp í
umræðunni á þinginu, sum
hver breyttust nokkuð í
umfjöllun nefnda og í almennri
umræðu en önnur voru afgreidd
nánast aðfinnslulaust frá
nefndum. En hvernig finnst
formanni fjórðungssambands-
ins þingið hafa verið?
„Eins og ég sagði í mínum
lokaorðum á þinginu, þá finnst
mér gott að hér skuli hafa farið
fram umræður um starfsemi
fjórðungssambandsins og menn
skyldu tala tæpitungulaust. Hins
vegar finnst mér ekki hafa verið
gerðar ályktanir hér sem rista
mjög djúpt og ég hef ekki trú á
að þessa þings verði minnst fyrir
tímamarkandi ákvarðanir.“
- Áttirðu von á átakameira
þingi?
„Nei það held ég ekki. Þetta
þing var svipað því sem maður
bjóst við. Hér fór fram almenn
umræða um ýmis þjóðfélagsmál
og það er af hinu góða að sveit-
arstjórnarmenn hittist og beri
saman bækur sínar, sýni sig og
sjái aðra.“
- Hvernig finnst þér árangur
af starfi sambandsins hafa verið á
síðustu árum? Er hann í sam-
ræmi við vonir?
„Þetta er alltaf erfitt að meta
en það er ljóst að árangurinn er
töluverður. Ég held að enginn
efist um að eitthvert gagn er af
sambandinu en menn velta þvi
mjög eðlilega fyrir sér hverju
verði þetta er keypt.“
- Áttu von á að starfsemi sam-
bandsins verði á svipuðum nótum
á næstu árum?
„Já, svona samstarf breytist
alltaf og eins og öll félög hlýtur
ist svæðisbundið samstarf sveitar-
félaga um tiltekin verkefni og
myndi þannig stærri einingar.
Fjórðungsþingið telur álitsgerð
stjórnskipaðra nefnda um breytt
verkefna- og fjármálaskil á milli
ríkis og sveitarfélaga vera grund-
völl til umræðu um næstu sporin í
tilfærslu verkefna frá ríkinu til
sveitarfélaga. Hins vegar leggur
fjórðungsþingið áherslu á að
áður en ákvörðun verður tekin
um breytt verkefna- og fjár-
málaskil þurfi að liggja fyrir tölur
um áhrifin á stöðu einstakra
sveitarfélaga. Rétt þykir að
benda á að sú leið er ófær að
skerða tekjur sveitarfélaga úr
jöfnunarsjóði þeirra vegna
útgjalda ríkissjóðs. Fjórðungs-
þingið telur að sveitarfélögin eigi
að taka við auknum verkefnum
og því sé aðkallandi að á næst-
unni verði stigin spor í þá átt að
færa þau til þeirra, ásamt tilsvar-
andi tekjum.
Fjórðungsþingið telur að sam-
fara tilflutningi á verkefnum frá
ríki til sveitarfélaga þurfi að
skoða nánar ýmsar hugmyndir
um þriðja stjórnsýslustigið til að
leiða í ljós hvort að hugsanleg til-
koma þess sé sú leið sem best er
til að færa aukið vald og þjónustu
út um landið.“
Við þessa tillögu nefndarinnar
barst ein viðaukatillaga sem einnig
sambandið að taka breytingum.
Tíðarandinn breytist, það koma
nýir menn og nýir siðir og það
þjóðfélag sem við lifum í í dag er
ekki sama þjóðfélagið og það
þjóðfélag sem við lifðum í fyrir
tíu árum. Því hlýtur og verður
sambandið að breytast í takt við
tíðarandann ef það á að eiga sér
lífsvon. Ég hef ákveðnar hug-
myndir um breytingar sem ég
mun leggja fyrir fjórðungsstjórn
að gerðar verði fyrir næsta fjórð-
ungsþing. Þessar breytingar
varða m.a. þingsköp og miða að
því að mál geti gengið með greið-
ari hætti í gegnum þingið og
afgreiðsla þeirra verði auðveld-
ari, ennfremur sem að breytingar
miða að því að nefndirnar nýtist
betur, ef möguleiki er á því.“
- Hvcr telur þú vera brýnustu
verkefni framundan?
„Verkefnin eru næg framund-
Sigurgeir Sigurðsson flytur fram-
söguerindi sitt um breytt verkefna-
og fjárhagsskil ríkis og sveitarfé-
laga.
var samþykkt. Hún er svohljóð-
andi:
„Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Dalvík 26.-27. ágúst
1987 beinir því til fjórðungs-
stjórnar að hún hafi forgöngu um
að gerð verði úttekt á áhrifum til-
lagna um breytta verkaskiptingu
fyrir sveitarfélög á Norðurlandi g
að þeirri úttekt verði hraðað svo
sem kostur er.“ JÓH
Valtýr Sigurbjarnarson, formaður
Fjórðungssambands Norðlendinga.
an og það má nefna eitt dæmi
sem er verkaskipting ríkis og
sveitarfélaga. Þetta þing er búið
að fela fjórðungsstjórn að láta
vinna upp tilteknar upplýsingar
fyrir sveitarfélögin til þess að þau
átti sig á staðreyndum og geti
gert sér grein fyrir hvað þessar
tillögur þýða. Sérstaklega á þetta
við um minni sveitarfélögin sem
ekki hafa bolmagn til að láta gera
mikla könnun á því hvað þessar
tillögur raunverulega þýða í
krónum talið. Þetta er mikið
verkefni og mjög þýðingarmikið."
- Er staða minni sveitarfélag-
anna slæm?
„Já, að sumu leyti. Þó held ég
að sambandið sé þeim hvað
mikilvægast. Það er áreiðanlega
að ýmsu leyti meira virði fyrir
minni sveitarfélögin að hafa sam-
bandið til samstarfs, skrafs og
ráðagerða en fyrir stóru sveitar-
félögin sem geta verið meira
sjálfstæð og sjálfbjarga um alla
hluti.“
- Þær raddir heyrast að færa
eigi meirihluta reksturs skólanna
út á herðar sveitarfélaganna.
Geta litlu sveitarfélögin bætt
meira á sínar herðar eða leiðir
þetta til þess að sveitarfélög fara
að sameinast í stærri einingar?
„Um þetta eru náttúrlega
skiptar skoðanir. Ég held að
þetta reynist mörgum sveitar-
félögum mjög þungur baggi þeg-
ar í dag, hvað þá ef þau eiga að
taka meira á sig. Það sem skiptir
máli í þessu sambandi er að í
hendur haldist verkefni og
tekjur. Hitt er ég alveg sannfærð-
ur um að til að hægt sé fyrir sveit-
arfélögin að sinna vel vissum
málaflokkurn þá þurfa mörg
sveitarfélög að sameinast og
stækka. Mér finnst bráðnauðsyn-
legt, eins og þetta þing sam-
þykkti, að hugmyndir um þriðja
stjórnsýslustigið séu skoðaðar
nánar og athugað hvað við erum
að tala um með þessu stjórnsýslu-
stigi. Hvaða verkefni eigum við
að fela þessu stjórnsýslustigi og
hvort þessum verkefnum er best
borgið með stofnun þessa stjórn-
sýslustigs.
Ég held að það sé orðið mjög
aðkallandi að menn reyni að fá
gleggri mynd af því um hvað er
verið að tala með þessu þriðja
stjórnsýslustigi. Sveitarstjórnar-
menn hafa skiptar skoðanir á því
hvað felst í þessu. Erum við að
tala um að endurreisa norður-
amtið sem slíkt og það hafi
ákveðið vald yfir vissum mála-
flokkum og til þess sé kosið rétt
eins og til alþingis? Hvað þýða
nýju sveitarstjórnarlögin er varða
byggðasamlög, héraðsncfndir,
landshlutasamtökin og yfir höfuð
um samstarf sveitarfélaga? Þarna
eru viðamiklar spurningar varð-
andi samstarf um viss verkefni
sem mér finnst að þurfi að ná fót-
festu á.“
- Staðgreiðslukerfi skatta
kemur til framkvæmda um næstu
áramót. Eru sveitarfélögin tilbú-
in að taka upp þetta kerfi?
„Þarna hefði undirbúningur
þurft að vera lengra á veg
kominn. Það má alls ekki dragast
að sveitarfélögum sé kynnt þetta
og að menn komi sér niður á það
hvernig samstarf ríkis og sveitar-
félaga á að verða og einnig
hvernig gjaldheimturnar eiga að
vera. Um þetta þarf að fara að
taka ákvarðanir því að tíminn er
naumur sem til stefnu er.“
- Sveitarfélögin hafa orðið
fyrir nokkurri tekjuskerðingu þar
sem að framlög til Jöfnunarsjóðs
sveitarfélaga hafa verið skorin
niður. Eiga sveitarstjórnarmenn
von á enn meiri skerðingu eða
koma nýir tekjustofnar inn í
myndina?
„Það veit maður aldrei. Mér
finnst skerðing á Jöfnunarsjóði
sveitarfélaga forkastanleg og
harma það mjög að þetta skyldi
hafa verið gert. Hins vegar vonar
maður að það bregði alls ekki til
hins verra, vonandi verulega til
hins betra á ný. Auðvitað á ekki
að vera að skerða Jöfnunarsjóð
sveitarfélaga og það er alls ekki
hollt fyrir samstarf ríkis og sveit-
arfélaga þegar slíkt er gert. Með
þessu skapast sundrung og tor-
tryggni milli þessara aðila,“ sagði
Valtýr. JOH
Frá þingi Qórðungssambandsins á Dalvík. Fundarmenn hlýða á framsöguerindi Sigurðar Helgasonar um þriðja
stjórnsýslustigið.
Vörukynningar Mjolkursamlags KEA á iðn-
sýningu á Akureyri 28. ágúst-6. sept. 1987
Ostakarlinn
- besti vinur bamanna kemur á Iðnsýningu
Miðvikudaginn
Fimmtudaginn
Föstudaginn
Laugardaginn
Sunnudaginn
2. september
3. september
4. september
5. september
6. september
kl. 17.00-19.00
kl. 17.00-19.00
kl. 17.00-19.00
kl. 16.00-18.00
kl. 16.00-18.00
Mjólkursamlag KEA
j
Akureyri Simi 96-21400